Þjóðviljinn - 03.03.1964, Blaðsíða 1
DIMIINN
Þriðjudagur 3. marz. 1964 — 29. árgangur — 52. tölublað.
Aðalfundur
Dagsbrúnar
í fyrradag
Verkamannafélagið Dags-
brún hélt aðalfund sinn í
Iðnó s.l. sunnudag. Eðvarð
Sigurðsson formaður Dags-
brúnar flutti skýrslu um
störf félagsins á s.l. ári.
Skýrsla formanns var ít-
arleg þar sem hann rakti
gang kjara- og samninga-
málanna, en s.I. ár var eitt
mesta samningaár í allri
sögu félagsins, en samning-
ar voru gerðir þrisvar á
árinu.
Reikningar Dagsbrúnar
voru lesnir og samþykktir.
Stjórnin lagði til breyt-
ingar á reglugerð fyrir
Styrktarsjóð Dagsbrúnar-
manna og félagsgjöldin og
voru tillögur hennar ein-
róma samþykktar. Nánar
verður sagt frá aðalfundl
Dagsbrúnar á morgun.
Kjaramál opinberra starfsmanna:
RÍKISSTJÓRNIN
ANDVÍC AILRI
KAUPHÆKKUN
□ Krafa BSRB um 15% launahækkun til handa
opinberum starfsmönnum liggur nú fyrir Kjara-
dómi og á dómurinn að hafa fellt úrskurð um
hann fyrir næstu mánaðamót. Stjórn BSRB lagði
fram greinargerð í málinu 18. febrúar sl. en síð-
degis í gær var lögð fyrir dóminn greinargerð frá
ríkisstjóminni þar sem kröfu BSRB er mótmælt.
Þjóðviljinn átti í gærkvöld tal
við Harald Steinþórsson starfs-
mann BSRB og spurði hann um
efni greinargeröarinnar. Sagði
hann að við fljótlega athugun á
greinargerðinni virtist krafa rík-
isstjómarinnar um syniun við
kauphækkun td opinberra starfs-
Gömul kona og 8 ára
drengur stórslasast
Laust eftir kl. 11 sl. laugardagskvöld varð alvarlegt um-
ferðarslys á mótum Miklubrautar og Eskihlíðar. 78 ára
gömul kona, Símonía Jónsdóttir, Hverfisgötu 91, varð þar
fyrir bíl og slasaðist alvarlega. Var hún flutt á Lands-
spítalann. Er blaðið hafði fregnir af líðan hennar síðdegis
í gær var hún þungt haldin.
Annað umferðarslys var á
sama stað um klukkan 9.30
LÍK AF SJÓMANNI
FINNSTIHÖFNINNI
Aðfaranótt sl. sunnudags
fannst lík á floti í Reykjavíkur-
höfn og reyndist það vera af
Jóhannesi Einarssyni sjómanni
til heimilis að Barónsstíg 25 hér
í borg er hvarf að heiman frá
sér 12. janúar sl. Jóhannes heit-
inn var 33 ára að aldri.
sama kvöld. Varð maður að
nafni Guðmundur E. Guðmunds-
son, Álftamýri 26, þar fyrir bíl
og meiddist á fæti.
Þriðja umferðarslysið varð í
gær um klukkan 2.30 á mótum
Laugavegar og Þverholts. Lenti
8 ára drengur á reiðhjóli utan
í bíl og meiddist talsvert á höfði.
Mun hann hafa höfuðkúpubrotn-
að og skaddast í andliti. Dreng-
urinn heitir Hörður Þórðarson
og er til heimilis að Laugarnes-
vegi 92.
manna byggð á fjórum aðalatrið-
um.
1 fyrsta lagi: launþegastéttimar
í landinu hefðu ekki unað hag
sfnum eftir uppkvaðningu Kjara-
dóms í sumar og myndu fara af
stað í vor með nýjar kaupkröfur
ef opinberir starfsmenn fengju
kauphækkun.
1 öðru lagi að afkoma þjóðar-
búsins gefi ekkert tilefni til þess
að hækka laun ríkisstarfsmanna.
I þriðja lagi að nokkur kjara-
atriði séu ríkisstarfsmönnum
hagstæð við sambærilega vinnu
á frjálsum vinnumarkaði.
I fjórða lagi að með kærum
fyrir Kjaranefnd sé stefnt að
stórfeildu launaskriði ríkisstarfs-
mönnum til hagsbóta.
Þá sagði Haraldur að ríkis-
stjórnin gerði þá varakröfu að
vaktaálag verði lækkað úr 33%
í 20% og reiknist fyrir tímann
Framhald á 8. síðu.
Géður netaafli í
ÞorláksHöfn
Þorlákshöfn, 2/3 — Um næst-
síðustu helgi byrjuðu Þorláks-
hafnarbátar netaveiðar og hef-
ur afli verið góður yfirleitt.
Til dæmis fékk Friðrik Sig-
urðsson 42 tonn í róðri í gær
og Þorbjöm var með 35 tonn
Alls komu á land 187 tonn írá
. 7 bátum. Bálarnir halda sig nú
I aðallega á Selvogsbankanum.
Davíð Stefánsson látinn
Davíð Stefánsson skáld frá
Fagraskógi lézt á sunnudag,
sextíu og níu ára að aldri.
Davið hafði veikzt skyndilega
fyrir rúmri viku og verið á
sjúkrahúsi síðan, elnaði hon-
um sóttin siðustu daga og
lézt hann snemma á sunnu-
dagsmorgun.
Davíð Stefánsson var fædd-
ur 21. janúar 1895 í Fagra-
skógi við Eyjafjörð -og voru
foreldrar hans Ragnheiður
Davíðsdóttir og Stefán Stef-
ánsson bóndi og alþingismað-
ur.
