Þjóðviljinn - 12.02.1964, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 12.02.1964, Qupperneq 6
g SÍÐA ÞIOÐVIUINN Miðvikudagur i<í. ic.uruar iab4 FréHaritari ítalska blaðsins ,.11 Messagero": Leyniþjónustan CIA sendi Lee Oswald til Sovétríkjanna VifnisburSur konu hans ekki birtur vegna þess aS hann varSar öryggi Bandarik]anna Marina Oswald, ekkja Lee H. Oswalds, sem sakaður var um að hafa myrt Kennedy forseta, hefur undanfama daga verið á stöðugum fund- nm með nefnd þeirri sem skipuð var til að rannsaka morðið. I*að hef- ur vakið feikna athygli að tilkynnt hefur verið að vitnisburður hennar muni ekki verða birtur af því að hann varði þjóðaröryggi Bandaríkj- anna, og þykir það styðja þær fullyrðingar fréttamanna að Oswald hafi verið í nánum tengslum við bandarísku leyniþjónustuna CIA og einnig við sambandslögregluna FBI. Fréttaritari ítalska borgarablaðsins „II Mess- agero“ segir þannig frá þrálátum orðrómi um að Oswald hafi farið til Sovétríkjanna í erindum CIA. Oswald cftir handtökuna Fréttaritari( „11 Messagero'* I Washington. Lucio Manisco, segir frá viðtali við J. E. Ra k- in, sem er lögfræðiráðunautur rannsóknamefndarinnar, sem kennd er við Warren haesta- réttarforseta. Rankin skýrði svo frá að í yfirheyrslum nefndarinnar yfir Marinu Os- wald hefði ýmislegt komið í ljós „sem við vissym ekki áð- ur“. Ekki okkar kynslóð Samkvæmt Rankin hafa komið fram „mikilvægar upp- lýsingar varðandi athafnir og ferðir Oswalds eftir komu hans heim frá Sovétrikjunum og fram 1 nóvember sl.“. Þá hefur fréttaritarinn eftir Warren hæstaréttaforseta þessa yfirlýingu sem staðfestir að um „mikilvægar upplýsingar“ hafi verið að ræða: „Vitnisburður frúarinnar mun sennilcga ekki verða birtur á meðan okkar kynslóð er uppi. Hér er um að ræða mál sem varðar þjóðaröryggi okkar“. Sambandið við CIA Við þessa athyglisverðu yfir- lýsingu Warrens hefur hinn ítalski fréttamaður þessu að bæta: „Það mætti setja þessa yf- irlýsingu Warrens dómara í samband við þann þráláta orð- róm sem gengið hefur hér í meira en mánuð, að Oswald hafi verið í þjónustu CIA þeg- ar hann dvaldist í Sovétrikj- unum og eftir að hann kom heim hafi FBI þrásinnis falið honum að ganga í samtök Castrósinna sem starfa í Bandaríkjunum. Sambandslög- reglan er sögð hafa haft stöð- ugt samband við Oswald, hafa fylgzt með öllum ferðum hans bæði í Bandaríkjunum og er- lendis. hafa vitað um dvöl hans í Dallas, en ekki látið lögregluna á staðnum vita af því. Og það er ennfremur full- yrt að það hafi verið frá CIA og FBI sem Oswald fékk pen- inga hvað eftir annað frá ár- inu 1961 til 1963. Sagt er að agentar FBI hafi skrifað bréf- in sem Oswald sendi Kúbu- vinafélaginu „Fair Play for Cuba“ hvert af öðru“. Ekki aðeins orðrómur Við þessa fráögn hins ftalska fréttamanns er því að bæta að það er ekki aðeins orðrómur að Oswald hafi haft samband við FBL Móðir Oswalds skýrði þannig frá því 28. nóvember að sonur sinn hefði sagt sér að hann hefði nýlega verið þrí- vegis í sambandi við FBI, f fyrsta sinn í Fort Worth árið 1962, eftir heimkomuna frá Sovétríkjunum. næst í New Orleans sumarið 1963, þegar hann þóttist vera Castrósinni, og í þriðja sinn í Irving, eft- ir heimkpmuna frá Mexíkó, en þangað fór hann til að reyna að fá vegabréfsáritun til Sov- étríkjapna um Kúbu. Ekkja Oswalds og móðir Nokkrum dögum síðar benti brezka vikublaðið „Observer" á að einkennilegt væri að mað- ur sem létist vera marxisti og castristi skyldi geta fengið vegabréf til utanlandsferðar svo til fyrirvaralaustí Venju- legir Bandaríkjamenn eru van- ir að þurfa að bíða lengi eft- ir vegabréfum sínum, meðan gengið er úr skugga um að þeir hafi ekki gert sig seka um „þjóðhættulega starfsemi“, en það tók Oswald, yfirlýstan Kúbuvin sem sambandslögregl- an hafði vakandi auga á, að- eins einn sólarhring, frá 24.