Þjóðviljinn - 31.01.1964, Qupperneq 6
V
SÍÐA
ÞIÚDVILISNN
Föstudagur 31. janúar 1964
*- OAR ES SALAAM
■ >■ ii
«0
Eyrfki rétt sunnan við
miðbaug-, 40 km. austan
við austurströnd Afríku.
Zansibar nær yfir rúma
2600 ferkílómetra og íbúar
eyjarinnar eru kringum
300.000. Þeirra á mcðal eru
um 230.000 Afríkunegrar,
um 50.080 Arabar og um
20.000 Indverjar. Landið
öðlaðist sjálfstæði hinn 10.
desember, 1963. Efnahags-
líf eyjaskeggja byggist nær
eingöngu á 4 til 5 millj-
ónum kryddnellikutrjáa,
sem vaxa villt á eynni og
gefa aí sér 80% alls
ltess nellikukrydds, sem
notað er í heiminum. Líf-
ið á eynni er litið frá-
bmgðið því, sem það var
fyrir nokkrum öldum.
Meirihluti íbúanna Ilfir við
sult og seyru, alls kyns
sjúkdómar herja á fólkið.
Meðaltckjur eru um 3200
islenzkar krónur á ári.
Það, sem skeði á Zansibar fyrir hálfum mán-
uði, á sér langa sögu að baki. Zansibar hefur
verið nýlenda frá örófi alda og lengst af hafa
það verið Arabar, sem drottnuðu í landinu. Þeir
stunduðu þrælaveiðar á eynni mörghundruð ár-
um áður en Vasco da Gama komst suður fyrir
Góðrarvonarhöfða. Og nú herja sjúkdómar og fá-
fræði á eyjarskeggja, sem hafa ofan af fyrir sér
með því að rækta kryddnellikutré.
Grípið niður í sögu hinnar
fornu nýlendu, Zansibar
Zansibar. Sennilega vekur þessi
eyja sömu minningamar hjá
flestum hér á norðurhveli —
minningar um æfintýrabækur,
sem við lásum í bemsku. Nöfn
eins og Salomon konungur og
drottningin af Saba, Sindbað
sæfari, eru tengd órjúfgnleg-
um böndum við þessa eyju á
austurströnd Afríku.
Þær eru líka ófáar bækum-
ar, sem ritaðar hafa verið um
leyndardómsfulla leiðangra
hraustra hvítra manna, sem
könnuðu þessar slóðir og
höfðu þá í fylgd með sér hala-
rófu af vel hlöðnum negrum.
1 einu orði sagt — þetta er
draumaeyjan bamanna, sem
speglast í Indlandshafinu.
En það er eins og hún fær-
ist allt í einu nær og stlgi
fram úr draumamistrinu. Fyr-
ir lMs mánuði fékk hún sjálf-
stæði og fyrir hálfum mánuði
tók meirihluti íbúanna völd-
in af minnihlutanum, Aröbun-
um.
F relsisbar átt an
Frelsisbarátta Afríkubúa, nr
farin að bera árangur, og það
er fyrst og fremst þetta, sem
færir okkur nær Afríku. Ó-
sjálfrátt vekur hún áhuga
okkar, þegar hvert landið á
fætur öðru öðlast sjálfstæði.
En í hvert skipti sem land
fær sjálfstæði hefur verið háð
sjálfstæðisbarátta, sem færð
verður í letur fyrr eða síð-
ar. Og þessi saga er hvergi
eins, þótt okkur finnist hún
renna saman í eitt — frelsis-
baráttu Afríku gegn nýlendu-
stefnunni. - Hversu smátt, sem
landið kann að vera, á það
sína sögu, sínar hetjur.
