Þjóðviljinn - 18.11.1962, Síða 10
10 SÍÐA
í*.K>BVn,JINN
Sunnudagur 18. nóvember 1982
CHARLOTTE
ARMSTROHO:
GEGGJUN
Skapgerðarafbrigðin fjðgur
væri uppbrett. Það v,ar að
minnsta kosti engu iíkara, sagði
hann, en það væri í þann veg-
inn að brettast upp.
Hún hafði lagt höndina með
rósrauðu nöglunum á vinstra
handlegg hans og þrýsti þeim
niður í svart klæðið og Pétur
rétti fram hægri höndina og
strauk um hönd hennar. Svo
stóðu þau við innganginn. Þarna
vóru karlmenn klæddir í svart
og hvítt, konur í ölJum regnbog-
ans litum, blóm, borð og stólar
eins og dílar um allt góJfið. en
það sem mest bar á var Janga,
hvíta tærðið, þar sem hún vissi
að ræðumenn kvöldsins áttu að
sitja.
—Pétur O. Jones, sagði maður
hennar lágri röddu við emhvem.
Svart bak var beygt. Þau eltu
bakið að borði ræðumannanna
og Rut sá að allir viku fyrir
þeim og andlitin sem að þeim
sneru mörkuðu leið þeirra eins
og blóm sem stráð var fyrir
fætur þeirra.
Maður gekk til móts við þau
og rétti fram höndina. — Pétur
O. Jones .... sagði hann glað-
ur. — Má ég kynna ..... — Af-
sakið, en þetta er .... — Gott
kvöld, sælir. *— Og hér kemur
herra Jones ..... Nú stóðu þau
í miðjum hóp af fólki. Samt sem
áður þokuðust þau hægt og síg-
andi að t>orði ræðumannanna.
Pétur var svo viðfelldinn í
framkomu. Það voru svo. marg-
ir sem vissu hver hann var. Rut
reyndi eftir megni að halda still-
ingu sinni, að nauna nöfn í sam-
bandi við andlit Þetta var skrít-
ið .... en skemmtilegt!
Jed og I,yn sátu enn í veit-
ingahúsinu. Þau voru búin að
fá kaffi. konjak og meira kaffi
og höfðu reykt margar sígarett-
ur. Þau gátu ekki slitið sig laus
.... fengu sig ekki til að fara
í leikhús. Þeim var Jjóst að þau
urðu að taka einhverja ákvörð-
un. Ef til vllJ tækist þeim það
ekki, en þau yrðu samt að gera
málin upp við sig. Nú var Jed
jafn sannfærður og Lyn um að
það væri óhjákvæmilegt.
Þau gerðu sér bæði far um að
halda róseminni.
Þau voru næstum komin að
endamörkum núna og á ein-
hvern undarlegan hátt voru þau
búin að fá drottin með í sam-
talið.
— Ég veit bara. sagði hann.
— að drottinn er ekki sama per-
sóna og jólasveinninn. Þú hef-
ur rugíað þeim saman. telpa
mín. Jólasveinninn opnar pok-
ann sinn fyrir þig. ef þú hefur
verið þ®g og góð stúlka. En ég
held annars að þessir tveir
standi ekki í neinu sambandi
hvor við annan.
Hann lyfti brúnum.
— Þú trúir ekki á hokkurn
skapaðan hlut. sagði hún þreytu.
lega.
— Ég er ekki að ansra siálf-
an mig með bví að brióta heil-
ann um það Hann ypnti öxl-
um.
— Jed, ég er bara að reyna
að segja ..... Hún gerði sér far
um að vera blíðleg — Að mis
hefði langað til ... já. þú mátt
,svo sem kalla það það 'sem þér
sýnist — að mio hefð> langað
svo til að þú hefðir gefið gamla
manninum skildine Það skiotir
ekki endilega máli hvort. hann
þurfti á honum að halda eða
ekki. Það hefði verið betra fvrir
okkur að þú hefðir gert það.
— Þvættineur. Lyn Þetta er
tóm vitleysa.
— Nei, síður en svo.
Ö’l hin innibyrsða srremia hans
fékk útrás. svo að rödd hans
brast: — Þetta er hlæeilegt!
Hún hafði svo lengi setið á
sér og nú brann eldur úr aug-
um hennar — Það er gaman
að hevra að þér skuli finnast é.g
hlægileg.
— Það er kannski alls ekki
svo afleitt að ger,a slíka upp-
götvun, sgði hann kuldalega. —
Mundu, að þú talaðir um ó-
merkilega kaldhæðni i sambandi
við mig.
— Kannski er það líka alveg
rétt, sagði hún stutt í spuna.
