Þjóðviljinn - 09.12.1962, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 09.12.1962, Blaðsíða 8
1. Hann vissi ekki hve lengi hann hafði sofið, en sólin var komin upp og náttfallið úr grasinu. Hann var þurr og herptur í kverkum og líkt og timburverkstæði í höfðinu. Hann lá á milli tveggja þúfna með hendur útfrá sér eins og kross og tómur dauði í nokk- urri fjarlægð. Það var áleitni í mýi og sólin skein beint framan í hann. Hann velti sér á hliðina. I>á sá hann hana. Hún skolaði þvott úr lækj- arsytru og hafði stytt sig. Golan hélt að henni klæð- um og augu hans námu vöxt hennar þéttan og ávalan. Hann varð mjög feginn, feginn yfir því að hafa séð hana við lækinn, reis á fæt- ur og rölti til hennar. Halló! Hún leit snöggt upp úr þvottinum, blá augu slegin felmtri og kippti niðrum sig pilsinu. Honum leizt vel á hendur hennar, en hún bar hring á baugfingri hægri handar. Sæl, sagði hann því hún hafði ekki anzað hallóinu og felmtrið enn í augum hennar. Sæll. Má ég drekka? spurði hann og kinkaði kolli til sytrunnar. Þá brosti hún og honum leizt vel á varir hennar, lagð- ist á lækjarbakkann og svalg stórum. Vatnið var tært og svalt. Er hann hafði slökkt þorsta sinn og þurrkurinn f kverk- unum og timbursmíðin í höfð- inu vægari, settist hann í grasið, reykti og virti fyrir sér umhverfið. Þetta var skammt frá sjó, bær, hlaða og peningshús á mararbakka, bátur f vör. Hvað heitir bærinn? Grund. Það er fallegt hérna, sagði hann. Hvernig fiskast? Fiskast? Hér rær enginn. Jæja, hér er þó útlit fyrir gott útræði. Hver á hornið þarna í fjörunni? Maðurinn minn. Og hann lætur hann standa þama, fúna. Hann er fyrir sunnan. Veikur. Ekki er það efnilegt, sagði hann og fann til með henni svona ungri og blómlegri. Og þú baslar þetta ein. Já, sagði hún. Það er ekki um annað að gera. Kannski kemur hann fljót- lega heim. Guð einn veit um það. Hún strauk hár frá augum dálítið roðasleginni hendi. Hún hafði skolað fullan bala og hann sá hún ætti örðugt um vik, balinn fullur og hún ein, og bauð henni aðstoð sína. Hún var á báðum áttum, hélt hún væri einfær með þetta, nokkrar rýjur. Hann skeytti því engu, þreif undir með hennl. Hún hengdi þvottinn á snúru og hann s'tóð yfir henni á meðan. Hún hafði boðið honum kaffi og hann varð ekki var neins fefmturs í blám augum hennar. Börnin voru ekki komin á ról því þetta var árla morg- uns. Þau voru tvö og hún sagði þau hefðu gott af því að lúra frameftir á morgnana. Suðan í katlinum og brum flugnanna í glugganum gerðu hann syfjaðan. Varstu að skemmta þér? Það var kankvíst bros í augum hennar og bunan úr ketilsstútnum regnbogalit í sólinni innum gluggann. Já, hann hafði verið að skemmta sér. Það hafði víst orðið einum of mikið, l.ann var bara eftir sig. Það vill oft verða, sagði hún. Kaffið hennar var gott og hún drakk honum til samlæt- is. Hún var mjög varasöm í orðum og fátöluð. Kannski var hún hrædd, svona eiry, ung og varnarlaus. Hann hugsaði samt ekki til hreyfings eftir kaffið, hallaði sér f stólinn og hljóðlátt bjásfur hennar í eldhúsinu ran/i saman við suð og brum flugnanna í glugganum. Hann hrökk upp við hönd á öxl sér. Vildi hann ekki halla sér? Hvort hann vildi. Hann var alveg úrvinda. Hún bjó honum hvílu á efri hæð hússins, lítið herbergi á kvisti. Það var komið framyfir miðdegi þegar hann vaknaði og konan í heyi þegar hann kom út. Hún var rjóð og vinnuglöð og hafði kastað af sér klæðum ofan mittis. Þegar hann nálgaðist, hirti hún þau af flekknum og klæddi sig flaumósa. En hann hafði séð hana. Hún hafði þrifleg brjóst og axlir og henni hafði ekki unnizt tími til að hneppa að sér treyjunni í hálsmálið. Þetta eru býsn af heyi, Ætlaði hún að hirða? Já, það var ætlunin ef visn- an héldist. Hún hafði hneppt að sér treyjunni og rifjaði af kappi. Hann tók hrífu óbeðinn og gekk í verk með henni. Það sópaði að henni í flekknum og heyið stóð um hana eins og drif í sólinni. Þetta ætlar að verða mikill blessaður dagur. Hún var heit og rjóð og sól- in hélt áfram að skína. Hann lagðist fyrir í flekkn- um og hafði blundað þegar hún kom með kaffi og heitar lummur. Hún breiddi rósótt- an dúk í grasið og renndi í bolla handa honum. Kaffið var svart og sterkt g) — ÞJÖÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.