Þjóðviljinn - 01.04.1964, Síða 2
2 SlÐA
ÞJðÐVlUlNN
Miövncudagur 1. apríl 1964
tekur enn frumkvæðið
Gjörbylting í hjólbarðainnflutningi
Japanskir hjólbarðar
vinsaelastir.
Síðan japanskir hjólbarðar
fóru að flytjast inn til íslands,
hafa vinsældir þeirra farið
óðum vaxandi, og er nú svo
komið, að um það bil helm-
ingur allra innfluttra hjól-
barða kemur frá Japan. Allt
frá byrjun hefur Bridgestone
verið í fararbroddi, enda sal-
an á þeim hin mesta af öll-
um hjólbarðategundum, sem
seldar eru á íslandi í dag.
Forysta Bridgestone.
Bridgestone hófu forystu
sina með því að lækka verð
á öllum hjólbörðum svo um
munaði, eða allt að 38%. Bif-
reiðaeigendur tóku þessari
lækkun feginshendi, svo sem
von var, og í kjölfar Bridge-
stone lækkuðu allir innflytj-
endur sína hjólbarða niður
undir verð Bridgestone, og
sumir niður fyrir.
Stuttur afgreiðslutími.
Erfiðast var fyrir Bridge-
stone allt frá byrjun, að leiða
hjólbarðasöluna allan veg
austan frá Japan, svo sett
var upp birgðastöð í Ham-
borg, þaðan sem hægt var að
afgreiða með tveggja vikna
fyrirvara og bætti þetta sölu-
aðstöðuna mjög mikið.
ToIIvörugeymslan.
Alltaf var verið á varð-
bergi fyrir nýjum leiðum til
þess að bæta þjónustuna við
hinn örtvaxandi viðskipta-
mannahók Bridgestone, oig er
fréttir bárust um hina fyrir-
huguðu Tollvörugeymslu, var
ekki beðið boðanna, en feng-
inn að leigu stærsti hlutinn
af geymslusvæðinu, sem
leigður hefur verið einum
sérstökum innflytjanda.
Þúsundir dekkja væntanleg.
Strax var tekið til við að
panta á þennan nýja lager, og
birgðastöðin í Hamborg lögð
niður. Nú um mánaðamótin
eru væntanleg á Tollvöru-
geymsluna Bridgestone dekk
í þúsundatali, af öllum stærð.
um og gerðum, sem hægt
verður að afgreiða með nokk'
urra daga fyrirvara. Hugsa
margir gott til glóðarinnar,
svo sem stærri hjólbarðanot-
endur, oliufélögin, kaupfélög-
in, Strætisvagnarnir og marg-
ir fleiri.
Samanburður á innflufningi.
Til dæmis um það, hve ger-
samlega janönsku hjólbarð-
arnir hafa sigrað hér á landi.
birtast hér með tölur fengn-
ar frá Hasstofunni Árið,
1960, heildarínnflutnirtáur
578 tonn, þar af 12,5 tonn frá
Japan. 1961 var heildarinn-
flutningurinn 528,6 tonn, frá
Japan 6,1 tonn. Síðan fara á-
hrifin að koma í Ijós. Strax
árið 1962 nam innflutningur-
inn frá Japan 222,3 toinnum
af 807,2 tonna heildarinn-
flutningi, en 1963 var heild-
arinnflutningurinn 839,4 tonn,
og þar af frá Japan hvorki
meira né minna en 385,6
tonn.
Stórum betri útkoma.
Þeir aðilar, sem reka bif-
reiðar i þungaflutningum á
langleiðum, hafa gert sér
grein fyrir þeirri stórbættu
útkomu sem þeir fá við notk-
un Bridgcstone bæði hvað
snertir verð og þó einkum og
sér í lagi hvað snertir ótrú-
lega endingu. Það má þvi bú-
ast við mikilli ös í Tollvöru-
geymslunni upp úr mánaðar-
mótunum af mönnum, sem
eru að sækja Bridgestone-
dekkin sin Allar nánari upp-
lýsingar um verð og stærð
gefa umboðsmenn Bridge-
stone á íslandi, Rolf Johan-
sen & Co., söluumboð í
Reykjavík, Gúmíbarðinn,
Brautarholti 3, Reykjavík og
Bridgestone umboðið á Ak-
ureyri.
YONDUÐ
F
DYR
SjffttfybrJ&nsson&co
OláfnaaMB.
