Þjóðviljinn - 31.05.1964, Page 1
. —æ^''" - J.SS1Í*-*. »
Slys á Raufarhöfn
Klukkan hálf sex í fyrra-
kvöld varð það slys á Rauf-
arhöfn, að ungur piltur,
Heimir Sveinsson, 17 ára féll
niður í síldarþró og hefur
líklega höfuðkúpubrotnað.
Heimir var að vinna við
þrærnar og varð fótaskortur
og var þetta átta metra fall
niður í steinþró. Hann lenti
á járnslá á niðurleið og síð-
an slóst höfuð hans utan í
þróarvegginn. Heimir var
þegar fluttur með sjúkraflug-
vél til Akureyrar og liggur
á sjúkrahúsinu þar og var
rænulítill fyrsta sólarhring-
inn.
■ Að venju fylgja Sunnu-
dagnr og Óskastundin
sunnudagsblaði Þjóðvilj-
ans. Af efní Sunnudags
má nefna framhald grein-
arflokksins um störf bún-
aðardeildar og er að þessu
sinni rætt við dr. Halldór
Pálsson um tilraunir og
Ieiðbeiningarstörf. Hannes
Jónsson frá Hleiðargerði
ritar þátt af Þorsteini í
Hólakoti. Þá er greinin
jarðarför Brendans Beh-
ans eftir bróður skáldsins,
Dominic Behan.
■ Birt eru úrslit í fyrsta
áfanga verðlaunagetraunar
Sunnudags. Ennfremur eru
í blaðinu þýtt Ijóð eftir
Wergeland, föndur, frí-
merkja- og bridgeþættir,
Vísur Sunnudags, Gátan,
Krossgátan, Verðlaunaget-
raun, Bréf um Harðjaxl
og smælki.
■ Óskastundin flytur frá-
sögnina Henry gefur góð
ráð, greinina Jurtasöfnun,
söguna Litli regndropinn,
þáttinn Veiztu og auk þess
teikningar og bréf frá les-
endum og skrýtlur.
Eygló tekur
við Sylvu
EINS OG blaðlesendur vita hef-
ur frammistaða ungversku
söngkonunnar Tatjönu Dubn-
ovszky í aðalhlutverki í óper-
unni Sardasfurstinnan vakið
upp mikla gagnrýni og liarða.
HÚN HEFUR nú sungið hlut-
verkið sjö sinnum og syngur
í síðasta sinn í kvöld og sigl-
ir svo út og suður.
EYGLÓ VIKTORSDÓTTIR tek-
ur við hlutverki Sylvu þeirra
sem stelur allra karla hjört-
um og hefur hún æft nokk-
urn tíma og náð góðum tök-
um á hlutverkinu að sögn.
Hún syngur i fyrsta skipti á
miðvikudagskvöld.
ÆFR tekur upp
ferðir ,út í bláinn’
ÆFR hefur nú tekið aftur
upp hinar vinsælu ferðir sínar
„út í bláinn”. en eins og kunn-
ugt er eru þetta kvöldferðir og
ekkert vitað fyrirfram, hver
haldið skuli. Næsta ferðin verð-
ur farin á miðvikudagskvöld og
verður farið kl. 20 frá Tjarnar-
götu 20.
Sfyffing vinnuvikunnar, lenging orlofs
Norðurlöndin—nemu Islund
uð taku upp 4 vikna orlof
■ Á öllum Norðurlöndun-''
um, að undanteknu viðreisn-
arríkinu Islandi, er nú
stefnt markvisst að styttingu
vinnuvikunnar og lengingu
orlofs í fjórar vikur (24
virka daga). Svíar fá þeg-
ar á þessu ári fjögra vikna
lágmarksorlof, norska stjórn-
in lagði nýlega fyrir Stór-
þingið frumvarp um að lög-
festa 4 vikna orlof frá 1.
maí 1965. Á sama tíma er
unnið markvisst að stytt-
ingu vinnudagsins og er
vinnuvikan á hinum Norður-
löndunum nú yfirleitt 45
stundir, og má m.a. minna
á lög sem færeyska þingið
setti í vetur um 45 stunda
vinnuviku.