Á un^sn Evrópu-
búum
Saga Zansibars er nátengd
sögu Afríku. Og frelsisbarátta
Afríku byrjar á Zansibar dag-
;nn, sem fyrsti fulltrúi ný-
lendustefnunnar steig fæti sín-
um á eyna, og svo virðist setn
það sé fyrst nú, að hún e>
að bera árangur. Síðan ár*
1885, er stórveldi Evrópu skiptv
niður Afríku á Berlínarráð-
stefnunni, hefur baráttu Afr
íkubúa fyrir endurheimtu freb!
ekki Iinnt einn einasta dag.
Þótt okkur hætti til að mið-
fund allra hluta heimsins við
þann dag, er Evrópubúar stigu
þar á land, var það samt
ekki Evrópa, sem fyrst gerði
Zansibar að nýlendu sinni,
heldur Arabar Þegar Vasco
da Gama sneri heim úr fyrstu
ferð sinni fyrir Góðrarvonar-
höfða og lagði allt meginland
Afríku að fótum konungs síns
um aldamótin 1500, höfðu
Fönykíumenn, Egyptar, Arabar
og Gyðingar lengi látið greip-
ar sópa um auðæfi Afríku.
Talið er mjög líklegt, að Arabar
hafi siglt fram með austur-
strönd Afríku og gert hana,
ásamt Zansibar, að eins kon-
ar nýlendu sinni, 4000 árum
áður en fyrsti hvíti maðurinn
kom þangað.
Auðæfi
Arabar voru í öruggri höfn
á Zansibar. Þetta var ljómandi
gott land fyrir þá, sem sótt-
ust eftir fíiabeini, gulli og
þrælum á afríkanska megin-
landinu. Þama gátu þeir hvílt
sig og birgt sig upp af vatni,
Séð ýfir Zansibarborg. Höfnin er til vinstri os höll soldánsins fremst á myndinni.
áður en þeir héldu lengra með
feng sinn. Þeir voru í öruggri
höfn þangað til Portúgalar
komu til landsirfs á ‘leið sinni
til Indlands.
Portúgal var ríkt land, sem
þá var á uppleið, og þeir settu
sér það markmið að ná eins
stóru landsvæði á sitt vald
og þeir gátu. Arabar urðu að
hypja sig burtu úr flestum
nýlendum sínum á austur-
strönd Afríku. Zansibar var
undir yfirráðum Portúgala í
rúmlega 200 ár. En Portúgal-
Eyjarskeggjar lifa á því að rækta kryddnellikutréð, sem vex
villt á eynni. Zansibar flytur út 80% af öllum kryddnellikum,
sem notaðar cru í heiminum.
Þeir gerðu byltinguna á dögunum.
ar höfðu bitið stærri bita en
þeir gátu rennt niður, og einn
góðan veðurdag komu Arabar
aftur til eyjarinnar og tóku
völdin á ný. Nú byggðu þeir
næstum allar tekjur sínar á
þrælaverzlun.
1 gömlu skjali frá árinu
1859 stendur, að þetta ár hafi
gangverð þræls verið 45—135
skildingar, hvort sem um var
að ræða karl eða konu. Verðið
fór eingöngu eftir gasðum.
Bam var ódýrara; kostaði frá
25—50 skildinga, en það varð
maður líka að fóðra sjálfur.
Slæmur markaður
Smám saman fer markaður-
inn fyrir þræla versnandi.
Hver viðskiptavinurinn á fæt-
ur öðmrn bregzt og arabíska
valdastéttin á Zansibar er í
miklum vanda stödd. Nú eru
góð ráð dýr, tekjulindin upp-
þomuð. Soldánninn lætur
planta nellíkutrjám þar sem
hægt er að koma því við.
Þetta lappar svolítið upp á
efnahaginn, en kemst þó ekki
í hálfkvisti við þrælana.
Og einn góðan veðurdag leit-
ar soldánninn ráða hjá enska
konsúlnum á eynni. Og sem
sagt, góð ráð eru alltaf dýr
undir slíkum kringumstæðum.
Það byrjar með nokkrum lán-
um og endar með því, árið
1894, að Bretland slær eign
sinni á eyna eins og hún legg-
ur sig.
