Þjóðviljinn - 26.03.1963, Síða 3
I>riðjudaguT 26. marz 1963
MÓÐVILIINN
SÍÖA 3
Frakkland og Finnland
da afrm;
ausn væntanleg
PAR 3 og HELSINKI 25/3 — Fjórða vika verkfallsmanna
í Frakklandi og Finnlandi hófst í dag án þess að nokkuð
bent’ til þess að þau myndu leysast bráðlega. Verkfalls-
menn virðast þvert á móti verða staðráðnari í því með
hve', um degi sem líður að knýja fram að fullú kröfur
sínar um bætt kjör.
Þriggja manna nefnd sem
franska ríkisstjómin hafði skip-
að til að gera tillögur um launa-
kjör í ríkisfyrirtækjum skilaði
áliti • laugardag. Á sunnudaginn
voru leiðtogar verkalýðssamband-
anna kallaðir á fund ráðherra til
að fjaila um bessar tillögur.
Foringjar námumanna í verk-
falli höfnuðu þeim algerlega og
sögðu að verkfallinu myndi bá
fyrst verða afstýrt þegar gengið
vaeri að öllum kröfum þeirra.
Þær eru: ellefu prósent kaup-
hækkun þegar í stað, stytting
vinnuvikunnar úr 48 í 40 stund-
ir og ýms önnur fríðindi, svo
sem lækkun lífeyrisaldurs.
Aðrh’ bætast við
Stöðugt bætast við verkfalls-
merm í ýmsum starfsgreinum.
Þanuig ákváðu jámbrautarmenn
að leggja niður vinnu tvívegis
tvær stundir í hvort skipti á miö-
vikudaginn, á sama hátt og í síð-
ustu viku, þegar öll jámbrautar-
umferð stöðvaðist í Frakklandi.
Kröfumar harðna
Ihaldsblaðið De Parisien Libéré
segir i dag að víst sé að verka-
menn í ríkisfyrirtækjum muni nú
enn herða kaupkröfur sínar og að
þær kröfur muni líka ýta undir
verkamenn hjá einkafyrirtækjum
að heimta hærra kaup. Ef geng-
ið yrði að þessum kröfum færi
ailt atvinnulíf landsins úr skorð-
um og „viðreisnin“ sem hófst
árið 1958 færi þá út um þúf-
ur.
Annað íhaldsblað, Le Figaro,
nefndi í dag ýmsar starfsgrein-
ar sem verkföU eru væntanleg
í á næstunni, m.a. í bönkum,
verzlunum og öllum fjárfesting-
ariðnaði.
Eins og áður segir krefjast
námamenn ellefu prósent kaup-
hækkunar, en ríkisstjómin hef-
ur boðið þeim 8 prósent, en þvi
hafa þeir hafnað.
Efr 'hagsaðstoð USA
aistoð við
[ jóðnýtt fyrírtæki
YfAP NGTON 25/3 — Kennedy
forseti hefur í grundvallaratrið-
um fallizt á skýrslu þar sem
mælt er með því að efnahags-
ur
GULLI
og
SILFRI
t „ mingargjafir úr
gulli og silfri.
Jóhannes Jóhannes-
son gullsmiður
Bergstaðastræti 4.
Gengið inn frá
Skólavörðustíg.
Sími 10174.
Miðar ekki í áttina
I dag hófust í Helsinki við-
ræður milli leiðtoga ríkisstarfs-
manna sem verið hafa í verk-
falli frá byrjun mánaðarins og
ríkisstjómarinnar sjálfrar. Ekki
miðaði neitt í átt til samkomu-
lags. Sáttasemjari ríkisins Kaus-
koski hæstaréttarforseti, bað um
lausn úr því starfi í síðustu viku,
vegna þess að hvorki hafði geng-
ið né rekið í samningaviðræðun-
um í þrjár vikur.
Sovétríkin eru nú í samvinnu við önnur ríki Austur-Evrópu að lcggja einhvcrjar mestu olíuleiðsl-
ur sem um getur. Til þeirra hafa verið keypt rör frá ýmsum vesturlöndum, en Bandaríkjastjórn
hefur beitt áhrifum sínum til að koma í veg fyrir þau viðskipti. Engin ríkisstjóm ncma sú vestur-
þýzka hefur þó orðáð til að banna þegnum sínum að selja leiðslur austuryfir. Myndin sýnir olíu-
leiðslurör í höfninni í Hamborg, sem nú verða ekki sendar austur.
Gífurieg
fískgengd
við Grænlaná
ALASUNDI 25/3 — Það er
svo gífurleg fiskigengd á
miðunum við Vestur-Græn-
land að það er ævintýri
likast, segir norski skip-
stjórinn Ole Kjerstad í við-
tali við Sunnarsposten.
Hann kom til Álasunds
skömmu fyrir helgi, en hef-
ur undanfarið verið á verk-
smiðjutogaranum Longva.
Afkastageta togarans var
nýtt til hins ýtrasta, en
þó hafði hann ekki undan
að vinna þann fisk sem
veiddist.
aðstoð Bandaríkjanna við önn-
ur lönd verði minnkuð um 500
milljónir dollara á ári. 1 skýrsl-
uni er einnig Iagt eindregið
gegn því að þjóðnýttum fyrir-
tækjum sem keppa við fyrirtæki
i einkaeign sc veitt nokkur að-
stoð.
Skýrs-lan sem samin var af
nefnd undir forsæti hershöfð-
ingjans Lucius Clay hefur vakið
nokkurn ugg meðal sendifull-
trúa landa i rómönsku Ameríku,
Asíu og Afríku í Washington.