■ Hér á landi hefur vinnu-
dagur hins vegar lengzt til
muna síðustu ár, og engar
endurbætur hafa verið gerð-
ar á orlofslögunum frá því
árið 1957, er Hannibal Valdi-
marsson gegndi embætti fé-
lagsmálaráðherra.
■ Björn Jónsson flutti á
síðasta Alþingi frumvarp til
breytinga á orlofslögunum
um að lágmarksorlof yrði 21
virkur dagur frá 15. maí
næsta árs, og verði orlofs-
fé 8% af greiddu kaupi (er
6% nú). Ríkisstjórnin og
stuðningsmenn hennar sáu
hins vegar um að þetta
frumvarp Björns náðí ekki
fram að ganga.
Fróðlegt er að kynna sér
hvernig þessum málum er nú
háttað á hinum Norðurlöndun-
um. en þar hafa viðkomandi
ríkisstjórnir stutt markvissa
baráttu verkalýðssamtakanna
fyrir lengingu orlofsins, og hafa
ríkisstjómirnar þar beitt sér
fyrir stöðugum endurbótum or-
lofslaganna. Hér á landi beitir
rikisstjórnin áhrifum sínum aft-
ur á móti í öfuga átt.
Á síðasta ári samþykkti
sænska þingið orlofslöggjöf, sem
ákveður lágmaiksorlof 24 virka
daga, og tóku lögin gildi á þessu
vori. Svíar hafa þvi nú þegar
fengið fjögurra vikna orlof, en
orlofsfé er þar 9% af kaupi.
t Danmörku er orlof 7V4% af
kaupi, en ríkisstjórnin hefur nú
í undirbúningi mikilsverðar
endurbætur á orlofslögunum.
Norðmenn búa við orlofs-
lög frá 1962, og er lágmarksor-
lof þar í landi 21 virkur dagur.
en orlofsfé 7’//;% af kaupi.
Norska ríkisstjórnin lagði hins
vegar fram frumv. um 4 vikna
orlof (24 virka daga) frá 1. mai
á næsta ári, en orlofsfé skal vera
9% frá 16. maí á þessu ári, og
hækka upp í 91/2% frá og með
1. maí 1966.
Eins og sjá má af þessu hafa
Framhald á 6. síðu.
Hermenn á Keflavíkurflugvell i við hersýningu þar syðra.
<S>-
Starfsemi
neyðarvakt-
ar lœknafé-
lagsins
lengdur
Síðan vorið 1962 hefur
Læknafélag Reykjavíkur, sam-
kvæmt Bamningi við sjúkra-
samlagið, annazt svokaliaða
neyðarvakt á tímanum kl. 1—5
e.th. á virkum dögum, öðrum en
laugardögum — en á laugar-
dögum er helgidagsvörður eft-
ir hádegi. — Eins og segir í
Handbók samlagsmanna má
því aðeins ghípa til neyðarvakt-
ar, að talið sé að vitjun þoli
enga bið og ekki náist til heim-
ilislæknis. — Þjónusta þessi
hefir komið í góðar þarfir, og
er það meðal annarg því að
þakka, að engin tilhneiging
hefir verið hjá almenningi tái
ofnotkunar hennar. Hefir hún
þvi fullkomlega þjónað þeim til-
gangi sínum að vera skyndi-
hjálp í neyðartilfellum.
Hinsvegar hefir sýnt sig að
þörf er fyrir þessa þjónustu
einnig á morgnana, og hefir
L. R. því faliizt á að annast
hana einnig á tímanum milli
kl. 9 og 12 f.h.
Starfar þvi neyðarvaktin ihér
eftir kl. 9—12 og 13—17 alla
virka daga, þó ekki síðdegis á
laugardögum.
Neyðarvaktin hefir, sem fyrr,
siíma 11510 og er síminn á
skrifstofu L.R. Læknir er ekki
við þar, en skrifstofan hefir
milligöngu um að ná til 'hans.
íhaldft vill að hermannadótið fái
ao flakka hömlulaust um landið!
Aðalmálgagn Sjálfstæðisflokksins, Morgunblað-
ið, hefur nú hafið blygðunarlausan áróður fyrir
því, að bandaríska hemannadótinu á Keflavíkur-
flugvelli verði hleypt hömlulaust um landið.
