Þjóðviljinn - 18.12.1962, Page 7

Þjóðviljinn - 18.12.1962, Page 7
Þriðjudagur 18. desembor 100 jr ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 7 tvarpsanná Það er haft fyrir satt, að út- varpsstjórinn hafi nú i haust, er hann kynnti vetrardagskrá, lýst því yfir, að útvarpið væri hlutlaus stofnun og myndi svo enn verða. Þessi gamalkunna hlutleysis- yfirlýsing útvarpsins hefur jafnan verið skýrð svo af for- ráðamönnum stofnunarinnar, að útvarpið vildi leitast við að skýra hlutdrægnislaust írá at- burðum, erlendum sem innlend- títvarpsstjórinn um, og að það vildi gefa öllum stefnum, skoðunum og málefn- um jafnan rétt til að birtast þjóðinni gegnum hljóðnemann. Þetta eru fögur fyrirheit. Sá maður sem flytur þjóð sinni slíkan boðskap, getur sannar- lega horfið frá hljóðnemanum með góðri samvizku, um leið og hann segir: 1 guðs friði. En því miður er það oft auð- veldara að gefa loforð, en standa við þau. Því miður fínnst mörgum sem töluvert seitli í gegnum hlutleysisstíflu útvarpsins, þrátt fyrir hin frómu fyrirheit út- varpsstjórans, að hún skuli vera pottheld 365 daga ársins og 366, þegar hlaupár er. En misjafnlega er þetta mikið sem í gegnum fer, eftir því hve þrýstingurinn er mikill og að- rennslið ört í elfu áróðursins. En einn dag á ári, hinn fyrsta desember, eru allar flóðgáttir opnaðar og áróðurselfan steyp- ist yfir þjóðina með öllum sín- um þunga, gerandi sig líklega til að færa í kaf hverja nóru af heilbrigðri hugsun og rólegri íhugun. Þessi fyrstadesemberflóð út- varpsins og stjórnarvaldanna, eru því orðin svo árviss, að það ætti að vera óhætt að bók- festa þau í almanakinu sem hvert annað lögmálsbundið náttúrufyrirbæri. En hinum vísu landsfeðrum sést yfir eitt geysiþýðingarmik- ið atriði, þegar þeir, hvern full- veldisdag, hafa uppi tilburði í þá átt að drekkja dómgreind þjóðarinnar í áróðri. Það eru nefnilega takmörk fyrir því ,hvað ein mannssál getur innbyrt stóran skammt af áróðri á einum og sama degi. Það er hægt að læða smá- skömmtum áróðurs ofan í fólk, án þess að það verði þess vart, t. d. með svolítið villandi frá- sögn af einhverjum atburði, sem menn eru ekki á eitt sátt- ir um, hvort sé góður eða minna góður. En fari áróðurinn yfir eitt- hvert ákveðið hámark, segir sálin stopp. Hún verður leið, þreytt og fyllist hreinum við- bjóði. Þetta á sér engu að síð- ur stað, þótt sá sem meðtekur áróðurinn sé í raun og veru sammála þeim sem áróðurinn flytur. Tökum dæmi: Ég er mjög á- kveðinn bindindismaður. En ætti ég að hlýða á bindindis- prédikanir jafnlangan tíma og ég hef hlýtt á prédikanir þær sem fluttar voru í útvarpið 1. des. síðastliðinn, þá finnst mér sem ég myndi hafa þörf fyrir einhverja hressingu. Það er því síður en svo ástæða til að hafa áhyggjur af þeim vinnu- Borgarstjórinn brögðum sem uppi hafa verið höfð í útvarpinu og með há- skólamönnum, nú og nokkur síðastliðin ár. Áróðurinn geng- ur svo langt út yfir bau mörk, sem mannleg skynsemi getur meðtekið, að meginhluti hans hlýtur að fara til ónýtis, og það því fremur sem þjóðin er orðin langþreytt og ofbjökuð af áróðri og átakanlega tortrygg- in gegn öllu því, er einhvern keim ber af slíku. Hvaða fagnaðarboðskapur var það svo, sem