Þjóðviljinn - 21.03.1964, Side 10
10 SlÐA
ÞlðÐVILJINN
RAYMOND POSTGATE:
úrskurð samkvæmt vitnisburðin-
um.
Undarlegt orðalag, hugsaði
hún; kyssti Biblíuna og settist
á bekkinn fyrir kviðdómendur
sem búnir voru að sverja.
(Réttarritarinn sneri sér næst
að manninum, sem hann hafði
tekið eftir fyrir það, hve fríður
hann var. Eins og flestir karl-
menn á miðjum aldri og eldri,
hafði hann ósjálfráða andúð á
eða tortryggði laglega menn,
einkum og sérílagi fríða menn
og dökka yfirlitum. Ef hann
hefði átt að finna eitthvað sér
til afsökunar, hefði hann lýst
þeim sem fleðulegum eða út-
lendingslegum. Það var ekki
nema kostur á manni að hann
var dálítið hirðuleysislegur; hann
taldi það miklu fremur galla ef
hann hafði of reglulega andlits-
drætti og var of snyrtilega til
fara. En hvað sem því leið, þá
hafði hann ekkert á móti þessum
kviðdómanda. Eftir að hafa
horft á hann drykklanga stund,
Sagði hann við hann: — Arfhur
George Popesgrove. hafið eftir
mér ....).
Arthur George Popesgrove.
Mjög enskt nafn. Aðeins Eng-
lendingur eða Bandaríkjamaður
gátu borið nafnið Arthur rétt
fram; George var nafn konungs-
ins; og engum hefði dottið f hug
að Popesgrove hefði verið vaiið
eftir símaskránni. Stundum ósk-
aði eigandinn bess að hann befði
valið sér Anthony sem fornafn
Þótt hann væri dekkri yfirlitum,
þá var andlitsfallið svolítið líkt
og á Anthony Eden, og það var
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiösln og
enyrtistofa STEINU og DÓDÖ
Langavegi 18 ITI. h. (lyfta)
SfMT 24B1B.
P E R M A Garðsenda 21
SÍMI 33968. Hárgreiðslu- og
snyrtfstofa.
Dðmnr? Hárgreiðsla "ið
allra hæfl.
TJARNARSTOFAN.
Tjarnargðtn 10. Vonarstrætls-
tnegin. — SfMI 14662.
HARGREIÐStUSTOFA
AtJSTTJRBÆ.lAR
(Maria Guömunclsdóttirl
Eaugavegi 13 — SÍMI 14656.
■— Nuddstofa á sama stað. —
ekki hans sök þótt klæðaburður-
inn væri ekki hinn sami. Að
minnsta kosti hefði herra Eden
ekki getað hugsað meira um
þjóðemi sitt. Enginn annar kvið-
dómandi leit á boðun sína sem
mikinn heiöur. í bezta falli
sættu þeir sig við það sem
skyldu. Arthur Popesgrove var
himinlifandi þegar hann las til-
kynninguna. — Sjáðu til, Maud,
sagði hann við konu sína. — Nú
5
á ég að verða kviðdómandi. Það
er mjög þýðingarmikið. Ég tek
minn þátt í að vemda brezka
réttvísi. Hann brosti ánægjulega
— konan hans leit niður nefið
á sér og sagði ekki neitt. Nefið
á henni var feitt, stórt og hvítt;
mjög breitt við nefrótina og
með fílapensum; það var ekki
sérlega enskt nef. En að sjálf-
sögðu var ekki hægt að skipa
eiginkonu sinni að breyta á sér
nefinu. Að minnsta kosti gegndi
hún nafninu Maud andmælalaust
og þau töluðu aldrei annað en
ensku saman. Enskur; enskur
var hann svo sannarlega, því að
ríkisborgarabréf hans bar vott
um vilja og val, þar sem fæð-
ingarvottorð mannsins í næsta
húsi var aðeins vitm'sburður um
tilviliun. Ekkert barna hans
skvldi nokkru sinni fá að vita
að annað blóð en enskt rynni í
æðum þeirra. Ef nauðsyn forefði
væri meira að segja hægt að
breyta matnum í veitingahúsi
hans. Hann hafði begar mann
til taks í grill-herberginu bakvið
stórt silfurfat sem á stóð tröil-
aukin nautasteik. Þegar gestir
spurðu hann ráða. sagði hann
oft — Ekkert jafnast á við róst-
bíf, eða hvað herra minn? Eða
kannski steik? Dökk að utan og
rauð að innan. Ýmsir réttir
höfðu horfið af matseðlinum;
minna var notað af hvítlauk í
matinn.
