Þjóðviljinn - 14.04.1964, Síða 1

Þjóðviljinn - 14.04.1964, Síða 1
Þrioiudagur 14. apríl 1964 — 29. árgangur — 84. tölublað. Félagsfundur Kvenfélags sósíalista Félagsfundur Kvenfélags sósíalista verður í Tjarnargötu 20, mið- vikudaginn 15. apríl kl. 20.30. Fundarefni: Erindi: Eftirmæli kalda stríðsins, Magnús Torfi Ólafsson. Kvikmynd frá heimsþingi kvenna í Moskvu síðastliðið sumar. Félagsmál. Félögum er heimilt að taka með sér gesti. Mætið stundvíslega. — Stjórnin. Engin von um lán hjá þeim er sækja eft- ir 1. apríl ■ Eins og fram kom fyrir nokkru síðan í auglýsingu frá Húsnæðismálastofnun ríkisins þurfa þeir láns- umsækjendur, sem ekki höfðu sótt um lán fyrir 1. apríl s.l. ekki að vænta þess að fá neina lánsað- stoð frá húsnæðismála- stjórn á þessu ári. ■ Þessa ákvörðun mun húsnæðismálastjórn hafa talið sig til neydda að taka vegna algers aðgerða- Ieysis ríkisstjórnarinnar í lánsfjármáium húsnæðis- málastofnunarinnar. I Þetta sýnir enn eina upp- gjöf ríkisstjórnarinnar. Henni er það gjörsamlega ofviða að takast á við vandamálin. Aðferð ríkis- stjórnarinnar er að láta vandamál hrannast upp óleyst og horfa aðgerða- laus á öngþveitið. II Á sviði húsnæðismál- anna þýðir þetta auðvitað að menn neyðast til að draga að sér hendina., framkvæmdir stöðvast og vaxandi skortur verður á íbúðarhúsnæði i landinu. Ef til vill stefnir ríkis- stjórnin beinlínis að slíku ástandi með aðgerðaleysi sínu og aumingjaskap. En hve lengi á almenningur að þola slíka rikisstjórn? Ætlar rlkisstjórnin íbúða byggingar lan stöðva manna? Ekkert gert til að sjá lánakerfi Húsnæðismálastjórnar fyrir nauð- synlegu fjármagni? □ Þær umsóknir um lán til íbúðabygginga sem nú liggja fyrir hjá Húsnæðismálastofnun rík- isins munu samtals nema 250—270 milj. kr. Síð- asta lánveiting á vegum Húsnæðismálastjórnar fór fram í des. s.l. og voru þá lánaðar rúmlega 50 miljónir króna til íbúða um allt land. Síðan hefur engin hreyfing verið á lánastarfseminni vegna fjárskorts lánakerfisins en umsóknir um lán hrannast upp hjá stofnuninni án þess að unnt sé að veita umsækjendum nokkra úrlausn. Eftir því sem Þjóðviljinn hef- ur aflað sér upplýsinga um á- stand húsnæðismálanna er það nú með versta móti og má segja að það fari hríðversnandi. Hús- næðisskortur fer sífellt í vöxt, einkum hér í Reykjavík og öðr- um byggðum við . Faxaflóa. L,eiguhúsnæði er vart fáanlegt nema þá með algérum afarkost- um, okurháum leigugreiðslum Harftur barúagl í grennd við Saigon SAIGON 13/4 — A.m.k. 74 létu í hörðum bardaga um bæinn Kien Long, ekki ýkjalangt suð- vestur af höfuðborginni Saigon í Suður-Vietnam aðfaranótt sunnudagsins. Meðal þeirra sem féllu eða særðust voru allmargir Bandaríkjamenn. I Saigon er sagt að úr liði stjórnarinnar qg bandarísku hjálparsveitanna hafi fallið 44 menn, 30 hafi særzt en 20 sé saknað. Hins vegar hafi 30 her- menn úr skæruliðasveitum Viet- congs legið eftir í valnum. Vietcongsveitin gerði snöggt á- hlaup á bæinn sem var ramlega víggirtur og tókst að ná mest- um hluta hans á sittvald. Stjóm- arherinn sendi liðsauka með flugvélum og hörfuðu skæruliðar þá aftur úr bænum. Þetta er önnur meiriháttar orustan á ós- hólmum Mekongs í grennd við Saigon á fjórum dögum. Sérstaða Frakka Stríðið í Suður-Vietnam er helzta mál á dagskrá ársfundar Framhald á 3. síöu og miklum fyrirframgreiðslum. Segja má að barnafólki sé með öllu úthýst hafi það ekki sjálft bolmagn til að koma upp yfir sig íbúðum. Á þriðja þúsund umsóknir Á þróun þessa ástands virð- ist ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins horfa sljóum augum uppgjafar og að- gerðaleysis. Húsnæðismálastofn- un ríkisins er látin standa frammi fyrir á þriðja þúsund lánsumsækjenda, sem eigá rétt til að fá hátt lá þriðja hundrað milj. kr. samtals, samkvæmt gildandi lögum um lán til