Þjóðviljinn - 04.03.1964, Blaðsíða 12
•4
\
\
\
I
I
I
I
I
I
ALÞINGIHEFUR ÆÐSTA VALDIÐ
I
I
I
\
\
Frumvarp Einars Olgeirs-
sonar um heildarskipulag mið-
baejarins í Reykjavík kom til
fyrstu umræðu í neðri deild
Alþingis í gær og hafði flutn-
ingsmaður framsögu í mál-
inu, sem síðan var visað til
allsherjarnefndar.
Frumvarpið, ásamt greinar-
gérð, var birt í Þjóðviljanum
20. febrúar s.l en hér birt-
um við aftur uppdrátt af
borginni til skýringar á til-
lögum Einars. Dökka óreglu-
lega strikið afmarkar það
svæði, sem frumvarpið tekur
til
í framsöguræðu sinni i gær
lagði Einar áherzlu á, að
æðsta vald i skipulagsmálum
væri í höndum Albineis og
sagði a|5 timi væri til kom-
inn að staldra við áður en
fleiri sngulegar minjar verði
eyðilaeðar: enn hefði ekki
tekizt að skemma nema fáar
söguleear bygeinear og þær
merkustu eru óskemmdar að
kalla Nefndi Finar sérstak-
lega menntaskólahúsið. Al-
þingishúsið. dómkirkjuna,
stjórnarráðshúsið ng rakti
sögu þessara bygginga. Þá
nefndi Einar dæmi um þá al-
úð. sem aðrar þjnðir. miklu
stærri okkur og auðugri
að söeufrægum bvggineum,
leggja til varðveizlu gam-
alla bygginga og dæmi um
striðsþjóðir. sem hafa jafnvei
byggt upp miðaldaborgar-
hverfi sem sprengd hafa ver-
ið í rústir í stríði: „til að
mennineartengsHn við fortíð-
ina rofni ekki “
— Okkur liggur ekki það
mikið á, sagði Einar, að við
þurfum að eyðileggja eitt né
neitt sem ekki verður bætt.
Framtíðin mun virða okkur
fyrir að skila henni menning-
arverðmætum en fordæma
okkur ef við fordjörfum eða
eyðileggjum sögufræg mann-
virki, sem aldrei er hægt að
endurbyggja.
Loks gerði Einar ýtarlega
grein fyrir frumvarpi sínu en
það miðar að því að skipuð
skuli all fjölmenn nefnd
þeirra aðila sem áhrif geta
haft á skipulagsmál eða hafa
þar hagsmuna að gæta, að
banna að hreyft verði við
tilteknum sögufrægum bygg-
ingum og í heild að samræma
hugmyndir í skipulagsmálum
svo að skynsamlegt heildar-
skipulag verði gert af höfuð-
borginni.
Réðstefnu róttækra verður
haldið ófram á morgun
Ráðstefnu róttækra verður
haldið áfram annað kvöld í
Dagsbrúnarhúsinu, Lindargötu 9,
kl. 8.30. Fyrsta nefnd hefur nú
skilað frá sér uppkasti að á-
Varð bráðkvaddur
Um helgina varð Þorgeir Sig-
urðson úr Kópavogi bráðkvadd-
ur f Bakkaseli í öxnadal. Þor-
geir heitinn var þama á ferð
með konu sinni ölöfu Baldvins-
dóttur, Guðrúnu dóttur sinni og
tengdasyni Jónasi Haralz. ráðu-
neytisstjóra. Fjölskyldan var á
heimleið og hafði verið viðstödd
jarðarför móður Þorgeirs. Guð-
rúnar Marteinsdóttur, norður £
Þingeyjarsýslu. Snjóföl var á
veginum í Bakkaselsbrekku og
spólaði bíllinn. Fóru menn þá
út til að ýta en þá hneig Þorgeir
niður örendur.
lyktun, sem hefur verið send út
til þátttakenda. Fyrsta nefnd
fjallaði aðallega um stöðu ís-
lands í umheiminum og utanrík-
isstefnumál Ragnar Arnalds
hafði á hendi forystu nefndar-
innar, en nefndin valdi fjóra
menn til að semja drög að á-
lyktun. Þeir eru: Ragnar Arn-
alds, Rögnvaldur Hannesson,
Gísli Gunnarsson og Gunnar
Guttormsson. Þeir hafa nú skil-
að frá sér 13 vélrituðum síðum,
og er ekki að efa, að þar er
margt að finna, sem gefur tilefni
til umræðna og athugasemda.
Á fundinum annað kvöld verð-
ur tillaga I. nefndar rædd, og
er fyrirhugað, að fundurinn
gangi frá henni endanlega.
