Þjóðviljinn - 17.04.1963, Side 8

Þjóðviljinn - 17.04.1963, Side 8
0 SÍÐA HÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. aprO 1963 SÓKN GEGN VINNUÞRÆLKUN Eftir Tryggva Emilsson Það líður varla sá dagur, að ekki séu útgefnar tilskipanir um hækkað vöruverð; fólk les auglýsingarnar, og varan kost- ar meira í dag en í gær. Marg- ir reyna að lengja vinnudaginn enn og mæta þannig dýrtíð- inni, en víða er sá möguleiki ekki fyrir hendi og þar verður að minnka innkaupin. Ráða- menn þjóðfélagsins virðast á- líta að fólk taki þessu eins og vestan andvara. en áreiðanlega munu þeir fleiri scm líta á það sem eitt af höfuðstefnumálum ríkisstjómarinnar að lyfta und- ir hverskyns verðbólgu og við- halda henni. að minnsta kosti er ekkert sýnilegt gert til þess að stöðva flóðið. Vinnuþrælkun engum manni kjarabót 1 þessu dýrtíðarflóði verður kaupgjald fyrir 8 stunda vinnu- dag æði lágkúrulegt og engum manni nægilegt til lífsframfær- is; nú geta menn að vísu bætt um fyrir sér með lengdum vinnudegi, en fáir munu viður- kenna vinnuþrælkun sem kjara- bætur. 1 raun og veru vill eng- inn maður sætta sig við þau kjör sem flestir verkamenn búa núviðen verða að gækja kjara- bæturnar í sílengdan vjnnu- dag. Vinnuþrælkun en engum manni kjarabót. En málgögn ríkisstjórnarinnar og auðvalds- ins í landinu tala mikið um kjarabætur, sem komi nú hljóða- laust uppí hendur verkamanna með bráöauðveldu móti, sem se að lengja vinnudaginn. Morgun- blaðið þráskrifar um þessi kjarasannindi, sem hljóma eins og nýr boðskapur um lýðfrjáls- ar tekjuhækkanir. En ekxi nægir þessi áróöur til að sannfæfa menn. Nú er svo augljóst að atvinnuvegirnir geta borið miklar kauphækkan- ir, yfirvinnan er nefnilega dýr- ari en dagvinnan. En einhvern veginn vcrður að vilia um fyr- ir fólki. Sá mikli gróöi sem aflaföngin hafa fært í þjóðar- búið má ekki sjást nema í gegnum sérstakt gler. Og þvi er nú góðæri tveggja undan- farinna ára leitt inn í hugtak- ið viðreisn, svo að menn fari að álykta að eitthvert stjómarfars- legt undur hafi gerzt. Jafn- framt er sannað með sömu rök- um að hjá atvinnuvegunum ;é allt öryggi í höndum óskýrðr.) afla og að hjá atvinnurekend- um stöðvist enginn gróði; því sé nú sem fyrr of snemt og ó- raunhæft að tala um kjarabæt- ur. Geislahjúpur um viðreisnarmenn 1 Morgunblaðinu og fylgi- blöðum þess er að vísu talað um aflaföngin, fram hjá þvi verður ekki komizt, þjóðartekj- ur vaxi, en líkist helzt þoku sem illt er að átta sig á; spari- fé hafi margfaldazt, bankar safni nú sem óðast í einkasjóði og gjaldeyrisstaðan þannig að nú vilji Bretar ólmir lána Is- lendingum. 1 öliu þessu felast nú ein- hverjir þyrnar. Bretar mundu kannski vilja fá eitthvað fyr- ir snúð sinn og hvernig græða bankarnir? En hvaö sem því líður, áróð- urinn skiptir um ham eftir þörfum og villir fyrir rhörgum. Þó vita nú flestir, að stórauður hefur borizt á hendur þjóðar- innar. cn hvar er hanh þá að finna? Ekki hjá verkafólki og samkvæmt boðskapnum ekki heldur hjá atvinnurekendum! Og hvað skyldi þá vera eðli- legra en að álykta að orðið ,.viðreisn“ sé reyndar táknorð fyrir þann gróða sem auðstétt- irnar hafa enn sótt í hendur vinnandi fólks og til atvinnu- veganna, — að hið margvelkta Tryggvi Emilsson orð „viðreisp" merki auðsöfnun á fárra hendur. Eitt er víst, að blaðamenn sem eru undir hand- arjaðri rikisstjórnarinnar ham- ast nú sem mest, því að á miklu ríður að sanna vinnandi fólki að ekki sé hægt að bæta kjörin nema með því að lengja vinnudaginn, — og ekki stendur á hagfræðingunum, þeir hafa nú fundið út með flóknum reikningsdæmum að tekjur verkafólks vaxa með lengdum i ! ! ! * ! ! ! \ Rafeindaheilar