Þjóðviljinn - 04.03.1964, Qupperneq 5
Miðvikudagur 4. marz 1964
MOÐVILIINN
SÍDA g
Körfuknattleikur kvenna
•«
K.R. og Armann
kepptu í meistaraflokki
í köx'fuknattleik s.l.
sunnudag. Leikurinn
var fjörugur og yfir-
leitt vel leikinn af
beggja hálfu, en KR
sigraði örugglega 73:63.
Fj’rri hálfleikur var mjög
.iafn og virtust liðin jöfn að
styrkleika . og ákveðinn sig-
urvilji f.vrir hendi hjá báðum.
f hléi var staðan 36:31 fyrir
KR.
í siðari hálfleik eru það
KR-ingar sem ná yfirhöndinni
og það rækilega þegar líða
tekur á leikinn, en Ármenn-
insar minnkuðu bilið nokkuð
i lokin.
KR-liðið sýndi oft góða
leikni og náði góðum hraða á
köflum Einar Boilason er
styrkasta stoð liðsins og vax-
andi leikmaður^
Ármannsiiðið- virðist ekki
hafa góða þjálfun á borð við
hin liðin í -meistaraflok'ki. Birg-
ir og Davíð Helgason eru enn
sem fyrr máttarstólparnir.
KFR ■
55 : 22
Skarphéðinn
Hér var um mikinn yfir-
byrðasigur að raeða, en liðið
er skipað að mestu mönnum,
sem undanfarin ár hafa keppt
í meístaraflokki, og var ekki
að búast við því að austan-
menn hefðu í fullu tré við
þá. Ólafur Thoriacius (fvrr-
verandi landsliðsmaðurj, Mar-
inó Sveinsson, Sigurður Helga-
son og Matthías Matthíasson
voru allir í liðinu, og sýndu
að þeir hafa ermu gleymt af
listum leiksins. í liði Skarp-
héðins v'ar það Magnús Sig-
urðsson sem bjargaði því sem
bjargað varð. Hann er mik-
ið efni í þessari íþróttagrein
og án hans væri naumast hægt
að tefla liðinu fram.
Islandsmeistarí
X>að eru stúlkur úr umf
Skallagrímur í Borgarnesi, sem
urðu íslandsmeistarar í körfu-
knattleik kvenna i ár. Þær sigr-
uðu ÍR sl. sunud.ag með 23:22,
og fimleikafélagið Björk i
Hafnarfirði með 18:9.
Þetta eru at.hyglisverð úr-
slit og óhætt að óska borg-
firsku stúlkunum til hamingju
með verðskuldaðan sigur.
Eins og markatalan ber með
sér. þá var keppni Skalla-
gríms-stúlkna og ÍR-stúlkna
ákaflega jöfn og leikurinn
harður á köflum Lengst af
mátti ekki á milli sjá, og úr-
slitin ekki ráðin fyrr en á síð-
ustu sekúndunum.
Aftur á móti vann Skalla-
grímur auðveldan sigur yfir
Björk. eins og sjá má af stig-
unum.
Umf Skallagrimur er eitt
þeirra félaga úti á landi sem
lagt hafa sérstaka rækt við
körfuknattleik. Víða úti um
land er íþróttin æfð af miklu
fjöri, en umf. Skallagrímur á
líka heiður skilið fyrir að senda
lið sín langan veg til að keppa
á íslandsmótinu. Piltar úr fé-
laginu hafa keppt í 1. flokki
íslandsmótsins bæði í fyrra og
núna. og þeir hafa sýnt að þeir
eru fyllilega gjald.gengir á
þeim vettvangi.
r r r
SLÆSLíe AfMÆUSHATB ARMAHNS d LAUSARDAC
ÚTSALA
Okkar árlega útsala er hafin,
Stendur í nokkra daga.
Notið þetta sérstaka tækifæri og gerið
góð kaup.
Glímuíélagið Árrnann minnt-
ist 75 ára afmælis síns með
myndarlegri afmælishátíð í
Háskólabíói s.l. laugardags-
kvöld.
LaugaVt
egi
Dagskrá hátíðarinnar var
fjölbreytt: íþróttasýningar, á-
vörp og ýmis skemmtiatriði.
Jens Guðbjörnsson, formaður
Ármanns, setti hátíðina. Ávörp
fluttu G.ylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra, Geir Hallgrims-
son borgarstjóri og Gisli Hall-
dórsson, forseti ÍSÍ. Guðmund-
ur Guðjónsson óperusöngvari
söng einsöng með undirleik
Skúla Halldórssonar, og einnig
söng karlakórinn Fóstbræður.
Svavar Gests og hljómsveit
hans önnuðust skemmtiþátt.
Mikla athygli vöktu íþróttasýn-
ingar félagsins. Þrír fimleika-
flokkar sýndu. Voru það karla-
flokkur, kvennaflokkur og
drengjafiokkur. Kvennafiokkur-
inn vakti sérstaka hrifningu
fyrir frábæra leikni, en stjórn-
andi og kennari flokksins er
Guðrún Lilja Halldórsdóttir.
Drengjaflokkur undir stjórn
Skúla Magnússonar var og sýn-
ingargestum til mikiilar á-
nægju. Karlaflokkurinn sýndi
æfingar á dýnu. tvíslá og svif-
rá umjir stjórn Þóris Kjartans-
sonar Þá voru glímusýning og
bændaglíma undir stjórn Sig-
urðar Jóhannssonar og enn-
fremur júdósýning, sem Si.a-
urður Jóhar.nsson stjórnaði
einnig.