þjóðinni var flutt- ur á þessum fertugasta og fjórða fullveldisdegi hennar? Borgarstjórinn í Reykjavík flutti aðalræðuna, eins og 'kom- izt var að orði í kvöldfréttum, og þar voru endurtekin hin fáránlegustu atriði hennar, og skal ósagt látið, hvort sá hátt- ur heíur verið á hafður af hrekk við flytjandann, eða fréttamenn útvarpsins hafa verið svona einfaldir í sinni þjónustu. Um þessa aðalræðu dagsins snerust svo allar aðrar ræður, eins og reikistjörnur kringum sól, nema ef vera skyldi ræða Þóris Þórðarsonar. Hann fór með löndum, talaði af hófsemd og hætti sér ekki langt út í vitleysuna. Heitið á ræðu borgarstjór- ans var svo hnoðböggulslegt og óþjált í munni, að þulir út- varpsins, sem eru þó prýðisvel læsir, höktu á því æ ofan í æ, er þeir voru að kynna það í dagskránni. En það var eitt- hvað á bessa leið: Sjálfstæði Islands og hættan af ólýðræðis- legum stjórnarstefnum. Efnislega var boðskapur borg- arstjórans og fylgihnatta 'hans mjög ófrumlegur, bæði að efni og orðfæri, sýnilega sótturbeint í Morgunblaðið og engin til raun gerð til þess að gefa hon- um nýtt líf með persónulegri tjáningu. Efnislega var boðskapur borg- arstjórans eitthvað á þessa leið: Sjálfstæði íslands stafar hætta af hinum alþjóðlega kommún- isma. Það er raunverulega hin eina hætta, sem því er búin og ástæða er til að óttast. Fas- isminn er dauður og frá honum stafar engin hætta framar. Til þess að verjast hinum alþjóð- lega kommúnisma verðum við að leita halds og trausts hjá hinum vestrænu lýðræðisþjóð- um, bæði stjórnmálalega, menn- ingarlega og efnahagslega. Hlut- leysi kemur ekki til greina. Þaö væri að vísu ekkert við því að segja, þótt boðskapur sem þessi væri fluttur þjóðinni á fullveldisdegi hennar í gegn- um hlutlaust ríkisútvarp, ef þessi skoðun borgarstjórans væri ríkjandi og óumdeild með- al þjóðarinnar . Framhald á 8. síðu. Títof geimfari. hann snjalla tölu og kom víða við. Hann benti á að sjálft flugið útí geiminn væri aðeins loka- áfangi á geysimiklu starfi. Og til þess að það mætti verða leggja allir borgarar í Ráð- stjórnarríkjunum fram sinn hlut. Ekki aðeins vísindamenn með reikningsstokkum sínum og verkamennirnir sem smíða sjálft geimfarið. heldur og bændur sem sá og uppskera kom á ökrum. Geimfaramir lifa jú ekki á guðsblessun fremur en aðrir. Geimferða kvikmyndir ,Hann talaði um kvikmyndir (var reyndar kominn til okkar með hópnum sem tók þriðju heimildarkvikmyndina sem gerð er um geimfara héðra). Sérílagi talaði hann um leikn- ar myndir — skáldskap — um geimflug, og fannst honum sú framleiðsla vera næsta lélegur samsetningur. Geimfari væri gerður að einhvers konar furðuveru, ofurmenni, og allt- of mikið væri leikið á falska strengi áhættu og óvissu. „Eng- inn veit hvort hann kemur til baka“ væri sagt dimmum rómi. „Kemst hann aftur til baka?“ „Hvenær kemur hann?“ „Kem- ur hann?“ „Hvenær ....?