Sjúkdómar
Nýlendustefnan hefur alls stað-
ar hið sama í för með sér.
Nýlendumar framleiða eina,
eða örfáar, tegundir vöru og
byggja alla afkomu sína á
þeim. Svo var og á Zansibar.
íbúarnir byggðu alla afkomu
sína á einni vörutegund, krydd-
nellikunum, sem þeir héldu á-
fram að rækta.
Og Zansibar var ekki frá-
brugðin öðrum nýlendum
Breta. Ástandið var vægast
sagt hörmulegt og er það enn
í dag, Daglegir förunautar
innfæddra voru sjúkdómar, fá-
tækt og fáfræði. I skýrslu,
sem Sameinuðu þjóðimar
gerðu yfir ástandið í heimin-
um árið 1957, var sagt, að
minna en 20% af börnum á
aldrinum 5—14 ára hefðu að-
stöðu til þess að ganga í skóla
á Zansibar og af þessum 20%
gat yfirgnæfandi meirihluti
bamanna ekki gengið í skóla
nema' 2 til 4 ár o<? n0tið lág-
márksmenntn.riar Hoimjngur
eyjarskeggja. tvjóíct Pf augn-
tjúkdómum. Og svona væri
hægt að telja í allan dag ýms-
ar afleiðingar nýlendustefn-
unnar, sem hvergi sjást í
kennslubókum hér í hinum
„frjálsa“ heimi.
Síðasta verk Bretanna óður
en þeir hrökkluðust burt í lok
síðasta árs var að reyna að
tryggja sér serp bezt efna-
hagsleg yfirráð yfir eynni. Þeir
áttu ýmsa trygga bandamenn
úr hópi arabísku yfirstéttarinn-
ar, sem alltaf hafði haldið
tryggð við Breta.
Það átti að hafa það eins
og annars staðar í Afríku,
breyta aðferðunum við arðrán-
ið en engan veginn að hætta
því. Það átti að innleiða svo-
kallaðan ,,neokóloníalisma“.
En á Zansbar var sterk rót-
tæk hreyfing fyrir hendi, sem
þegar á fyrstu dögum sjálf-
stæðisins var bannfærð. Arab-
íska valdastéttin bannaði
ummaflokkinn sem henni stóð
stuggur af. Ef til vill var þetta
dropinn, sem fyllti mælinn, svo
útaf flóði. En nú þýðir lítið
að súta það — byltingin er
hafin og nú á að reyna að
skapa íbúum æfintýraeyjar-
innar mannsæmandi lífskjör,
mannsæmandi þjóðfélag,
CLausl. þýtt úr „Land og
Folk“). ’
>-----------------------------
Sjú Enlæ á leið
til Somalíu
MOGADISHU 29/1 — Sjú Enlæ
forsætisráðherra Kína, lauk í
dag fimm daga heimsckn sinni í
Gíneu, en er væntanlegur í op-
inbera heimsókn til Mogadishu,
höfuöborg Sómalí, á laugardag-
inn. Þar mun hann dveljast í
þrjá daga.
Frestað hefur verið heimsókn
Sjús til Kenya og er jafnvel ó-
víst að nokkuð verði úr henni
að þessu sinni. Engin skýring er
gefin á þessu. 1 fyrradag var til-
kjmnt í Dar-es-Salaam að frest-
að hefði verið heimsókn Sjús
til Tangaíka. Sú ákvörðun var
heldur ekki skýrð nánar, en tal-
ið er að frestunin kunni að stafa
af þeim uppþotum sem orðið
hafa í Austur-Afríku undanfarið.
Gjafir til
Blóðbankans
Blóðbankanum hafa borizt
peningagjafir til minningar um
frú Soffíu Sch. Thcrsteinsson:
Kr. 1.000.00 frá Dverg h/f,
Hafnarfirði. Kr. 10000.00 frá
T.ionsklúbbnum Nirði, Reykja-
vík.
/