Við-
bragðafræði
Fyrir nokkru var skýrt frá
því á þingi að bandaríska
sendiráðið hefði á undanföm-
um árum fengið til sinna af-
nota hátt á annað hundrað
miljónir króna hér á landi í
sambandi víð lánveitingar og
„aðstoð" bandarískra stjóm-
arvalda tll íslenzkra. Ekkert
eftirlit er með notkun þessa
fjár, en það er opinbert
leyndarmál að býsna margir
bergja af þessari uppsprettu-
lind. m.a. stofnanir sem1 eru
nátengdar sjálfum stjórnar-
flokkunum. Ætti naumast að
þurfa að eyða orðum að þvi
hversu háskalegt og niður-
lægjandi þetta ástand er, og
þeir fulltrúár stjórnarflokk-
anna sem færa sér í nyt
þessar annarlegu tekjur eru
naumast vel til þess fallnip
að gæta hagsmuna þjóðar
sinnar i samskiptum við hið
erlenda stórveldi.
Hvergi birtist starfseini
þessi á blygðunarlausari hátt
en i athöfnum Varðbergs.
Það félag hefur auðsjáanlega
ótakmörkuð fjárráð: árlega
sendir það heila flugvela-
farma af fólki austur "“st-
ur um haf til aðalstfiðv? \ti-
anzshafsbandalagsins; og hér
á landi hefur það tekið upp
það nýmæli að gera fundi
sína að matarveizslum á
kostnað bandaríska sendiráðs-
ins. Virðist þetta pólitíska
samát hugsað likt og tilraun-
ir Pavloffs með hunda eða
aðferðir dýratemjara f fjöl-
leikahúsum; ljúffengur matur
er notaður sem verðlaun fyr-
ir rétta pólitíska afstöðu.
Þessi samtenging á siðan að
leiða til skilorðsbundinna við-
bragða; í hvert skipti sem
góður matur kemur í magann
á hollustan við hernámið og
Atlanzhafsbandalagið að
styrkjast.
Það er því ekki að undra
þótt Varðberg haldi matar-
veizlu þegar einn af flotafor-
ingjum Atlanzhafsbandalags-
ins, Smith að nafni, dvelst
hér á landi þessa dagana. Ef-
laust ætlar aðmíráll þessi
meðal annars að ræða um
væntanlega kafbátastöð í
Hvalfirði, en jafnvel sum-
um hemámssinnum hefur
lengi orðið bumbult við þá
tilhugsun. En trúlega verður
matarveizla Varðbergs í dag
svo vegleg, að þvílíkir menn
fái fulla bót meina sinna og
tengi eftirleiðis kafbátastöð
■' Hvalfirði við bá rétti sem
'iúflegast kitla bragðlaukana
og bezt fara í maga.
— Austri..
Eins og skýrt hefur verið frá
fór mestur hluti keppninnar
fram i Klúbbnum við Lækjar-
teig og á mánudagskvöldið var
lokahóf á sama stað og verð-
laun afhent. Mikill fjöldi á-
horfenda fylgdist með keppn-
Kynningarrit um
starfsemi Sjáifs-
bjargar
Nýlega hefur Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra, látið
prenta kynningarrit um sam-
tökin. Er ætlun ritsins að
kynna almenningi hina merku
og margþættu starfsemi sam-
takanna í því skyni að auka
félagatöluna, bæði aðalfélaga
(fatlaðra) og styrktarfélaga
(heilbrigðra).
Ritinu hefur verið dreift um
land allt til félagsdeilda og
trúnaðarmanna eða á um 90
staði. Hér í Reykjavík mun
ritið liggja frammi á um 40
stöðum, m.a. á afgreiðslum
nokkurra tryggingarfélaga, hjá
Tryggingarstofnun ríkisins,
sjúkrasamlaginu. á nokkrum
lækningastöðum og víðar. Ættu
menn að kynna sér efni ritsins
og starfsemi Sjálfsb^rgar sem
er mjög athyglisverð.
inni frá upphafi og átti sýn-
ingartaflan sinn þátt i því.
Keppnisstjórar mótsins voru
Guðmundur Kr. Sigurðsson og
framkvæmdastjóri Bridgesam-
bands íslands, Brandur Brynj-
ólísson.
