Þjóðviljinn - 01.05.1963, Page 7
Miðvikudagur 1. maí 1963
Blikksmiðir
Allir til þátttöku í hátíðahöldum dagsins.
Félag blikksmiða
Bifvéiavirkjar
Allir til þátttöku í hátíðahöldum dagsins.
Gleðilega hátið!
Félag bifvélavirkja
Stéttarfélagið Fóstra
minnir alla félaga sína á að mæta í kröfu-
göngunni og taka þátt í öðrum hátíða-
höldum dagsins.
Gleðilega hátið!
Gleði/ega hátiðl
Félag
sýningarmanna við kvikmyndahús.
Hásgagnasmiðir
Fjölmennum í kröfugönguna og tökum
þátt í hátíðahöldum dagsins.
Sveinafélag husgagnasmiða
Bókbindarafélag íslands
óskar til hamingju með daginn.
Gleðilega hátiði
Félag íslenzkra rafvirkja
óskar til hamingju með daginn.
Gleðilega hátíð!
Verkakvennafélagið
Framsókn
óskar til hamingju með daginn.
Gleðilega hátíðI
ÞJðÐVILIINN
SÍÐA 7
MinningarhEiómleikar
tónlist
Hljómleikar hins kunna org-
anleikara Antons Heillers frá
Vínarborg, sem fram fóru í
Kristskirkju hinn 17. f.m., voru.
helgaðir minningu dr. Victors
Úrbancic. sem iátinn er fyrir
fjórum árum, en hefði orðið
sextugur á þessu ári, ef hon-
um hefði enzt aldur til.
Antori Heiiler lék verk eftir
Georg Muffat, Johann Kaspar
Kerrl og Johann Sebastian
Bach og nútímamanninn Jo-
hann Nepomuk David, austur-
rískt tónskáld. sem enn er á
lífi. Allt var þetta þann veg
flutt, að segja má með sanni.
aö sjaldgæft sé að heyra jafn-
góðan organleik. Mörgum mun
þó hafa leikið einna mest for-
vitni á því, hvemig til myndi
takast um síðasta þátt tónleik-
anna, en það hafði verið aug-
lýst, að listamanninum myndi
i lok tónleikanna verða fengið
íslenzkt þjóðlag eða stef honum
áður ókunnugt. og myndi hann
þá á stundinni semja á hljóð-
færið tónverk um þetta efni.
Var honum afhent sálmalagið
gamla „Víst ert bú. Jesús.
kóngur klár“. og lék hann um
það af fingrum fram langa tón-
smíð af frábærri tækni og
mikilli hugkvæmni. Ekkert
skaí um það fullyrt. hvort
verkið stæðist stranga aagn-
rýni, ef það væri komið á olað
og lesið ofan f kjölinn. en slík
tónverk eru raunar alls ekki til
þess ætluð. heldur bess eins að
koma fyrir eyru hlustenda í
eitt. skipti og eigi ' oftar. og
verður varla um það deilt. að
samkvæmt því sjónarmiði hafi
frammistaða organleikarans
verið með miklum ágætum oa
borið vitni um frábæra tækni
og tónlistarsnilld.
Tónleikamir voru minningu
hins snjalla tónlistarmanns dr.
Victors Úrbancic til verðugs
sóma.
Undirritaður vill sc- -:amall
nemandi dr. Urban<-;. nota
þetta tækifæri til að vn.Ua fyr-
ir sitt leyti minningu bessa
mikla ágætismanns virðingu
sína. b 17
Sinfóníutónleikar
Fjórtándu hljómleikar Sin-
fóníusveitarinnar fóru fram
í Samkomuhúsi Háskóians
26. f.m. William Strickland
stjórnaði hljómleikunum.
Á efnisskrá voru fjögur á-
gæt tónverk. en mjög ólík
hvert öðru. Þar var fyrst
hinn ■ víðfrægi Suðureyja-for-
leikur Mendelssohns (Hebrid-
en-Ouvertúre), kenndur við
Fingalshelli og saminn fyrir
áhrif beirrar náttúrufegurðar,
sem tónskáldinu birtist á ferð
til Suðureyja og annarra hluta
Skotlands árið 1829. Annað
rómantískt verk. þótt með
öðrum hætti sé. kom bessu
næst: Tuonela-svanurinn, —
tónaljóð um hugmynd. sem
fengin er úr finnska bjóð-
kvæðinu Kalevala. Þriðja
verkið var „Passacaglia" Póls
Isólíssonar. Allt þetta iék
hljömsveitin af talsverðum
tilþrifum, en hefði sumsstaðar
mátt sýna meiri nákvæmni
og næmleik.