Þá sýndu glímumenn forna
leiki undir stjórn Harðar Gunn-
Framhald á 8. síðu.
Þráft fyrir snjóleysið
Svig-keppnin í Skíðamóti Reykjavíkur fór
fram s.l. sunnudag í Skálafelli. Má það til tíð-
inda teljast að takast skuli að haida slíkt mót
á þessum snjóleysisvetri. Ácrætt skíðafæri var í
Skálafelli norðanverðu, osj fór mótið vel fram.
86,6
90.9
109,7
118,0
260,6
337,1
Veður var ágætt. hiti um
frostmark, sólskin og logn.
Brautir lagði Haukur Sigurðs-
son, en mótstjóri var Ölafur
Nilsen. Skíðadeild KR sá um
mótið.
Keppendur voru samtals 95,
þar af 31 frá Ármanni, 31 frá
KR, 28 frá IR og 5 frá Vík-
ingi. — Orslit urðu sem hér
ségir:
Svig karla A-flokkur:
(hlið 65 brautarlengd 400 m
hæð 180).
Svigmeistari varð:
sam.
Þorbergur Eysteinsson, lR 139,2
Hilmar Steingrímss.. KR 142,6
Gunnl. Sigurðsson KR 145,7
.Haraldur Pálsson ÍR 146,2
Sig. Einai’sson, IR 146,9
Valdim. örnólfsson IR 152.7
3-manna sveiíarkeppni:
Sveit ÍR Svcit KR:
139.2 142,6
146.2 145.7
146.9 162,0
432,3
450,3
B-flokkur karla: (62 hlið
brautarlengd 360 m,
hæð 155)
Helgi Axelsson ÍR 155.2
Einar Gunnlaug%son KR 157,5
Björn Ólafsson Vik. 162,1
Einar Þorkelsson KR 263,0
C-f!okkur karla: (hlið 52
brautarlengd 330. hæð 120,)
Björn Bjarnason ÍR 124,5
Georg Guðjónsson Á 130,4
Sigurður Guðmundsson Á 137,4
Brynj Bjarnason ÍR 138.8
Hallgr. Guðmundsson Á 143.7
Jóhann Reynisson KR 143.8
8 manna sveitakeppni:
Sveit ÍR. Sveit Árm. j
124,5 131,4 j
138.8 , 137,4 j
168.9 ' 143.7 ;
432.2
412.5
Björn Bjarnason, ÍR, sigurveg-
ari í C-flokki
Drengjaflokkur: (hlið 31
brautarlengd 260, hæð 90)
Eyþór Haraldsson ÍR 83,1
Tómas Jónsson ÍR 86,6
Har. Haraldsson ÍR 90.9
Sverrir Haraldsson ÍR 101.3
Þorsteinn Ásgeirsson Á 102.9 !
Guðm. Frímannsson KR 109.4 i
3-manna sveitakeppni:
Sveit ÍR: Sveit KR:
83,1 109,4
Kvennaflokkur: (hiið 52
branta,’lengd 33o m.
■ hæð 120)
Marta B Guðmundsd KR 128,3
•Takobina .Takobsd ÍR 128,9
Kristín Biörnsdóttir Á 222.5
Karolína Guðmundsd. KR 147.5
Stúlknaflokkur: (hlið 31,
brautarlengd 260. hæð 90)
Ingibiörg Eyfells ÍR 101,8
Erla Þorsteinsd KR 131.0
Æfingaskortur
Það var áberandi á þessu
móti. að flestir reykvísku
skíðamennirnir voru í lítilli
þjálfun. og undrar það víst
engan. því skilyrði til æfinga
í vetur bafa verið lítil sem
engin
Þorbergur Eysteinsson hafði
mikla yfirburði í A-flokki, sér-
staklega fór hann fyrri ferðina
glæsilega Hin gamla kempa
Haraldur Pálsson fór báðar
ferðirnar af góðu öryggi og
skaut flestum yngri mönnun-
um aftur fyrir sig.
Umræðufundur
Frjálsíþróttasamband fslands
gepgst fyrir umræðufundi í
samkomusal SÍS við Sölvhóls-
götu á morgun, fimmtudaginn
5 marz. og hefst fundurinn kl [
8.30 síðdegis
Þátttakendum i siðasta meist- i
aramóti fslands i frjálsum í- i
þróttum. svo os þátttakendum j
í landskeppnum s.l sumar, er
sérstaklesa hoðið H1 fundar-
ins.
Á fundinum verða afhentir
bikarar frá MÍ i sumar.
Einnig verður sýnd kvik-
mynd frá landskeppninni í Nor-
egi s.l. sumar
Marta B. Guðmundsdóttir, KR,
sigurvegari í kvennaflokki
Ingibjörg Eyfells, ÍR, sigur-
vegari í stúlknaflokki
Fimleikastúlkur Ármanns vöktu geysiathygli fyrir fagrar og tilkomumiklar fimleikasýningar á
afmælishátíð Ármanns. Hér sjást nokkrar stúlknanna í einu sýningaratriðinu. (Ljósm. Þjóðv. A.K.).