Þjóðviljinn - 14.04.1964, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 14.04.1964, Qupperneq 5
Þriðjudagur 14. aprfl 1964 ÞIÖÐVILJINM SlÐA g KR — ÍR 29 :22 Fyrir leik þessara félaga var mikil óvissa um úrslitin. en leikur þessara félaga hafði mikla þýðingu fyrir KR, með s'gri voru þeir búnir að forða sér frá því að lenda' í harðri baráttu í leikjum um fallsæt- ið. Og það var gamla sagan um KR, að þegar mikið liggur við þá geta KR-ingar sameinast um verkefnið, og þá er eins og ekkert geti stöðvað þá. Það var engu líkara en að KR-ingar hefðu sefjað h'nn á- gæta fyrirliða ÍR-inga, sem er sæmilega „senu”-vanur, Gunn- laug Hjálmarsson. því honum kemur ekki í hug að reyna að stöðva þann KR-inginn sem gerir mestan usla við mark ÍR, en það var Reynir Ölafsson, sem skoraði hvorki meira né minna en 16 mörk í leiknum (4 úr vitaköstum)! Hann fékk að leika lausum hala með þessum ágæta árangri fyrir KR. IR byrjaði að skora, en eft- ir 5 mínútur höfðu KR-ing- ar tekið forustuna og héldu henni það sem eftir var leiks- ins. Um miðjan hálfleikinn stóðu leikar 16:14, fyrir KR. Eftir leikhlé breikkaði bilið aftur og komust KR-ingar uppi 20:16. Enn gera ÍR-ingar á- hlaup, og berjast, og ná góð- um leik-kafla, sem ógnaði svo að við öllu mátti búast ef þeim tækist að halda svona áfram. Komust þeir það langt um miðjan hálfleikinn að aðeins munaði einu marki 22:21. En þá taka KR-ingar sprett og skora 5 mörk í röð, þótt Karl væri settur útaf í 2 mín.. Framhald á 9. síðu. Hauks. 3 hvor, Rósmundur, ' Árni, Björn og Ólafur Friðr- iks 2 hver og Sigurður Óli 1. ; Dómari var Valur Benedikts- son og slapp vel frá því. Valur í úrslitum í 2. flokki karla Á laugardagskvöldið íóru fram þrír leikir í 2. flokki karla á ís- landsmótinu í hand- knattleik. í þessum flokki er keppt í tveim riðlum. Hefur Valur nii unnið annan riðilinn og keppir til úrslita um meistaratitHinn annaðhvort við FH eða KR. Fram — Víkingur 12:9. Til að byrja með var leikur þessi nokkuð jafn og mátti naumast á mflli sjá langt fram eftir fyrri hálfleik, hvor mundi bera sigur úr bítum, eins og markastaðan sýnir: 1:1, 2:2, 3:3. 4:4, 5:5. Gekk svona þangað til um 4 mín. voru eftir af fyrri hálfleik, þá gáfu Víkingar heldur eftir um skeið og lauk hálfleiknum með 8:5 fyrir Fram. Víkingar jöfn- uðu sig í síðari hálfleik og endaði síðari hálfleikur 4:4. en þeim tókst ekki að jafna mis- muninn úr fyrri hálfleik. Leik- urinn í heild var ekki sérlega liflegur eða með mörgum góð- um samleikstilþrifum eða ein- staklingsafrekum. en þó voru innanum menn sem lofa all- góðu. Valur — Þróttur 19:5. Þegar i upphafi mátti sjá, að I Framhald á 9. síðu. I Bud VVerner Frægt skíðafálk fárst í snjóflóði Einn frægasti skíðamaður og ein frægasta skíðastúlka heims fórust í snjófióði í Alpafjöllum á sunnudaginn, Það voru þau Barbi Henne- berger frá Þý/.kalandi og Bandaríkjamaðurinn Bud Werner. Snjóskriðan féll á þau snemma morguns, og það tók 5 klukkustundir að grafa þau upp, en þá voru þau löngu látin. Bud Werner var 27 ára gamall. Hann hefur í 10 ár verið bezti maður Bandaríkj- anna í Alpagreinum, og í fremstu röð skíðamanna heims. Átti hann