Þjóðviljinn - 18.12.1962, Page 2
2 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 18. desember 1962
| Kiördœma- J
l keppnin (
Við viljum færa þakkir B
w til Hvergerðinga og Sigl- L
^ firðinga, sem eru búnir að ^
k selja upp og báðu um fleiri k
^ blokkir. Einnig þökkum við |
k fyrir sendingu frá Isfirð- k
B ingum.
| Herðum sóknina, félagar. k
Minnumst kjörorðs þess- "
m ara daga. Skilum aðeins h
J peningum, engum miðum. J
Þannig tryggjum við út- g
* gáfu blaðsins í nýjum bún- "
ingi.
Austfirðir 44%.
Reykjavík 42°/,.
w Reykjaneskjördæmi 36%. ^
Vesturland 32%.
k Norðurland, vestra 32%. l
Suðurland 24%.
Vestfirðir 20%.
B Norðurland eystra 17%. ^
^ Austfirðingar standa með
k pálmann í höndunum og k
I höfuðstaðurinn fylgir fast á B
k eftir.
B En nú líður óðum að ^
k lokadegi og síðustu forvöð k
B að hlaupa undir bagga í B
| þessu Skyndihappdrætti fe
S blaðsins.
Umboðsmenn HÞ
í Reykjanes-
Gerðahreppur. Sigurður Hall-
mannsson.
Sandgerði: Hjörtur B. Helga-
son.
Keflavlk: Sigurður Brynjólfs-
son, Garðavegi 9.
Ytri Njarðvík: Kjartan Kristó-
fersson, Tröð.
Hafnarf jörður:
— Vesturbær og miðbær:
Kristján Eyfjörð, Merkur-
götu 13.
— Kinnar: Klara Kristjáns-
dóttir, Öldutúni 2.
— Suðurbær: Geir Gunn-
arsson, Þúfubarði 2.
Mosfellssveit: Runólfur Jóns-
son Reykjalundi.
Kópavogur: Þinghóll, Reykja-
nesbraut. Sími 36746 — opið frá
kl. 8 tii 11 þessa viku frá mið-
vikudagskvöldi.
Umboðsmenn happdrættisins
hafa miða til sölu og taka við
skilum frá þeim, sem hafa feng-
ið senda miða.
Einnig má senda til skrifstofu
happdrættisins í Reykjavík á
Þórsgötu 1. Sími 22396 og 19113.
Hvort mun Hátfdónarhurð hafa lokazt?
Ölafsfjörður og Ölafsfjarðarmúls í nágrenni. Hvvort mun Hálfdánarhurð hafa lokazt á Norður-
Iandi, eystra? Hún hefur þó staðið nokkuð lengi síðan skriplað var á sæskötum til þess að ná
konunni. Þessu viljum viö skjóta hér í norðaustriö til þess að minna á happdrætti blaðsins og
óðum nálgast lokadagur. Umboðsmenn happdrættisins i Norðurlandskjördæmi, eystra: Afgreiðsla
Verkamannsins, Hafnarstræti 88, Akureyri. Sæmundur Ölafsson, Ólafsfirði^ Sigfús Björnsson og
Kristján Jónsson, Húsavík, Einar Borgfjörð, Raufarhöfn, Angantýr Einarsson^ Þórshöfn.
Heimilishjálp
Athygli skal vakin á því að tekin er til starfa heimil-
hjálp í Kópavogi fyrir milligöngu bæjarins.
Starfsemina annast Sigurbjörg Jónsdóttir Nýbýlavg 12,
sími 10757 kl. 10 til 11 daglega.
VALVER—15692—VALVER—15692—VALVER—15692—VALVER-
Laugavegi 48.
Við aðstoðum
g yður við að
CD
12 gleðja börnin.
tó Avallt úrval
Cd
Jj af leikföngum.
<
VALVER—15692—V AL VER—15692—V ALV ER—15692—V ALVER—
VJISJEP
Baldursgötu 39.
Sendum heim
og i póstkröfu
um land allt.
