Þjóðviljinn - 12.02.1964, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 12. febrúar 1964 ■
Tækin í
Ranger VI.
biluðu strax
WASHINGTON 11/2 — Eins og
skýrt var frá, þegar Ranger VI.
var skotið til tunglsins, var ætl-
azt til að hann sendi mörg þús-
und Ijósmynda af tunglinu til
jarðar áður en hann rækist á
tunglið. Þessi tilraun mistókst
þó, og engin Ijósmynd kom til
jarðarinnar frá Ranger VI.
1 dag var sagt frá því í Wash-
ington, að allt benti til þess, að
Ijósmyndatækin i eldflauginni
hafi eyðilagzt tveimur mínútum
eftir að eldflauginni var skotið
frá Kennedyhöfða.
Ranger VI er þriðja eldflaug-
in, sem Bandaríkjamenn hafa
skotið til tunglsins til þess að
fá myndir af því. önnur hinna
fyrri fór fram hjá tunglinu. en
fyrir hinnj fór eins og Ranger
VI., ljósyndatækin eyðilögðust á
leiðinni.
HðÐVIUINN
KYPUR:
SÍÐA 3
Eina lausnin sambandsríki
Fellst Makaríos á málamiðlunartillögu Bretlands og USA?
ANKARA 11/2 — Ekkert virðist miða í samkomulagsátt
í Kýpurdeilunni. Ismet Inönu forsætisráðherra Tyrklands
seigr, að augljóst sé, að tyrkneskir og grískir íbúar Kýpur
geti ekki búið saman í friði og því sé eina lausnin á Kýp-
urvandamálinu sú, að Kýpur verði sambandsríki. Talið er
fullvíst að Makaríos forseti Kýpur fallist ekki á tillögu
Breta og Bandaríkjamanna í þeirri mynd sem hún er nú
eftir að henni var breytt.
Það miðar hægt í samkomu-
lagsátt í Kýpurdeilunni. Á með-
an Bretar semja vestur í Amer-
íku um hermenn. sem senda á
til þess að stilla til friðar á
eynni, er því haldið fram í
Aþenu, að Makaríos forseti Kýp-
ur fallist aldrei á nýjustu mála-
miðlunartillögu Breta og Banda-
ríkjanna viðvíkjandi herliði, sem
senda á til Kýpur.
Frumvarp Kennedys
samþykkt í n. deild
WASHINGTON 11/2 — Neðri deild bandaríska þingsins
samþykkti í gær frumvarpið sem Johnson forseti bar
fram um aukin réttindi handa blökkumönnum 1 Banda-
ríkjunum. Upphaflega var frumvarpið róttækara, en þetta,
sem nú var samþykkt. Breytingarnar voru gerðar með til-
liti til harðrar andstöðu suðurríkjamanna. Efri deild tek-
ur nú við frumvarpinu.
Það var Kennedy, sem beitti
sér mest fyrir þessu frumvarpi
og má eflaust þakka honum, að
það skuli hafa verið samþykkt
í neðri deild þingsins. Ekki er þó
bjöminn unninn enn, þvi að
frumvarpið á eftir að fara i
gegnum efri deild, þar sem tal-
ið er að það sæti enn meiri
mótspymu. 1 efri deild þingsins
eru tiltölulega fleiri þingmenn
frá suðurríkjunum en í neðri
deild.
Aðaltilgangur þessa frumvarps
á að vera sá að veita blökku-
mönnum aukna möguleika á at-
vinnu- og húsnæðismarkaðinum.
Bent hefur verið á, að í reynd
séu blökkumenn betur settir
einkum á einu sviði. Þeir geti nú
á ferðarlögum valið úr fleiri
stöðum en áður til þess að borða
og sofa í þeim ríkjum, sem verja
kynþáttamisréttið með lögum
Einnig tryggir frumvarpið
blökkumönnum kosningarétt.
Skeyti
Tyrkneskmælandi íbúar Kýp-
ur birtu í gær innihald skeyt-
isins, sem þeir sendu mörgum
þjóðhöfðingjum víðsvegar i
heiminum. 1 skeytinu er því
haldið fram, að 150 tyrknesk-
mælandi Kýpurbúar hafi horf-
ið í ófriðinum, sem varð um
jólin og ekkert hafi spurzt til
þeirra síðan. Er því haldið fram,
að grískumælandi menn hafi
myrt þá.
1 dag urðu árekstrar milli
grískumælandi og tyrkneskmæl-
andi manna á suðurhluta eyjar-
innar í bænum Limassol og
tveim þorpum, Episkopi og
Asomatos. Ekki er vitað um
mannfall, en líklega hafa nokkr-
ir særzt. þ.á.m. ung stúlka og
kona.
