Þjóðviljinn - 18.12.1962, Síða 12

Þjóðviljinn - 18.12.1962, Síða 12
Starfsemi Heilsuverndar- stiifarinnar verði aukin VSð afgrciðslu fjárhagsáætlun- ar Reykjavíkurborgar sem fram fer á borgarráðsfundi n.k. fimmtudag flytur Alfreð Gíslason læknir, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins fjórar ályktunartil- lögur, er varða heilsugæzlumál. Fjallar fyrsta tillagan um aukna heilsuvernd og bætta aðbúð aldr- aðs fólks, önnur um aukna heilsuvernd almennt, þriðja um að leggja niður heilsuspillandi í- búðir í eigu borgarinnar, og hin f jórða um úrbætur á vöntun al- menningsnáðhúsa. AHt eru þetta mál sem varða mjög heill og hag allra borgar- búa. Er í tillögunum bent á það sem ábótavant er í þcssum efn- um og jafnframt á þær Ieiðir til úrbóta sem Alþýðubandalagið leggur til að farnar verði. Fara tillögurnar í heild hér á eftir: Bætt aðbúð og aukin heilsuvernd aldraðs fólks „Borgarstjóm Reykjavíkur við- urkermir nauðsyn þess, að sem bezt sé búið að öldruðu fólki í borginni og að það fái notið sín í heimahúsum sem lengst. Fyr- ir því felur hún borgarráði og borgarstjóra að láta þegar hefja undirbúning skipulagðrar starf- semi öldruðu fólki til verndar og liðsinnis í heilbrigðislegu og félagslegu tilliti. Sérstaka á- herzlu leggur borgarstjómin á eftirfarandi þætti þessarar starf- semi: A) Húsnæðismál. Bygging sér- stakra íbúða við hæfi gamals fólks verði fastur liður í bygg- ingarstarfsemi borgarfélagsins, þannig, að minnst tíu af hundr- aði þeirra íbúða, er borgin lætur reisa, skuli ætlaðar öldruðu fólki. B) Heimilishjálp. Haft verði eftirlit með einstæðum gamal- mennum og þeim látin í té nauð- synleg fyrirgreiðsla og aðstoð á meðan fært þykir að þau dvelj- ist í heimahúsum. Skal skrif- stofa félags- og framf ærslu- mála annast um framkvæmd þessa þáttar. C) Vinnumiðlun. Leitazt verði við að greiða fyrir möguleikum uldraðs fólks til starfs á heimili eða utan þess, og skal skrifstofa félags- og framfærslumála hafa þá vinnumiðlun með höndum og njóta til þess aðstoðar Ráðn- ingarstofu Reykjavíkur. D) . HeilsuveiTjd. öllu rosknu fólki og gömlu verði gefinn kost- ur á heilsufarslegu eftirliti í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.'1 vemdarstöðvarinnar að undirbúa á næsta ári stofnun deilda er taki til:' 1) sjónverndar 2) vinnuverndar 3) almennrar heilsuverndar aldraðs fólks og 4) geðverndar fullorðinna. Varðandi stofnun sjónvemdar- deildar vill borgarstjórnin benda á, að á bæjarstjómarfundi 21. nóv. 1957 var bókuð yfirlýsing um, að þessi þáttur heilsuvemd- ar væri „þegar í athugun hjá stjórnarnefnd Heilsuverndar- stöðvarinnar". Telur borgar- stjórnin ekki seinna vænna að ljúka þeirri athugun nú 5 árum síðar og að hefjast handa sem fyrst um framkvæmd". Heilsuspillandi íbúðir í eigu borgarinnar „Með þvi að nú munu vera í eigu borgarinnar á annað hundrað íbúðir, sem teljast meira eða minna heilsuspillandi, enda flestar notaðar miklu leng- ur en ráðgert var í upphafi, þá ályktar borgarstjórnin að þess- ar óhollu og óþægilegu íbúðir skuli lagðar niður svo fljótt sem auðið er. Fyrir því felur borgar- stjómin borgarráði og borgar- Fyrirlestur um nýtingu jirðhita i Ungverjalandi Prófessor Boldizár við Tækni- háskólann 1 Miskolec í Ungverja- landi flytur fyrirlestur í boði verkfræðideildar þriðjudag 18. des. kl. 5.30 e.h. í 1. kennslu- stofu Háskólans. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og fjall- ar hann um rannsóknir á nýt- ingu jarðhita í Ungverjalandi. stjóra að láta þegar gera áætlun um útrýmingu þessara íbúða í áföngum.“ Almenningsnáðhús „Borgarstjórnin gerir sér ljósa ómenningu þá, sem lýsir sér í hinum mikla skorti almennings- náðhúsa í borginni og vítir að árum saman skuli ekkert gert til að bæta úr þeim skorti. Sérstak- lega vill borgarstjómin lýsa undrun sinni á, að ekki skuli enn hafa verið lokið við bygg- ingu almenningsnáðhúss þess, sem byrjað var á fyrir allmörg- um árum á mótum Lönguhlíðar og Miklubrautar. Borgarstjórnin felur heilbrigð- isnefnd og borgarlækni að gera sem fyrst áætlun um umbætur í þessu efni og samþykkir að láta á næsta ári hefja byggingu a.m.k. tveggja almenningsnáð- húsa, er staðsett sku'lu þar sem heilbrigðisnefnd telur mesta þörf.