— Það getur aldrei orðið mitt
hlutverk, Lyn, hann reyndi eftir
megni að vera sanngjam, að
auka tekjur bláókunnugs manns,
— manns sem ekki hefur gert
neitt fyrir mig.
— Það er ekki um neitt hlut-
verk að ræða. Þama er það sam.
úðin sem kemur til greina.
— Ég gef skít fyrir þess hátt-
ar samúð. Ég mun sjálfur vinna
fyrir því sem ég ......
— Það er ekki alltaf sem það
er hægt. Fólk getur verið bjarg-
arlaust .... án eigin tilverkn-
aðar .....
— Það er nú einu sinni þann-
ig, að maður fær það sem mað-
ur borgar fyrir og borgar fyr-
ir það sem maður vill fá. Þetla
lærirðu siálfsagt þegar þú verð-
ur fullorðin.
— Ef þú værir matarþurfi ......
eða þig vantaði samastað .....
— Þá myndi ég snúa mér til
þeirra stofnana sem sinna sjíku
og viðurkenna svonefnt bjarg-
arleysi og rannsaka meira að
segja hvort það hefur við rök
að styðjast. Ég myndi aldrei ætl-
ast til þess að ókunnugur mað-
ur úti á götu færi að borga mér
peninga. Hví skyldi hann gera
það? Hvaða ástæðu hefur hann
til að treysta méT? Og þetta er
sem sé gagnkvæmt. Maður verð-
ur að bjarga sér sjálfur í þess-
um heimi. annað get ég ekki .....
-— Þetta er ekki satt. Fólk
verður að trúa á ......
— Af hverju?
•— Já af hverju ........ sagði
hún reiðilega. — Fyrir hvað lif-
ir maður eiginlega?,-• «■--uu
— Já. hvað veit ég um það?
Ekki hef ég sett mig í heiminn.
Af öllu fráleitu ......
— Ég held þú ættir að fylgja
mér heim núna.
Þau þögðu bæði.
— Af hverju? sagði hann að
lokum með logandi augu.
— Af því að það er ekki gam-
an lengur.
— Hví skyldi ég fylgj a þér
heim? sagði hann glóandi af
reiði. — Þú getur beðið einhvern
bláókunnugan mann um það.
Hún starði á hann. Hún sagði:
—Þú hefur rétt fyrir þér. Ég
hef ekki hin réttu, örvandi áhrif
á þig ..... og sjálfstraust þitt,
eða hvað? Nú fer ég.
— Lyn .......
— Já, sagði hún kuldalega og
var risin upp til hálfs með káp-
una á herðunum.
— Ef þú ferð núna .........
— Af hverju skyldi ég ekki
fara? Mér finnst ekkert gaman.
— Ef þú ferð núna .........
— Ég veit það ........ þá sjá-
umst við aldrei framar. Var það
ekki það. sem þú ætlaðir að
segja?
— Jú. það var það reyndar.
— Jed, ég vil ógjaman ........
Hún var svolítið eftirgefanlegri
núna, dálítið sveigjanlegri.
•— Seztu þá í hamingju bæn-
um, sagði hann gramur. í þeirri
trú að þetta væri allt um garð
gengið. — Og hættu að tala eins
og hálfviti.
Augnaráðið sem hún sendi
honum var allt annað en glað-
legt. — Góða nótt, sagði hún
lágri röddu.
Hann hallaði sér aftur á bak
i stólnum og fékk sér sígarettu
úr pakkanum. — Hefurðu pen-
inga fyrir leigubíl, eða taktu
þetta. — Hann fleygði fimm doll-
ara seðli á bo.rðið.
Hann sá naestum hvemig hún
sýndi tennurnar og hann fann
að hún hefði helzt viljað berja
hann. Svo hélt hann að hún
ætLaði að fara að gráta,
En hún gerði ekki annað en
fara leiðar sinnar.
Hann sat kyrr og starði á ó-
hrjálegt borðið. Þetta var há-
BIDSTRUP teiknaði fyrir Land og Folk.
BÆTUM FRÉTTAÞJÓNUSTU
OG AUGLÝSINGASTARFSEMI
Flestar launastéttir kvarta
nú mjög undan lélegum lífs-
kjörum og vafalaust ekki að
ástæðulausu.
Hafa sumar þirar jafnvel við
orð að flytja af Iiandi burt og
leita sér lifibrauðs meðal fram-
andi þjóða, sem búa þegnum
sínum betri efnahagsleg kjör.
Vonandi kemur þó ekki til
þess í stórum stíl.
íslenzkir skákmienn geta ekki
krafizt neinna launahækkana.
