Þjóðviljinn - 11.07.1963, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 11.07.1963, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 10. jtflí 1963 ÞI6ÐVIUINN SlÐA 13 Nýjasta kvikmynd Sopbiu Loren er sögð hin glæsilegasta. Heitir myndin „Fall rómverska ríkisins“ og er tekin á Spáni. Samuel Bronston framleiðir myndina, en lcikstjórinn heitir Anthony Mann. Er þetta sama þrenningin og sá um að gera myndina „E1 Cid“ sem bezt úr garði. Hér sjáum við Sophiu í hlutverki sinu. Janosi Kadar vel fagnað í Moskvu MOSKVU 10/7 — Janos Kadar, Íorsætisráðherra Ungverjalands kom í dag í opinbera heimsókn til Moskvu. Á járnbrautarstöð- inni tók Krústjoff á móti honum og föðmuðust þeir innilega, Lét Krústjoff svo um mælt, að heim- sókn þessi væri nýtt dæmi um hina góðu vináttu Sovétríkjanna og Ungverjalands. Krústjoff sagði ennfremur, að hann væri þess fullviss, að heim- sóknin yrði til þess að efla og styrkja báðar þjóðimar og auka einingu innan hinna sósíalistísku landa. Hér væri spor stigið til varnar heimsfriðnum og upp- byggingu kommúnismans. 1 svarræðu sinni undirstrikaði Kadar það, að flokkar og ríkis- stjórnir Sovétríkjanna og Ung- „dr.“ Stephen Ward S t e p h e n Word ,tgár videre" LONDON 10/7 — Ákveðið hef- tr verið, að réttarhöldunum gegn skottulækninum og frí- stundamálaranum Stephen Ward verði haldið áfram 22. júlí næst- komandi. Þetta var tilkynnt í dag, og er þetta einni viku síð- ar. en ákveðið hafði verið. 3. júlí síðastliðinn var Ward sekur fundinn um það að hafa stundað vændi. Hann var þá látinn laus gegn tryggingu. verjalands létu stjórnast af sömu stefnumálum. Við höldum í sömu átt, sagði hinn ungverski kommúnistaleiðtogi. Janosi Kadar var tekið af mikluífi rrianrifjölda, sériV'IiýKTI hann og veifaði fánum. Síðar um daginn var móttaka fyrir hann og þá, er honum fylgdu, í Kreml. Stóð þar Krústjoff fyrir veitingum, en síðar heim- sótti Kadar Bresjnéff forseta og lagði blómsveig á leiði Lenins. Moskvuútvarpið skýrir svo frá, að viðræður Ungverjanna við Krústjoff hafi farið fram í anda vináttu og bræðralags. Eftir því hefur verið tekið, að í för Ungverjanna eru ekki neinir af sérfræðingum ung- verzka kommúnistaflokksins í fræðilegum málum. Þykir það benda til þess, að heimsóknin standi ekki í neinu sambandi við deilur þær, er nú standa sem hæst milli Sovétríkjanna og Kína. Samband Sovétríkjanna og Ungverjalands er talið mjög gott. Japani til Hafnar KAUPMANNAHÖFN 10/7 — Danska utanríkisráðuneytið til- kynnti það á miðvikud., að utan- ríkisráðherra Japan, Masayos'ni Ohiro, komi í opinbera heim- sókn til Danmerkur. Mun Ohiro dveljast i ríki Danakonungs 31. ágúst til 3. september. Vili gjarnan hitta Nasser JERÚSALEM 10/7 — Hirm nýi forsætisráðherra Israels, Levi Eskhol, kvaðst á miðvikudag reiðubuinn til að hitta Nasser, forsætisráðherra Egyptalands, — hvar og hvenær sem væri. Á fundi með blaðamönnum í Jer- úsalem sagði Eskhol, að ef hann hitti leiðtoga Araba augiiti til auglrtis, myndu þeir komast að samkomulagi um það, að friður væri öllum fyrir beztu. — Við höfum ávallt verið reiðubúnir til að taka upp samn- ingaviðræður án þess að setja fram neinar kröfur fyrirfram, sagði forsætisráðherrann. Kvað hann þetta jafnt eiga við um endanlega lausn deilumálanna og hvert einstakt þeirra. Með samn- ingum og viðræðum kvað hann unnt að koma á sáttum. Eskhol lét svo um mælt, að auðsætt væri, að Vestur-Þýzka- land léti ekki leiðast af hinum nazistíska arfi. Vestur-þýzku stjómina kvað hann hafa gert mikið til þess að uppræta naz- ismann og losna við skuggann af hinni nazistísku fortíð. Hann var að því spurður, hvort senn yrði tekið upp stjómmálasam- band milli ríkjanna, og svaraði því til, að fmmkvæðið yrði að koma frá Þjóðverjum. Ennfremur sagði Levi Eskhol, að yfirlýsingar stórvelda um frelsi Israels væru góðar og nauðsynlegar, en þó yrðu Isra- elsmenn að geta treyst sínum eigin herafla. Fer í mál sökum Feneyjaserenöðu KAUPMANNAHÖFN 10/7 — Á- kæruvaldið í Danmörku hefur áfrýjað sýknudómi borgarréttar 1 málj því, er spratt af eftirlík- ingum þeim, er gerðar hafa ver- ið á Feneyjaserenöðu Johans Svendsen. í forsendum dómsins var svo látið um mælt, að ekki hefði verið um menningarskemmdar- verk að ræða. enda þótt við- 1 k’ðrif&ridi "Tag væri útíþynning á verki hins danska tónskálds. Ekki er enn ákveðið, hvenær málið verður tekið fyrir að nýju. Hér er um mikilsvert próf- mál að ræða, þar eð þetta er í fyrsta skipti, sem reynt er að fá bannaðar siíkar eftirlíkingar. Nú eru liðin meir en fimmtíu ár frá dauða Johans Svend- sen. Ný ríkisstjorn í Jórdaníu AMMAN 10/7. — Hussein, konungur Jórdaníu, skipaði i gær Sharif Husain Bin Nasir forsætis- og utanríkisráðherra í hinni nýju stjóm landsins. Bin Nasir var einnig forsætisráð- herra í fyrri stjórninni, en hún fór frá völdum í gær sökum kosninganna á sunnudag. Inn- anríkisráðherra hefur verið út- nefndur Salih Majal, en hann sagði sig úr stjóminni í maí ásamt tveim ráðherrum öðrum. Hin nýja ríkisstjóm sór emb- ættiseið sinn í dag. Hussein konungur biður ríkisstjórnina vinna að bættum kjörum al- mennings og efla um leið vamir landsins. Deilur Kínverja og Russa: Ekkert fréttist enn af viðræðum flokkanna MOSKVU 10/7 — Sendinefndir kommúnistaflokka Kína og Ráðstjórnarríkjanna héldu áfram viðræðum sínum í dag. Er það þriðji dagurinn, sem nefndirnar sitja að störfum, en á þriðjudag mættu Kínverjar ekki til fundar og ráð- færðu sig við yfirboðara sína í Peking. Nefndirnar sátu á fundi í fimm tíma samfleytt í dag. Ekkert hefur enn frétzt með vissu um það, hvernig viðræðumar gangi. Með- an þessu fer fram ganga klögumálin á víxl í málgögnum flokkanna. Sendinefndimar settust að fundi fyrir hádegi í húsi Sov- étstjórnarinnar á Leninhæð. Lögregluvörður er um húsið og er erlendum fréttamönnum og ljós- myndurum haldið í hæfilegri fjarlægð. Sovézkir fréttamenn láta sig viðræðumar litlu varða. og Moskvuútvarpið sömuleiðis. f fréttum frá Moskvu er það haft eftir erlendum kommúnist- um, að á fundinum á mánudag hafj nefndirnar aðeins lýst stefnu sinni í deilu þessari, en hinar raunverulegu viðræður hefjist í dag. Þá er það einnig haft eftir sömu aðilum, að þeg- ar á undirbúningsfundunum hafi komið í Ijós svo alvarleg- ir erfiðleikar, og Kínverjar reynst svo harðir í ho.rn að taka, að frekari viðræður muni reynast mjög erfiðar. Gefið er í skyn. að viðræðurnar geti far- ið út um þúfur hvenær sem er. f dag hélt Pravda, málgagn Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna, áfram árásum á Kinverja. í langri grein eru sendimenn Kínverja á kvennaþinginu í Moskvu nú fyrir skömmu sak- aðir um það að hafa reynt sundrungarstarfsemi. Fullyrð- ingar Kínverja þess efnis, að þingið hafi ekki starfað á lýð- ræðislegum grundvelli, eru sagðar lygar einar. Eru Kin- verjar sakaðir um að útbreiða þessar lygar með velþóknun borgarablaðanna í Bandaríkjun- um, Englandi og öðrum löndurn. Kínverjar hafa heldur ekki legið á liði sínu. f dag ásakaði miðstjórn Kommúnistaflokks Kína Sovétríkin fyrir það. að samkomulag landanna hafi versnað, f yfiriýsingu sinni, sem send var út af fréttastofunni Hið nýja Kína, hvetur mið- stjómin til samstöðu. Mælist hún til þess, að ríkin tvö láti von heimsvaldasinna um að sundra fylkingu kommúnista sér til skammar verða. Ásakanir Fazistahjónunum fálega tekið Sovétstjórnarinnar kveða Kín- verjar úr lausu lofti gripnar, og bæta því við, að kommúnistar eigi að viðurkenna staðreyndir og haga sér af skynsemi. Þá halda Kínverjar því enn fram, að það hafi verið vitleysa ein að vísa Kínverjunum fimm úr landi, en eins’ og kunnugt er af fréttum var þeim gefið að sök að hafa dreift um Sovétrikin skjölum þar sem fram kom sjón- armið Kínverja í deilunni. Segja Kínverjar, að Sovétríkin hafi leikið sama leik í ICína og kalla það gjörsamlega ófæra rökfræði, að meina Kínverjum það í Sov- ét, sem Sovét leyfist í Kína. Ekki láta Kínverjar þar staðar numið og bregða