Þjóðviljinn - 06.11.1962, Page 12
Nýja Laxnessleikritið
##
Prjónastofan
Sólin" komin út
• Nýja leikritið eftir Halldór Kiljan Laxness,'
Prjónastofan Sólin, kom út í gær í tveim útgáfum.
önnur útgáfa er á forlagi
Helgafells, en hin er hjá Máli
og menningu í afmælisbóka-
flokki félagsins.
Prjónastofuna Sólina nefnir höf-
undur gamanleik í þrem báttum.
Leikurinn gerist í forskála
„frönsku villunnar“ nema síðasti
hluti þriðja þáttar á rústum
hermar.
Persónur eru Ibsen Ljósdal,
Sólborg prjónakona, Sine Mani-
bus, Fegurðarstjórinn, Þrídís,
persóna í þrem myndum sem
nefnist La belle dame sans
merci, La plastiqueuse og María
úr Magdölum, Það opinbera,
Líkkistusmiður, Kúabóndi, Moby
Dick, brunalögreala, pípari og
nokkrar fátækar þokkadísir.
Leikritið er 124 bls.
Leikritið verður ekki flutt op-
inberlega hér fyrst um sinn. Af
upplagi þess eru 100 eintök
prentuð á forláta pappír, tölu-
sett og árituð af höfundi.
I gær sendi Helgafell einnig
frá sér aðra útgáfu ritgerðar-
safns Halldórs Laxness Sjálf-
sagðir hlutir, en það hefur ver-
ið ófáanlegt um skeið.
i
Vísnasafn
Loks er komið út hjá Helga-
felli vísnasafn Jóhanns frá
Flögu, Höldum gleffli hátt á ioft.
Fyrra bindi safnsins, Ég skal
kveða við þig vel, var kc.nið
út fyrir alllöngu og hefur það
nú verið bundið með nýja bind-
inu.
f safni þessu hefur Jóhann
dregið saman lausavísur hvaðan-
;m I afmæliS'
útgáfu M og M komin út
• Eins og kunnugt er gefur Mál og menning út 12 nýjar
bækur eftir íslenzka höfunda í tilefni aldarfjórðungsaf-
mælis síns. Fyrsta bókin í þessari útgáfu „Prjónastofan
Sólin“ eftir Halldór Kiljan Laxness er komin út.
Ætlunin var að allar þessar
tólf bækur kæmu út samtímis
um næstu mánaðamót, en sök-
um þess að leikrit Halldórs Lax-
ness er gefið út í samvinnu við
Helgafell þá verður sú bók
nokkru fyrr á ferðinni en hinar.
Afmælisútgáfa Máls og Menn-
ingar kemur út í 530 eintökum
og þar af eru hundrað prentuð
á sérstakan pappír, tölusett og
árituð af höfundi. Þessi útgáfa
er nú þegar uppseld nema hvað
nokkur eintök eru ennþá fáanleg
af árituðu útgáfunni.
Mjög hefur verið vandað til
útgáfu þessara bóka, þær verða
í skemmtilegu broti og band er
miklu skemmtilegra og hressi-
legra en var til dæmis á bóka-
flokki Máls og Menningar. Tólf
listamenn hafa gert kápur bók-
anna; kápu á hið nýja leikrit
Laxness gerði Svavar Guönason,
en hann hefur einnig gert aðra
kápu fyrir útgáfu Helgafells.
Afmælisútgáfan er því sem
næst uppseld eins og áður var
getið, en auk hennar munu þær
VerKsmiðjuvél-
srnar reyn^
ust vel
ellefu bækur sem eftir eru koma
út á forlagi Heimskringlu.
Hinar ellefu
Rétt er að rifja það upp
hverjar hinar bækurnar ellefu
eru, einkum þar eð sumum
bókaheitum hefur verið breytt
síðan boðsbréf var sent út um
útgáfuna. Þórbergur Þórðarson
segir frá hinni einu sönnu ís-
lenzku akademíu í „1 Unuhúsi“.
