Þjóðviljinn - 09.01.1964, Side 12

Þjóðviljinn - 09.01.1964, Side 12
FÍB gagnrýnir vegalögin Höfiu heppnina með sér í fjrra tóku fjórir vinnufélag- ar á Keflavíkurflugvelli sig til og keyptu saman 50 miða í röð í Happdrætti Háskóla lslands. Þetta voru allt heilmiðar og mán- aðarútgjöld þeirra vegna því 3000 krónur. DREGIÐ EFTIR ÁTTA DAGÁ Þá eru aðeins 8 dagar eftir þar til dregið verður , í Happdrætti Þjóðv'.ljans 1963 en dráttur fer fram fimmtudaginn 16. þ.m. Að þessu sinni viljum við leggja áherzlu á að hvetja alla sem tekið hafa miða til þess að hraða skilum sem frekast þeir geta. Þeir sem búa úti á landi snúi sér annað hvort til um- boðsmanna happdrættisins á viðkomandi stöðum eða póstleggi skilin. Utaná- skriftm er: Happdrætti Þjóðviljans. Týsgötu 3 Reykjavík. Staðan í sölukeppninni er nú þessi: 1. 9 deild 90% 2. 8a — 74% 3. 13 — 72% 4. 5 — 69% 5. 4a — 62% 6. 6 — 62% 7. 1 — 61% 8. 4b — 60% 9. 15 — 54% 10. Norðurland v. 49% 11. lOb deild 48% 12. 12 — 43% 13. Vestfirðir 43% 14. 2 deild 42% 15. 7 — 41% 16. 8b — 40% 17. 11 — 40% 18. Austfirðir 39% 19. Reykjanes 37% 20. Suðurland 35% 21. 3 deild 34% 22. Kópavogur 33% 23. lOa deild 31% 24. Norðurl. cystra 28% 25. Vesturland 24% 26. 14 deild 21% Fyrstu mánuði ársins leit út fyrir að þessi happdrættisútgerð þeirra félaga ætlaði ekki að gefa arð af sér, en í maí hljóp held- ur betur á snærið hjá þeim, þá hrepptu þeir hæsta vinninginn. 200 þús. krónur, og báða auka- vinningana til viðbótar. Síðan komu fram smærri vinningar í hlut þeirra og í árs- lok var fjárhæð vinninganna á árinu komin upp í 247 þús. krónur, þannig að hreinn gróði á happdrættisútgerð fjórmenn- inganna var 211 þúsund. Gróð- anum skiptu þeir á milli sin, og notaði einn þeirra sinn hlut i húsbyggingu, annar í bílakaup og svo framvegis eins og geng ur. Nú í ársbyrjun ákváðu þeir félagar að halda happdrættisút- gerðinni áfram og auka hana. því að þeir keyptu sér 50 miða í röð til viðbótar þeim sem fyr- ir voru. Surtur brá á kreik í qœr- cfaq Gosið í Surtsey færðist í aukana í gærdag og lagði dökkan strók frá eynni og barst með suðvestan átt yfir Heimaey' og varð lítilsháttar öskufall I Eyjum. Þá lagði megna brennisteinsfýlu yfir kaupstaðinn. 1 fyrrakvöld urðu Eyjamenn varir við eld- glæringar. Langt er þó á milli gos- hviðanna. Eldur í Tunnu- verksmiðju Siglu fjarðar SXGLUFIRÐI 8/1 — Laust fyrir ldukkan hálf tíu í kvöld kom upp eldur í Tunnuverksmiðju Siglufjarðar. Kviknaði í út frá katli, sem notaður er til þess að brenna fræsi og öðrum timbur- úrgöngum. Timburloft er beint fyrir ofan ketilinn. og læsti eldurinn sig upp í loftið og komst upp á næstu hæð. Eldurinn varð fljótt lega slökktur og urðu litlar skemmdir. Á myndinni sjást þessir bjart- sýnu fjórmenningar. sem allir eru starfandi málarameistarar. Frá vinstri: Þórður E. Halldórs- son umboðsmaður Happdrættis Háskóla Islands á Keflavíkur- flugvelli. Olgeir Magnús Bárð- arson, Högni Gunnlaugsson, Jó- hann R. Benediktsson og