Með fyrstu Ijóðabókum sín-
um (Svartar fjaðrir 1919,
Kvæði 1922, Kveðjur 1924) sló
Davíð á nýja strengi í ís-
lenzkri Ijóðlist, hin ferska og
þróttmikla túlkun hans á til-
finningum kynslóðarinnar sem
í þeim birtist skipaði honum
í sess með þjóðskáldum. Da-
víð var mikilvirkur rithöf-
undur og samdi allmargar
Ijóðabækur, hann er og höf-
undur skáldsögunnar Sólon
Islandus sem út kom í stríðs-
byrjun og nokkurra leikrita
og hefur GuIIna hliðið (1941)
notið mestra vinsælda af
þcim. Síðastliðinn vetur kom
út safn ritgerða eftir skáldið.
DAVÍÐ STEFÁNSSON
Fánar blöktu i hálfa stöng
Akureyri á sunnudag og
var skemmtunum og funda-
höldum frestað.
Brezkir togaraeigendur hofa í hótunum um
LÖNDUNARBANN
LONDON 2/3 — Fiskveiðaráðstefnunni í Lond-
on lauk á hádegi í dag og hafði þá náðst sam-
komulag um landhelgissáttmála milli fulltrúa
allra sextán ríkjanna nema íslands, Noregs og
Sviss. Jafnframt eru brezkir togaraeigendur komn-
ir á stúfana með kröfur um að takmarkaðar verði
landanir á fiski úr íslenzkum og færeyskum tog-
urum, þegar tólf mílna landhelgin tekur endan-
lega gildi við ísland og Færeyjar á fimmtudaginn
í næstu viku.
Samtök brezkra togaraeigenda,'
svo og fulltrúar sjómanna og
yfirmanna á brezkum togurum,
hafa setið á fundum að und-
anförnu og hafa einróma farið
þess á leit við Soames sjávarút-
vegsmálaráðherra að landanir úr
íslenzkum og færeyskum togur-
um verði takmarkaðar, eftir því
sein blaðið „Fishing News“ skýr-
ir frá.
I.agt fast að Dönum
Fréttaritari NTB á ráðstefn-
unni i London segir að mjög
Hallgrímskirkjufundurinn var mjög fjölsóttur og fjörugur
fast hafi verið lagt að Dönum
að fallast á að veita brezkum
togurum áfram undanþágur til
veiða inn að sex mílna mörkun-
um við Færsyjar og segir að
Danir muni sjálfir hafa viljað
fallast á það og hafi reynt að
fá Færeyinga til þess, en ekki
tekizt.
Kvótakerfi
Ástæða sé til að óttast að
brezkir togaraeigendur sem ráði
einnig yfir fiskiðnaðinum og
fiskdreifingunni í Bretlandi
muni láta hart mæta hörðu
þegar tólf mílna lögsagan geng-
ur í gíldi 12. marz og setja
þá takmarkanir á innflutning á
færeyskum fiski. Hann hefur
eftir dönskum heimildum i Lond-
on að það muni ekki koma þeim
á óvart að danski sendiherrann
í London fengi þá einhvern
næstu daga boðskap frá brezku
stjórninni um að innflutningur
á færeyskum fiski til Bretiands
hefði verið takmarkaður með
kvótakerfi.
Ilarðar deilur
Landhelgissáttmálinn verður
fyrst birtur á morgun og hann
mun liggja frammi til undirrit-
unar í London frá 9. marz til
10. apríl. Fréttaritari NTB seg-
ir að svo mikið sé þó vitað, að
telja megi nokkurn veginn víst
að sáttmálinn feli ekki í sér
endanlega skipan langhelgis-
mála í Vestur-Evrópu. Bæði sé
það að þrjú lönd ráðstefnunnar
hafi ekki fengizt til að fallast
á hann og auk þess megi búast
við að miklar deilur eigi eftir
að rísa út af ýmsum ákvæðum
hans, svo sem um sex plús sex
mílna regluna, hin ýmsu ákvæði
um sérréttindi í ytra sex mílna
beltinu og ýmsar undanþágur,
eins og við Grænland og Fær-
eýjar. Ekkert Norðurlandanna
hefur algerlega fallizt á sátt-
málann, því að Svíar slá einnig
þann varnagla að reglur hans
gildi aðeins fyrir vesturströud
Svíþjóðar.
Framhald á 3. síðu.
Síðastliðinn sunnudag v
dyrum. Á sjöundu síðu
ar fundur haldinn
blaðsins í dag er
i SiBtúni um Hallgr ímskirkju, sótti hann fjöldi manns, og var húsið yfirfulit út úr
ítarleg frásögn af fun dinum. Á myndinni sjáum við nokkurn hiuta fundarmanna —
Grunaðir um
leyaivínsölH
Snemma á iaugardagskvöld
gerði lögreglan í Keflavík skyndi-
leit að áfengi í leigubifreið-
um í Keflavík og fannst ekkert
áfengi við þessa leit. Seinna
um kvöldið var hinsvegar einn
leigubílstjóri- tekinn við sölu á
, áfengi og gat hann ekki gert
í grein fyrir víninu. er
(Ljósm. Þjóðv. A.K.). | ennþá í rannsókn.
Fyrri tónleikar
Knor eru i kvöld
Stanislav Knor
I kvöld og annað kvöld
heldur tékkneski píanósnill-
ingurinn Stanislav Knor tón-
teika í Austurbæjarbíói fyrir
styrktarfélaga Tónlistarfélags-
ns. Á efmsskrá eru sónata í
f-moll opus 2 nr. 1 eftir Beet-
hoven. fimm prelúdíur eftir
Debussy. tveir tékkneskir
dansar eftir Martinu og Mynd-
ir á sýningu eftir Mússorgský.