eru beztu kennararnir Um allan heim eru hverskonar rafeindaheil- ar notaðir í æ ríkara mæli. Þeir leysa hin flóknustu, stæröfræðileg verkefni fyrir vísinda- stofnanir, stjórna fram- leiðslu í stórum verk- smiðjudeildum, hafa eft- irlit meö gæðum tilbúins varnings og svo mætti lengi telja. Það er einnig mjög á dagskrá að nota þá við hverskonar kennslu. I nýlegri grein hefur sovézki vísindamaðurinn Axel Berg gert grein fyrir sjónarmiðum sínum í þessu máli. Hann tal- ar fyrst um þann vanda sem mætir kennurum: það er ailt- af nokkur hluti nemenda sem ekki lýkur miðskóianámi vegna þess að þeir dragast afturúr — nemendur eru misjafniega áhugasamir, mis- jafnlega fljótir. Af hverjum kennara er krafizt geysimikils átaks til að samhæfa þann ólíka hóp unglinga sem hann fær í hendur. Kennari verður að reyna að finna persónulega leið til hvers nemanda. Hann verður að hafa eftirlit með hverjum og einum og fram- förum hans. Þetta er geysi- lega tímafrekt starf, krefst mikilla endurtekninga og næsta árangurslítils stúss — og verður þar að auki aldrei leyst sem skyldi með gömlum aðferðum. Því segir Berg brýna nauð- syn bera til að taka í þjón- ustu fræðslumála þann árang- ur sem náðst hefur á sviði rafeindatækni, stærðfræðilegr- ar rökfræði og miðlunarkenn- ingar. Hann segir að þeir sem ótt- ist að slík stefna geri lítið úr hlutverki kennarans fari mjög villir vegar. Kennarinn muni áfram hafa forystuhlut- verk, en hann muni fá tækni- Axel Berg talar um nauösyn þess að nota rafeindatækni til kennslu. Á þessari mynd sést tæki, sem nú þegar er notað til að prófa stúdenta í ýmsum greinum við Úrval-vcrkfræðihá- skólann — en það er að vísu ekki eins fullkomið og Berg gerir ráð fyrir. Hér hefur stúdentinn fyrir framan sig ýmsar lausnir á viðfangsefnum og setui þær villur sem hann finnur inn á vélina, scm síðan gerir það upp, hvernig hann hefur staðið sig. lega hjálp, nútíma vélar til að styðjast við. Og það sem mestu máli skiptir — kennsl- an muni hætta að vera empír- ísk og verða þess í stað ná- kvæm vísindi. Það sem um er að ræða. segir hann, er ekki að gera ákveðnar umbætur á hefð- bundnum kennsluaðferðum, heldur skapa rökfræðilega oa stærðfræðilega kenningu í kennslumálum. Kennslan fer þá fram eftir ákveðnu prógrammi, sem deil- ir námsefninu niður í eining- ar og skilar þeim til nemand- ans með aðstoð nútímatækni. Kennslan verður mun virkari með þessu móti. Kennarinn mun geta fylgzt með því hvernig hver nemandi eða stúdent fylgist með efninu og hvernig hann tekur við því. Þannig er æðri stofnun ein i Leníngrad farin að kenna stúdentum erlend tungumái með aðstoð rafeindavéiar sem einnig fylgist með þeim fram- förum sem nemendur taka. Og eru stúdentar harðánægðir með „fræðara" sinn. Með slíkum aðferðum ná- um við tvennskonar árangri — gagnkvænuim tengslum milli kennara og nemenda og stöðugu, ströngii eftirliti. Kennarinn veit á hi%ða stigi skiiningur og hugsun nemenda hans eru. Rafeindaútbúnaður gerir það kleift að kenna tylft eða hundruðum stúdenta sama efni með þvi að nota nokkr- ar ólíkar aðferðir sem fara eftir því hvernig stúdentinn bregzt við efninu. Það er hægt að stilla inn breyting- ar sem hæfa þörfum hvers hóps — það er hægt að setja efnið fram á ýmsum hraða, það er hægt að breyta um um samhengi og innihald. Þannig sjáum við fram á möguleika til að útrýma kennsluaðferðum sem miðast vjð „meðalstig". Það opnast möguleikar fyr- ,ir persónulegri kennslu og fyrir því að stúdentar og aðrir nemendur kenni sjálf- um sér undir leiðsögn kennara og aðstoðarliðs hans — vél- anna. Ekki er enn hægt að segja fyrir um það hve margar gerðir af rafeindaheilum þarf fyrir „prógramm“-kennslu — máske þrjár eða fjórar, máske fleiri. Hvað sem því líður, þá hafa tilraunir sem gerðar hafa verið í skólum Moskvu og Leningrad þegar sýnt að þessar kennsiuaðferðir eru mjög virkar. Nemendur eru virkari en áður, vinna bet- ur sjálfstætt. Þeir kynnast námsefninu betur en áður og þeir þurfa minni tíma til þess að læra það og læra að beita því. Við þessar kring- umstæður verður hlutverk kennara meira en áður — en ekki þvert á móti. Hann leysir vandamál eins og að- ferðir, rannsakar betur kennslusálfræði, undirbýr persónuleg „prógrömm". Þannig verður vélin þjónn kennarans til að losa hann við vinnufrekt, þreytandi og einhliða s,tarf. Þetta allt hefur það auð- vitað í för með sér að taka verður upp nýjar aðferðir i þjálfun kennara. Þeir verða að fá stóraukna þekkingu á áætlunargerð og rafeinda- fræði. Og hér duga engin vettlingatök — hér er um að ræða gerbreytingu í kennara- bjáífun sem að sjálfsögðu mun krefjast allmikiliar fyrirhafn- ar. En hér er um að ræða óumflýianlega þróun. vinnudegi og kjarabæturnar því komnar á borðið. Rikis- stjórnarfólk fagnar útkomunm, verkafólk megi nú þakka fyrir sig. Kaup komi líka fyrir vf- irvinnu. Og hagfræðingar lögðu enn höfuðin í bleyti, og sjá: meðaltekjur erfiðismanna hafa hækkað og þarf nú ekki fram- ar vitnanna við. Kjarabætum- ar eins og geislahjúpur um viðreisnarmenn. Meira til skiptanna Ég er nú ekki svo hissa á rik- isstjórnarmönnum; þeir eru cil þess kosnir að draga sem mest- an auð í hendur auðfólksins í landinu, en að þeir skuli, fá þessa hagfræðinga i vinnu er mikil furða. núna þegar næg er vinnan. Það getur ekki verið svo skemmtilegt að nota sífellt sína reikningslist til þess að blekkja almenning og smækka hlut þeirra sem minnst hafa; sjá þeir ekki auglýsingarnar. alstaðar vantar menn í heiðar- lega vinnu. En hvað um það. blekkingar auðve1 Jsblaðanna eru ekkert nýrr- og reyndar aðalhald- reipi auðgróðans. En allir þeir sem rét.ta hönd til verks vita nú að aflaföngin voru svo mikil á sl. ári að þar er ekkert tii samanburðar. Þjóðartekjumar hafa stórvaxið og því er mikið til í hlutaskiptin. og erfiðis- menn til sjávar og lands hafa lagt fram stærsta skerfinn með vinnu handa sinna. Margir hafa lagt nót.t með degi. með- an fína fólkið situr í sífelldum veizlufagnaði eins og jafnvel sumir ráðherramir eru þekkt- astir fyrir. Kjarabarátta byg-g-ð á samtökum Ekki verður séð hvað af góð- æri eða vinnuafköstum er að þakka viðreisnarstjórninni. Saga hennar er skráð gengisfelling- um og hefndarráðstöfunum gagnvart vinnandi fólki. og á sl. ári toguðu stjórnarherrarnir af öllu afli í hjól framleiðslunn- ar og tókst að stöðva togarana og síldveiðiskipin til stórtjóns fyrir land og lýð. Og er þeirra hlutur því ekki beint viðreisn- arlegur. Þegar þetta skeði stóð Efna- hagsbandalagið eins og gull- kálfur fyrir sjónum margra stjórnarmanna og er það þeirra vorkunn. En reikningsmenn þeirra stóðu á verði og reikn- uðu erfiðismönnum uppgrip í háum tölum og pössuðu jafn- framt uppá að sem fæstir tækju eftir því fólki sem situr með spenntar greipar um lykla rík- isvaldsins að afiaverðmætunum. Þannig er mikið talað í blöð- um íhaldsins um stórtekjur sjómanna. en aldrei um auð- gróða veizlumanna í landi. Rík- isvaldið í viðreisnargervinu er tilkomið til að þjóna beim sem ríkir eru og starfar eftir því, og því verður erfiðisfólk að gera sér grein fyrir. Kiarabaráttan verður því sem ætíð fyrr að byggjast á sam- tökunum. Samtökum. sem er kraftur kröfunnar. Verkamenr, hafa borið fram kröfur um hækkað kaup. um tryggingj kaupgjaldsins með stöðvun verðhækkana, og um styttingu vinnuvikunnar með óskertu kaupi. Allar bessar