Kristj- án Sigmundsson. □ Hvöss gagnrýni kom fram á fundi í gær- dag með blaðamönnum frá stjórn Félags ís- lenzkra bifreiðaeigenda um hin nýju vegalög og verðhækkun á benzíni, sem samþykkt voru frá Alþingi í ofanverðum desembermán. og hafði Arinbjörn Kolbeinsson, formaður samtakanna framsögu fyrir greinar- gerð um þetta nýja laga- frumvarp. Þótti þeim félögum þessi nýju lög flausturslega úr garði gerð, en þau voru gerð með samiþykki allra stjórnmála- flokka og virðist milliþinga- nefndin lítið hafa leitað út fyrir þröngan hring ráðgefandi manna um jafn mikilsvert málefni og tiltóku þeir þar starfsfólk Vega- gerðarinnar og Samgöngumála- ráðuneytisins fyrir utan einn verkfræðinema út í bæ og Hest- eigendafélag Reykjavíkur. Vita- skuld voru mennimir móðgaðir, að ekki var leitaö til þeirra sem bílaeigenda i landinu. en hesta- menn hafðir í fyrirrúmi. Þá var komin til landsins verkfræði- doktor í vegaundirstöðum um það leyti, sem lögin voru í und- irbúningi og hafði hann verið hundsaður. Þá töldu þeir félagar, að ís- lendingar væru nú orðnir fjórða Framhald á 2. síðu. UNNU HAPPDRÆTTISBÍL KRABBAMEINSFÉL. Ung stúlka, Arina Jóna Guðmundsdóttir frá Suðureyri vlð Súg- andafjörð, kom síðastliðinn föstudag í skrifstofu Krabbameins- félagsins og lagði fram happdrættismiða nr. 15095 og hafði þar með unnið Volkswagenbíl 1500, sem var vinningur í seinasta happdrætti Krabbameinsfélags Reykjavíkur. — Á myndinni sést Arina við happdrættisblinn, ásamt unnusta sinum, Ralph H. Chadwick, sem er vefari í Gefjun á Akureyri. Arina er nemandi í húsmæðraskólanum að Laugalandi og munu þau heppnu hefja búskap í vor. — Til hamingju! Fimmtudagur 9. janúar 1964 — 29. árgangur 6. tölublað. Frétteesyrpa úr Vestmannaeyjum VEGLEG ÁRAMÓTAVEIZLA ★ Eitt af því helzta sem setti svip á áramótin í Eyjum var veizla sú sem Einar ríki hélt starfsliði Utvegsbankans á gamlársdag. Að þessu sinni hafði vélbátur verið sendur til Vestmannaeyja með drykkjarföng í veizluna og var þetta hinn mesti fagnaður enda veitingar í samræmi við ríkidæmi vcitandans. FÆKKUN í EYJAFLOTANUM ★ A undanförnum tveimur árum hefur fækkað um 20 báta i Eyjaflotanum og eru Iíkur til þess að áframhald verði á þeirri þróun á þessu ári að fjöldi báta verði seldur burt frá Eyjum, m.a. var einn af beztu bátum flotans, Gjafar, seldur Guðmundi á Rafnkelsstöðum. VANTAR FÓLK Á VERTÍÐINA ★ Tveir Eyjabátar eru byrjaðir á línu og nokkrir Aust- fjarðabátar sem haldið verður út frá Eyjum eru að koma að austan. Ekki er búizt við að það fáist skipshafnir á nema um hálfan flotann, 10-20 báta á Iínuveiðar og álíka fjölda á síldveiðar, fram að netavertið. Nokkrir bátar búast til tog- veiða en á fjölda báta er þannig ástatt að formaðurinn er skipshafnarlaus. Fólksfæðin í fiskvinnslustöðvunum er svo mikil að nýlega var sagt að ein af þeim væri aðeins búin að ráða tvo menn. SÍLDARMJÖLSVERKSMIÐJA ★ Haldið er áfram byggingu sílarmjölsverksmiðju Einars Sigurðssonar og standa vonir til hún geti