Síðast á efnisskrá var svo
tvíleiks-konsert í a-moll eftir
Brahms fyrir fiðlu og kné-
fiðlu með undirleik hljóm-
sveitar. Með einleikshljóð-
færin fóru þeir Björn Ölafs-
son og Einar Vigfússon. Mun
hvorugt hlutverkið vera auð-
velt viðfangs, en þó mun
f*kki annað verða sagt en að
frammistaða beggja þessara
snjöllu tónlistarmanna hafi
verið hin prýðilegasta. hvort
sem litið er á leik hvors um
sig eða samleik þeirra.
B. F.
Timbursalinn, borgarstjórinn
og lóðaáthlutunin
Leifur Sveinsson, timbur-
kaupmaður í Völundi er einn
þeirra íhaldsgæðinga sem nú
eiga að fá aðstöðu til að ávaxta
fé sitt í byggingabraski og taka
álitlegan gróða af íbúðabygg-
ingum og íbúðasölu.
Eigendur stærstu byggingar-
vöruverzlunar landsins vilja
þannig ekki lengur láta sér
nægja gróðann af byggingar-
efninu sem þeir flytja til lands-
ins og selja til byggingarstarf-
seminnar. Þeir gera kröfu til
að fá aðstöðu í sjálfri oygg-
ingarstarfseminni til þess að
auka gróða sinn og fjársöfnun.
Og við þessari kröfu verður
gróðafélagi Leifs í útgáfufé-
lagi Morgunblaðsins, Geir Hall-
grímsson borgarstjóri. Borgar-
stjórinn skipar „lóðanefnd"
sinni að taka kröfu timbur-
kaupmannsins til greina — enda
þótt með því sé níðst á almenn-
um umsækjendum um bygg-
ingarlóðir og fjölmörgum reyk-
vískum byggingarmeisturum
sem sótt höfðu um lóðir en fá
synjun.
Sjaldan hefur raunveru'ieg
ást íhaldsins á einstaklings-
framtakinu komið skýrar í ljós.
íhaldið með Geir borgarstjóra
í broddi fylkingar hneigðir
sig og beygir fyrir ósvífni
timbursalans í Völundi en
hafnar umsóknum samtaka al-
mennings og sjálfra bygging-
armannanna. Það er „einstak-
lingsframtak" hinna ^tóru og
ríku, sem íhaldið vill hlúa að,
einstaklingsframtak almennings
fyrirlítur það og forsmáir.
Af þessu má einnig sjá að
það er ekki einskis nýtt að
vera gróðafélagi Geirs borgar-
stjóra. Borgarstjórinn bekkir
sína og hlynnir að "™ð
ráðum og dáð!
FRAMBOÐSUSTAR
við alþingiskosningar 1 Reykjavík, sem fram eiga
ið fara sunnudaginn 9. júní 1963, skulu af-
lentir í skrifstofu yfirborgarfógeta, Skólavörðu-
5tíg 12, eigi síðar en miðvikudaginn 8. maí 1963.
Yfirkiörstjómin í Reykjavík, 29. apríl 19^
Kristján Kristjánsson.
Sveinbjöm Dagfinnsson. .
°áli Líndal.
Syjólfm Jónsson.
Þorvaldur Þórarinsson.
IÐNNCMA R
Fjölmennið í kröfugöngu 1. maí-nefndar
og á útifundinn við Miðbæiarskólann.
Gleðilega hátið!
STJÖRN I.N.S.I.
Sendum öllu vinnandi fólki beztu kveðjur
í tilefni dagsins. Þökkum viðskiptin.
Gleðilega hátíð!
Steypustöðin h.f.
Sendum öllu starfsfólkinu og öllu vinnandi
til lands og sjávar okkar beztu kveðjur
í tilefni dagsins.
Sendum öllu starfsfólkinu og öllu vinn-
andi fólki til lands og sjávar kveðjur
í tilefni dagsins.
Sendum öllu starfsfólkinu okkar beztu
kveðjur í tilefni dagsins.
Blikksmiðjan GRETTIR
Sendum öllu starfsfólkinu okkar beztu
kveðjur í tilefni dagsins
BlLASMIÐJAN H.F.
Sendum starfsfólkinu beztu kveðjur í til-
efni dagsins og öllu vinnandi fólki
til lands og sjávar.
EININGAHOS H.F.
Sendum öllu starfsfólkinu okkqr beztu
kveðjur í tilefni dagsins
TÆKNI H.F
>.
*
1