Telur Morgunblaðið í forystugrein að það sé
„illa stætt“ á því, að hermennirnir verði að vera
eins og „fuglar í búri, sem ekki er sleppt út nema
að geðþótta annarra“.
og sklpasmiða hófst í gær
Stofnþing sambands mólm-
smiða og skipasmiða hófst í
gær, kl. 2 e.h. í húsi Dagsbrún-
ar og Sjómannafélagsins við
Lindargötu.
Snorri Jónsson, formaður Fé-
lags járn ðnaðarmanna í Reykja-
vík, setti þingið og bað fulltrúa
velkomna til starfa.
Þingforsetar voru kosnir:
Krístínn Ág. Eiríksson frá Fé-
lagi iárniðnaðarmanna í Reykja-
vík, Sigurgestur Guðjónsson frá
Félagi bifvélavirkja, Reykjavík
og Hreinn Öfeigsson frá Sveina-
félagi jámiðnaðarmanna, Ak-
ureyri.
Ritarar þingsins voru kosnir:
Helgi Arnlaugsson frá Sveina-
félagi skipasmiða og Hannes
Alfonsson frá Félagi blikksmiða.
Að loknu kjöri starfsmanna
þingsins fóru fram nefndakosn-
ingar.
Framsögumaður um aðal-
málin
Aðalviðfangsefni stofnþingsins
í gær voru þrjár framsöguræður
Framhald á 6. síðu.
í forustugrein Morgunblaðsins
í gær er fjallað um grein eftir
bandarískan fréttamann, og
sagt að hún sé annars staðar í
blaðinu, en af einhverjum á-
stæðum, (það þarf ekki að vera
annað en þrengsli!) hefur grein-
inni verið kippt út.
Morgunblaðið segir í forystu-
grein sinni m.a um grein þessa
bandaríska blaðamanns:
„Höfundur minnist á þær
hömlur, sem lagðar eru á ferð-
ir varnarliðsmanna út yf Kefla-
víkurflugvelli Kemst hann að
þeirri niðurstöðu, að rikisstjórn-
in vilji ekki losa um þessar
hömlur af ótta við viðbrögð
stjórnarandstöðunnar. „Hún ótt-
ast að kommúnistum og öðrum
andstæðingum hersetunnar muni
þá takast að vekja mótmælahá-
reysti með fslendingum, með
þvi að nota meðfætt ógeð þeirra
á hernaðarstefnu og löngun
þeirra til að varðveita menn-
ingu sina“.
Morgunblaðið, aðalmálgagn
Sjálfstæðisflokksins, er afskap-
lega móðgað vegna þessara um-
mæla hins bandaríska blaða-
manns! Og ritstjórinn mótmælir
harðlega að ríkisstjórnin eða
Morgunblaðið bafi nokkurn ótta
af þeim sem vilja að ísland sé
herlaust land!
★ Vesljngs fuglarnir í
búrinu!
Sem enn frekari sönnun á
óttaleysi Morgunblaðsins færir
blaðið sig upp á skaftið og hef-
ur áróður fyrir því að hömlum
þeim sem verið hafa á ferðum
hermannadótsins á Keflavíkur-
flugvelli verði aflétt. Það er
að visu talað um „rækilega at-
hugun og beztu manna yfirsýn“
en síðan er beinlínis sagt að sé
„illa stætt“ á því fyrir íslend-
inga að takmarka ferðir her-
mannanna um landið. Morgun-
blaðið segir orðrétt:
„Það er rétt hjá greinarhöf-
undi, að hömlur hafa verið lagð-
ar á ferðir varnarliðsmanna út
úr flugstöðinni. — Þessar höml-
ur vo.ru hvorki settar af ótta né
mannvonzku, heldur af illri
nauðsyn á sínum tima. Nú kem-
ur aftur á móti til álita, hvort
ekki megi losa eitthvað um þess-
ar hömlur, en það verður auð-
vitað ekki gert nema eftir ræki-
lega athugun og að beztu manna
yfirsýn. Hitt er svo annað mál,
að illa er stætt á því að fara
þess á leit við erlenda msnn að
þeir verjí land okkar, en sé svo
launað með þvi að þeim sé fyr-
irlagt að þreyja langan þorra á
norðurslóðum eins og fuglar í
búri, sem ekki er sleppt út
Framhald á 6. síðu.
7