“ Hann talaði um sína eigin kvikmyndatöku í geimnum (en hann er fyrsti geimkvikmynd- ari) og kvað hana afar ein- faida. Utan úr geimnum væri ekki hægt að velja um sjónar- horn, jörðin er hnöttótt, — það væri alveg sama hvemig á hana væri litið. Síðan spáði hann, að ekki liði á löngu þar til menn færu að taka kvik- myndir, sem væru að öllu leyti Magnús Jónsson skrifar frá Moskvu Títof í heimsókn Geimfarir og ræðumennska Hátíðasalurinn í Kvikmynda- skólanum var orðinn troðfullur löngu áður en gestirnir komu. Hann var svo þétt setinn, að minnti næstum á Kúþufundinn okkar £ haust — enda vorum við að bíða eftir Títof geim- fara. Hann er mjög geðfelldur maður — eitthvað stráij:slegt í fari hans — og það var ekki laust við að hann væri dálítið vandræðalegur í ræðustólnum þegar klappinu ætlaði aldrei að linna. Síðan hóf hann mál sitt á því. að geimfarar væru ekkert merkilegri en annað fólk. Hver hefði sitt verk að vinna, og þeirra starf væri að fljúga en ekki halda ræður. Það hefði ekki komið í Ijós fyrr en um seinan, að í það víðtæka þjálfunar- og undir- búningsnám sem á þá væri lagt vantaði illilega námskeið í ræðumennsku. En ekki virt- ist okkur það gera mikið til, því eftir þennan formála hélt ---------------------------*s> og eftir Með Valtý Stefánssyni. Bókfellsútgáfan. Rvík 1962. Bók þessi hefur inni að halda nokkrar æskuminningar Valtýs Stefánssonar, viðtöl og greinar. Er þetta 4. bókin með viðtölum Valtýs, — raunar sú 5. sé Séra Friðrik segir frá talin með þessum flokki. Fyrsti hluti þessarar síðustu bókar eru nokkrar endurminn- ingar Valtýs frá æskuárum, er Matthías Johannessen skrifaði eftir honum og bregða þær skemmtilegu og fróðlegu ljósi á uppeldi hans og umhverfi i æsku. Endurminningum Valtýs lýkur þegar blaðamennskufer- ill hans hefst. Tjáir ekki um að sakast þótt þær nái ekki lengra og ritun þeirra væri of seint hafin. því hvorki Valtý sjálfan né aðra mun hafa órað fyrir því að starfskraftar hans þrytu svo snemma sem raun varð á. Endurminningar Valtýs um starfsárin befðu getað orð- ið fróðlegar fyrir sögu blaða- mennskunnar á fyrri hluta ald- arinnar. En þó þær nái ekki lengra segir þar frá er Valtýr Stefánsson sótti stofnþing Framsóknarflokksins og hugð- ist vinna fyrir bændur, — og af því er hann segir þar vakn- ar sá grunur að litla íhaldið í stjórn búnaðarmálanna hafi hrundlö honum í fang stóra í- haldsins, auðmannastéttarinnar. Var það mikill fengur fyrir hið síiðarnefnda íhaldið. því þótt Valtýr væri, eins og Bjarni Benediktsson orðar það í for- mála, „ekki sérlega sýnt um íslenzkt mál“, þá átti hann þau hyggindi sem í hag koma í blaðamennsku, og það var hann framar öðrum, sem gerði Morgunblaðið að stórveldi. Rabbstill hans var öllum að- gengilegur og viðtöl hans, skriíuð í fremur tilbrigðalitlum en léttum ofe eðlilegum rabbstíl voru jafnt lesin af andstæðirtg- um Morgunblaðsins sem sam- herjum. Þeir sem áhuga hafa á persónusögu síðustu áratuga, og glöggva vilja hugmyndir sínar um margt það fói-k er komið hefur við sögu á þessu tímabili, hafa sitthvað að sækja í viðtöl Valtýs. Með endurminningunum eru birtar myndir frá ýmsum tíma- bilum í- ævi Valtýs. Auk endurminninganna og viðtala eru teknar í bókina nokkrar greinar Valtýs. Ein þeirra, Sólarhringur við Morg- unblaðið, skrifuð fyrir nær aldarfjóröungi, mun þykja góð heimild þegar skrifuð verður saga ísl. blaðamennsku. Þar er lýst vinnubrögðum hjá bezt stæða og stærsta blaði landsins — og geta menn þá nokkuð séð hvernig hafi verið hjá þeim blöðum er voru á hausnum. Þessi lýsing Valtýs er frá þeim tíma er takmark- uður vinnutími blaðamanna þekktist lítt eða ekki; þegar sami maðurinn varð jöfnum höndum að skrifa trúlofunar- fréttir, um aflabrögð og inn- brot, ritstjórnargreinar og messuboð— og vera að þang- að til blaðið fór í pressuná. Valtýr lýsti þessu einu sinni á fundi í B.l. á þessa leið: Þetta hefur verið eins og á togurunum áður en vökulögin komu: blaðamenn hafa verið að meðan þeir gátu staðið uppi. Fyrir atbeina B.