Þjóðviljinn - 01.08.1963, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 1. ágúst 1963 — 28. árgangur—170. tölublað.
Mamma, hvað er sjór?
I blaöinu í dag er brugðið
upp augnabliksmynd úr lífi
sjómannsfjiilskyldu, sem flutt-
ist burt frá ströndinni og
settist að í 80 km. fjarlægð
frá sjó. Húsbóndinn stundar
sjóinn og hann var háseti á
Snæfugli, frá Reyðarfirði,
sem fórst í fyrradag.
Fréttamaður blaðsins heim-
sótti fjölskylduna fyrir nokkru
og átti stutt viðtal við hús-
móðurina.
Sjá 2. síðu
Leitinni
var hætt
í gær
Samkvæmt upplýsingum. sem
Þjóðviljinn fékk í gær hjá Slysa-
vamafélaginu, er leitinni að
ungu mönnunum tveimur,
Kristni Ölafssyni og Jörgen
Viggóssyni, nú hætt og er talið
víst að þeir hafi farizt. Leitað
hefur verið frá því á sunnudag
af sjó og úr lofti og fjörur
gengnar, en allt án árangurs.
Það síðasta sem spurðist til
þeirra félaga, var að þeir rákust
á bandarískt herhlutningaskip,
sem lá hér fyrir utan eyjar. en
eins og kunnugt er voru þeir
Kristinn og Jörgen á lítilli trillu.
RANNSOKN EKKIENN HAFIN
Valbjörn
annarí
tugþrautinni
Seint í gærkvöld bárust þær
fréttir, að Valbjörn Þorláksson
hefði orðið annar í tugþraut á
Norðurlandamótinu í frjálsum
íþróttum. Hlaut hann 6931 stig.
Sigurvegari varð Finninn Markus
Hahma, með 7034. Kjartan Guð-
jónsson varð áttundi í röðinni.
Ærsiadraugurinn
Eins og sagt var frá í gær, Ærsladrauginn eftir enska skáld-
Iagði leikflokkur upp frá Reykja- ið Noel Coward. Fyrsta sýningin
vík í gærkvöld með gamanleikinn I var á Altranesi í gærkvöldi.
Flokkurinn kallar sig Sumarlcik-
húsið og ætlar með Ieikinn um
allt vestur og Norðurland, að
Vestfjörðum meðtöldum. Myndin
er af Þóru Friðriksdóttur, Gisla
Halldórssyni og Sigríði Hagalín i
hlutverkum sínum. Þóra er
draugurinn. (Ljósm. Þjóðv. G.O.
Vísitala bygg ingarkostnað-
ar 183 stig
I nýjasta hefti Hagtiðinda er greint frá vísitölu byggingarkostn-
aðar miðað við verðiag í júní s.l. Reyndist hún vera 183 stig og
hafði hækkað um 1 stig frá því hún var síðast reiknuð í febrúar
s.I. Er þá byggingarkostnaðurinn í október 1955 talinn vera 100 stig.
Þegar byggingarkostnaður er reiknaður er miðað við svokallað
„vísitöluhús“. Slikt hús kostaði kr. 1.120.177 i október 1955, en nú
myndi samskonar hús kosta kr. 2.055.104 — eða 83% hærri upp-
hæð.
Sé athuguð breyting byggingarkostnaðar frá því fyrir stríð kem-
ur í ljós að miðað við grunntöluna 100 árið 1939 er vísitalan nú
hvorki meira né minna en 1773; byggingarkostnaðurinn hefur nær
því átjánfaldazt.
Hækkunin á byggingarkostnaði seinustu árin stafar fyrst og
fremst af gengislækkununum sem hafa stórhækkað I verði allt
innflutt byggingarefni. Hefur efniskostnaður farið hlutfallslega vax-
andi í heildarkostnaði við húsbyggingar og vinnukostnaður minnk-
að að sama skapi hlutfallslega. Þannig námu hreinir vinnuliðir
um 45% af byggingarkostnaðinum 1955, en nú er sambærilegur
vinnukostnaður um 37%.