SVEITAKEPPNINA
Símon og Þorgeir tvímennings-
meistarar í bridge
íslandsmeistarar í sveita-
keppni urðu sveit Benedikts
Jóhannssonar frá Bridgefélagi
Reykjavíkur. Auk hans eru í
sveitinni Jóhann Jóhannsson,
Jóhann Jónsson, Jón Arason og
Sigurður Helgason. Sigur sveit-
ar Benedikts virtist aldrei í
hættu og í úrslitaleik mótsins
gjörsigraði hún sveit Agnars.
Sveit Siglufjarðar stóð sig með
ágætum og mátti engu muna
að hún hrifsaði fjórða sætið af
Reykjavíkurmeisturunum, sveit
Einars Þorfinnssonar. íslands-
meistaramir frá því í fyrra,
sveit Þóris Sigurðssonar, mátti
vel við una að fá þriðja sætið.
Sveitakeppni I. flokks vanni'
sveit Ólafs Guðmundssonar frá
Hafnarfirði og verður fróðlegt
að sjá ' hvemig henni gengur í
meistaraflokki næsta ár.
Röð og stig meistaraflokks-
sveitanna var eftirfarandi:
Sveit Stig
1. Benedikt Jóhannsson, BR 32
2. Agnars Jörgenssonar, BR 26
3. Þóris Sigurðssonar, BR 20
4. Einars Þorfinnssonar, BR 18
5. Gísla Sigurðss. Siglufirði 17
6. Ólafs Þorsteinssonar, BR 7
7. Mikaels Jónss. Akureyri 6
Fjórar efstu sveitimar, allar
frá Bridgefélagi Reykjavíkur.
munu spila í meistaraflokki
næsta ár, en hinar þrjár fær-
ast niður í I. flokk.
I I. flokki var röð og stig
efstu yveita:____________—,
Sveit Stig
1. Ólafs Guðmundss. Hafnarf. 42
2. Jóns Magnússonar, TBK 39
3. Jóns Ásbjömssonar, BDB 39
munu spila í meistaraflokki
næsta ár.
Eftir mjög harða keppni í
tvímenningskeppninni urðu Is-
landsmeistarar Símon Símon-
arson og Þorgeir Sigurðsson frá
Bridgefélagi Reykjavíkur. Elzta
bridgefélag landsins, Bridge-
félag Reykjavíkur, bar ægis-
hjálm yfir aðra keppendur
mótsins og átti meðal annars
átta af tiu efstu pörum í meist-
araflokki.
Röð og stig efstu para í tvi-
menningskeppni meistaraflokks
var:
1. Símon Símonarson — Þor-
geir Sigurðsson BR 1565 stig.
2. Hallur Símonarson — Krist-
ján Kristjánsson BR 1537
3. Jakob Bjamason — Hilmar
Guðmundsson BR 1531
4. Mikael Jónsson — Þórir
Leifsson, Akureyrí 1519
5. Lárus Karlsson — Jóhann
Jónsson BR 1515
6. Einar Þorfinnsson — Stefán
Guðjohnsen BR 1506
7. Agnar Jörgensson — Róbert
Sigmundsson BR 15.03
8. Guðjón Tómasson — Sigur-
hjörtur Pétursson BR 1500
9. Ásmundur Pálsson — Hjalti
Elíasson BR 1497
10. Þorsteinn Þorsteinsson —
Steinþór Ásgeirss. TBK 1484.
1 tvímenningskeppni I. fl.
voru þessir efstir:
1. Ásbjöm Jónsson — Jón
Ásbjömsson BDB 1592 stig
2. Jón Stefánsson — Þorsteinn
Laufdal BDB 1485
3. Rósmundur Guðmundsson —
Stefán Jónsson TBK 1463.
SVEIT BENEDIKTS VANN
<?>
4. Elínar Jónsdóttur, BK 36
5. Ragnars Þorsteinss., TBK 31
Tvær efstu sveitimar i I. fl.
Islandsmeístarar i bridge 1964: Jóhann Jóhannsson, Benedikt Jóhannsson, fyrirliði, Jóhann
*on} Sigurður Helgason og Jón Arason. — (Ljósm, Bj. Bj.).
Jóns-
Hjálp í viðlögum
Ókeypis námskeið fyrir bifreiðastjóra verða hald-
in í Iðnskólanum og hefjast mánudaginn 6. apríl,
kl. 5 og 8,30. Innritun á skrifstofunni kl. 1—5
næstu daga. Sími 14658.
Rauði kross íslands.
BRIDGESTONE