Þjóðviljinn - 08.12.1963, Síða 4
HðÐvtunm
Sunnudagur 8. desember 1043
A BfÐA
SKÚLI GUÐJÓNSSON:
AÐ FERÐAST BLINDUR
T Oft hefi ég verið að því
spurður hvort það sé ekki erf-
itt og óþægilegt fyrir blindan
mann að ferðast með lang-
ferðabílum. án sérstakrar
fylgdar eða forsjársmanns.
Ég hefi jafnan svarað þessu
eitthvað á þá lund, að slíkt sé
mjög auðvelt og tiltölulega
þægilegt. Maður sezt bara inn
i bílinn, þegir og hlustar á
samræður farþeganna og það
getur stundum verið dálítið
gaman og gæti ég af því sagt
margar sögur, en skal þó að-
eins tilfæra eina: Einu sinni
heyrði ég að maður var að
gæða annars manns konu á
hangikjöti. — Er konan hafði
fengið nægju sína af kjötinu,
upphófst eftirfarandi samtal:
Maðurinn: — Nú borðar þú
eina brauðsneið. Konan: — Ég
hefi ekki gott af að borða
meira. Maðurinn: — Heldur
þú. að þú verðir ófrísk af því
að borða eina brauðsneið? Kqn-
an: — Það þarf áreiðanlega
eitthvað kröftugra en eina
brauðsneið til þess að gera
mig ófríska!
Þegar bíllinn stanzar hjá
veitingastað, reynir maður að
fylgjast með straumnum. Oft
ber það þó við að einhver far-
þeganna, eða jafnvel sjálfur
bílstjórinn, sé hann vel af
guði gerður, býður aðstoð sína,
sem er þakksamlega þegin.
Hitt er þó jafn algengt, eða
jafnvel algengara, að sá blindi
verði þess ekki var að hinir
sjáandi sjái hann. Þá reynir
hann að hlera eftir skóhljóði
hinna sjáandi, og öðrum þeim
hljóðum. er þeir kunna frá sér
að gefa og þannig kemst hann
venjulega klakklaust milli bíls
og veitingahúss.
Svo var það um daginn, þeg-
ar ég var að fara heim frá
Reykjavík með Norðurleið, að
þessi aðferð mín brást mér að
nokkru leyti.
Við höfðum stanzað við
veitingaskálann í Hvalfirði og
ég hugðist ganga þar inn, á-
samt öðrum farþegum og með
sama hætti og ég hefi þegar
lýst. En þar sem bílstjórinn
hafði skilið bílinn eftir í gangi.
drekkti dynurinn frá vélinni
skóhljóði samferðafólksins svo
gersamlega að það var allt
horfið út 1 óendanleikann áður
en mig varði og ég var einn
eftir í veröldinni. Sem ég er að
snúast þarna og reyna að átta
mig á tilverunni, hnýt ég um
eitthvað. Verður mér það á,
Skúli Guðjónsson
sem aldrei skyldi verið hafa,
að ég kalla út í tómið og spyr
hvort nokkur sé þar. — En í
tóminu var enginn, er til mín
heyrði. Fór ég nú að athuga
nánar það sem ég hafði hnotið
um og þekkti að það var
hlemmur yfir olíugeymi. En
með því að ég hafði oft komið
þarna áður vissi ég hvaða
stefnu ég átti að taka frá
geyminum og að dyrum skál-
ans. Hóf ég þá ferðina yfir
hlaðið er tókst með slíkum á-
gætum að ég hitti á skáladym-
ar miðjar.
Eftir að hafa lokið erindi
mínu þar inni fór ég fyrstur
manna þaðan út. Nú þakkaði
ég forsjóninni fyrir að billinn
var enn í gangi. Ég gekk beint
á hljóðið. fann dymar, klifr- I
aði upp í sætið mitt, þar sem
ritvélin mín stóð, en hún var
mér örugg sönnun þess, að ég
hefði lent í réttum bíl og réttu
sæti.
Þetta litla ævintýri rifjaði
upp fyrir mér sögu, er ég
heyrði fyrir nokkrum árum.
Það var einn vetur. fyrir
alllöngu, að áætlunarbíllinn að
norðan kom í Fomahvamm.
Úti var hríðarjagandi af norðri
og kalsaveður. Farþegamir
hröðuðu sér inn og settust til
borðs i veitingastofu. Konu
sem bar inn veitingar til gest-
anna, verður þá litið út um
gluggann og sér, hvar maður
er að þreifa sig áfram með-
fram húshliðinni. Varpar hún
þá orðum á gestina og spyr,
hvort einhver farþeganna hafi
orðið eftir úti.
Einhver gestanna verður þá
fyrir svörum og segir: — Hann
hefur líklega orðið eftir úti
blindi maðurinn. sem var með
okkur í bílnum.
Konan snaraðist út og sótti
blinda manninn, sem skilinn
hafði verið eftir úti í hríðinni
og hún mun hafa látið sam-
ferðafólk hans vita að það væri
með næsta miklum ólíkindum,
að gleyma blindum manni úti
í hríðarveðri.
Það er svo sem engin hætta
á ferðum, þótt sjáandi fólk
týni blindum félögum sinum
milli bíls og veitingahúss. Hin-
ir blindu skila sér einhvem
veginn. með guðs hjálp, svo
sem þessi dæmi sýna.
SUNNUDA SSKROSSGÁ TA
Vélskóflan UB80
AFKÖST EINN TENINGSMETRI
Vélskófla þessi er framleidd i cinni af stærstu verksmiðjum
Þýskalands fyrir vinnuvélar og byggist framleiisla hennar á 12
ára reynslu. Þessi gerð hefur þcgar verið seld til 24 landa og hcf-
ur hvarvetna reynzt vel. — Með dragskóflu, aususkóflu og grip-
skóflu. — Aflvél cr 135 hestafla loftkældur díselmótor.
DEUTSCHERINNEH-UND AUSSENHANDEL
ailfIMIllM»KXPORT
BERtlN W S>WOHRENSTRASSE (t
ALLAR UPPLÝSINGAR VEITIR
VERZLUNARRÁÐ ÞÝZKA ALÞÝÐULÝÐVELDISIN5 Á ÍSLANDI
LAUGAVEGI 18 — REYKJ AVÍK.
LÁRÉTT: — 1 fríður 4 örþreytt 8 hlaðan
9 afl 10 ræna 11 glauminn 13 sá 15 yrki
17 í kirkju 19 lofa 21 ávítar 23 fuglinn
26 óps 27 sötraði 28 gallagripur.
LÓÐRÉTT: — 1 langar til 2 gómaði 3
hrófatildur 4 skaga 5 aum 6 eymdina 7
stækkuð 12 ýtir 14 hreinsa 16 smraði 18
lagin 20 kró 22 kannski 24 traðk 25 hafna
26 3 eins.
AUSTIN GIPSY
Árgerö 1SS4
* Traustur fjalla og torfærubíll.
* Það skiptir engu máli hvort farið er um vegi eða
vegleysur
• Afkastamikið vinnutæki til margra nota.
• Samanburður er alltaf Austin Gipsy í hag.
Vegalaerninfir tekur oft langan tíma, en Austin Gipsy
faest afgreiddur með stuttum fyrirvara.
GARÐAR GÍSLASON h/f