í. hefur þessu nú verið breytt, svo nú tilheyrir þetta sögunni. Þessi vinnubrögð verða menn að hafa í huga við lestur greinasafna blaðamanna frá þessum tíma. Sömu menn h-efðu skilað allt öðru verki hefði þim gefizt tóm til að vinna þau eins og venja er um bækur. Allskonar ambögur hafa verið ættardraugar Morg- unblaðsins og sú hefð komst á að eigna Valtý þær — lika þær sem hann átti engan hlut í! Þetta átti drjúgan þátt í að bæði samh-erjar og andstæð- ingar vanmátu hann sem blaða- mann, og mun Valtý hafa ver- ið þetta manna kunnugast, en hans hefnir sín grimmilega á ónefndum herrum með þessari góðlátlegu setningu: „Það getur vel verið að blaðamenn séu ekki merkilegar pcrsónue, Valtýr Stcfánsson. maður hefur heyrt það, en væri ekki miklu óskcmmtilegra fyrir þá, sem telja sig merkilegar persónur, að vera merkilegar, ef engir blaðamenn væru til?“ Bjarni Benediktsson skrifar stuttan formála fyrir bókinni. Getur farið vel á þvi að fara sparlega með orð í formálum. En athugandi er fyrir for- málaritara. eigi þeir lítið í fá orð að leggja, hvort ekki færi betur á því að spara formál- ann allan. Bókfellsútgáfan hefur vand- að frágang þessarar s-em hinna fyrri bóka Valtýs. J. B. gerðar í geimnum. Það yrði þegar þeir færu að bregða sér út úr geimförunum og fá sér spássértúr þarna uppi. Aritunarplága Hann talaði um heimsóknir sínar í önnur lönd, hve gaman það væri að kynnast fólki, sem býr við aðrar aðstæður allar t>g hversu eiginhandaráritunar- plágan væri hvimleið. Af- spyrnu ómerkilegt fyrirbæri. Einhver segði sem svo: „Eg hef séð Titof. Eg hef meira að segja rithöndina hans hérna, sko. Tralala." Hvaða máli skiptir það, spurði Titof, væri ekki betra að reyna að kynnast ofurlítið, spyrja og fræðast hver af öðrum, rabba saman þó ekki væri nema nokkrar mínútur. öll störf eru ágæt v Hann sagði frá bréfaflaumn- um sem þeim berst geimförun- um. Margir bréfritaranna. jafn- vel aldrað fólk, væri sífe-Út að spyrja: Hvað á ég að gera til að gerast geimfari, Þetta taldi hann leiða vitleysu. Menn geta skarað fram úr í hvaða starfi sem vera skal — ef þeir leggja sig alla fram. Hann tók dæmi af leikurunum í skólanum okk- ar. Mundu þeir vilja leika geimfara eingöngu? Nei, áfeið- anlega ekki. Úr hvaða starf- stétt sem hlutverkið er mun- um við öll, að eitt er þeim sam-eiginlegt. Hver og einn vinnur að því að byggja upp kommúnismann í landi okkar. Svo var hann gerður að heiðursskólabróður okkar og við fögnuðum honum vel. Og það var mikið klappað þegar hann baðst undan því að þurfa að taka prófin. Af þeim hef ég Vfrið nóg. sagði hann. Tito er nefnilega sjálfur í skóla. Situr sem sagt við nám eins og reyndar fjórði hver íbúi hér í landi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.