Stærðin á fjölskyldu hans var
ef tii vill dálítið óensk. Hann
hafði eignazt sex böm áður en
hann gerði sér ljóst að stórar
fjölskyldur vom ekki í tízku og
auk þess dýrar í rekstri. En það
var ekkert að nöfnum bamanna
að finna. Eric Archibald, Julia,
James Henry, Mary, Charles
Edward og Ajrthur Herbert. Það
var allt i lagi með þau. Málfar
hans var iýtalaust. Einu sinni
blés hann essin sín dálítið, en
nú vottaði ekki lengur fyrir
slíku. Hann hafði meira að
segja tiltæka gerviættartölu
handa bömum sínum, ef þörf
krefði. Hann ætlaði að segja
þeim að móðir þeirra væri frá
eyjunum í Ermasundi og að föð-
urafi þeirra, hefði verið dálít-
ið vafasamur náungi. — Við töl-
um yfirleitt ekki um hann. en
þið eigið rétt á að fá að vita
það, heyrði hann sjálfan sig
segja. — Hann var sonur smá-
jajrðeiganda í Dorset og kom til
borgarinnar og eyddi og sóaði á
báða bóga. Eitt kvöldið lenti
hann í slagsmálum og lögreglu-
þjónn lét lífið af þeim sökum.
Hann fékk þungan dóm. Ég man
ekki eftir honum; ég var ekki
annað en barn þegar það gerð-
ist.
Hann var þess fullviss að
hann gerði bömum sínum miklu
meiiri greiða með því að segja
þeim þessa sögu en með því að
leiða þau í allan sannleika. Þó
hefði fáum öðmm en honum
sjálfum þótt neitt skammarlegt
við uppruna A. G. Popesgrove,
veitingamanns. Hann var borinn
og bamfæddur í þorpi í Þessa-
líu — þurru, fátæku, þefillu og
undir steikjandi sól sem aldrei
skín í Englandi, ekki einu sinni
á bjartasta sumardegi. Þar er
sólin aldrei óvinur: hún brennir
ekki hörund þitt með ofsahita
sínum og blindar augu þfn með
ljóma sínum. Blár himinninn er
aldrei eins og bráðinn málmur.
Sveitimar eru sjaldan brúnar og
brunnar af þunrki þaktar ryk-
skýi sem leggst yfir matinn þinn
og fötin. Lyktin er kannski engu
betri, en hún er öðru vísi og
ekki eilíf og tilbreytingarlaus.
Litli drengurinn, Akkilles
Papanastasiou, var fallegur eins
og aðeins grískur drengur getur
verið. og hann ákvað snemma
að hið bezta sem hann gæti gert
væri að komast burt úr heima-
þorpi sínu hið allra fyirsta.
Honum var sama með hverjum
hætti það væri; aldarfjórðungi
síðar mundi hann varla hvem-
ig það hafði gerzt. En í raun og
veru gerðist það á þennan hátt.
Grísk stjómmál vom fyrir
heimsstyrjöldina ögn opnari en
þau eru í dag, en þau voru lík
áð öðru. Þeseus Þeotoki höfuðs-
maður var stjámmálamaður og í
einum af kosningaleiðöngrum
sínum, tók hann eftir Akkillesi
litla. Hann fór til foreldra hans
og keypti hann eins og hann
hefði keypt kálf. Það var dálítið
meira í kringum það: hann tal-
aði um Aþenu, frjálsa menntun
og þau tækifæri sem ritara
stjórnmálamanns myndu bjóðast,
og gengið var frá samningunum
í ráðhúsinu sem ættleiðingu.
Akkilles ungi komst fljótlega
að þvi að hann hafði ýmsum
nánari skyldum að gegna en
venjulegur ritari. Höfuðsmaður-
inn átti viss hús og hótel sem
rekin vom í trássi við lögin.
Það var ekki sérlega alvarlegt,
en þó þurfti að viðhafa vissa
aðgæzlu. Hugsanlegt var að
beita smáfjárkúgun f laumi. Þeg-
ar Akkilles var sextán ára, gerði
hann sór Ijóst að hann hafði dá-
lítið tangarhald á höfuðsmann-
inum. Og um tfma hafði Akk-
illes fullar hendur fjár. Það var
kótt og fjörugt f Aþenu: styrj-
öldin 1914 var hafin og næga
eðlilega skemmtun að fá, en bað
vildi Akkilles helzt. Höfuðsmað-
urinn virtist óþrjótandi upp-
spretta og Akkilles naut lífsins
f ríkum mæli.
Enn hafði betta ekki komið að
sök. En Akkilles var mjög
reynslulaus; hann var í rauninni
ekki annað en drengur úr sveit»-
þorpi. Hann gerði þá miklu vít-
leysu að fyllast yfirlæti samtím-
is eyðsluseminni. Hann sóaði
peningum vemdara síns og lét
hjá líða að gegna þeim skyldum
sem hann þáði greiðslu fyrir.
Spilasalimir og stofnanimar þar
sem séð var fyrir öðmm
skemmtunum, sáu hann ekki
nóttum saman. Hann átti að
vera eins konar aðstoðargest-
gjafi, ýta undir menn að eyða
fé sínu, aðstoðarútkastari og
vasaþjófur við stöku tækifæri.
Hann vanrækti allt þetta. Þeseus
höfuðsmaður mótmælti um
stund, en svo gerði hann sér allt
í einu Ijóst að hann var hafður
að fífli. Hann minntist þess að
hann gat enn haft nokkur áhrif
og fór á fund lögreglustjórans.
