Þjóðviljinn - 18.12.1962, Síða 5

Þjóðviljinn - 18.12.1962, Síða 5
Þriðjudagur 18. desember 1962 ÞJOÐVILJINN SlÐA 5 Gætu ný lög um landsdóm og ráð- herraábyrgð leitt til misnotkunar ÞINCSJÁ ÞJÓÐVILJANS Fundir voru í g®r í báðum deildum Alþingis. Ein lög voru samþykkt, frumvarpið um al- mannavarnir. Það var til 3. umr. í efri deild og var sam- þykkt mótatkvæðalaust með 14 atkvæðum og afgreitt sem lög. Hin rökstudda dagskrá Alfreðs Gíslasonar var felld með 14 at- kvæðum gegn 1 (tveir Alþýðu- bandalagsmenn voru fjarver- andi). Annars urðu helzt umræður á efrideildarfundinum um frumvörpin um landsdóm og ábyrgð ráðherra. Voru þau bæði til 2. umræðu og flutti Ölaf- ur Jóhannesson mál meirihluta allsherjarnefndar. Alfrcð Gísla- son talaði af hálfu minnihluta allsherjarnefndar. og lagði til að frumvarpinu um ráðherra- ábyrgð yrði vísað frá með rök- studdri dagskrá. Taldi Alfreð að löggjöf um þessi mál væri óþörf og vafasamt hvort rétt væri að vera að færa hana í nútímabúning. Löggjöfinni hafi ekki verið beitt í þau 60 ár sem hún hafi staðið, og það gæti auðveldlega leitt til mis- beitingar og harðnandi stjóm- málaátaka ef nýr meirihluti á Alþingi tæki að beita meiri- hlutavaldi sínu til þess að á- kveða málshöívðun gegn fyrr- verandi ráðherrum vegna meintra misferla. Ólafur Jóhanncsson taldi einnig að mjög gætu verið skiptar skoðanir um hvort þörf væri á sérstökum lögum um ábyrgð ráðherra. Þar sem þing- ræði væri fast í sessi væri það ekki nema á óvenjulegum tím- um að þörf yrði fyrir slík lög og landsdóm. En hann taldi nauðsyn að hafa lögin um þessi efni í samræmi við nútímaað- stæður, fyrst þau væru til á annað borð. En Ölafur benti á að sá ótti sem fram hefði kom- ið hjá Alfreð um hugsanlega misbeitingu þessara laga varð- aði sjálft stjórnarskráratriðið. sem heimilar Alþingi að höfða mál gegn ráðherra. Bjarni Bcncdiktsson dóms- málaráðherra lagði einnig á- Með þvi að kaupa Jólakort Rauða Krossins RAUÐI KROSS ISLANDS styðjið þið Alsírsöfnunina. Kortin eru gerð eftir myndum frú Barböru Árnason. Eilt af öndvegisritum heimsbókmenntanna Nazareinn (Þrjú bindi: Rómverjinn - Lærisveininn - Gyðingurinn) LEM ASCH- Kyumyu Magnúsar Jocltumssonar. Þetta snilldarverk lýsir á frábæran hátt daglegu lífi í Jerúsalem og landsbyggð- :: inni í Gyðingalandi á örlagaríkasta skeiði veraldarsögunnar. Hún lýsir óhófslífi i: yfirstéttanna og sárri neyð og vonleysi hins örþjakaöa lýðs undir járnhæli Rómar. i: Lýsingarnar eru svo lifandi og Ijósar, að segja má að lesandinn lifi sjálfur atburði ii sögunnar. — Mönnum ber saman um, að í þessu verki hins frábæra snillings. ii SHOLEM ASCH, beri skáldskapargáfu hans hæst, enda er verkið í heild talið :: eitt hið merkasta bókmenntaafrek vorra tíma. — Verkið er nú allt (þrjú bindi) •: komið út. — Fæst í bókaverzlunum, bæði eiVistök bindi og öll bindin saman í öskju. ii herzlu á það atriði. En hann kvaðst sammála Alfreð að ekki væri æskilegt að Alþingi færi að höfða mál gegn fráförnum ráðherrum fyrir embættisaf- glöp. 