kröfur eru i dei.glunni. Það er ekki búið að semja. ^róður ■ Jt,nna Ég hef bent á skrif ríkis stjórnarblaðanna sem ýmis’ hælast yfir viðreisnargóðæri o- fsagróða þarafleiðandi eða sýn - iram á, að samt sem áður sé ekki hægt að bæta kiörin. ut- an hvað felst í hækkuðum teki um vegna vinnubrælkuna- neita ekki að atvinnuvegirni- boli yfirvinnukaupið og virði = reyndar að atvinnuvegirnir ger hnrið hátt kaup, en það meg'; verkamenn bara ekki fá. nema með vinnuþrælkun. Þessi marg- endurbornu reikningsskrif um ofsagróða sem ekki þolir kjara- bætur til þeirra sem gróðann skapa virðast fyrst og fremst ætluð fólki, sem ýmist hugsar alls ekkert um kjaramál éða þykir vel sem verður í von um eitthvað fleiri mola. Verkamenn, sem ævinlegá eiga í þungri barátt’u fyrir kaupi sínu og kNjörum, skilja vel hvað auðvaldsblöðin meina, skilja vel að þar er sú hát- ramma andstaða við öll rétt- indamál verkafólks sem hefjr orðið og er þyngst i skauti al- þýðuheimiiunum. Áróðurinn á að viðhalda vinnuþrælkun. fá- tækt og fáfræði. Rök verkamanna nú fyrir al- hliða bættum kjörum felast í sigrum róttækrar baráttu á undanfömum árum og í því góðæri sem nú leggur mejri aflaföng en nokkru sinnj í hendur þjóðarinnar. Vérka- lýðs'hreyfingin studdi af aleflj landhelgismálið en aflaföngin nú eiga þar sína dýpstu rót. Til öflusrrar sóknar Verkalýðshreyfingin hefur með kröfugerðum og lifandi starfi borið vaxtarbrodd fjöl- þættra nýmæla inn á vettvang atvinnumála og annarra þjóð- mála og orkað þannig á at- vjnnuþróunina. Og nú þegar atvinnuvegjrnjr kalla fólk til vinnunnar langt inn á hvíldartímann, verða verka- menn sjálfir að sýna fram á að sú leið horfir ekki til heilla. að betur verði að nýta tækniþekk- ingu og tækniþróun til þess að létta erfiðinu af fólkinu, ekki til þess að herða á vinnuþraélk- un. En atvinnurekendur verða bezt leiddir inn á köiinun og nýtingu tæknitækja með því að verkamenn til lands og sjávar neiti að gera sjálfa sig að vinnuvélum. En ekki getur nú farið milii mála að hægt er að stórbæta kjörin, að gjaldþol atvinnuveg- anna er fyrir hendi, þar sem yfirvinna i stórum stíl kemur nú ofan á erfiðan vinnudag. sem hlýtur í mörgum tilfellum að draga úr eðlilegum vinnuaf- köstum. Allt sanngjarnt mat á gjaldþoli atvinnuveganna geng- ur undir kröfurnar og fellur á fang með verkamönnum. öll réttindamál verkalýðs- hreyfingarinnar hafa átt langan aðdraganda og kostað mikla baráttu og enn verða verka- menn að treysta samtök sín til nýrrar öflugrar sóknar í kjara- málunum, krefjast réttlátari hlutdeildar í þióðartekinnum og afnáms vinnubrældóms. En þá kröfu ber hátt í dag. Stytting vinnuvjlcunnar Krafan um styttingu vinnu- vikunnar hefur lengi verið of- arlega í hugum verkamanna og margt verið ritað og rætt um málið. Get.ur engum dulizt að lengur verður það ekki hrakið út f neinar hliðargötur. Vitað er að margir atvinnu- rekendur skilja eðli málsins frá sjónarmiði vinnuafkasta og vandvirkni og vita hversu bað er þungt á metunum og mættu þó betur að því hyggja. En mál- ið er fyrst og fremst þeirra sem erfiða í sveita síns andlitis og vita að ofþreyta stefnir til eyði- ieggingar á lífsgjörfi manna og sljóvgar menn. Það er hægt’ að stytta vinnuvikuna. þar sem eðlilegur vinnutími géfur betri -aun, og það er hægt að stytta hana með óskertu kaupi. Það sýna yfirborganir og yfirvinna. og það sýna b.ióðartekiurnar =em erfiðismenn hafa átt sinn stóra bátt í að skapa t>að dendur ekki á verkafólki ið •’inna þegar við liggur )ð 'riarga miklum aflaföngum en •innubrælkun »r blettur á fs- '""'’ku bjóðinni sem verður að afmá. I i I * 4

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.