„Vort land er í dögun“ heitir
ritgerðasafn eftir Einar Olgeirs-
son, Sverrir Kristjánsson lætur
okkur í té „Ræður og riss“ og
Gunnar Benediktsson „Skxáfta-
mál uppgjafaprests". Frá Jóni
Helgasyni koma „Tuttugu erlend
kvæði“ þýdd og stæld, ennfrem-,
ur sér hann um skýringar við
„Tvær kviður fornar“. Stefán
Jónsson hefur skrifað mikla
skáldsögu sem heitir „Vegurinn
að brúnni“, Halldór Stefánsson
smásagnasafnið „Blakkar rúnir“,
og Jóhannes úr Kötlum brýtur
enn nýtt land í nýrri ljóðabók.
Rannveig Tómasdóttir skrifar
ferðasögu „Andlit Asíu“, Og þá
er ótalin sú bók sem boðuð var
áður: Friðrik Þórðarson, kenn-
ari í grísku og latírtu við há-
skólann í Oslo, hefur tekið sam-
an og þýtt „Grískar þjóðsögur|
og æfintýri".
Tálknafirði 5/11 — Vélar síldar-
og fiskimjölsverksmiðjunnar hér
í Tálknafirði voru settar í gang
í gær í fyrsta skipti eftir stækk-
un vcrksmiðjunnar og reyndust
þær eins og vonir stóðu til.
Landssmiðjan sá um fram-
kvæmdir við stækkun og breyt-
ingar á verksmiðjunni og stóðu
þær yfir í mánaðartíma. Einnig
var reistur nýr lýsisgeymir sem
tekið getur 130 lestir.
Afköst beinamjölsverksmiðj-
unnar eftir stækkunina verða
um 714 tonn eða 150 pokar á
sólarhring.
Af síld á að vera hægt að
bræða 400—500 mál á sólar-
hring en auka má þau afköst
með því að stækka sjóðara og
pressur. Þurrkarinn í verksmiðj-
unni er gerður fyrir 1000 mála
afköst á sólarhring. — JE.
Rafhlöður
Mariners
bilaðar
PASADENA, Kaliforníu 1/11
— Komiö hefur í Ijós að sól-
arrafhlöður bandaríska Ven-
usarfarsins Mariners II. eru
bilaðar og kann svo að fara
að geimfarið geti ekki leyst
af hcndi þau verkefni sem
því hafði verið ætlað að gera.
Þó standa vonir til að venju-
legar rafhlöður sem geimfar-
ið hafði með sér geti hlaupið
í skarðið, ef sólarrafhlöðurn-
ar komast ekki aftur í lag.
Halldór Laxness
æva af landinu frá ýmsum tím-
um. Einskorðar hann sig við
vísur ortar undir rímnaháttum.
Vænir di
vestra
Þúfum 26/10 — Slátrun er lok-
ið fyrir nokkru hjá Kaupfélagi
ísfirðinga, og var siátr.að á
tveimur stöðum. á ísafirði og í
Vatnsfirði. Meðalþungi þeirra
dilka, sem slátrað var á ísa-
firði var 15.2 kg, en í Vatns-
firði 16 kg. Hæsta meða,]vigt af
innieggjendum á ísafirði hafði
Hallgrímur Jónsson Sætúni. 19.7
kg. í Vatnsfirði hafði hæsta
meðaivigt séra Baldur Vilbelms.
son, 17.2 kg. Þess má geta, að
hans fé gengur úti aljan vetur-
inn í eyju einni.
f ótíðinni síðastliðnar tvær
vikur hefur víða fennt nokkuð.
Vegir eru nú ófærir á Snæfjalla-
strönd og fénaður allur á húsi
þar. — ÁS-
Þriðjudagur 6. nóvember 1062
27. árgangur — 142. tölublað.
FélagsJómar dæm■
ir í læknamálinu
Félagsdómur kvað í
gær upp úrskurð um frá-
vísunarkröfuna, sem
@ Hesturinn var fyrr á tímum þarfasti
þjónn alþýðu, þó að hlutverk hans hafi
minnkað við aukna vélvæðingu í landinu.
