Þjóðviljinn - 26.05.1964, Blaðsíða 1
STEFNT AÐ HEILDARSAMNINGI FYRIR NORÐAN OG AUSTAN
Vísvitandi
SAMNINGAFUNDIR UNDAN-
FARID NÓn EFTIR NÓn
Tveir skipverjar
á Esju siasast
Sl. sunnudag varð það sly;
um borð í strandferðaskipini
Esju er verið var að vinna vi<
lestun skipsins á Húsavík a<
tveir skipverja urðu fyrir lest
arhlerum er hrundu niður
lestina þar sem þeir voru a>
vinna og slösuðust mennimi:
báðir. Hlaut annar þeirra mik
ið höfuðhögg og heilahristing ei
hinn marðist illa á síðu.
Mennimir vom fluttir
sjúkrahúsið á Húsavík þar sen
meiðsJi þeirra voru könnuð oj
gert að þeim, en síðan var þein
lejrft að halda áfram með skip
inu til Akureyrar þar sem þei
voru lagðir inn í sjúkrahús vi<
komu skipsins þangað í fyrri
nótt.
Leiðrétting
Sú missögn varð í frásögn
Þjóðviljans sl. sunnudag af
sölu togarans Júní, að skipið var
sagt 572 lestir. Hið rétta er
að skipið er 732 brúttólestir.
UNGFRÚ ÍSLAND 1964
PÁLÍNA JÓNMUNDSDÖTTIR úr Reykjavík var kjörinn fegurðar-
drottning fslands í ár og voru úrslitin tilkynnt í hófi í Hótel Sögu
á miðnætti sl. laugardag. Myndin hér að ofan er af fegurðardrottn-
ingunni en fieiri myndir og frásagnir af keppninni eru á 8. síðu.
17 ára piltur í Eyjum fórst
við leit að týndum manni
Aðfararnótt sl. sunnudags varð það slys í Vest-
mannaeyjum, að 17 ára piltur drukknaði, er hann
var ásamt félaga sínum að leita manns, sem horf-
ið hafði heiman frá sér á laugardag.
Um helgina voru nokkrirl í útilegu vestast á Heimaey, þar
unglingar í Vestmannaeyjum' sem heitir við Ofanleitishamra.
Líkfundur á
Eyjufjullujökli
Um helgina 24. og 25, þ.m.
fór tíu manna flokkur úr
björgunarsveit slysavamar-
deildarinnar Ingólfur í Rvík
í fjallgöngu og klifur-
aefingar í Eyjafjallajökli.
Höfðu mennimir með sér
nauðsynlegan útbúnað í
þessu skyni. Þegar þeir voru
á ferð ofarlega í skriðjökl-
inum. sem gengur norður úr
aðaljöklinum fyrir ofan Jökul-
tungur. fundu þeir leifar þar
af mannslíkama, Um 50
metra þar frá fundu beir
giftingarhring úr gulli með
áletmn, sem sýndi, að mað-
urinn hafði gift sig 29/8 1926.
Þar sem hringurinn fannst
var ekkert annað en hringur-
inn ofan á sandlagi í jökl-
inum. En á hinum staðn-
um fannst lærleggur með
hnéparti og stakur leður-
skór.
Annað fundu björgunar-
sveitarmenn ekki þama þrátt
fyrir ítarlega leit. Þess skal
getið, að jökullinn er þama
á hreyfingu, allur uppbrot-
inn og sundursprunginn.
Rannsóknarlögreglan í
Reykjavík hefur fengið mál
þetta til rannsóknar. Þess
skal getið, að nafnið innan
f gift'ngarhringnum var of
máð t'l þess. að sæist.
Þá um kvöldið hafði verið leit-
að manns, Jónatans Ámasonar,
sem horfið hafði heiman að frá
sér fyrr um daginn. Um nótt-
ina hugðust tveir drengjanna
úr hópnum, þeir Kristján
Rafnsson og Gunnar Finnboga-
son, leita Jónatans. Þeir klifu
niður hamrana og komu f
Teistuhelli, reið þá ólag yfir
þá og missti Gunnar handfestu,
Kristjáni tókst að ná til hans,
en þá reið yfir þá annar sjór.
Hvarf Gunnar þar sjónum fé-
laga síns. Þessir atburðir urðu
um fjögurleytið um nóttina, en
Kristjáni tókst ekki að komast
upp hamarinn fyrr en undir
hádegi á sunnudag, og tilkynnti
hann þá þegar um slysið.
Er Þjóðviljinn hafði samband
við lögregluna í Vestmanneyj-
um í gærkvöld hafði lík Gunn-
ars ekki fundist og ekkert vit-
að um afdrif Jónatans, enda
slæmt til leitar fyrr en sjór
sléttist. Jónatan er maður um
fimmtugt, kvæntur og á stálp-
uð börn.
Gróðursetningar-
ferð FÍ í Heiðmörk
Ferðafélag Islands fer fyrstu
gróðursetningarferðina á vorinu
í land félagsins í Heiðmörk kl.
8 í kvöld frá Austurvelli. Fé-
lagsmenn eru hvattir til að
fiölmenna.