Skipulagning nýrra iðnaðar
svæða dragist ekki lengur
Tillögur Guðmundar Vigfús-
sonar um vélbáta í bæjarút-
gerð, betrl hagnýtingu sjávarafla
og ný iðnaðarsvæði fara hér á
eftir.
Góðar sölur
togara ytra
Tveir af togurum Bæjarút-
gerðar Rcykjavíkur scldu erlend-
is í gær og fengu gott verð
fyrir farmana.
Þorsteinn Ingólfsson seldi í
Þýzkalandi 240 tonn af síld fyr-
ir 152 þús. mörk og Ingólfur
Amarson seldi eigin afla af
heimamiðum í Hull, 218 tonn
fyrir 14.125 sterlingspund.
Vélbátar í
bæjarútgerð
— Borgarstjórnin ályktar að
fela útgerðarráði og framkvæmda-
stjórum Bæjarútgcrðar Reykja-
víkur að taka til athugunar
hvort ekki sé hagkvæmt til efl-
ingar rekstri bæjarútgerðarinn-
ar að hún láti hefja smíði á
3—5 fiskibátum af nýjustu og
fullkomnustu gerð, og af þeirri
stærð, er bezt hentar hér tii
sumar- og haustsíldveiða og
veiða á vetrarvertíð.
Betri hagnýting
sjávarafL
— Borgarstjórnin vill stuðla
að því, að unnið verði skipu-
Iega að sem beztri hagnýtingu
Með Valtý Stefánssyni
Út er komin bókin „Með Valtý Stefánssyni“. Bjami
Benediktsson, ráðherra, ritar formálsorð fyrir bók-
inni.Matthías Johannessen, ritstjóri, segir í sam-
talsþáttum frá æsku og uppvaxtarárum Valtýs.
Svo eru í bókinni fjöldi frásagnarþátta eftir Valtý
og viðtöl við þjóðkunna menn. Bókin er í seíin mjög
fróðleg og skemmtileg aflestrar eins og fyrri bæk-
ur Valtýs, sem allar hafa verið metsölubækur.
Með Valtý Stefánssyni er jólabók fyrir
alla, jafnt karla sem konur, unglinga
sem eldra fólk.
Bókfellsútgáfan
sjávarafla er hér berst á land.
Þetta vill borgarstjórnin tryggja
með því að greiða fyrir félög-
um og einstaklingum, er við
fiskiðnað fást eða hafa í hyggju
að taka upp slíka starfsemi.
Borgarstjómin telur nauðsynlegt
að stefna að því, að nýta stærri
hluta en verið hefur af Faxa-
flóasíldinni ti? manneldis og fel-
ur því útgerðarráði og fram-
kvæmdastjórum bæjarútgerðar-
innar að Iáta rannsaka mögu-
leika á byggingu niðursuðuverk- f
smiðju og niðurlagningarverk- |
smiðju á vegum bæjarútgerðar-
innar.
Ný iðnaðarsvæði
— Borgarstjómin álítur að
ekki megi lengur dragast að
sjá iðnaðinum fyrir nauðsynleg-
um byggingarlóðum. Leggur
borgarstjórn áherzlu á að ekkl
verði lengri dráttur á undirbún-
ingi iðnaðarsvæðisins við Grens-
ásveg, svo að framkvæmdir þar
geti hafizt, og síðan sé hafizi
handa um undirbúning nýrra
iðnaðarsvæða eftir þörfum.
Borgarstjómin telur rétt að þess
sé gætt við skipular í'ngu nýrra
svæða, að iðnaðarhverfi verði
sem mest aðskilin frá íbúðar-
hverfum og þau tengd sem hag-
anlegast væntanlegu hafnarsvæði
borgarinnar.
Til sjós
og lands
Já, þeir eru sannarlega meira
til sjós en lands, landliðsmenn-
irnir í Sjómannafélagi Reykja-
víkur! Nýlega kaus þar maður
að nafni Bjarni Stefánsson. Síð-
ast er vitað um sjómennsku hans
að hann hafi verið á bv. Gull-
toppi, og hafi gengið í land með
Poka sinn á því herrans ári
1928. Nú er Bjami verkstjóri
hjá Tómasi Vigfússyni!
