Þjóðviljinn - 11.07.1963, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 11.07.1963, Blaðsíða 10
i I Leikhus æskunnar: Frumsýnir leikrit Odds Björnssonar Næstkomandi laugardag frumsýnir Lei'khús æsk- unnar leikrit eftir Odd Bjömsson, og verður frumsýning á Akureyri. Leikritið heitir Einkenni- legur maður. Var það flutt í útvarp í vetur, og vakti athygli hlustenda. Oddur hefur gert á leikritinu smávægilegar breytingar- Titilhlutverkið, hinn ein- kennilega mann, leikur Sævar Helgason. Leik- st'jóri er Guðmundur Ingi Sigurðsson. Leikhús æskunnar byrjar nú ef svo mætti segja á öf- ugum enda, frumsýnir á Ak- ureyri, fer síðain með leik- ritið um landið en sýnir það í Reykjavik í haust. Leikrit- ið er í tólf myndum. Fjallar það um einkennilegan mann. sem tekur herbergi á leigu og kemur margvíglegu róti á fjölskyldu húsráðanda. Leik- tjöld hafa leikendur unnið sjálfir. „Elektrónískum" á- hrifum er beitt í leiknum og það óspart, en aí hinum smærri stílbrögðum má nefna Hclgason þágufallssjúkan Suður-í>ing- eying. Hlutverk eru sem hér seg- ir: Daníej Danielsson: Valdi- mar Lárusson, frú Dóra: Sig- urlín Ó'skarsdóttir. Útigang- ur, kallaður Gangsi: Sigurð- ur Skúlason, Heimasæta, köll- uð Sæta: Sigrún Kvaran, frú Gíslason: i>órunn Sigurðar- dóttir. Hörður Tryggvason: Grétar Hannesson, frú Tryggvason: Bergljót Stef- ánsdóttir, María vinnukona að norðan: Jónína Ólafsdótt- ir. Þetta er þriðja verkefni Leikhúss æskunnar. Formað- ur félagsins er Guðmundur Ingi Sigurðsson. Fylkingar-ferð um helgina ■ Um næstu helgi efnir Æskulýðsfylkingin í Reykja- vík til helgarferðar. Farið verður frá Tjarnargötu 20 kl- 2 e h. á laugardag og ekið til Þingvalla, um Kaldadal og gist í Húsafellsskógi. Á sunnudag verður gengið í Surts- helli og Stefánshelli en í bakaleiðinni ekið um Borgar- fjörðinn og komið í bæinn síðdegis á sunnudag. ■ Öllu ungu fólki er heimil þátttaka. Þátttökugjaldi verður mjög stillt í hóf og innifalið í því kaffi, kakó, súpa og gisting. ■ Myndin er tekin í Fylkingarferð fyrir nokkrum ár- um í munnanum á Surtshelli. Skozkt unglinga- m á vegum KR í gærkvöld var væntanlegt hingað til lands á vegum K.R. skozkt unglingalið, Drumchapcl Amateur F.C. Mun liði^ leika hér 3 leiki, 3 leiki í Vest. mannaeyjum og sennilcga 1 leik á Akranesi. Drumchapel er úthverfi í Glasgow og rekur félagið 3 lið, yngri en 16 ára, yngri en 17 ára og yngri en 18 ára, og hef- ur í öllum flokkum verið meðat sterkustu félaga Skotlands. Til marks um styrkleika liðanna er það, að á 12 mánuðum 1961— 1962 hurfu 18 leikmenn yfir til atvinnufélaga frá félaginu. Umdanfarin ár hefur bezta lið- ið tekið þátt í hraðkeppni í Rúhr-héraðinu í Þýzkalandi og í vor varð félagið nr. 2, en ald- urstakmark er þar hærra en hjá Drumchapel. Fyrir nokkru vann félagið hraðkeppni í Glasgow, Glasgow Junior Charity Cup, og kemur það lið hingað. Þátttakendur verða 14 leik- rnenn og 2 fararstjórar, og\ er annar þeirra Bell, þjálfari St. Mirren, en hjá því félagí eru 4 fyrrverandi Drumchapel dreng- ir. Markvörður Drumchapel leik- ur hér í síðasta sinn fyrir fé- iagið, en eftir heimkomuna verð- ur hann atvinnumaður hjá 1. deildarliðinu Airdrie. Fyrsti leikurinn verður á föstudagskvöld á Laugardals- velli gegn KR, síðan fara Skot- arnir tii Vestmannaeyja, en á þriðjudag leika þeir gegn Fram á Melavelli og sunnudaginn 21. júií á Laugardalsvelli gegn úr- valsliði Reykjavíkur. Auglýst eftir týndum manni I gær auglýsti rannsóknarlög- reglan eftir Færeyingi sem ekki hafði spurzt til í 10 daga eða síðan laugardaginn 29. júní. Maðurinn kom þó strax í leit- irnar og hafði hann dvalizt í Hafnarfirði allan tímann í bezta yfirlæti. Úrslit í 2. flokki Stfórn Hugvísindasjóðs út- híutar rannsóknarstyrkjum Stjórn Hugvísindadeildar Vís- indasjóðs hefur fyrir skömmu lokið við að veita styrki ársins máli og öflun ^ýnishorna af framburði og orðafari ýmsu í byggðum landsins, ennfremur til kaupa á orðabókum og málfræði- tímaritum. Framhald á 2. síðu. 1 kvöld fer fram úrslitaleikur landsmóts 2. fl. frá síðasta ári, en þeim leik tókst ekki að ljúka á réttum tíma. Leikurinn fer fram á Melavelli og hefst kl. 20.30 og eigast þá við Fram og Vestmannaeyingar, en þessi lið sigruðu í sitt hvorum riðli. Þetta er annað árið í röð, sem Í.B.V. kemst i úrslit í þessum flokki og verður skemmtilegt að sjá hvort liðinu tekst betur en 1961, en þá tapaði liðið fyrir Þrótti. 