Önnur og þriðja nefnd eru að
störfum, og þess er vænzt, að
hægt verði að halda fundum á-
fram með viku- til hálfsmánað-
ar millibili. Þeir sem ekki voru
á fyrsta fundinum, en vilja vera
með, snúi sér til Rögnvaldar
Hannessonar, Bergstaðastræti
45, og fái hjá honum uppkast
að ályktun I. nefndar, eða láti
skrá sig á fundinum annað
kvöld. Enginn róttækur, ungur
maður, getur látið störf RR
fram hjó sér fara. Fylgizt með
frá byrjun 0,7 leggið ykkar álit
til málanna. Ræðum það sem
okkur greinir á um, og drögum
fram það, sem við stöndum
saman um.
Bókauppboð hjá
Sigurði Benedikts-
syni í dag kl. 5
í dag klukkan fimm síðdegis
efnir Sigurður Benediktsson til
bókauppboðs í Þjóðleikhúskjall-
aranum og verða þar boðin upp
75 númer bóka. Meðal þess sem
þarna er á boðstólum eru nokkr-
ar frumútgáfur af bókum Lax-
ness og eru þær flestar áritaðar
af skáldinu. Bækur þessar eru
Kaþólsk viðhorf, Vefarinn mikli
frá Kasmír, Alþýðubókin, Þú
vínviður hreini, Fuglinn í fjör-
unni, Sjálfstætt fólk, Fótatak
manna, Gerska ævintýrið og
Vettvangur dagsins.
Þá eru þarna í boði Nokkur
ljóðmæli eftir Jón Þorláksson,
Hrappsey 1783, Smaadigte eftir
Jóhann Sigurjónsson, Khöfn 1920
og Þulur Theódóru Thoroddsen,
frumútgáfa, Rvík 1916, o.m.fl.
Bækurnar verða til sýnis í
Þjóðleikhúskjallaranum kl. 10-4
í dag.
Einmuna tíð í Kelduhverfi
Kelduhverfi 3/3 — Einmuna tíð
hefur verið hér í sveitinni
síðan seint í nóvember. Jörð er
alauð. Frostleysur og stillur.
Bílaumferð er mikil eins og
um hásumar væri. Eru þar á
ferð vöruflutningabílar, jeppar
og fólksbílar. Nær daglega heyr-
ast drunur úr flugvélum, sem
þjóta fram og til baka. Björn
Þórarinsson, bóndi í Kílakoti,
vitnaði hér á dögunum í þetta
forna stef:
„Vegur er undir og vegur er
yfir og vegur á alla vegu“.
Dauf framsóknarvist
Egllsstöðum 3/3 — Síðastliðið
laugardagskvöld stofnuðu ung-
ir Framsóknarmenn til fram-
sóknarvistar hér í þorpinu og
var spilað á fimm borðum vegna
fámennis. Gert hafði verið ráð
fyrir tuttugu borðurh og þá
væntanlega reiknað með bless-
uðum börnunum, en þau hafa
líklega ekki verið búin að læra
vistina. Samkoma þessi lognað-
ist svo út af vegna de.vfðar.
— S.G.
Heitir eftir gamalli aflakló
ÓLAFSVÍK 3/3 — Nýr bátur
sigldi hér inn á höfnina í gær-
dag £ blíðskaparveðri og bætist
í flota Ólafsvíkurbáta. Báturinn
hefur verið skírður Sveinbjöm
Jakobsson SH 10 og er látinn
heita eftir gömlum breiðfirzkum
árabátaformanni, sem uppi var
á nítjándu öld.
Þetta er eikarbátur smíðaður í
Esberg í Danmörku og er 110
rúmlestir að stærð. Báturinn er
búinn kraftblökk og Simrad fisk-
leitartækjum og hcfur 495 h.a.
Lister aðalvél og Ijósavél. Hann
sigldi tólf sjómílum í reynsluför.
Aðaleigendur eru tveir bræður
hér í Ólafsvík, sem hafa stofnað
útgerðarfélag með heldur hóg-
væru nafni og nefnist það Dverg-
ur h.f. Framkvæmdastjóri út-
gerðarfélagsins heitir Haukur
Sigtryggsson. Umsjón með smíð-
inni hafði Þráinn Sigtryggsson,
vélstjóri. Þá hefur verið ráðinn
skipstjóri á bátinn einstök afla-
kló og heitir hann Rafn Þórðar-
son.
Rafn hefur verið skipstjóri á
Hrönninni er var aflahæstur af
Ölafsvíkurbátum á síðustu ver-
tíð. Stýrimaður er Sigurður
Bjarnason og fyrsti vélstjóri Pét-
ur Bárðarson.