Akkilles var að drekka í vín-
stofu í Peiraieus þá um kvöldið.
Hann hafði ekki drukkið mikið
enn, hann var rólegur og alls-
gáður og dálítið órólegur yfir
framkomu vemdara síns þá um
morguninn. Honum hrá ekki lít-
ið þegar framreiðslustúlkan, sem
virtist svo sem ári yngri en
hann, hvíslaði að honum lágri
röddu:
— Farðu héðan. Farðu frá
Aþenu strax í dag og farðu ekki
aftur heim til þín. Þetta er að-
vörun.
Hún skildi hann eftir gapandi
af undrun og hélt áfram við
vinnu sína. Eftir nokkra stund
gaf hann henni merki.
— Glas af uzo. Hvað áttirðu
við með því sem þú sagðir áð-
an?
Hann strauk um bakhlutann á
henni.
— Hættu þessu, kjáninn þinn.
Þetta er alvara. Tveir lögreglu-
þjónar (Hún notaði mjög niðr-
andi grfskt orð sem ekki er hægt
að þýða) voru hér fyrir svo sem
klukkutíma. Þeir vom að tala
um þig. Ég vissi það vegna þess
að þeir minntust á Þeotoki höf-
uðsmann. Þú verður tekinn fast-
ur í kvöld. Sjómaður ákæriir þig
fyrir (ósiðlegt afbrot). Það verð-
ur líka sannað á þig að þú haf-
ir ráðizt á lögregluna. Þú verð-
ur dæmdur og sendur á ein-
hverja eyjuna. halda þeir.
— Þú ert að búa þetta til.
— Alls ekki. Þú færð að sjá
það sjálfur. Ef þú ferð heim til
höfuðsmannsins, þá hafa þeir
eitthvað annað á þig. Ég skildi
ekki nákvæmlega hvað, en það
var eitthvað i sambandi við
þjófnað.
Akkilies fölnaði og honum
varð hálfóglatt. Hann hafði gerzt
fjölþreifinn um skartgripi höf-
uðsmannsins. Og hvað hafði
gamall karl líka að gera við
armbönd?
— Hvað heitirðu? spurði hann.
— Helena Melagloss. Ætlarðu
að fara?
Hann sat stundarkom þegj-
andi og fór síðan niður að höfn-
inni. Það var enginn vandi að
fá skiprúm á flutningaskipum
bandamanna fyrir duglega stráka
og enginn spurði neins.
Alveg til stríðsloka vann hann
á frönskum skipum, venjulega
í eldhúsinu sem alls konar vika-
drengur. Hann fékk nóg að
borða, lærði frönsku ágætlega
og ýmis undirstöðuatriði i elda-
mennsku. Hann lærði líka að
beita hnífi. Hann fékk kvnsiúk-
dóm og fékk eftirminnilega
lækningu hjá skipslækninum,
sem hræddi hann til að hefja
varlegra lífemi með töluvert
ýktum fyrirlestri um læknis-
fræði. Hann fór af skipi sínu
18. nóvember 1918 i Marseilles,
Laugardagur 21. marz 1964
Ég er viss um að sala þessaxar plötu slær öll met . . . Hefurðu
nokkurn tíma heyrt svona DÁSAMLEGAN HÁVAÐA?
Ritarastaða
er laus til umsóknar á vita- og hafnarmálaskrif-
stofunni. Sérstök áherzla er lögð á góða vélritun-
arkunnáttu.
Umsóknir, er greini frá venjulegum upplýsing-
um (aldur, menntun, fyrri störf o.s.frv.) sendist
skrifstofunni fyrir 1. apríl n.k.
Laun samkvæmt kjarakerfi opinberra starfsmanna.
Upplýsingar um starfið veittar næstu daga frá
kl. 9—12.
Vita- og hafnarmálaskrifstofan.
TiL SÖLU
#• •
2ja herbergja ibúð í vesturbænum, félagsmenn sem
óska að nota forkaupsrétt að íbúðinni snúi sér til skrif-
stofunnar, Hverfisgöru 39, fyrir 26. marz.
B. S S. R. símí 23873
Byggingafélag verkamanna
Til sölu tveggja herbergja íbúð í 3. byggingaflokki.
Félagsmenn, sem neyta vilja forkaupsréttar, sendi um-
sókmr sínar tyrir ki 12 á hádegi, miðvikudaginn 25. þ.m.
í skrifstofu félagsins, Stórholti 16.
STJÖRNIN
Byggingdrsamvinnufélag
barnakennora
tilkynnir:
Fyrir dyrum standa eigendaskipti að 4ra herbergja
íbúð félagsmanns við Hjarðarhaga.
Forkaupsréttaróskir verða að berast skrifstofu fé-
lagsins. Hjarðarhaga 26, fyrir páska.
Steinþór Guðmundsson — sími 16871.
SVEFNSÓFAR
- SÓFASETT
|sí®?»;s!»liaverzlui5
ljúka viö verk sem þau byrja ekki
á.
r •»
mm