□ Stöðugir samningafundir stóðu yfir helg-
ina milli samninganefnda verkalýðsfélaganna á
Norður- og Austurlandi og atvinnurekenda og var
búizt við fjórða næturfundinum í röð í gærkvöld,
þegar blaðið fór í prentun. Aðfararnótt sunnudags
stóð fundur til kl. 6 um morguninn og hófst aftur
kl. 8.30 um kvöldið og var þá verið að til 3.30 um
nóttina. í gær hófst fundur kl. 2 e.h. og stóð hann
enn, þegar blaðið fór í prentun sem fyrr segir.
★ FuIItrúar hafa verið að bætast í sanminganefnd félaganna
fyrir norðan og austan til þessa, og er hún nú skipuð tíu mönnum.
Stefnt er að því að gera einn heildarsamning fyrir allt verkafólk
f þessum tveimur Iandsfjórðungum. Hafa samningaviðræðurnar til
þessa því fyrst og fremst snúizt um samræmingu hinna mörgu
sérsamninga félaganna á þessu svæði. Er það að sjálfsögðu mikið
verk og vandasamt, en því verki hefur miðað allverulega áfram.
Viðræðum hraðað
★ En sem afleiðing af hinum nýju heildarsamningum liggur
nú fyrir að vinna að nýrri flokkun á kaupgjaldi að verulegu Ieyti.
Það atriði er enn svo til órætt og hefur samningum því ekkert
miðað varðandi það atriði að svo komnu. Er þar að sjálfsögðu
um að ræða meginatriði samninganna, og má gera ráð fyrir að
áherzla verði nú lögð á að hraða viðræðum sem mest, þar sem
samningarnir eru nú að komast á það stig, að þeir geta ekki dreg-
izt öllu lengur.
★ Eins og skýrt var frá í Þjóðviljanum á sunnudaginn hafa
verkalýðsfélögin fyrir norðan og austan gefið samninganefnd sinni
heimihl til þess að lýsa yfir vinnustöðvun innan löglegs fyrirvara
hvenær sem er, enda leggja félögin kapp á að samningar takist
áður en aðalannatíminn í sambandi við síidarvertíðina hefst.
Samningarnir við ríkisstjórnina
★ Viðræðum Alþýðusambandsins, ríkisstjórnarinnar og atvinnu-
rckenda er haldið áfram, en ekki voru neinir fundir mcð þessum
aðilum yfir hclgina.
ósannindi
forstjórans
I GÆR birti dagblaðið Vísir
viðtal við Helga G. Þórðar-
son forstjóra Bæjarútgerðar
Hafnarf jarðar um söluna á
togaranum Júni. Hefur blað-
ið þar m.a. eftir forstjóran-
um að engir möguleikar hafi
verið fyrir útgerðina að kosta
dýra klössun á togarann og
„hefði því verið talið ráð-
legra að selja skipið OG
NOTA SÖLUVERÐIÐ TIL
AÐ STYRKJA ANNAN
REKSTUR CTGERÐARINN-
AR“.
ÞARNA ER víSvitandi farið al-
gcrlega rangt með staðreynd-
ir. Eins og forstjóri Bæjar-
útgerðarinnar ætti að vita
manna bezt var togarinn Júní
veðsettur Hambrosbanka fyr-
ir 8 miljónir króna og krafð-
ist bankinn þess að hver eyr-
ir af söluverði skipsins gengi
upp í greiðslu á þeirri skuld
svo að ekki fer neítt af þvi
til að „styrkja rekstur út-
gerðarinnar". eins og for-
stjórinn lætur hafa eftir sér.
Auk þess krafðit bankinn
þess að fá ríkisábyrgð fyrir
eftirstöðvum skuldarinnar.
VIÐ SÖLU togarans tók bæj-
arútgerðin á sig 15 miljón
króna skuld. þvl að skuld-
irnar vegna togarans námu
alls 18 miljónum, og er enn
ekki séð hvemig fyrirtækið
ætlar að mæta þeirri kvöð.
ÞETTA ÆTTI forstjórinn að
vita manna gerzt en hann
var ásamt fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins í útgerðarráði
aðalhvatamaður að sölu tog-
arans.
Hva/veiðar
að hefjast
•jf Hvalveiðiflotinn lagði úr
■jf höfn síðastliðið sxmnudags-
■jf kvöld og eru aðstandendur
■jf hér að kveðja sjómennina
if niður á Ægisgarði í skini
■jf kvöldsðlar við Faxaflóa.
■jf Myndir og viðtöl eru á 12.
-<S> síðu
Þriðjudagur 26. maí 1964 — 29. árgangur — 115. tölublað.
Fundur / Kvenfélugi Sósíalista á morgun
Kvenfélag sósíalista held-
ur fund í Tjamargötu 20
annað kvöld kl. 20.30. Það
er miðvikudaginn 27. mai.
Dagskrá:
Hafliði Jónsson garðyrkju-
stjóri, flytur erindi með
skuggamyndum og talar um
voryrkjuna. Þá verða tekin
fyrir félagsmál.
Konum er heimilt að taka
með sér gesti og eru þær
jafnframt hvattar til þess að
fjölmenna á þennan síðasta
fund vetrarins.
t
*