íbúða- bygginga á vegum lánakerfis hennar, án þess að geta veitt nokkurt liðsinni. Ríkisstjórnin gerir engar ráðstafanir til að afla fjár til lánveitingástarfseminnar. Eigið fé Byggingarsjóðs rikis- ins hrekkur aðeins örskammt til að mæta lánsfjárþörfisni. Ár- lega nemur það um 40 milj. kr., en það sem fram yfir hefur verið lánað hefur verið fengið frá Atvinnuleysistryggingasjóði, Tryggingastofnun ríkisins, trygg- ingafélögum og bönkum. Aðal- hjálparhellan hefur þó Atvinnu- leysisstryggingasjóðurinn verið, framlög hinna aðilanna farið Framhald á 12. síðu. Graííó íyrir húsi Þróttar viB Borgariún S. laugardag hófst gröftur fyrir nýrri stöðvarbygg ingu Vörubílstöðvarinnar Þróttar við Borgartún. Bygging þessi verður um 600 fermctrar að stærð og á hún að verða þrjár liæðir. Er ætlunin að þarna verði auk stöðvarhúsn'æðis bækistöð fyrir f élagsstarfscmi vörubílstjóra, benzínstöð, smurstöð, o. fl. svo og þvottaplan. Ætlunin er að reyna að steypa húsið í sumar og haust og munu bílstjór- arnir sjálfir grafa fyrir húsinu og steypa botnplötuna. — (Ljósmyndari Þjóðviljans Ari Kárason). Samtök Eífeyrls- sjóða undirbúin ■ Á sameiginlegum fundi forystumanna lífeyrissjóðamia í Reykjavík og nágrenni sem haldinn var í Þjóðleikhiiskjallaranum síðastliðinn föstudag, var kosin þriggja manna nefnd til að vinna að undirbúningi stofnunar samtaka þeirra lífeyrissjóða sem njóta viðurkenningar Fjármálaráðuneytisins. ■ Aðaltilgangur samíakanna verður sá að gæta' hagsmuna lífeyrissjóðanna, vinna að samræmingu i samskiptum þeirra inn- byrðis og loks að safna á einum stað upplýsingum sem að gagni geta komið fyrir einstaka sjóði. Flókkurinn Sósialistafélag Reykjavíkur til- kynnir. í kvöld, kl. 8.30 verða fundir í þessum deildum: ■jr 4. deild B (Skuggahverfis- deild). ■jr 8. deild A (Teigadeild). •k 5. deild (Bolladeild) ★ 10. deild B (Vogadeild) Áríðandi mál á dagskrá. Skrifa borgarráði , Félag sölutumaeigenda sendi í gær Borgarráði og Neýtendasam- tökunum bréf, þar sem bess er farið á leit, að ógilt verði sam- þykkt Borgarráðs um lúgu- kvöldsölu verzlana, að horfið verði aftur að fyrri verzlunar- háttum söluturna. ! 0 ★ í dag birtum við deilda- keppnina eins og staðan var eftir helgina. Enn eiga tvær deildir eftir að komast á blað, 13. og 14. deild, en vonandi verða þær með næst. Flestar deildirnar sóttu nokkuð fram þótt ekki sé kominn neinn skriður á þetta enn nema hjá 15. deild sem æðir áfram og er nú hart nær komin í 100%, enda eru skil þar mjög al- 22 DAGAR EFTIR GERIÐ SKIL menn. Nú styttist tíminn óð- um þar til dregið verður. ★ Utan af landi eru að byrja að berast skil og við birtum hér fyrstu tölurnar þótt ekki sé komið frá öllum stöðum en þessa viku vonast maður til að skriður komizt á málin hjá þeim. Þeir sem ekki ná til umboðsmanna okkar eða beint á afgreiðsluna geta póst- lagt skilin til okkar. Utaná- skriftin er: Happdrætti Þjóð- viljans, Týsgötu 3, Reykjavík. ★ Umboðsmenn okkar eru: Siglufjörður: Kólbeinn Frið- bjamarson, Suðurgötu 10, Vestmannaeyjar: Hafst. Stef- ánsson, Kirkjubraut 15, Nes- kaupstaður: Bjarni Þórðar- son, ’ Hveragerði: Björgvin Árnason, Hverahlíð 12, Blöndu ósi: Guðmundur Theódórsson, Egilsstaðakauptún: Sveinn Árnason. Næstu daga birtum við fleiri nöfn umboðsmanna. Röð deildanna er nú þessi: 1. 15. dcild 85% 11. deild 38— 9. deild 23— 4. 8.A deild 20— 5. 6. deild 20— 4.B deild 15— 2. 3. 6. 1. deild 14— Kópavogur 14— 7. deild 13— 10.B deild 13— 8. B deild 13— 5. deild 12— 2. deiid 10— 4.A deild 10— 12. deild 6— 3. deild 5— Austurland 5— Hafnarf jörður 5— 10.A deild 3— Norðurl. v. 3— Norðurl. a. 2— Suðurland 2— Reykjanes 1— Vestmannaeyjar 1— Herðum sóknina. Gerið skil. Afgreiðslan Týsgötu 3. sími 17514, opin daglega klukkan 9 til 12 og 1 til 6.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.