— 25. júní að íá vegabréf til^ Mexíkóferðarinnar? Hverra er- inda fór hann þangað. Hvaðan kom honum fé til ferðarinnar, Áttunda atriði % Kona Oswalds sagði að riffíllinn hefði horfið á föstu- dagsmorgvninn. Wade sagði: „Kona hans hafði sagt að hann hefði haft byssuna kvöldið áður og að byssan hefði horfið þenn- an morgun þegar hann var farinn“. AUt sem aðrir emb- ættismenn sögðu og einnig fulltrúar FBI í einkaviðtöl- um bendir til þess að frú Os- wald hafi aldrei viðhaft nein ummæli sem væru nokkuð skyld fullyrðingu Wades. Það var i mesta lagi haft eftir frú Oswald að hún hefði séð eitthvað vafið inn í á- breiðu sem hefði getað veríð riffill. Það kom þó síðar á daginn að þetta var einnig fjarri sannleikanum. Við komumst síðar að því að frú Oswald hafði sagt að hún vissi ekki til þess að maður si«n hefði átt riffil, og henni var heldur ekki kunn- ugt um að haon hefði átt skammbyssu („New York Times“, 8. des.). Wade og leyniþjónustan CSecret Service) töldu kannski að írú Oswald myndi eiga erfitt með að ná eyrum manna, á sama hátt og Os- wafót sjálfur fékk aldrei tæki- færí fil að segja sína sögu. StnDceftirmorðið var Marina Morðingi Kennedys ófundinn? Hér birtist framhald skýrslu þeirrar sem bandaríski lögmaðurinn Mark lane hefur sent rannsóknamefnd Warrens og þar sem hann hrekur lið fyrir lið þau meginatriði sem átt hafa að sanna að Lee H. Oswald hafi verið morðingi Kennedys og verið þar einn að verki. Oswald hneppt í varðhald af leyniþjónustunni. „Ekkja og ættingjar Lee Harwey Os- walds eru í haldi hér (Dall- as) hjá Secret Service. For- mælandi leyniþjónustunnar sagði að fjölskyldan væri geymd á felustað svo að ekk- ert gæti komið fyrir hana“. („New York Times", 27. nóv.)...... En hvað sem þessu líður og enda þótt Marina Oswald hefði sagt að máður hennar hefði átt riffil sem horfið hefði úr húsinu föstudags- morguninn, þá hefði slíkur „vitnisburður" ekki verið tek- inn gildur fyrir rétti í Texas. Löggæzlumenn I Dallas út- básúnuðu þó þennan „vitnis- burð“ á meðan Oswald var á lífi og beið dóms. öllum væntanlegum kviðdómendum í máli hans var þannig kynntur „vitnisburðurinn" og það var freklegt brot bæði geg bókstaf og anda laganna og gegn réttindum sakbom- ingsins. Þegar haft er í huga að Marina Oswald vissi ekki um riffilinn og einnig sá fram- burður frú Paine, en það var heima hjá henni sem riffill- inn á að hafa verið geymdur, þá vaknar sú spuming hvort Oswald hafi í rauninni nokkru sinni átt þennan riffiL „Frú Paine, sem er kvekari, sagð- ist ekki hafa hugmynd um hvað var inni í ábreiðunni. Hún sagði að vegna trúar sinnar myndi hún ekki leyfa nokkurs konar vopn í húsi sínu“. („New York World Telegram and Sun“. 