Síðan gengið var lækkað 1960 hefur visitala byggingarkostnaðar
hækkað úr 132 stigum í 183 stig, eða um 51 stig. Hefur byggingar-
kostnaður ekki vaxið jafn ört síðan á fyrstu styrjaldarárunum.
Leikflokkur Helga
Skúla í leikför
Annað kvöld frumsýnir Leik-
flokkur Helga Skúiasonar á
Blönduósi gamanlcikinn Hlauptu
af þér hornin. Er leikurinn eftir
Neil Simon og nefnist á frum-
málinu Come blow your hom.
Hjörtur Halldórsson þýddi leik-
ritið.
í leikflokknum eru auk Helga
þau Helga Bachmann, Guðrún
Stephensen, Brynja Benedikts-
dóttir, Erlingur Gíslason og Pét-
ur Einarsson. önnur sýning leik-
flokksins verður á Siglufirði
laugardag. Á Ölafsfirði verður
sýnt sunnudag, Sauðárkróki
mánudag. Síðan verður haldið til
Dalvíkur, Akureyrar og Húsa-
víkur, þaðan haldið austur um
land. Endað verður á Vestfjörð-
um og Vesturlandi, en í byrjun
september verður svo leikurinn
sýndur í Reykjavík og á Suður-
landi.
!
Vinnustöðvun blaðamanna
Þegar blaðið fór í prentun
á miönætti sl. sátu samninga-
nefndir útgefenda og blaða-
manna enn á fundi með
sáttasemjara í Alþingishúsinu,
en vinnustöðvun hafði Blaða-
mannafélag íslands boðað frá
þeim tíma, ef samningar hefðu
þá ekki tekizt.
Þetta er í fyrsta sinn sem
íslenzkir blaðamenn hefja
vinnustöðvun til stuðnings
kröfum sínum og nær það til
60—70 blaðamanna við dag-
blöðin í Reykjavík.
Útgefendur og launaniála-
nefnd Blaðamannafélags ls-
Iands sátu á fundi sl. mánu-
dag, án þess samkomulag
næðist; í fyrradag var hald-
inn almcnnur félagsfundur til
að ræða viðhorfin í samn-
ingamálunum og Ioks í gær-
kvöld ltl. 10 hófst fyrmefndur
samningafundur með sátta-
semjara ríkisins. Xorfa Hjart-
arsyni.
Verði samningar ekki und-
irritaðir í dag milli útgefenda
og blaðamanna koma engin
dagblöð út á morgun, föstu-
dag.
Alþýðusambandið skýrir frá undirbun-
ingi rannsóknar á helztu þáttum efna-
hagslífsins með tilliti til nýrra kjara-
samninga
Sú hagiræðilega athugun í samhandi við kjara-
samninga, sem ríkisstjómin flutti tillögu um 15.
júní sl., — fyrir hálfum öðrum mánuði —, er ekki
enn hafin. Stjóm Alþýðusambands íslands hefur
frá uphafi tjáð sig reiðubúna til starfa og kaus
þegar í júní nefnd til að fjalla um málið af
sinni hálfu og tilkynnti forsætisráðherra það 1.
júlí. 16. júlí ritaði Alþýðusambandið samtökum
atvinnurekenda bréf og óskaði eftir viðræðum
um málið.
Síðan he'fur Alþýðusambandið beðið eftir svari
l ^ ' . • " ' -
þar Jil nú fyrir nokkrum dögum að Vinnuveit-
endasamband íslands tjáði sig reiðubúið til við-
ræðna um málið, en frá öðrum atvinnurekenda-
samtökum ekkert heyrzt enn.