“ Þriðjudagur 18. desember 1962 27. árgangur 277. tölublað. ------m—» Ríkisstjórnin mis- beitir ríkisvaldinu íþágu auðvaldsins Aukning heilsuverndar „Víðtæk og vel skipulögð heilsuvemdarstarfsemi er jafn mikilsverð einstökum borgurum sem borgarfélaginu í heild og verður aldréi fullmetin til fjár. Þetta er borgarstjóminni ljóst, og því leggur hún áherzlu á, að starfsemi I-Ieilsuverndarstöðvar Reykjavíkur verði stóraukin frá því sem nú er. Felur borgar- stjórnin stjórnamefnd Heilsu- tallagrillir og i Háraspillir Leikur Asjken- azí vakti gífur- lega hrifningu Hrifning áheyrenúa á fyrstu tónleikum sovézka píanósnill- ingsins Vladímírs Asjkenazí í Þjóðleikhúsinu í gærkvöld var gcysimikil. Var listamaðurinn kallaður fram á sviðið í lok tónleikanna hvað eftir annað og ekk.i slcppt þaðan fyrr en hann hafði leikið þrjú aukalög. Á efnisskrá tónleikanna voru. sónötur eftir Mozart og Prokofíef og verk eftir Chopin. Lexkhúsið var þéttsetið og meðal viðstaddra voru forsetahjónin. I ! Allt úr heiðni hafa jóla- sveinar leikið lausum hala hér á landi, dyntóttir og hrekkjóttir í hinu gamla bændaþjóðfélagi og voru haldnir mikilli matarlyst hjá svangri þjóð. • Snemma hefur efnishyggj- an látið á sér kræla. Hvað voru þeir eiginlega margir? Sumir halda fram töluxmi níu og aðrir halda fram þrettán. Síðari ár hafa þeir þokað um set fyrir gjöfulum strompklifrara úr engilsax- neskum verzlunarheimi, sem er kallaður Sankti Kláus. Þetta byrjaði vist með Mar- sjallaðstoðinni. Þetta er göfugur jólasveinn og er alltaf að gefa út um allar jarðir. Hinsvegar eru ís- lenzku jólasveinanir sístél- andi mat út um hvippinn og hvappinn. Það var að minnsta kosti gamli móðurinn. Er þetta iwerkilegý fyrir- bæri um felenzka þjóðarsál. Tveir pollar á Njálsgötunni kölluðu til mín í fyrradag. Hefurðu heyrt um nýju jólasveinana. Hvað heita þeir? Það eru þeir Stallagrillir og Háraspillir. Hvar eru þeir? Þeir eru þarna upp á Frakkastígnum, sógðu þeir báðir hlæjandi. Inni á rakarastofunni á Bergþórugötu 2 sat ég við hliðina á þremur pollum úr Kópavoginum. Hvar er Háraspillir?, spyr einn þeirra. Hann er ekki við, segir rakarinn. Ert þú Stallagrillir? spyr annar uppveðraður. Rakarinn hleypir í brúnirn- ar og segi dimmri röddu. Hver var að spyrja um mig? Litli pollinn í stólnum hjá honum er eins og hengdur upp á þráð og glennir upp augun hálfskelkaður. Og það upphefst mikil kát- ína á stofunni. Við erum staddir hjá þeim heiðursmönnum Sverri Bene- dikts og Gísla Einarssyni og það er nóg að gera fyrir jól- in. „Það eru margir strákar, sem láta klippa sig hér og þeir hafa gefið okkur þessi nöfn og eru iðnir við að bera þessar nafngiftir út,“ segir Sverrir hlæjandi. En við hjálpum bara litlum strákum til að vera sætir og fínir á jólunum, segir rakar- inn ennfremur og er kíminn á svipinn. Þannig kvikna nýir jóla- sveinar með breyttum at- vinnuháttum og þetta átti eft- ir að koma fyrir rakara. Hvernig gengur happdrætti blaðsins, spyr rakarinn. Eg er seztur í stólinn hjá honum. Það ræðst úr því þessa dagana, segi ég. Fólk gáir kannski ekki að sér 4 tíma og áttar sig ekki á því, hvað timinn líður óð- fluga og hvað raunverulega er stutt til lokadags. Fólk hefur mikið að gera fyrir jólin, segir rakarinn. Annars hefur happdrættið opna skrifstofu á Þórsgötu 1 og haganlegt fyrir fólk að kíkja þar inn. þegar það fer niður í miðbæ að reka verzl- unarerindi sín þessa daga. Mér er ánægja að svala forvitni rakarans. Kannski taka fleiri þetta til góðlátlegrar athugunar. I Skipulagning þjóðar- búskaparins er gamalt og nýtt baráttumál al- þýðusamtakanna. En