@ 1 víðari skilningi má lita á sterkt
málgagn alþýðu gegna sama hlutverki, en
aukin samkeppni í blaðaheiminum krefst
hinsvegar bætts vélakosts og aukinnar
tækni, sem kostar mikið fé.
@ Engum er Ijósara en okkur, þegar
hart sverfur að alþýðuheimilum á þesum
viðreisnartímum, hve erfitt er að láta fé
af hendi rakna, cn aldrei hefur íslenzk
alþýðu svikið málgagn sitt, þegar mikið
hefur verið í húfi.
@ Raunar uppsker hún ávexti sína í
sterkara málgagni gegn stórtæku auðvaldi
og réttir við hag sinn.
@ Rétt er að bcnda á það hagræði að
skipta hlut sínum í fleiri en cinn áfanga
og tekur skrifstofa happdrættisins, Þórsgötu
1 á móti slíkum innleggum og er hún op-
in hvern virkan dag frá kl. 10 til 7 síð-
dcgis. Símanúmer skrifstofunnar cru 22396
og 19113.
Veturínn tók
með leiftursókn
uppi var höfð í lækna-
málinu svonefnda. Var
krafan ekki tekin til
greina, þannig að réttur-
inn mun leggja efnisdóm
á málið.
1 úrskurði Félagsdóms er það
eigi talið hamla því að dómur-
irm fjalli um dómkröfumar sem
gerðar eru í málinu þó að upp-
sagnir læknanna hafi farið fram
í aprílmánuði s.l., áður en lög
nr. 55/1962 tóku gildi. Ennfrem-
ur segir svo í forsendum úr-
slcurðarins:
„1 2. gr. laganna segir að fjár-
málaráðherra fari með fyrirsvar
ríkissjóðs að því er varðar kjara-
samninga og aðrar ákvarðanir
af hendi ríkisvalds samkvæmt
lögunum, og í 3. gr. er svo
mælt að Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja fari með fyrir-
svar ríkisstarfsmanna um kjara-
samninga og aðrar ákvarðanir
skv. sömu lögum, Eru fjármála-
ráðherra vegna ríkissjóðs og
BSRB þannig samningsaðiljar
um launakjör og aðrar ákvarð-
anir í því sambandi. Læknar
þeir sem sögðu upp stöðum sín-
um 12. og 13. aprfl s.l. og sem
stefnt er í máli þessu, voru
allir ríkisstarfsmenn, sem 1. gr.
laga nr. 55/1962 tekur til, er
þau lög gengu í gildi, og varð
BSRB þannig samningsaðili
þeirra vegna um launakjör sbr.
4. gr. sömu laga, og fyrirsvars-
j aðili þeirra að lögum um aðrar
j ákvarðanir af þeirra hálfu í
sambandi við launakjör þeirra.
Skv. þessu og ákvæðum 3. mgr.
25. gr. nefndra laga var stefn-
anda rétt að beina gegn nefndu
bandalagi sem löggiltum fyrir-
svarsaðilja hinna stefndu lækna
málssókn út af því, að þeir hafi
eigi í launakjaradeilu fylgt fyr-
irmælum laga nr. 55/1962 Skv.
25. gr. laganna dæmir Félags-
dómur í málum, sem rísa á
milli samningsaðilja út af brot-
um á þeim lögum og með því
að hér er um þesskonar ágrein-
ing að ræða, er því réttilega
stefnt fyrir Félagsdóm".
HALLORMSSTAÐ 5/11 — Vet-
urinn tók völdin hér eystra með
leiftursókn, og hefur ekki komið
svona snemma síðan 1940. Sókn-
in hófst með hörkuáhlaupi fyrri
laugardag (27. okt.). Ofli það
strax bilunum á raflínum, t.d.
varð þá rafmagnslaust í Eiða-
þinghá. Svo var hvassviðrið mik-
ið, að raflínustrengimir snerust
saman. Ófært varð þá um alla
fjallvegi.