Frá þessu er skýrt í greinar-
gerð sem Þjóðviljanum barst í
gær frá Alþýðusambandi Islands,
en hún hljóðar í heild á þessa
leið:
.Vegna fyrírspuma úr ýmsum
áttum um það, hvað hafi gerzt
varðandi undirbúning að hag-
fræðilegri rannsókn, er verða
mætti til að auðvelda kjarasamn-
inga, þykir Alþýðusambandinu
rétt að taka eftirfarandi fram:
IRíkisstjómin sendi tilmæli
• sín um rannsókn þessa til
samninganefndar verkalýðsfélag-
anna með bréfi dagsettu 15. júní.
2Nokkrum dögum síðar
• beindi samninganefndin svo-
hljóðandi tilmælum til Alþýðu-
sambandsins:
„Samninganefndin vill mæla
með því við miðstjóm Alþýðu-
sambandsins, að hún taki upp
viðræður við fulltrúa samtaka
atvinnurekenda um sameiginlega
hagfræðilega athugun, sem að
gagni mætti koma, til þess að
létta fyrir kjarasamningum".
Var látin i ljós ósk um, að
einhver bráðabirgðaniðurstaða
rannsóknar gæti legið fyrir 15.
október.
3Þessi tilmæli voru tekin til
o umræðu á næsta fundi
miðstjórnar Alþýðusambandsins
þann 21. júní, og segir svo í sam-
þykkt miðstjómar um málið:
„Þó að tíminn sem um er talað
í orðsendingunni sé. að áliti mið-
stjómar allt of naumur jafnvel
ttl þess að bráðabirgðaniðurstöð-
ur getí legið fyrir, samþykkir
miðstjórnin að verða við tilmæl-
um samninganefndarinnar um
aðild að sameiginlegri hagfræði-
Iegri athugun, er að gagni megi
verða til að auðvelda kjara-
samninga, þó því aðeins, að fullt
samkomulag fáist við atvinnu-
rckendasamtökin um framkvæmd
rannsóknarinnar og við rikis-
stjórnina um frjálsan aðgang
nefndarinnar að öllum frum-
gögnum, er stuðningur gæti ver-
ið að fyrir rannsókn þessa“.
. Framhald á 2. síðu.
Snjóaði niður í
byggð í Héraði
Ilallormsstað 30. júlí. — Á Hér-
aði er nú komin hlý veðrátta en
þrjár fyrstu vikur júlímánaðar
voru þær köldustu sem hér hafa
komið um langt skeið. Meðalhiti
var aðeins 9 stig. Þeir bændur
sem byrjuðu slátt fyrir kulda-
kastið gátu fyrst hirt heyin á
sunnudaginn var.
Á miðvikudaginn fyrir viku
snjóaði alveg niður í byggð og
varð Jökuldalsheiði ófær litlum
bílum.
Ferðamannastraumurinn hing-
að austur hefur verið með mesta
móti í sumar og var gistihúsið
yfirfullt allan júlímánuð. — Sibl.
Minnisvarði um
séra Sigtrygg
á Núpi
ÞANN 4. AGtJST NÆST kom-
andi verður afhjúpaður að
Núpi í Dýrafirði minnisvarði
um séra Sigtrygg Guðlaugs-
son og konu hans í tilefni af
100 ára afmæli séra Sigtryggs.
Barst Þjóðviljlnum í gær eft-
irfarandi tilkynning um þetta
frá undirbúningsnefnd hátíða-
haldanna:
GAMLIR NEMENDUR séra Sig-
tryggs Guðlaugssonar, stofn-
anda Núpsskólans i Dýrafirði,
hafa í tilcfni af 100 ára af-
mæli sr. Sigtryggs Iátið gera
minniisvarða, með lágmyndaf
sr. Sigtryggi og konu hans
frú Hjaltlínu Guðjónsdóttur,
á hlöðnum stöpli. Minnisvarð-
inn verður afhjúpaður við
hátíðlega athöfn að Núpi,
sunnudaginn 4. ágúst n.k.
Minnisvarðann gerði Ríkarð-
ur Jónsson, myndhöggvari.
I