í auðvaldsþjóðfélagi er hægt að misbeita skipu- lagningu og ríkisvaldi til að rýra kjör alþýðunn- ar og auka gróða auðfé- laganna Þegar orðið var áliðið fundar- tímans í neðri deild Alþingis í gær tók forseti fyrir frumvarp Einars Olgeirssonar um áætlun- arráð ríkisins en Einar byrjaði svarræðu við hinni löngu ræðu Gylfa Þ. Gíslasonar fyrir helgi. Fór svo enn að Einar hafði ekki lokið ræðu sinni þegar fundar- tími var búinn og varð enn að fresta henni. Minnti Einar fyrst á tilvitn- un Gylfa í Einar Benediktsson „Því brauzt ég frá sókn hinna vinnandi vega“. Sýndi hann fram á með mörgum dæmum úr stjómmálasögu undanfarinna áratuga að það sem Alþýðu- flokknum hafi sýnzt „vonlaust klif“ og „hrapandi fell“ af til- lögum sósíalista hafi reynzt vinn- andi vegir, þegar sósíalistum tókst að fá aðstöðu til að knýja á með framkvæmdir, eins og í nýsköpunarstjórninni og síðar í vinstri stjórninni. Mestur hluti þessa kafla í ræðu Einars fjallaði um áætlun- arbúskap í auðvaldsþjóðfélagi, og þær hættur sem honum geta fylgt ef afturhaldið ræður. Sýndi hann skýrt fram á hvernig skipulagning í auðvaldsþjóðfé- lagi getur orðið til þess að auka arðránsaðstöðu og gróðasöfnun einkaauðmagnsins, sé ríkisvald- inu beitt einhliða í þess þágu. eins og núverandi ríkisstjórn gerir. Það sé ekki sú skipulagning. ekki sá áætlunarbúskapur, sem vakað hafi fyrir Alþýðuflokkn- um áður fyrr og sósíalistum allt- af. Þegar Alþýðuflokkurinn teldi nú að þessi ríkisstjóm sem vægðarlausast hefur beitt ríkis- valdinu gegn verkalýðshreyfing- unni og alþýðuhagsmunum en fyrir gróðamenn og auðvald landsins, sé að framkvæma hug- sjónina um áætlunarbúskap sem átt hafi að auðvelda sókn alþýð- unnar til bættra lífskjara, þá sé Alþýðuflokkurinn að halda á- fram á þeirri sjálfsmorðsgöngu sem hann hefur gengið undan- fama áratugi og hljóti að halda áfram að minnka og tapa. Þrjú ollufélog neð 11,7 millj. Samkvæmt upplýsingum frá Skattstofu Reykjavíkur er nú lokið álagningu á þá gjaldendur, sem greiða eiga landsútsvar 1962, en þeir eru þessir: Olíufélagið h.f., landsútsvar kr. 5.680,418, Olíufélagið Skeljungur h.f. 2.779,353, Olíuverzlun íslands h.f. 3.327,706. Samtals kr. 11.787,477. og 39% keppni 9. deild: Kleppsholt 59% 5. deild: Norðumýri 58% 1. deild: Vesturbær 56% 15. deild: Selás og Smálönd 53% 10. deild b: Vogarnir 49%, 7. deild: Rauðárholt 45% 11. deild: Smáíbúðahverfi, vestanmegin 45% 14. deild: Herskálakampur 43% 4. deild: Þingholtin 41% 8. deild a: Teigamir 41% 3. deild: Skerjafjörður Grímsstaðaholt 40% 13. deild: Blesugróf 40% 4. deild b: Skuggahverfi 6. deild: Hlíðamar 33% 8. deild: Lækirnir 33%, 10. deild a: Heimarnir 32%, 2. deild: Melarnir, Skjólin, Seltjarnarnes 30% 12. deild: Sogamýrin og Gerð- in 24%. Þannig er staðan í skilum til happdrættis blaðsins. Kleppsholtið berst harðri baráttu við Norðurmýrina, sem náði aftur öðra sætinu. Nú era Vogamir komnir í fimmta sæti og stefna greini- lega á toppinn úr 13. sæti fyrir nokkrum dögum. Þá hefur 11. deild sótt ansi skemmtilega í sjöunda sæti úr fjórtánda sæti og er það vel af sér vikið. Þessi skrá verður birt dag- lega og margt spennandi get- ir skeð. Hinsvegar líður óðum að íokadegi og hver síðastur að gera athyglisverðar breyting- ar. Við skulum herða sóknina, félagar. Minnumst kjörorðs þessara daga: Skilum aðeins peningum, engum miðum. mLIFEY Stjórn Sjómannafélags Reykja- víkur er að láta fara fram at- kvæðagreiðslu hjá bátasjómönn- um í félaginu um það hvort þeir vilji fá lífeyrissjóð, eins og togarasjómennirnir og farmenn- irnir hafa þegar fengið. Sá er gallinn á framkvæmr þessa máls að sjómannafélags stjómin virðist fara með at- kvæðagreiðsluna eins og manns- morð, málið er ekkert auglýst eða kynnt fyrir sjómönnum. Sjómönnum skal bent á að kvæðagreiðsla þessi fer fram sama tíma og stjórnarkjörið Sjómannafélagi Reykjavíkur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.