Þjóðviljinn - 16.12.1962, Blaðsíða 9
Sunnudagur 16. desember 1962
________ cfn& Q
ÞJÓÐVILJINN ----------------“ ---- “
ANDRÉS
ÖND
KYNNIR
KRAKKA-
MYNDIR
Húrra fyrir Nýja bíó! Það
segist ætla að sýna myndina
Allt í lagi, lagsi í síðasta sinn
í dag. Vonandi táknar það að
nú komi einhver alveg ný og
góð krakkamynd, en ekki bara
að það fari aftur að sýna hina
myndina sína, Nautaat í Mexí-
kó. Því ég veit, að þið eruð
öll orðin hundleið á að sjá
alltaf þessar sömu, gömlu
myndir með Abbott og Costello.
Það eru svo sem gamlar
myndir í hinum bíóunum líka,
■ eins og t.d. Átta börn á cinu
ári með Jerry Lewis í Háskóla-
bíó. Jerry karlinn er líka í
Kópavogsbíó í Jói stökkull.
Jerry er nú oft fyndinn og það
er Lou Costelló líka, t.d. í
myndinni Stúlkan sem varð
að risa í Stjömubíó.
Mér þykir nú ekki gaman að
kúrekamyndum — alltaf verið
að skjóta menn og svoleiðis —
það er kúrekamynd í einu bíó-
anna, Lone Ranger og týnda
gullborgin — í Hafnarfjarðar-
bíó, en munið að litlu systkin-
in mega ekki fara á svoleið-
is mynd, því þá verða þau
hrædd. Hins vegar er Flemm-
ing og Kvikk sýnd kl. 5 og það
er ágæt mynd fyrir alla aldurs-
flokka.
Það eru margar ævintýra-
myndir í bíó í dag, skemmti-
legar þótt þær séu gamlar.
Þetta eru Mjallhvít og dverg-
arniir sjö í Gamla bíó, Ævintýr-
ið um Gosa i Laugarásbíó —
hvortveggja teiknimyndir í lit-
um. — þá er Aladín og lamp-
inn í Tónabíó og Tpfrateppið
í Bæjarbíó í Hafnarfirði.
Það er bamasýning á
skemmtilegu, íslenzku myndun-
um hans Kjartans Ó. Bjama-
sonar i Tjamarbæ í dag.
Næst segi ég ykkur frá bfó-
unum um jólin. Kannski verða
þá komnar einhverjar splunku-
nýjar myndir handa krökkum.
Blessuð á meðan!
Andrés.
Breiðfirzkar
sagnir og sögur
frelsarans
Bókaútgáfan Fróði hefur sent
þrjár bækur á markaðinn. Veiga-
mest þeirra er „Breiðfirzkar
sagnir II“, sem Bergsveinn Skúla-
son hefur tekið saman. 1 bók-
inni segir m.a. frá Gerða-
Móra, Júlíusi bónda í Litlanesi,
viðskiptum Jóns Thorberg við
Rauðasandsbola og fleiri breið-
firzkum höfðingjum. Þá segir
frá sjóferðum, slysförum og
dularfullum fyrirburðum. Bókin
er 182 bls. og prentuð hjá
Leiftri.
„Sögur Jesú“ heitir bamabók
forlagsins. Það eru dæmisögur
frelsarans, endursagðar af
danska kennimanninum Kaj
Munk í þýðingu herra Sigur-
björns Einarssonar biskups. Bók-
in er 86 bls., prentuð hjá Leiftri
og myndskreytt af Ragnhildi
Ólafsdóttur.
„Berum höfuðið hátt“ heitir
þriðja bókin. 1 henni eru skop-
teikningar eftir belgíska teikn-
arann Léon með texta eftir
danska húmoristann Willy Brein-
holts. Hún er prentuð í Prent-
smiðju Jóns Helgasonar, en
blaðsíður eru ótölusettar.
KARLMENN!
KARLMENN!
Vitið þér, að óskadraumur sérhverrar konu er
vandaður og fagur skartgripur.
Minnist þess, að dýrgripir úr góðmálmum með
eðalsteinum eru ávallt í fullu gildi og auka sjálfs-
traust konunnar við öll tækifæri.
Þeir ganga oft langt, tízku-
kóngamir, í samkeppninni um
að gera okkur til hæfis og
kynna eitthvað alveg nýtt. Hér
eru tvær myndir frá tízku-
sýningum í London á sL mán-
uði. Á annarri sést hvít-silfr-
aður „kisubúningur" (!) úr al-
veg nýju efni sem heitir
„stretch bri-nylon“ — „tilval-
inn í samkvæmi og til að dansa
Madison í“, segja þeir. Hin
myndin sýnir bikini-síðbuxur
og pelsblússu, sem nær rétt
niður fyrir brjóstin, með hálf-
ermum — bert á milli! Takið
eftir skartgripnum í naflan-
um.
Halldór Kristinsson, gullsmiður,
Amtmannsstíg 2.
TÆKIFÆRI ÁRSINS
Nú gefst yður kostur á að eignast glæsilegt sófasett með mjög hagkvæmum greiðsluskilmálum
Greiðsluskilmálar:
Útborgun 25%
afborgun 1.000,00 pr. mán.
I
• Springtekk sófasett er glæsilegur vottur um handbragð
íslenzkrar húsgagnagerðar.
• Grindurnar eru úr vönduðu tekki.
• Lausir springpúðar, sem er algjör nýjung hérlendis.
Húsgagnaverzlun
Austurbæjo
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 SÍMI 24620