Ástæðan er einföld: Þeir hafa
engin laun fjrrir að iðka íþrótt
sína, og hafa víst aldrei farið
fram á slíkt.
Það eru víst bara „austan-
t.jaldsmenn", sem launa skák-
meistara sína, og sumir segja
að þeir geri það af illum hvöt-
um og í áróðursskyni. Hvemig
skyldi það annars vera með
þá austantjaldsmenn. Skyldu
þeir ekki draga lífsandann ei*-
göngu í áróðursskyni?
En þótt íslenzkir skákmenn
fari ekki fram á efnahagslegar
kjarabætur, þá finnst þeim
stundum sem forráðamenn
skákíþróttarinnar hérlendis
gætu bætt mjög upplýsinga-
þjónustu og fréttastarfsemi
alla í samba^idi við íslenzk
skákmót. íslenzk skákmót eru
oft svo illa auglýst, að það
nálgast hreina handvömm, og
fréttir af mótum þessum eru
svo stopular, að þær sverja sig
oft fremur í flokka undantekn-
inga en reglu. Þetta gerir það
að verkum t. d. að skákáhuga-
menn utan af landsbyggðinni
geta ekki fylgzt með skákmót-
um hér í Reykjavík nema
koma til bæjarins ogdveljaþar
meðan á mótinu stendur. Eru
þetta harðir kostir, og er eðli-
legt að slíkum mönnum finnist
þeir illa sviknir af þeim
fréttatækjum, blöðum og út-
varpi, sem tekið hafa að sér
að fullnægjafróðleiksfýsnþjóð-
arinnar.
Eðlilegt væri að slík frétta-
tæki ættu frumkvæði að því
að afla sér frétta af innlendum
skákmótum og handlönguðu
síðan þær fréttir snariega út
um landsbyggðina.
En vanræki fréttastofnanir
þetta, þá ber forráðamönnum
skákíþróttarinnar að sjá svo
til að fréttimar séu sendar
reglulega og jafnóðum til
þeirra. Þetta ætti ekki að vera
aftakamikið verk, en ætti á
tiltölulega skömmum tíma að
geta haft heillavænleg áhrif
á þróun skákmála hérlendis.
íslenzk skákmót eiga ekki að
draga dám af samkomum frí-
múrara eða annarra laumu-
samtaka. Þau eiga að vera vel
auglýst, svo að sem flestir eigi
kost á að fylgjast með þeim,
og síðan á að senda fréttir af
þeim jafnharðan með „ame-
rískum hraða“ út' um lands-
byggðina. Og skákáhugamenn,
hvar sem þeir búa eiga að
tilkjmna blöðum og útvarpi, að
þeir heimti meiri skákfréttir.
Eftirfarandi skák var tefld á
skákþingi í Sofíu í Búlgaríu í
sumar:
Hvítt: Ciocaltea (Rúmenía).
Svart: Tringov (Búlgaríu).
SIKILEY JAR V ÖRN.
1. e4, c5 2. Rf3, d6 3. d4,
cxd4 4. Rxd4, Rf6 5. Rc3, a6
6. Bg5, e6 7. f4.
(Hugmyndir manna um ein-
staka leiki í skákbyrjunum
taka örum breytingum. Fyrir
svo sem átta árum var þessi
peðsleikur hvíts svo til óþekkt-
ur í þessu byrjunarafbrigði. 7.
Df3 var þá oftast leikið. Nú
þykir hins vegar ljóst, að 7.
f4 sé öflugasti leikur hvíts).
7.------Db6
(Þarna þykisit svartur hitta
naglann á höfuðið. Hann hótar
að drepa peðið á b2, og ekki
er gott fyrir hvítan að fara að
valda það með hrók t. d. fneð
tilliti til langhrókunar í fram-
tíðinni. Hvíta drottningin er
bundin við d-línuna til völdun-
ar riddaranum og ekki sýnist
sérlega gott fyrir hvítan að
leika 8. Rb3, því þá getur
svartur skákað með drottning-
unni á e3. 1 þessari skák tek-
ur þó hvitur þennan síðasta
kost. Algengustu leikimir munu
þó vera 8. Dd2 eða 8. a3 (8.
-----Dxb2? 9. Ra4).
8. Rb3, Rb—d7
(Svartur hirðir ekki um að
skáka á e3 og er orsökin vænt-
anlega sú að hann vill ekki
einfalda taflið um of eða þá,
að hann telur hvítan búa yfir
einhverri nýjung. Eftir 8---
De3f 9. De2, Dxe2f 10. Bxe2,
Rb—d7, telja skákfræðingar
að taflið standi nokkuð jafnt).