m.a. lengi heimsmet í hraða á skíðum, en hann náði tæpl. 140 km. hraða á klst. Barbi Henneberger var 23 ára og meðal beztu skíða- kvenna heims. Hún varð 5. í bruni á Olympíuleikunum í vetur, 7. i stórsvigi og 10. í svigi. Snjóskriðan féll yfir þau Werner og Henneberger þar sem þau voru að starfa við kvikmyndaupptöku ásamt 7 öðrum. sem tókst að grafa og upp af eig'n afli. Læknar Víkingur og FH unnu í kvennafl. Sigux-lína átti mörg knáleg skot í mark í leik FH og Fram á iaugardagskvöldið. — (Ljósm. Bj. Bj.). KR-ingar \oru að vonum glaðir og reifir eftir sigurinn yf'.r ÍR, sem varð til þess að liðið er ekk: lengur í fallhættu niður í 2. deild. Á myndinni sjast leikmenn KR fagna sigri ásamt formanm félagsins. Þeir halda á Guðjóni markmaixni, sem atti einna stærstan þátt í sigri KR. Á laugardagskvöldið fóru fram 5 leikir í handknattleiksmótinu, sem senn fer nú að ljúka. Voru það tveir leikir í meistaraflokki kvenna, og þrír leikir í öðrum flokki karla. Leikir þessir voru ekki sérlega tilþrifamiklir, en þó voru innanum góð tilþrif og efni sem lofa góðu. Valur — Breiðablik 17:13. Fyrri hálfleikur þessa leiks var nokkuð jafn, þar sem Vík- ings-stúlkurnar byrjuðu að skora og komust í 2:0, en Breiðablik jafnaði á 2:2, og komast yfir (í eina skiptið) 3:2. Er baráttan allhörð og má sjá á töflunni 3:3, 4:4 cg 5:5 og var þá langt liðið á hálfleik- inn, en honum lauk með 7:5 fyrir Víking. 1 fyrri hluta síðari hálfleiks taka Víkingsstjúkurnar leik- inn mjög i sínar hendur / og standa leikar eftir 10 mín. — 15:8. en Breiðablik tekur svo- lítinn endasprett og leiknum lauk með 17:13 fyrir Víking. Þótt Víkings-stjúkurnar sigr- uðu réttlátlega, var leikur þeirra ekki sérlega virkur eða átakamikill. Elín er alltaf hin hættulega skytta liðsins en hún skoraði 7 mörk í leikn- um, og Þórdís Guðmundsdóttir átti líka 4 góð skot. Rannveig Laxdal er alltaf höfuðstyrkur liðsins í samleik og hreyfanleik, hún skoraði 2 mörk. Margrét Jónsdóttir og Guðrún skoruðu 2 mörk hvor. Bestar í liði Breiðabliks voru: Kristín og Sigrún og skomðu 5 og 3 mörk. Aðrar sem skor- uðu voru Amdís 3 Ester og Bára 1 hvor. Á sunnudagskvöldið fóru fram tveir leikir í 1. deild handknattleiksmóts íslands. KR vann ÍR og er þar með úr fallhættu niður í 2. deild. Vík- ingur tapaði hinsvegar fyrir FH og færist við það nær falli. Er nú líklegast að Ármann og Vík- ingur verði að berjast um það sín á milli hvort liðið fær að vera áfram í 1. deild. FH — Víkingur 32 : 22 Fyrir Víking er hver leik- ur þýðingarmikill sem eftir er í mótinu, og þess sáust greini- lega merki í leik þeirra við FH á sunnudagskvöldið. Þeir börðust allan leikinn af mikl- um krafti, og létu aldrei bil- bug á sér finna þrátt fyrir ofureflið. Lengi fram eftir fyrri hálfleik munaði ekki miklu, oftast 2—3 mörk og rétt fyrir miðjan fyrri hálf- leik stóðu leikar 7:6 fyxir FH. Víkingar gáfu þó heldur eftir er líða tók á hálfleikinn, sem endaði 17:10. Síðari hálfleikur var jafnari og unnu Hafnfirðingar hann með þriggja marka mun, en leiknum lauk með 32:22. Hafnfirðingar áttu oft góða leikkafla, og léku af hraða og lcrafti, en ráku sig oft illilega á nokkuð þétta