Starfandi sjómenn eru minntir
á stjórnarkjörið. Nú er kosið
hvern virkan dag á skrifstofu
Sjómannafélagsins í Alþýðuhús-
inu við Hverfisgötu kl. 10—12
f.h. og kl. 3—6 e.h.
GETUR ÞAÐ
VERIÐ?
Sigurður A. Magnússon segir
í ritdómi í Morgunblaðinu um
Mína menn — vertíðarsögu
eftir Stefán Jónsson frétta-
mann:
Flest af því, sem Stefán
skrifar um er með afbrigðum
skemmtilegt ........ Bókin er
náma af smelLnum athugasemd-
um um allt milli himins og
jarðar ....... Persónulýsingar
eru margar afburðafyndnar
...... þó stundum bregði fyrir
kaldhæðni hjá Stefáni virðist
honum vera hið létta og hlýja
skop miklu eiginlegra. einfald-
lega vegna þess að honum
þykir undantekningarlaust
vænt um fólkið, sem hann
lýsiT ......
Eiður Guðnason, Alþýðublað-
inu:
Sá maður mun vandfundinn,
sem getur lesið Mína menn án
þess að stökkva bros eða jafn-
vel skellihlæja.
Jón Múli segir í Þjóðviljan-
um:
Stefáni hefur lukkazt gamli
lífsandagaldurinn og Hans
menn standa velflestir sprellif.
andi á spjöldum bókarinnar.
Hann er búinn að sýna í tví-
gang og sanna það í seinna
skiptið að hann ræður yfir
þeim öflum, sem þarf til að
skrifa góða bók.
Ritstjóri Aiþýðumannsins á
Akureyri:
Lystileg dægrastytting ......
Kristján frá Djúpalæk í
Verkamanninum, Akureyri;
Við gátum aldrei komizt á
það hreina með, hvaða kafla
ætti að lesa. Þeir voru allir svo
bráðsnjallir, sprenghlægilegir
og — vel við eigandi. Bókin var
Krossfiskar og hrúðurkarlar
eftir Stefán fréttamann. Og nú
liggur hér önnur bók hans,
Minir menn og það er þannig
' að unnið að þeir munu margir,
sem vilja líka kalla þessa sína.
Bókin er vel frá gengin að
öllu leyti.
Guðmundur Daníelsson,
skáld, ristj Suðurlands: Stefán
Jónsson fréttamaður er fram-
úrskarandi málhagur maður,
andríkur og fyndinn......
Helgi Sæmundsson, formað-
ur Menntamálaráðs:
Stefán Jónsson skortir nær-
færni og smekkvísi og þess
vegna reynist fyndni hans klúr
og klunnaleg. Hrossið gerir öll
sín stykki á stofugólfið .....
hefur gengið áð verki eins og
hann væri að moka skit í á-
kvæðisvinnu .....
Yfirlýsing:
Að gefnu tilefni skal það hér
með vottað, að mér er kunn-
ugt um að Stefán Jónsson
fréttamaður hefur ekki samið
nema sumra af gamanþáttunum
sem Karl Guðmundsso.n leikari
hefur flutt á undanförnum ár-
um um Helga Sæmundssm for-
mann Menntamálaráðs.
Guðm Jakobsson.
(augl.)
Skilastaður
t Kópavogi
Nú er kjörið tækifæri fyrir
Kópavogsbúa til að gera skil fyr-
ir happdrættið. Þeir þurfa ekki
annað en fara niður í Þinghól
annað kvöld og þau næstu, því
þar verður maður til að taka við
uppgjörinu. Vandinn er sem eé
ekki annar en sá að koma á stað-
inn milli kl. 8 og 11 og þá þurfa
menn ekki að leggja á sig ferða-
lag til Reykjavíkur til þess eins
að gera skil. Síminn á staðnum
er 3-67-46.