25. nóv.). Níunda atriði Oswald hafði með sér pink- 11 á föstudaginn. Saksóknarinn sagði: „Þenn- an dag fór hann heim degi fyrr en vanalega á fimmtudagskvöld og þegar hann kom aftur hafði hann pakka undir fcandleggnum sem hann sagði að f væru gluggatjöld, að ég held, eða rimlatjöld". Ef Oswald væri á lífi, myndum við spyrja hann hvort hann hefði haft með sér pakka í vinnuna föstu- dagsmorguninn og ef svo, þá hvað hefði verið í pakkan- um og hvað hefði orðið af því sem í honum var. Við gætum spurt frú Oswald um þennan pakka, væri hún ekki lokuð inni. Wade hefur ekki látið uppi hvaða rök nann færi fyrir þeirri ályktun sinni, að morðvopnið hafi verið í pákkanum. Tíunda atriði 1 strætisvagni á Ieið frá morðstaðnum sagði Oswald konu sem með honum var í vagninum að forsetinn hefði verið myrtur og hló dátt. Wade sagði: „Næst höfum | við spurnir af honum | í strætisvagni sem hann fór ' í á Lamar Street. Hann sagði k vagnstjóranum að forsetinn Jl hefði verið skotinn, forsetinn. I Hann sagði konunni — allt . þetta hefur verið sannprófað H — sagði konunni í vagninum J að forsetinn hefði verið skot- | inn. Hann sagði: „Hvernig k vissi hann það?“. Hann sagði | að maður hefði sagt sér það. k Sakbomingurinn sagði: .,Já, I hann hefur verið skotinn11 og k hló hástöfum". Þegar Wade sagði þessa É sögu reyndi hann ekki að út- k skýra hvernig Oswald hefði Q sloppið úr byggingunni sem | tugir lögreglumanna höfðu ■ slegið hring um. En það er h fleira sem er dularfullt. Hvers * vegna hafði Oswald, ef hann | var á flótta frá morðstaðn- J um, morðið í flimtingum? I Hvers vegna „hló hann há- J stöfum"? Slíkt framferði kem- I ur heldur illa heim við að J hann þyemeitaði sekt sinni | þá tvo sólarhringa sem hann k var í vörzlu lögreglunnar i \ Dallas. Hlátur hans í strætis- k vagninum virtist með slfkum ^ ólíkindum að FBI viöur- ik kenndi í óformlegum við- ^ ræðum við blaðamenn, að j| sagan væri ósönn. Með það J í huga er rétt að minnast ■ þeirrar staðhæfingar Wades , þegar hann sagði söguna að 1 „allt hefur þetta verið sann- J prófað". (Framh.). ^ k atvinnuleysingja með fjölskyldu á framfæri? Hvers vegna hafði hann leigt sér herbergið í Dall- as undir fölsku nafni? Þær eru margar spurningarnar sem er ósvarað. „New York Times" krafðist þess í forystugrein þegar 26. nóvember að mál Oswalds yrði krufið til mergjar og þá sér- staklega komizt fyrir um „við hvaða aðila hann var í tengsl- um og hvað lögreglan á staðn- um (Dalias) og FBI vita í raun- inni um hann“. Þama var gef- ið í skyn að FBI hefði ekki látið allt uppi. Réttarhöld gegn Ruby hefjast 17. DALLAS 10/2 — Vcrjendur Jack Rubys báni fyrir nokkru fram bciðni um að mál Rubys yrði tekið fyrir í einhverri ann- arri borg en Dallas. Þessari beiðni var í dag vísað frá og ýmsu öðru, sem þeir höfðu faríð fram á. M. a. höfðu, verjendur Rubys farið fram á, að fá í hendur öll sönnunargögn sem til væru móti Ruby, svo og að allt sem skrifað hefði verið um hann í blöðunum yrði lesið upp í réttinum. Átti það að sýna mönnum fram á hversu sterkt almenningsálitið væri á móti Ruby og dómurinn hlyti því að verða hlutdrægur. Staðfest hefur verlð, að rétt- arhðldin gegn Ruby hefjist í Dajlas þann 17. þessa mánaðar. ,Fanny Hffl' klámrít LONDON 10/2 — Fanny Hill, átjándualdarskáldsagan um gleðikonu i London, var i dag ! emd klámrit. Lýsti dómarinn því yfir, að hann hefði komizt að þessari niðurstöðu eftir að hafa fariö vandlega í gegnum ýmis sönnunarg>gn og vitnis- burði. Rétturinn ákvað, að 171 ein- tak, sem gefið var út í ódýrri útgáfu hjá útgáfufyrirtækinu Ralph Gold, G. Gold & Sons, yrði gert upptækt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.