Þjóðviljinn - 01.04.1964, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 1. apríl 1964
HðÐVIUINN
SÍÐA J
W*.ý
fírt£ÍÍORÍlCE*ÍUR REnÐEzfoU
ALASKA
Yukon
bío me
fairbanks
Anadry
Anchorogc,
[Vokíei,
■Seward
Juneau
Skagwji'
jJCodiok
AV0/AK
UNALASKA
Ataska bugiert
Einhverjir mesfu JarSskjálffar sem um gefur:
178 manns taldir hafa
látið lífið í Alaska
Myndin er írá Crescent City í Kaiiforníu
Þannig lék flóðbylgjan Seaside í Oregon
ANCHORAGE 31/3 — Allt bendir nú til þess, að minnst 178 manns hafi
látið lífið í jarðskjálftunum miklu í Alaska síðastliðinn föstudag. Hefur
tala hinna látnu hækkað jafnt og þétt eftir því sem fréttir berast frá hin-
um afskekktari héruðum landsins. Mest er manntjónið á eynni Kodiak,
en síðustu fréttir þaðan herma, að þar hafi sennilega 78 manns látið líf-
ið. Ekki er enn vitað um manntjón í þorpinu Chenega við Prince Willi-
am-sundið, en óstaðfestar fregnir þaðan herma, að um það bil helming-
ur þorpsbúa, um 45 manns, hafi drukknað í flóðbylgjunni.
Gífurleg orka
Jarðskjálftarnir í Alaska eru
einir þeir mestu, sem sögur fara
af og sýnu harðari en jarð-
skjálftinn, sem lagði mikinn
hluta San Fransisco í rúst árið
1906. Orkan. sem þama leyst-
ist úr læðingi, er talin tíu millj-
ón sinnum meiri en orka kjarn-
orkusprengjunnar á Híróshima
árið 1945, og gefur það nokkra
hugmynd um þær náttúruham-
farir, sem hér hafa orðið.
15 milljarða tjón
Mest hefur tjónið orðið í bæn-
Jarðskjálftinn
Jarðskjálftinn sem varð í Al-
aska á föstudaginn langa, 27.
þ.m., kom mjög greinilega fram
á jarðskjálftamælum í Reykja-
vfk. Samkvæmt jarðskjálftarit-
inu varð mesta heildarhreyfing
jarðskorpunnar hér um eða yf-
ir 2 cm og var sveiflutími þeirr-
ar hreyfingar um 18 sekúndur.
Til samanburðar má geta að í
jarðskjálftanum 28. marz í fyrra
varð heildarhreyfing hér
Reykjavík um 2 millimetrar.
um Anchorage, sem er um það1
bil 240 km frá upptökum jarð-
skjálftanna. Gífurlegt starf bíð-
ur fbúanna í Alaska að reisa
úr rústum hús og önnur mann-
virki. Ómögulegt er á þessu
stigi málsins að segja um það,
hve mikið tjónið er, en það
er nú áætlað 15 milljarðar ís-
lenzkra króna.
Hjálpræðisherinn
veitir húsaskjól
f Anchorage hefur Hjálpræðis-
herinn veitt mörg hundruð
manns húsaskjól, matvörur eru
taldar nægar 1 bænum til eins
mánaðar. öllum er bannaður að-
gangur að miðhluta bæjarins, ut-
an hvað nokkrir jarðfræðingar
hafa fengið að gera þar athug-
anir sínar. Nefnd hefur verið
skipuð til að annast endurreisn
borgarinnar, þá er og ætlunin
að hraða bólusetningu gegn
taugaveiki, en óttast er, að slík-
ur faraldur kunni að koma upp.
Afengisútsölum
lokað
öllum bönkum, vínstúkum og
áfengisútsölum hefur verið lok-
að í bænum, frá því á föstu-
dag. Matvöruverzlanir opnuðu
aftur á laugardag, en fólk var
beðið um að hamstra ekki.
Hjálparsveitir hafa streymt til
Alaska hvaðnæva að frá því á
laugardag, bæði læknar, hjúkr-
unarkonur og annað lið. Johnson
Bandaríkjaforseti hefur lýst
neyðarástandi í ríkinu, en það
hefur í för með sér, að Alaska
verður stutt fjárhagslega af
sambandsstjórninni við endur-
reisnarstarfið.