1963, en þetta er sjötta starfsár Visindasjóðs. Alls bárust Hug- vísindadeild 40 umsóknir að þessu sinni. en gtyrk hlutu 23 umsækjendur, að heildarupphæð kr. 965 þúsund. Árið 1962 var tala styrkja 21, og nam fjár- hæðin 745 þús. samtals. Styrkveitingar voru nú sem hér segir: 90 þús. kr. styrk hlutu: Andrés Björnsson cand mag. — til að kanna störf og stöðu Gríms Thomsens, meðan hann dvaldist erlendis. einkum þau árin. sem hann var í utanríkis- þjónustu Dana 1848—1866). BJöm Lárusson fil. lic. — Til að ljúka ritgerð um jarðir á fslandi, eignarhald þeirra. dýr- leika, landskuld og leigukúgildi, frá fomu fari og fram að 'jarða- matsstörfum þeirra Áma Magn- ússonar og Páls Vídailns. Lúðvík Krfstjánsson sagn- fræðingur. — Til að Ijúka heim- ÍldaBöfnun og vinna að undir- búningi ritverks um sjávarhætti á fslandi gð 'fomu og nýju. 60 l»ús. kr. styrk htaut: Orðabókarnefnd Háskólans. — Til að standa síraium af kostn- affi við söfmm orða úr raæltu Akropoiis á Reykjavíkurhöfn I gær kom hingað til Ueykjavíkur gríska ferða- mannaskjpið Akropolis. Skip- ið er 14 þús. smáleslir að stærð og) farþegar með því tæplega 400 að íölu. Fóru þeiröeeeriferðalaS'að Cuil- fossi og Geysi meðan skipið stóð við en það fór héðan kl. 8 í gærkvöld til Akur- eyrar. Þaðan heldur skipið áfram ferð sinni norður til Svalbarða. Þetta er % fyrSta sinn sem skip þetta kemur hingað til lands og kom það hingað á vegum Ferðaskrif- stofu Geirs Zoega. _. Myndin er tekin af skipim* þar sem það lá 4 ytri höfninni f gær. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.L Fimmtudagur 11. júlí 1963 — 28. árgangur 152. tölublað. ASJKENAZI0G S0NUR AÐ ÆFA Þessi mynd af Vladimir Asjkenazi og syni hans og nafna sem nú er 20 mánaða gamall birtist nýverið I The Obsever. Asjkenazi er að æfa sig á píanóið og sonurinn virðist vera að stjórna hljómleikunum. Honum virðist sem sagt ætla að kippa sncmma í kynið enda á hann ekki langt að sækja tónlistargáfuna. CistihúsiB á Hall- ormsstaB opnað áný Síðastliðinn fimmtudag, 4. júlí, var gistihús Húsmæðraskólans | opnað fyrir almenning. Áður hafa verið þar hópar húsmæðra í orlofsdvöl, svo og fundir ým- | issa fjórðungssamtaka. Aðalfundur Búnaðarsambands Austurlands hófst 14. júní og lauk á sunnudag. Þá komu 28 húsmæður úr Múlasýslum og kaupstöðunum og dvöldu í viku. Um næstu helgi var aðalfundur Stúdentafélags Austurlands. Þá komu 22 konur úr Austur-Skafta- fellssýslu til orlofsdvalar. Sam- band austfirzkra kvenna hafði aðalfund sinn síðustu helgina í júní og stóð fundur þeirra fram á mánudagskvöld. En á þriðju- dag komu oingeyskar konur, áttatíu saman, og gistu tvær næt- ur. Almenn gestamóttaka hófst svo á fimmtudag eins og fyrr segir og verður gistihúsið opið til 24. ágúst. Þá lýkur sumar- starfi skólans með orlofsviku | kvenna. Fr. Guðrún Ásgeirsdóttir veitir gistihúsinu forstöðu. I Ný húsgögn hafa nú verið fengin til skólans, þar á meðal þægileg rúm og svefnsófar á öll herbergi. Þá hafa og verið gerð- ar nokkrar lagfæringar á húsum og umhvserfL Hallormssfaður er hlýlegasti og veönreælastt staður á Austur- landi, hefur auk þess algera sérstöðu vegna skógarins. Hann er ekki á aðalumferðaleið og því kjörinn staður fyrir þá, sem vilja njóta hvíldar og næðis í nokkra daga. lommareit kemur til Gautaborgar i STOKKHÓLMI 10/7 — Sæn$ka í flutningaskipið Lommaren er ’ væntanlegt til Gautaborgar eft- " nokkra daga Þess hefur þég- ar verið krafizt, að hafnar- verkamenn í Gautaborg neiti að skipa upp hinum suður-afrík- anska farmj skipsins. Hafnar- verkamenn í Kaupmannahðfn og Árósum neituðu að afferma skipið. Lommaren er ekki væntanlegt til Gautaborgar fyrr en í fyrsta lagi á_ laugardag. Þegar ; g*r safnaðist hópur ungs fólks sam- an fyrir framan skrifstofu hafn. arverkamannafélagsins í Gauta- borg, og krafðist þess, að skip- inu yrði neitað um afgreiðslu. Ekki er um það vitað. hvaða stefnu hafnarverkamenn í Gautaborg hyggjast taka í máli þessu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.