tekið til starfa með yorinu. AU STFJ ARÐ ABÁTUR ★ Unnið er að byggingu Austfjarðabátsins Gullbergs og er gert ráð fyrir að hann geti komið í not á áliðnum vetri. BÁTA- OG HLUTABRÉFAKAUP ★ 1 Vestmannaeyjum eru nú staddir tveir af helztu fésýslu- mönnum landsins, þeir Einar Sigurðsson og Friðrik Jörgen- sen. Einar er á eftirlitsferð og undirbýr komu báta þeirra sem hann er að láta byggja í Noregi en þeir munu vera fimm sem þegar er búið að semja um og ráðgerð er bygging fleiri. Friðrik Jörgensen er hins vegar að ganga frá kaupum á þriðj- ungi af hlutafc Fiskiðjuversins sem er 100 þúsund krónur og er talið að kaupverð þessara 100 þúsunda verði 12 mUlj. kr. HUNDRAÐFALT VERÐ ★ Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum kaupir nú hlutabréf sín þreföldu verði en upphaflegir stofnendur fyrirtækisins hafa fengið upp í hundraðfalt verð fyrir hlutabréf sín. MIKLAR BYGGINGAFRAMKVÆMDIR ★ Miklar byggingaframkvæmdir eru á vegum fiskvinnslu- stöðvanna i Eyjum og verið er að Ijúka stækkun síldarverk- smiðju þeirra. Vestmannaeyjabær er að byggja fjölbýlishús, sjúkrahús, sundlaug, áhaldahús og allt sem nöfnum tjáir að nefna. INNLÖGIN 12 MILLJ. KR. ★ Innlög í Sparisjóð Vestmannaeyja voru um 12 milljónir króna á síðasta ári. BROTTFLUTNINGUR FÓLKS ★ Milli 30 og 40 fjölskyldur fluttust burt frá Vestmanna- eyjum á árinu sem leið. Fjárdráttur hjá Sparisjóði Reykjav. □ Upp er komið stórt fjárdráttarmál hjá Spari- sjóði Reykjavíkur. Hefur það komið í ljós við áramótauppgjör hjá sparisjóðnum að einn starfs- maður hjá honum sem nú er nýlátinn hefur á undanförnum 3—4 árum dregið sér eina milljón þrjú hundruð og sjötíu þúsund krónur. Fjárdráttur þessi mun hafa verið framkvæmdur þannig að maðurinn mun hafa falsað út- tektir úr sparisjóðsbókum en til þess að koma í veg fyrir það að upp kæmist um fjárdráttinn við áramótauppgjör sparisjóðsins hafði maðurinn einnig útbúið sérstök spjöld í bókhaldsvélar stofnunarinnar þar sem stimpl- aðar voru úttektir þær sem mað- urinn hafði falsað. Setti hann fölsuðu spjöldin í spjaldskrána við hvert áramótauppgjör en skipti síðan um aftur að þeim loknum og setti réttu spjöldin inn 1 spjaldskrána aftur. Maður þessi starfaði hjá spari- sjóðnum nokkur ár m.a. gegndi hann gjaldkerastörfum um skeið. Seint á síðasta ári veiktist hann hins vegar og dó og voru því réttu spjöldin inni í spjald- skránni nú við áramótauppgjör- ið og komst þá fjárdrátturinn strax upp. Mál þetta er nú f rannsókn hjá sakadómi Reykjavíkur. Hef- ur það m.a. komið í Ijós að f desember sl. fékk maðurinn tvo menn aðra til þess að framvísa er út fölsuðum sparisjóðsbókum hann hafði útbúið og taka samtals 120 þús. kr. Hafa menn- imir tveir þegar viðurkennt þetta. Er nú verið að kanna hvort fleiri kunni að vera við mál þetta riðnir. Laus útburðarhverfi Vesturbær: Grímsstaðaholt. Melar Framnesvegur. ÞJÓÐVILJINN Austurbær: Laufásvegur. Meðalholt Langahlíð. síwl 17-500.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.