Kennedy forseti hefur áð vísu
ekki lýst sig formlega sam-
þykkan niðurstöðum nefndarinn-
ar, en hann segir í bréfi til
Bandaríkjaþings, að höfð muni
hliðsjón af tillögum hennar þeg-
ar áætlunin um efnahagsaðstoð
við önnur lönd kemur aftur til
kasta ríkisstjórnarinnar.
Nefndin segir að hægðarleik-
ur hefði verið að minnka að-
stoðina á þessu fjárhagsári um
13 prósent, eða 500 milljónir doll-
ara, án þess að hagsmunir
Bandaríkjanna hefðu skaðazt.
Með því er viðurkennt að að-
stoðin er veitt til hagsbóta
Bandaríkjunum sjálfum.
★ Argentína sigraði Ekvador
— 4:2 í meistarakeppni Suður-
Amerríkuríkjanna í knatt-
spymu. Leikurinn fór fram
í Cooabama í Bólivíu.
israelsmenn saka
Bonn um fyrirslátt
JERUSALEM og BONN 25/3 —
Aðstoð vesturþýzkra vísinda-
manna við Egypta sem eru að
reyna að koma sér upp eldflauga
vopnum hefur skapað úlfúð
milfi stjórna ísraels og Vestur-
Þýzkalands og ásaka ísraels-
menn Bonnstjórnina fyrir und-
anbrögð, þcgar bún heldur þvi
fram að hún geti á engan hátt
komíð í veg fyrlr að vestur-
þýzkir þegnar gangi í þjónustu
Egypta.
Bonnstjómin svaraði fyrir
helgina á þessa leið umkvörtun
frá stjckri Israels. Haft er eftir
ráðamönnum í Jerúsalem að
skorti vesturþýzku stjórnina
lagaheimild til að taka í taum-
ana, þá verði hún að sjá um
að lög verði sett sem heimili
henni það.
Aðalmálgagn Israelsstjómar,
Davar, segir að menn geti ekki
sætt sig við að þetta sé endan-
leg afstaða vesturþýzku stjóm-
arinnar, a.m.k. ekki þeir sem
hafa reynt að virða ósk Vestur-
Þjóðverja að þeir verði taldir
meðal „beztu þjóða“.
Castro ber viðtal til baka
Harðneitar að háfá
gagnrýnt Krástjoff
saadb
RÚMAR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 1963
— Sími 24204
i5«’»ÍH>L>B3ÖRNSSON * P.O. BOX 1386 • MYKMVlK
IIAVANA 25/3 — Fidel Castro
forsætisráðherra hefur harðneit-
að að hann hafi nokkurn tíma
viðhaft ummæli sem fréttaritarí
franska blaðsins Le Monde hafði
eftir honum í síðustu viku, en
í þeim var fólgin gagnrýni á
Krústjoff forsætisráðherra fyrir
* hafa flutt burt sovézku flug-
vtin frá Kúbu að stjórn Kúbu
•'vrðri.
•=ögn fréttaritara blaðsins
hafði Castro einnig gagnrýnt
ýmsar aðrar gerðir sovézkra for-
sætisráðherrans og sagt að hann
hefði löngun til að taka í lurg-
inn á honum.
I yfirlýsingu Castros segir að
hann hafi ekki veitt fréttaritara
Le Monde, Claude Julien, neitt
viðtal og hann hafi a.m.k. ekki
sagt neitt sem mætti leggja út
sem gagnrýni á Krústjoff.
Hann segist hafa hitt Julien 1.
janúar s.l. í boði hjá ritstjóra
blaðsins Revolucion og hafi þar
verið talað um alla heima og
geima. En það er enginn fótur
fyrir því að ég hafi sagt nokk-
ur niðrandi orð um Sovétríkin
eða Nikita Sergeivitsj Krústjcff,
segir Castro.
Til leigu
Höfum til leigu nú þegar mjög góðan
,eymslukjallara ca. 280 ferm.
í B S
Bræðraborgarstíg 9, sími 22150.
Nauðungaruppboð
verður haldið að Síðumúla 20, hér í borg (Bifreiða-
geymslu Vöku h.f.) eftir kröfu Gjaldheimtunnar í
Reykjavík o.fl. þriðjudaginn 2. apríl n.k. kl. 1,30 e,h,
Seldar verða eftirtaldar bifreiðir:
R-216, R-737, R-1065, R-1525, R-1873, R-2125, R-2776,
R-3601, R-3788, R-4212, R-4517, R-4709, R-4727, R-4728,
R-4919, R-4939, R-5103, R-5618, R-5778, R-5805, R-5828,
R-5857, R-6251, R-6501, R-6805, R-7097, R-7260, R-7366,
R-7465, R-7620, R-7922, R-8599, R-8611, R-8625, R-8647,
R-8649, R-8658, R-9448, R-9534, R-9845, R-9885, R-9886,
R-10200, R-10203, R-10534, R-10544, R-10607, R-10625, R-10748,
R-10829, R-11117, R-11189, R-11528, R-11552, R-11821,
R-12208, R-12260, R-12267, R-12312, R-13595, og X-397.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ 1 REYKJAVlK.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengafaðir og afi
KRISTINN KRISTJANSSON
kaupmaður Njálsgötu 77
andaðist 23. þ.m.
Vilborg Sigmundsdóttir
Reynir Kristinsson, Erna Hardalsdóttir
9g barnaböm.
i