Þjóðviljinn - 31.05.1964, Side 4

Þjóðviljinn - 31.05.1964, Side 4
4 SIÐA ÞlðÐVTLIINN Sijrmudagur 31. maí Í9S4 Otgelandi: Samelningarfiokkur alþýöu — Sóslaiistaflokk- urinn — Ritstjórar: Ivár H. Jónsson. Magnús Kjartansson (áb.), Sigurdur Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudagsins: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson. Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja. Skólavörðust 19. Sími 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kr. 90 á mánuði. Velferðarríki Qsjaldan hefur mátt sjá því haldið fram í málgögnum ríkisstjórnarinnar, að viðreisnin hafi fært okkur drjúgum skrefum nær því sem kallað hefur verið „velferðarríki“. Það er því ekki úr vegi að hugleiða, hver grundvallarskilyrði 1 þjóðfélagsmálum verður að uppfylla til þess að unnt sé að tala um velferðarríki. Velferðarríkið tryggir þegnum sínum réttláta skiptingu þjóðar- tekna, svo að hver vinnandi maður geti séð sér og sínum farborða á sómasamlegan hátt með þeim tekjum, sem hann fær fyrir 48 stunda vinnuviku í hæsta lagi, og þróunin stefnir hraðbyri í þá átt að stytta vinnuvikuna jafnt og þétt án skerðing- ar tekna; almennar tryggingar veita öryrkjum og óvinnufæru fólki örugga lífsafkomu; velferðarrík- ið sér til þess að þegnarnir geti komið sér upp þaki yfir höfuðið á sómasamlegan hátt, eða feng- ið leiguhúsnæði á réttlátu verði, mönnum er tryggt árvisst orlof. örugg hvíld og nægilegar frí- stundir til þess að geta lifað sómasamlegu menn- ingarlífi. JJefur viðreisnin þá faert okkur nær þessu marki? Áreiðanlega getur hver svarað fyrir sig, en naktar staðreyndirnar tala sínu máli. Launas'tétt- irnar hafa ekki aðeins borið skarðan hlut frá borði við skiptingu þjóðarteknanna allt frá því að viðreisnin hófst, heldur hafa þær með ört vax- andi verðbólgu verið sviptar jafnharðan hækkuð- um kaupmætti og sínum hluta af aukningu þjóð- arteknanna. Viðreisnin hefur ekki stefnt að stytt- ingu vinnudagsins, heldur er hann nú almenn't kominn upp í 12—14 stundir og þaðan af meira, en þrátt fyrir það gera tekjurnar ekki betur en að hrökkva fyrir framfæri meðalfjölskyldu. Áð- ur en togaravökulögin voru sett, var það algengt að togarasjómenn yrðu að ganga af skipi sínu farnir að heilsu eftir um það bil 15 ára starf á sjónum; undir viðreisn er hið sama að gerast með fjölmargar starfsstéttir í landi. Vinnuþrælkunin slítur mönnum út á örfáum árum, orlofslíminn er í flestum tilfellum aðeins kærkomið tækifæri til þess að drýgja tekjurnar. Hvíld og frístundir til félagslegra og menningarlegra starfa er að verða óþekkt fyrirbrigði hjá vinnandi fólki und- ir viðreisninni. En þeir sem lifa „velferðartíma“ eru verðbólgubraskarar og milliliðir. í stað íbúð- arhúsnæðis þióta peningamusterin upp rétt eins og veifað sé hendi. þannig er ástandið í þjóðfélagsmálum okkar al- ger andstæða þess. sem unnt er að kenna við velferð. Hér er viðreisnarríki, sem byggt er á verðbólgu en ekki velferð almennings. Svo hef- ur virzt undanfarið, sem stjórnarflokkarnir gerðu sér ljóst, að vonlaust er til lengdar að láta hags- muni verðbólgubraskaranna ráða stjórnarstefn- unni. en þá þurfa þeir líka að hafa manndóm í sér til bess að taka upp breytta stefnu ekki aðeins í orði heldur einnig á borði. — b. SKÁKÞÁTTURINN hfr -fr -fr * * * * * -frl ÖLAFUR BJÖRNSSON RlTSTJÖRIi Millisvæðamótið GóÍur árangur B. ■ Lokið er nú fyrsta fjórðungi millisvæðamótsins í skák sem haldið er í Amsterdam. Einna mesta athygli hefur vakið ágæt