9. Df3, Dc7
(í framkvæmdinni hefur þá
-----Db6 reynzt leiktap).
10. 0—0—0, b5 11. a3, Bb7
12. Bxf6, Rxf6 13. f5, exf5
(Ekki væri gott fyrir svart
að leika 13. — — e5. Það
mundi „frysta“ miðvígstöðv-
amar og gefa hvítum frjálsar
hendur til peðaframrásar á
hægra fylkingararmi).
14. Dxf5, Be7 15. Rd5
(Þetta er allvafasamur leik-
ur, og sýnist 15. g4 eigi síður
koma til greina).
15. -----Rxd5 16. exd5, Bf6
17. Bd3, Be5 18. h4
(Hvítur hyggst framkalla
veikleika í stöðu svarts með
þessari framrás h-peðsins).
18. -----Bxd5
(Þetta peð er ratmar óbeint
valdað, en svartur hagnast á
opnun a-Knunnar).
19. Bxb5t, axb5 20. Hxd5,
0—0 21. Hxb5, Dc6 22. Hxb4,
Dxg2
(Möguleikar beggja vega nú
nokkuð jafnt. Hinn öflugi
biskup svarts á e5 kemur til
mótvægis þeirri hættu, sem hin
opna g-lína er kóngi svarts.
Hvítur verður líka einnig að
gæta kóngsstöðu sinnar, eins
og bráðlega kemur, 1 ljós).
23. Hdl, Dc6 24. Kbl, Ha4 25.
Rd4, Da8 26. Rf3?
(Sér hvítur ekki hverju
svartur er að bauka við að
hrinda í framkvæmd, eða held-
ur hann, að svarta drottningiri
hafi farið til a8 sér til hvíldar
og hressingar? Sé svo, þá kemst
hann brátt að raun um, að
þar hefur hann farið villur
vegar).
26. -----IIxa3!
(Þessi snaggaralega hróks-
fórn lá að vísu í loftinu, en
er eigi að síður snotur).
27. bxa3, Dxa3 28. c3
(Eini leikurinn, því ella fell-
ur hrókurinn á b4).
28. -----Dxc3 29. Hb7?
(Slæmur leikur, sem hefði
átt að leiða til taps fyrir hvít-
an.
Eftir 29. De4, Dalf 30 Kc2
virðist svartur varla eiga ann-
að betra en þráskák með 30. —
Dc3f o. s. frv. Því ef 30. Hc8f
31. Kd2 Da2f þá fer kóngur
hvíts til e3 og virðist þar á
nokkuð öruggum stað).
29. -----g6?
(Þar með eru úrslit skákar-
innar ráðin, og stríðsgæfan
snýst endanlega á svedf með
hvítum.
Svörtum stóð vinningur til
boða: 29.------Ha8 30 Dxf7t,
Hh8 31. Da2, Dc8! og veldi
hvíts líður undir lok.
Stríðsgyðjan er brigðlynd
þeim, sem mæta ekki atlotum
hennar á réttu augnabliki).
30. Rxe5I!
(Bráðsnotur drottningarfóm.
Eftir 30.------gxf5 31. Hglt,
Kh8 32. Rxf7t, Hxf7 33. Hb8t
mátar hvítur. Svartur . verður
því að láta sér nægja að drepa
riddarann, en eftir fall bisk-
upsins á e5 er barátta svarts
auðvitað vonlaus, þar sem
hann á hrók minna og aðeins
3 peð því til mótvægis. Hann
er þó ekki á því að gefast upp
fyrr en í fulla hnefana).
30.------dxe5 31. Dd3, Dc6
32. Dd5, Df6 33. De4, h5 34.
Hb5. He8 35. Hcl, Kg7 36.
Hc—c5, He6 37. Kb2, Dfl 38.
Hb7, Hf6 39. Hc2, Hf5 40. Hb8,
Dgl 41. Hd2 Dc5 42. Db4
Hvítur færist nær markinu,
því nú er svartur neyddur í
Drottningarkaup).
42.------Dxb4f 43. Hb4, g5
44. hxg5, Kg6 45. Hg2, Hxg5
46. Hxg5t. Kxg5 47. Kc2, h4
(Það munar ekki miklu að
þetta peð .komist til manns“,
en nægilega miklu þó).
48. Kd3, f5
(48.--------h3 49. Ke3, h2
50. Hbl, Kg4 51. Kf2 er auð-
vitað vonlaust fyrir svartan).
49. Ke3, h3 50. Kf3, e4t 51.
Kg3, e3 52. Hb8, h2 53. Kxh2
og loks gafst svartur upp.
Dramatísk skák.
Sveinn Kristinsson.