Kambodsja mót-
mælir árásum USA
SIEMRAP, Kambodsja 11/2 — Norodom Shianuk prins í
Kambodsja átti í dag fund með blaðamönnum. Á fundin-
um réðst hann harkalega á stjórn Bandaríkjanna, sem hann
kvað bera ábyrgð á loftárásum, sem dunið hefðu yfir
íbúa lands síns undanfarið.
Ibúar
landamærahéraðanna I ina á þessu athæfi. Því það eru
næst Suður-Víetnam hafa oft-
lega orðið fyrir árásum banda-
rískra sprengjuflugvéla, sem eru
í láni í Suður-Víeítnam, sagði
prinsinn. Sagðist hann hafa mót-
mælt þessu fyrr, m.a. skrifað
Bandaríkjaforseta, Lyndon B.
Johnson harðort mótmælabréf,
þar sem hann krefst þess, að
Bandaríkin taki á sig ábyrgð-
bandarískar flugvélar og banda-
rískar sprengjur sem drepa
landa okkar, þótt þeir sem
sprengjunum varpa séu kannski
frá Suður-Víetnam.“
Kvæðakver Maós
metsölubók í Kína
Lítill bíll með
stóra framtíð,
fallegur 4. manna
bíll með rúmgóða
farangursgeymslu.
Kostar kr. 65.000.
Kominn á götu.
Aðalumboð: INGVAR HELGASON.
Söluumboð:
B í L A V A L Laugavegi 90
Sími 19092 — 18966 — 19168.
92
Helstu dagblöð í Kína fóm-
uðu forsíðum sínum þann fjórða
janúar til að prenta ný kvæði
eftir Maó Tse-Tung og varð þá
uppi fótur og fit um land allt.
Kvæðin tíu hafa nú einnig
verið gefin út í bókarformi á-
samt þeim tuttugu og sjö kvæð-
um sem þessi þekkti stjómmála-
maður hefur árum saman. Á
'fyrstu 4 dögunum seldust 80 þús.
eintök og miklar biðraðir hafa
myndast fyrir utan bókabúðir
marga daga síðan ef spurzt hef-
ur að von væri á sendingu. Nú
eru 300 þús. eintök í prentun til
viðbótar þeirri hálfri milljón
sem þegar er seld.
Maó hefur hlotið lof ýmissa
ólíkra skálda víða um heim fyrir
kvæði sín áður birt; á íslenzku
hafa einhver þeirra birzt í tíma-
ritinu Birtingi. Þessi nýju kvæði,
eru að sögn Peking Rewiew ort í
klassískum stíl eins og hin fyrri
og nefnast: Þjóðherinn tekur
Nanking, Endurkoma til Sjaosj-
an, Gengið á Lúsjanfjall. Á-
letrun á mynd lögreglukonu. Um 1
Ijósmynd af æfintýrahellinum í
Lúsjanfjalli, Öður til plómunn-,1
ar, Vetrarský og tvö ljóðin eru
svör við kvæðum eftir Kun Mo-
dsjo. 1
' '; ' :::
Frá Ayos Sozomenos
KÝPUR: Svipmynd frá bardaganum í Ayos Sozomcnos. Þetta
þorp byggja aðallega tyrkneskumælandi menn og misstu þeir
marga í bardaganum. — Fremst á myndinni miða grískir Kýpur-
búar byssum sínum til verndar særðum félaga, sem verið er
að flytja á brott.
a
eva
I; Jöefjjíen.!
,ON YAHN
evu nylonsokkar eru
framleiddir úr ítöiskum DELFION
nylonþræði í fullkomnustu vélum,
sem til eru á heimsmarkaðinum.
Eriendir sérfræðingar munu annast
eftirlit með framleiðslunni.sem he-
fur staöist gæðamat INTERNA-
TIONAL COMITÉ D ELEGANCE
DU BAS sem FIRST QUALITY.
evu sokkar eru m. a.
með sóla úr Helanca crepþræði,
sem gerir þá sterkari, mýkri
og hlýrri. Þeir eru framleiddir í
nýjustu tízkulitum og snið þeirra,
sérstaklega lagað eftir fætinum.
eyu5„kk„ eru netofnir
og fylgir þeim ábyrgðarseðill.
Reynið eitt par og þér munuð
sannfærast um gæöi þeirra.
evu nylonsokkar
koma í verzlanir eftir miðjan
febrúar.
'4
SOKKAVERKSMIÐJANeVa r.
Akrancsi , h f
5