frammistaða Bent Larsens en hann er efstur eftir 7 umferðir með 6 vinninga. Rétt er þó að taka það fram að hann hefur til þessa aðeins teflt við þrjá stórmeistara og í lok mótsins á hann að tefla við alla sovézku skákmeistarana fimm í röð og getur það orðið þungur róður. ■ Hér á eftir birtum við þrjár skákir frá mótinu. Eini sigur Steins Talsverða athygli hefur vak- ið hin slælega frammistaöa hins unga skákmeistara Sovét- ríkjanna Steins sem að 6 um- ferðum loknum hefur aðeins hlotið 2V2 vinning og ekki unnið nema eina skák. Þess ber þó að gæta að hann hefur átt í höggi við sterka menn. meðal annars alla félaga sína frá Sovétríkjunum. Við skul- um líta á þessa einu vinnings- skák hans. Hvítt: Trigov — Svart: Stein. Spánskur leikur. 1. e4 — e5 2. Rf3 — Rc6 3. Bb5 — a6 4. Ba4 — Rf6 5. 0—0 — Be7 6. d4 — exd4 7. Hel — 0—0 8. e5 — Re8 9. Bf4 — (I þriðju einvígisskák þeirra Friðriks og Inga árið 1963 var þetta sama afbrigði teflt og varð framhaldið 9. — b5 10. Bb3 — d5 11. c3 — Bf5 með nokkuð iöfnu tafli.) 9. — d5 10. Bx<;6 — bxc6 11. Rxd4 — Bd7 12. Rb3 — (hugmynd hvíts er sú að leika riddaranum frá bl — c3—a4 og ná þannig tangarhaldi á c5 reitnum.) 12. — g6 (Hér kom Db8 mjög til greina t.d. 13. Rc3 — Db4 eða 13. — a5 14. a4 — Db4 og ekki er að sjá að hvít- ur nái tangarhaldi á c5 reitn- urn í bráð. og svartur getur þá leikið g6 þegar honum hentar). 13. Rc3 — Rg7 14. Bh6 — He8 15. Bxg7 — Kxg7 16. Ra4 — (Hvítur hefur nú náð takmarki sínu með að hertaka c5-reitinn og stendur nú vel). 16. — Bf8 17. Dd4 — Kg8 18. Rac5 — Bf5 19. Da4 — Betra var He2 og tvöfalda hrókana á e-línunni) 19. — Bxc2 20. Dxc6 — Bxb3 21. Rxb3 — He6 (Þetta hafði hvítum sézt yfir er hann lék 19. Da4 og verður nú að hörfa og það sem verra er hann getur ekki hindrað svart- an í að leika c5). 22. Dc2 — De7 23. 14 — c5 24. Df2 — Da7 25. Hadl — c4! 26. Rd4 — Bc5 (Hvítur getur að vísu varið skálínuna gl — a7 en þegar svörtu hrókamir koma á b- línuna fer útlitið heldur að dökkna hjá honum.) Larsens 27. Hhl — Hb8! 28. f5 — (Skárra var að öllum líkind- um 28. He2) 28. — gxf5 29. Df4 — Bxd4 30. Hxd4 — Hxb2 31. Hxd5 — Df2! 32. Dxf2 — (Auðvitað ekki 32. Dg5t — vegna Hg6) 32. — Hxf2 33. Hc5 — Hc2! (Vinningslíkur svarts eru við hið sterka c-peð hans bundnar) 34. Hfl — Hg6 35. Hgl — (Ef hvítur leikur 35. g3 er Hb6 ásamt Hb2 afgerandi hót- un.) 35. — c3 36. a4 — Hb6 37. h3 og gafst upp um leið. Larsen fórnar I þessari skák sjáum við Larsen bregða á leik og gefa menn af miklu örlæti en hann uppskar rikuleg laun fyrir. Hvítt: Larsen — Svart: Peres Úr 5. umferð. 1. e4 — c5 2. f4 — e6 3. Rf3 — Rc6 4. Bb5 — g6 5. Bxc6 — dxc6 6. d3 — Bg7 7. O—O — Re7 8. Rc3 — 0—0 9. Del — b6 10. a4 — Ba6 11. Dh4 — Dd7 12. Be3 c4 13. dxc4 c5 14. Re5 — Db7 15. Hf3 — f6 16. Hh3 — fxe5 Framhald á 6. síðu. ÍIFREIÐÁEIGENDUR Athygli er vakin á því, að iðgjöld fyrir hinar lögboðnu ábyrgðartryggingar (skyldutryggingar) bifreiða féllu í gjalddaga 1. þessa mánaðar. Ber því öllum þeim, sem eigi hafa innt gjöld þessi af hendi, að greiða þau nú þegar. Reykjavík, 30. maí 1964. Almennar tryggingar h.f. Samvinnutryggingar Sióvótryggingafélag íslands h.f. Vótryggingofélagið h.f. Trygging h.f. Verzlanatryggingar h.f. SJÓNVÖRP Höfum fengið söluumboð fyrir hin viður- kenndu sænsku Luxor—sjónvarpstæki. — Sjáum um uppsetningu og alla viðgerða- þjónustu. — Afborgunarskilmálar. Húsgagnaverzlunin BÚSLÓÐ við Nóatún. — Sími 18520.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.