fyrir sig skáld- skap. Segja að engin eining ná- ist meðan leiðtogunum leyfist að brenna hús en venjuiegt fólk fái ekki einu sinni að kveikja á lampa. Stefnu kínverskra komm- únista segja þeir vera að halda fast við meginlögmál kommún- ismans, styrkja eininguna og hefja sameiginlega baráttu gegn óvinunum. Yfirlýsingu Kínverja lýkur með þessum orðum: Fólk hlýtur að spyrja: Hve mikinn ætla fé- lagarnir í Kommúnistaflokki Ráðstjómarríkjanna að gera á- greininginn? Eining er í þágu beggja landa og flokka. Komm- únistar allra landa vona að við- ræðurnar í Moskvu hafi jákvæð- an árangur í för með sér og að eining Sovétríkjanna og Kína megi eflast og styrkjast. Það eni aðeins amerískir heimsvaldasinn- ar, afturhaldssinnar í öllum lönd- um og flokkssvikarar í Tító- hópnum, sem vonast til þess að viðræðurnar fari út um þúfur og vináttuslit verði með löndunum tveim. LONDON 10/7 — Páll Grikk- Iandskonungur og Friðrika drottn- ing eru þessa dagana í opinberri heimsókn í Englandi. Margvísleg- ir árekstrar hafa orðið í sam- bandi við komu konungshjón- anna, en eins og kunnugt er olli heimsókn þessi stjómarkreppu í Grikklandi fyrir skemmstu. Mið- vikudagskvöld voru konungshjón- in við hátiðlega leiksýningu í London og sáu Miðnæturdraum Shakespeares. Er þau komu úr leikhúsinu var þeim mætt með ókvæðisorðum og til þeirra kall- að sieg-heil, en þau hjón þykja fazistisk í skoðunum. Er þau hjón óku um götur Lundúnaborgar fyrr um daginn í-eyndi kona nokkur að brjótast gegnum raðir lögreglunnar. Kona þessi heitir Betty Ambatielos og er gift Tony Ambatielos, sem var formaður sjómannasambandsins gríska. Hefur maður hennar set- ið sextán ár í grísku fangelsi. Upprunalega var hann dæmdur til dauða fyrir að hafa hjálpað skæruliðum kommúnista í Grikk- landi, en dóminum var síðan breytt. Tókst frú Ambatielos að dreifa flugmiðum þar sem kraf- izt var að maður hennar væri látinn laus. Lögreglan hélt kon- unni uns konungshjónin voru komin hjá, en þau ætluðu að bregða sér í skemmtisiglingu á ánni Thames. Á miðvikudag var það svo til- kynnt, að frú Ambatielos myndi eiga samtal við Pipineli forsæt- isráðherra á fimmtudag, en hann fylgir konungshjónunum í ferðinni. Hefur frúin heitið því að efna ekki til mótmælaað- gerða fyr en séð er, hvemig þeim fundi lyktar. í gær urðu einnig allmiklar óeirðir í London. Þrátt fyrir lögreglubann fór hópur manna í mótmælagöngu frá Trafalgar- torgi til Buchkingham-hallar, en þar búa grísku konungshjónin meðan á heimsókn þeirra stend- ur. Um það bil tólf hundruð manns tóku þátt í mótmæla- göngunni og voru þeir úr ýms- um flokkum. Lögreglan dreifði mannfjöldanum með erfiðsmun- um, og voru 94 menn hand- teknir. SAS ot Lufthansa ieggja saman STOKKHÓLMI 10/7 — f dag undirskrifuðu SAS og vestur- þýzka flugfélagið Lufthansa samning um nánari samvinnu þessara félaga. Samkomulagið hefur það í för með sér. að all- ar flugsamgöngur milli Skandi- navíu og Vestur-Þýzkalands verða skipulagðar. Samningur- inn kemur til framkvæmda 1. nóvember og gildir í fimm ár. 2. sept. verður undirskrifað- ur annar samningur milli fé- laganna þess efnis. að þau verði aðalumboðsmenn hvers annars í viðkomandi löndum. Talið er. að þetta sé mjög þýðingarmik- ill samningur fyrir flugfélögin. Með þessum samningi lýkur langri og harðri baráttu þessara tveggja flugfélaga. f meir en eitt ár hefur verið að því unn- ið að koma á samkomulagi. Það er viðurkennt, að mikil harka hafi verið í samningaviðræðum, en nú telja báðir aðilar sig hafa komizt að góðum skilmál- um. Ferðizt í Volkswagen — Akið sjálf nýjum bfl Höfum til leigu Volkswagen og Land-Rovc Sé bifreiðin tckin á leigu i .einn mánuð eða lengri_ tíma, þá gefum við 10 — 20% afslátt á leigugjaldi. — Leigjum bifreiðir olékstr/aílt riiður i 3 tíma. ALMEMNA BIFREIfiAIEIGAN h.f. REYKJAVIK Klapþarstig 40 sími 1-37-7ö. KEFLAVIK Hringbraut 106 sími 1513. AKRANES Suðurgötu 64 sími 170.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.