vöm Víkinga, bæði vörnina fyrir framan vitateigabogann og ef knött- urinn fór inn fyrir varði mark- maður þeirra, Helgi Guð- mundsson. oft snilldarlega, og án hans hefði markamunur orðið meiri. FH-ingum tókst þó oft að smjúga í gegnum vörn Vík- inga, mjög laglega og það svo stundum, að áhorfendur al- mennt gáfu þeim klapp fyrir leikinn og þá er nokkuð að gert, þegar hinir lítt hrifnæmu Islendingar tjá sig af hrifn- ingu á þennan hátt. Þegar á leikinn leið varð hann ekki sérlega spennandi,^, til þess var munurinn of mik- ill. og undir lokin var eins og Hafnfirðingar tækju þetta ekki sérlega alvarlega. Víkingur var með sterkasta lið sitt og hefur ef til vill ekki náð betri leik um langt skeið. 1 heild hefur liðið ekki náð eins góðu út og í fyrra vetur, 'og er nú í mikilli fall- hættu niður í aðra deild, og þurfa þeir verulega að taka á til að forða því. Bestir í liði þeirra voru Helgi í markinu. sem bar af. Þórarinn, Pétur og enda Hannes og Rósmund- ur. FH-liðið féll nokkuð vel saman, en vafalaust geta þeir meira ef á þarf að halda, og oft sýndu þeir skemmtilegan leik, og þá sérstaklega þegar þeir settu upp hraða, það er í rauninni þeirra líf. Liðið er mjög jafnt og erf- itt að segja hverjir séu bestir, og það er athyglisvert hve margir setja mörk. Bestu menn liðsins voru öm, Ragnar, Páll og Auðunn og Guðlaugur voru ekki mikið lakari. Kristján var einnig góður. og þegar hann hefur fallið að fullu inn í liðið, vex hann enn að mun. Þeir sem skoruðu fyrir FH voru Páll 7 Ragnar og Auð- unn 6, Guðlaugur 5, öm 4. Ólafur Th. og Kristján 2 hvor. Fyrir Víking skoruðu: Þór- arinn 5, Hannes og Sigurður Bari'i Hennoberger úrskurðuðu á eftir, að Wern- er hefði látizt af tangaáfall- inu við slysið, en Henneberg- er hafði látist vegna snjó- þungans. Meðal þeirra sem lentu í snjóflóðinu var hinn kunni skíðagarpur Willy Bogner frá Þýzkalandi. FH — Fram 6:6. Síðari leikurinn í kvenna- flokki var milli FH og Fram, og gekk svo lengi til að íH- stúlkurnar áttu erfitt með Fram. Þær komust að vísu á fyrstu min. 2 mörk yfir en Fram hafði jafnað á 3:3, og leiknum lauk með 5:4 fyrir F.H. 1 síðari hálfleiknum náðu enn jafna þær á 4:4. en hálf- þær þó heldur undirtökunum í leiknum, og lauk honum með 9:6 fyrir FH, og voru FH- stúlkurnar vel að sigrinum komnar. Þær hafnfirzku náðu oft skemmtilegum hraða í leik sinn, en fengu þó ekki þann á- rangur í mörkum sem skyldi en það ætti ekki að hræðá þær frá því að leika með hraða, það er nútíma hand- knattleikur. Framliðið hefur tekið mikl- um framförum í vetur, og frammistaða þess við FH-lið- ið var góð. Flestar eru þær ungar að árum og eiga eftir miklar framfarir ef þær halda saman Geirrún er þeirra á- kveðnust, og harðskeytt ef því er að skipta. Guðrún gerði margt laglega og hefur náð skemmtilegu skotlagi sem vont er að átta sig á fyrir mark- mann og skoruðu þær flest mörkin fyrir Fram. Best í liði FH var Sylvía og skoraði flest mörkin, eða 4. Ágætar voru og Sigurlína og Valgerður. Dómari var í báðum leikj- unum Karl Jóhannsson og dæmdi vel. KR ER ÚR FALLHÆTTU, EN VÉKINGUR NÁLGAST B0TNINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.