Raflínur slitna
Á mánudaginn í fyrri viku
gerði svo mikla fannkomu með
frosti. Slitnaði þá raflínan milli
Egilsstaða og Hallormsstaðar
vegna ísingar. Fyrstu tvo dagana
var ekki hægt að athafna sig til
viðgerða fyrir veðrinu, og á efsta
hluta veitunnar, Hallormsstað
or nágrenni, var rafmagnslaust
í þrjá sólarhringa. Vegir í byggð
urðu ófærir, og fyrst s.l. laugar-
fm ®j| 1 3 mWÍ 1 f4 m
Takmarkið er þetta: fyrir 25. nóvember! 1000 nýir óskrif endur Safnið óskrifendum!
dag var rudd jeppabraut frá
Grímsá niður að Egilsstöðum.
Fjóra sólarhringa 3ja tíma leið
Þann dag kom til Egilsstaða
bílalest að norðan, fimm vöru-
flutningabílar og þrír fólksbílar.
Hægt hafði gengið þeirra f„rð,
því að 9 dagar voru liðnir frá
því þeir komu að Grímsstöðum
á Fjöllum. Sunnudaginn 28. okt.
komu þeir að Möðrudal, og það-
an lögðu þeir upp á þriðjudags-
kvöld og höfðu sér til hjálpar
jarðýtu, stóran trukk og veghef-
il. Til Egiisstaða náðu þeir svo
á laugardaginn, sem fyrr segir.
Að sögn eins bílstjórans var
ekki mikill snjór á heiðinni, en
mjög mikill á Jökuldalnum. Frá
Möðrudal til Egilsstaða er ró-
leg 3ja tíma ferð að sumarlagi.
Veturinn kom að óvörum
Talsvert mun hafa fennt af
fé hér um slóðir, og hafa bænd-
ur verið að leita það uppi und-
anfarna daga, en ekki er vitað
j hve margt hefur týnzt. Segja
má, að menn hafi verið algjör-
lega óviðbúnir þessum vetraré-
hlaupum. Snjóbílar eru til á
Seyðisfirði, Egilsstöðum og á
Reyðarfirði, en enginn þeirra
var í lagi. Einn bílstjóranna.
sem var í fyrmefndri bílalest,
hefur til umráða snjóbfl, og
1 hafði hann meðferðis vél í bfl-
inn og vinnur nú að því að setja
hana í hann.
1 dag og í gær hefur verið
sæmilegasta veður. Snjórinn er
að þjappast, og er auðvelt að
leggja jeppaslóðir. — sibl —
Engin friðar-
verðlaun í ár
OSLÖ 5/11. — Nóbelsverðlauna-
nefnd norska Stórþingsins til-
kynnti í dag að samkomulag
hefði orðið innan hennar að út-
hluta friðarverðlaunum Nóbels
ekki í ár.
Ulbricht farinn
heim frá Moskvu
MOSKVU 5/11, — Walter UI-
bricht, forseti Austur-Þýzkalands,
sem undanfama daga hefur
dvalizt ásamt nokkrum ráðunaut-
um sínum í Moskvu til viðræðna
við sovétstjórnina hélt heimleiðis
í dag. Ýmsir aðrir leiðtogar sós-
íalistísku ríkjanna hafa verið I
Moskvu síðustu daga, þ.á.m.
pclski flokksforinginn Gomulka
og sá tékkneski Novotny.
Sósíalístafélagsfundu
n,k. fímmtudagskvöl
SÓSÍALISTAFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur félags-
fund í Tjarnargötu 20 fimmtudaginn 8. nóvember kl. 8,30.
Á dagskrá fundarins er kosn-
ing fulltrúa félagsins á flokks-
þing Sósíalistaflokksins og einnig
xærða rædd félagsmál.
Félögum skal bent á að frest-
ur til að skila tillögum um
fulltrúa á flokksþingið rennur
út annað kvöld, miðvikudag, kl.
7.
Félagar eru minntir á að sýna
skírteini við innganginn.
¥