Nýjar jarðsprungur
Nýjar jarðsprungur mynduð-
ust í Anchorage á mánudag,
og enn fleiri byggingar sukku
dýpra í jarðveginn. Björgunar-
sveitirnar tilkjmna það, að meir
en helmingur allra bygginga i
bænum hafi skaðazt í jarðskjálft-
unum. Á sunnudag voru og
nokkrar jarðhræringar í Anc-
horage, en gerðu ekki skaða.
Vatnsleiðslur eru nú komnar í
samt lag í nokkrum bæjarhlut-
um, einnig er rafmagn nú leitt
á ný í þau hús, sem ekki sköð-
uðuzt í jarðskjálftunum.
Krafa Kínverja:
Krústjoff hætti að
fást við stjórnmál!
MOSKVU, PEKING 31/3 — 1
gær gerðu lcínverskir kommún-
istar einhverja þá hörðustu hríð,
sem þeir hafa gert að Krústjoff,
forsætisráðherra Sovétríkjanna.
Kemur þctta fram í grein, sem
rituð er í Rauða fánann, helzta
hugmyndafræðimálgagn Kína.
I grein þessari er Krústjoff
lýst sem mesta uppgjafarpólitík-
usi veraldarsögunnar, hann hafi
svikið kommúnismann og hall-
ist æ meir að stefnu kapital-
ismans. Er tími sagður til kom-
inn að kofmúnistaflokkar allra
landa endurskoði stefnu sína
gagnvart Krústjoff og bezt sé,
að hann sé látinn hætta af-
skiptum af stjómmálum!
Þá fordæma Kínverjar harð-
lega kenningar Krústjoffs um
friðsamlega sambúð. friðsamlega
samkeppni og hægþróun frá
kapitalísku þjóðfélagi til hins
sósíalistíska. Því er haldið fram,
að með því að láta fjrrir róða
rétt byltingarhreyfingarinnar til
vopnaðrar baráttu, hafi Krúst-
joff snúizt á sveif með Trot-
skíistum, en sjálfur hefur Krúst-
joff kallað kínversku kommún-
istaleiðtogana Trotskíista.
Séð yfir miðbæinn í Anchoragc
U.S.S.R.
~~&fc'saa£rx-ÆM*M
StBlfUeN.
Aklavik
zn n ueleni^
CANADA
Dawson
^uaw
BenngHaver
Öldungadeildarþingmaður tekur af skarið:
Viðskiptabannil gegn Kúbu
er nú farið út um þúfur
WASHINGTON 27/3 — WiIIiam Fulbright, for-
maður utanríkismálanefndar Öldungad. banda-
ríska þingsins, lét svo um mælt á miðvikudag, að
viðskiptabann Bandaríkjanna gegn Kúbu hefði
farið algjörlega út um þúfur, og bæri að aflétta
því. Algert viðskiptabann væri gagnslaust og yrði
ekki til þess að fella stjórn Kastrós, svo lengi sem
Sovétríkin veittu eynni efnahagsaðstoð. Yrði hins-
vegar reynt að hindra þá aðstoð myndi það kosta
kjamorkustyrjöld.
Með Kúbu á heilanum
Fulbright hélt því ennfremur
fram, að Bandaríkjamenn væru
komnir með „Kúbuvandamálið"
á heilann. Kúba hefði fengið
langtum meiri þýðingu fyrir
bandarísk stjómmál en stærð og
áhrif landsins gæfu tilefni til.
Allar þær þrumuræður, sem
haldnar væru gegn þeim, er við
Kúbu verzluöu gætu ekki dulið
þá staðreynd, að viðskiptabann-
ið hefði farið út um þúfur.
Ekki stjómarsjónarmið
Skömmu eftir að Fulbright
hafði lagt fram þessi sjónarmið,
tilkynnti blaðafulltrúi John-
sons forseta, að þau væru ekki
1 samræmi við skoðanir stjórn-
arinnar. Hinsvegar væri ræða
Fulbrights hin athyglisvverðasta,
og hefði haft inni að halda ýmis-
legt, sem fullrar athugunar þyrfti
við. Það var fram tekið, að
öldungardeildarþingmaðurinn
hefði ekki rætt við forsetann
Willíam Fulbríght.
um efni ræðunnar áður en hí
var haldin.
Dean Rusk andmælir
Á blaðamannafundi mómæl
svo Dean Rusk, utanríkisrái
Framhald á 9. síðu.