1 flestum slíkum tilfellum ætti þingræðisábyrgð að nægja. Með núverandi löggjöf væri slíkur málarekstur óframkvæm- anlegur og stjórnin hefði farið eftir yfirlýstum vilja Alþingis að láta endurskoða löggjöfina. En hann teldi íslenzku þingræði illa komið, ef fara ætti að beita þessum ákvæðum. Gæti jafn- vel komið til álita að Alþingi gæfi yfirlýsingu um að bað teldi þetta stjórnarskráratriði og löggjöfina um landsdóm og ráðherraábyrgð úrelt bókstafs- atriði, og vildi að þingræðisá- byrgðin yrði látin nægja. Gæti þá jafnvel komið tii greina að hætta við að afgreiða þessi frumvörp um breytingu lag- anna. Alfreð þakkaði ræðumönnum undirtektir og ábendingar. og kvaðst vona að hugmyndir þær er fram hefðu komið í ræðu ráðherrans yrðu athugaðar fyrir 3. umr. frumvarpanna. Var báðum málunum vísað til 3. umræðu. Neðri déild I neðri deild urðu talsverðar umræður um afgreiðslu ríkis- reikningsins 1961. Þær snerust þó að mestu leyti um eitt atriði. hvort ríkisstjórnin hefði haft heimild t.il að taka stórlán í Keflavíkurveginn. Eysteinn Jónsson hélt því fram að svo 'væri ekki. þar sem málið hefði ekki verið borið undir Alþingi. og skuldin ekki færð á ríkis- reikning 1961 né á fjárlög 1963. Gunnar Thóroddsen fjármála- ráðherra taldi að ríkisstjórnin hefði haft fulla heimild til lán- tökunnar, og leiddi síðan sem vitni Ingólf Jónsson samgöngu- málaráðherra. Kvað Ihgölfúr heimildina efalausa, því Fram- kvæmdabankinn hefði láns- heimild og rlkisstjórnin heim- ild til að ábyrgjast lán Fram- kvæmdabankans! Eysteinn taldi þetta allt annað en að ríkis- stjórnin hefði heimild til að taka stórlán og ráðstafa þeim að eigin geðþótta. ! PrentsmiS jan LEIFTUR, HöfSatúni 12 Síðasti hluti fundar neðri deildar fór í framhald 1. umr. um frumvarp Einars Olgreirs- sonar um áætlunarráð ríkisins. HUGPRUÐIR MENN Ný merkileg bók er komin á markaðinn. Það er ekki hversdagsviðburður að fá í hendurnar bók eftir einn fremsta þjóðarleiðtoga, sem nú er uppi. Bókin „Hugprúðir menn” er skrifuð af John F. Kennedy, forseta Banda- ríkjanna. Hún hefur hlotið Pulitzer verðlaun og selzt í rísaupplögum í heimalandi forsetans, einnig hefur hún vérið þýdd í flestum menningarlöndum. Þeir munu fáir Islendingar, sem ekki þekkja John F. Kennedy, af afskiptum hans af heimsmálunum. I bókinni birtist alveg ný hlið á þessum vinsæla þjóðarleiðtoga og vafalaust kemur hann mörgum á óvart. Það er ekki nýtt að merkir menn skrifi endurminningar, þegar fer að halla degi og kyrrast um, en hitt er mjög fátítt, og verður að teljast merkilegt, að takast skuli að skrifa bók, mitt í þeirri önn, serrs John F. Kennedy hefur staðið í. Þessi þók hans er í senn fróðleg og skemmtileg og hana getur enginn hugsandi maður látið ólesna. Um jólin lesa allir bók Kennedys Bandaríkjaforseta, hún heitir „Hugprúftir mcnn”. asrcn. Utgefandi: Samemingarflokkui aiþýðu — Sósiailstaflokk- urinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Magnús Torfi Olafsson. Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjórar: tvar H Jónsson. Jón Bjarnason. Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Sfrrii 17-500 (5 liriúr) Áskríftarverð kr 65.00 á mánuði. Blygöunar- leysi J^ólk er fyrir löngu hætt að kippa sér upp við smámuni i fari stjórnarherranna. Jafnvel ým- islegar athafnir sem fyrir fáeinum árum hefðu þótt stórfelld hneyksli valda nú því einu að menn yppta öxlum. Þó geta enn gerzt atþurðir sem eru svo furðulegir að menn hrökkva í kút.. Þannig er nú um fátt meira talað en þá ákvörð- un stjórnarherranna að greiða Sigurði Ólafssyni flugmanni 200 þúsundir króna í verðlaunaskyni fyrir kosningabombu sem hann sprengdi nokkr- um dögum fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar í þágu stjórnarflokkanna. Menn minnast þess að kosningabomba þessi vakti almennan hlátur á sínum tíma; kunnur Sjálfstæðisflokksmaður lýsti yfir því að hann hefði verið beðinn að stunda njósnir í þágu Tékka og fela gögnin í venjulegum skrúfblýanti, en engin tilraun var gerð til þess af hálfu yfirvaldanna að sannreyna staðhæfingarnar 1 einu né neinu. Hins vegar var flugmanninum svo brátt í brók að hann lýsti yfir því í viðtali við Vísi þegar fyrir kosn- ingar að sér fyndist „sanngjarnt" að hann fengi svo sem eina flugvél fyrir vikið. Á fáeinum dög- um var svo komið að allir hlutaðeigendur blygð- uðust sín fyrir tiltækið og enginn minntist leng- ur á njósnamálið mikla; það kom einnig fram í því að þegar eftir kosningar sendi Alþingi ís- lendinga þingmannanefnd í sérstaka vináttu- heimsókn til Tékkóslóvakíu. jgngu að síður hefur Alþingi nú samþykkt að greiða þann reikning sem framvísað var fyr- ir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, og skýring Morgunblaðsins var sú að sjálfsagt væri „að Sig- urði Ólafssyni flugmanni yrðu greiddar 200 þús. kr. til kaupa á flugvél og honum þannig bættur sá skaði, er hann beið, er hann hafnaði tilboði um að reka njósnir fyrir Tékka s.l. vor.“ Vera má að þessi kynlega skýring um bótaskyldu ríkissjóðs, ef menn hafna ábata af njósnum, stafi af því að ofstækið leiðir Morgunblaðsmenn jafnan langt út fyrir vettvang skynseminnar. En aðrar skýringar eru engu betri. Því er til að mynda haldið fram að flugmaðurinn eigi rétt á bótum úr ríkissjóði vegna þess að hann hafi gert léleg kaup á flugvél í Tékkóslóvakíu. Ber þá að líta á þetta sem fordæmi um það að allir íslendingar sem gera viðskipti erlendis og telja sig skaðast á kaupskap sínum eigi þess kost að fá tjónið bætt úr ríkissjóði íslands? Er ríkis- sjóður orðinn að einskonar tryggingastofnun fyrir slyppifenga kaupsýslumenn? það er sama hvernig málinu er velf, á því er engin eðlileg skýring önnur en sú að verið sé að nota ríkissjóð til að greiða fyrir kosninga- bombu. En þar með er málið orðið miklu stór- felldara en sjálfri upphæðinrii nemur; stjórnar- flokkarnir eru að misnota almannafé í sína þágu á svo blygðunarlausan hátt að jafnvel flestum fylgismönnum þeirra hlýtur að hrjósa hugur við. — m.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.