Þessi nýi bátur er þegar kom-
inn á netaveiðar. — E. V.
Uggandi um vertíðina
Höfn í Hornafirði, 2/3 — Sum-
arblíða hefur verið hér undan-
farið og er í dag glaða sólskin
og logn og sést ekki ský á himni.
Mikil deyfð er þó yfir avinnu-
lífinu og vann verkafólk í síð-
ustu viku ekki nema þrjá daga.
Aflaleysi hefur verið hjá bátun-
um síðan tíunda febrúar, en þá
gekk loðna á miðin og hvarf all-
ur fiskur.
Áður höfðu verið slæmar gæft-
ir. en afli góður hjá bátunum.
Bátamir hafa flestir tekið net.
Sumir hafa þorsknót og eru
jafnvel aðeins með handfæri. En
fiskurinn virðist vera horfinn af
miðunum og eru menn orðnir
uggandi um að vertíðin bregðist.
Verður þá hér vandræðaástand,
þar sem atvinnulífið byggist ein-
göngu á sjávarafla. Viðreisnar-
dýrtíðin segir líka fljótt til sín,
ef atvinnan dregst saman. —
B.Þ.
Varhugaverðir smávindlar
REYKJAVfK, 3/3 — Undanfarn- | ir eins og King Edward og Roy
ar vikur hafa vindlareykingar Tan eru varhugaverðar, þar sem
færzt í vöxt og hverfa menn óð- ' í þessar vindlategundir er vafinn
um frá vindlingum. Margir hafa brúnn pappír til þess að gera þá
þó eitthvað að athuga við smá- lögulegri í útliti.
vindlana og hefur komið í ljós, , Það er til lítils að friða sam-
að bandarískar smávindiategund- 1 vizkuna með slíkum reykingum.
Um fímmtíu prósent gjaldeyris-
sparnaður uð smíða bátana hér
Nú er skipasmíðastöðín Stál-
vík við Amarvog að smíða
þriðja skip sitt og er það 170
rúmlesta fískiskip, sem smíðað
er fyrir Hraðfrystihúsið Jökul í
Keflavík og er áætlað að smíði
þess verði lokið fyrir sumarsíld-
veiðar. Fyrir 11 virkum dögum
var vörin auð og tóm. Þarna
Iiggur nú hálfsmíðaður skips-
skrokkur og verður fullsmíðað-
ur eftir tiu daga. Þannig leggur
þessi skipasmíðastöð mikið upp
úr hraðanum. Undanfarnar vik-
ur hefur umræddur bátur verið
smíðaður í hlutum inni í húsinu
og hafa beir meðal annars til
umráða svokallaða skipapressu
með 250 tonna þrýstingi á plöt-
urnar.
Eiginlega er skipasmíðastöðin
sjálf líka í smíðum og standa
vonir til þess að húsabyggingum
sé lokið á komandi sumri. Verð-
ur þá mögulegt að smíða allt að
300 smálesta skip með öllum út-
búnaði nema möstrum.
Þegar skipasmíðastöðin sjálf
verður fullsmíðuð er sköpuð
vinnuaðstaða fyrir hundrað
manns. Núna vinna þrjátíu
manns við skipasmíðastöðina. Þá
verður mögulegt að smíða fjóra
250 rúmlesta fiskibáta á ári. Inn-
kaupsverð þeirra er i dag 46
milljónir og sparast allt að 50n/n
í gjaldeyri bor;ð saman við sam-
svarandi fiskibáta smíðaða er-
lendis í dag. Stálvík hefur smíð-
að áður Skeljung I. og Lágafell
og hafa þessi skip reynst ágæt-
lega.
Fyrirtækið er tveggja og hálfs
árs gamait.
Þrír verkstjórar bera hita og
þunga dagsins og heita þeir
Elliði Guðjónsson, Óskar Valde-
marsson og Hans Lindberg.
Framkvæmdastjóri skipasmíða-
stöðvarinnar heitir Jón Sveins-
son, tæknifræðingur. Ágúst G.
Sigurðsson, skipaverkfræðingur
frá Hafnarfirði teiknaði skip það
sem nú er í smíðum.
Stálvík er nú tilbúin að
semja um smfði á næsta skipi
170 til 200 rúmlestir að stærð og
getur afhent það fyrir næstu
vetrarvertíð. Þess má geta að
Fiskveiðisjóður íslands lánar
7,5°/n meira til þeirra skipa. sem
smíðuð eru innaniands.
Hér er verið að leggja síðustu
hönd á fyrsta skipið frá Skipa-
smíðastöðinni Stálvík við Am-
arvog. Þctta er Skeljungur I. og
hefur skipið reynst vel fram að
þessu.