Þjóðviljinn - 06.06.1964, Side 3
Lawgardagur 6. júm' 1964
HÓÐVIIIiNN
SS&A
Enn tapar íhaldið
í aukakosningum
Eins og öllum er kunnugt af fréttum vann Goldwater, fulltrúi
versta afturhaldsins í bandarískum stjórnmálum, sigur i próf-
kosningum repúblikana í Kaliforníu. Sigurinn var að vísu naum-
ur, en mjög eru nú taldar aukast líkur fyrir því að honum takist
að krækja sér í forsetaframboðið. Myndin hér að ofan er af
tveim einkar bandariskum stuðningsmönnum hans.
FAVERSHAM 5/6 — Verka-
mannaflokkurinn brezki vann
enn kosningasigur á fimmtudag.
Aukakosningar fóru fram í Fav-
ersham í Kent og urðu úrslit
þau, að Verkamannaflokkurinn
hélt þingsætinu, en með sýnu
meiri yfirburðum en við síðustu
kosningar.
Meirihluti Verkamannaflokks-
SuSur-Afríka
rekin úr
albjóðastofnun
VÍN 5/6 — Alþjóðlega póstmála-
stofnunin samþykkti á fundi
sínum í dag að reka Suður-Afr-
íku úr sambandinu. 58 lönd
greiddu þeirri tillögu atkvæði, 30
voru á móti en 26 lönd greiddu
ekki atkvæði. Fulltrúar nokk-
urra landa héldu því fram, að
þessi brottrekstur væri ólögleg-
ur.
Middlesex Wanderers betri í öllum
listum leiksins en náði 3:3 viS KR
Þegar á fjórðu mínútu var
dæmd vítaspyma á Middlesex
réttilega. og tók Gunnar
Guðmannsson hana, og spyrnti
mjög góðu skoti um það bil
metra frá stöng, en viti menn,
Clark í markinu kastaði sér
endilöngum og náði að verja 1
hom. Þetta var mjög glæsilegt.
Nokkru síðar hafa Bretarnir
leikið mjög laglega í gegnum
vöm KR, og að lokum fær
hægri útherjinn sendingu frá
innherjanum og skorar óverj-
andi fyrir Heimi.
KR-ingar sækja alltaf annað
slagið. og eftir hom sem þeir
fengu eru Bretar fast að
klemmdir en þá bjargar Clark
í markinu mjög vel.
Þegar 15 mín. voru liðnar af
leiknum er dæmd aukaspyrna á
Middlesex rétt við vítateig. Vörn-
in „hleður“ þegar þéttan vegg
að þeirra áliti. en Ellert hafði
komið auga á smugu í veggn-
um og skaut þar í gegn og f
markið fast út við stöng. Mjög
laglega gert, 1:1.
Á 33. mín. sluppu KR-ingar
mjög vel að fá ekki víta-
spymu er varnarmaður sló f
knöttinn er sveif fyrir ofan höf-
uð hans en dómarinn sá það
ekki.
Þegar á 3. mín. í síðari hálf-
leik er hægri innherji Breta í
dauðafæri en skotið misheppn-
aðist. Nokkru síðar á Gunnar
EMfbug
áloft
í Ástralíu
WOOMERA 576 — Aðfaranótt
föstudags var eldflauginni Blue
Streak skotið á loft frá Woo-
mera-herstöðinni f Ástralíu.
Skjóta átti eldflauginni 1600
km og átti ferðin að taka tíu
mínútur.
Níu mínútum eftir «ð eld-
flaugin hófst á loft var hins-
vegar tilkýnnt, að hún hefði
stöðvazt á ferð sinni og er tal
ið líklegt, að hún hafi brunn-
ið er hún kom aftur í gufu-
hvolf jarðar.
Englendingar hættu við að
skjóta eldflaug þessari 1960.
Þetta er stærsta eldflaug, sem
skotið hefur ver ð á loft utan
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna.
Þessi tilraun er hugsuð sem
fyrsti liðurinn íevrópskri eld-
flaugaáætluh.
Felixson gott færi en er held-
ur seinn markmaðurinn er |
kominn út, lokar markinu og
lendir knötturinn í honum.
Á 21. mín. eru KR-ingar í
sókn, og er Ellert þar virkur
og sendir að lokum knöttinn
til Arnar Steinsen sem skýtur
hörkuskoti. Knötturinn lendir
innan á stöng og þaðan í mark-
ið, 2:1 fyrir KR. Aðeins 4 mín-
útum síðar jafna gestirnir og
var það hægri innherjinn sem
það gerði með föstu skoti. 'Anri-
ars var það ekki hans sterka
hlið að skjóta og skora. Nokkru
síðar taka Bretamir fomstuna
og var það miðherjinn sem
skoraði mjög laglega eftir mjög
fallega sendingu frá vinstri inn-
herja sem var kominn upp að
endamörkum.
Á 35. mín. dæmir Magnús
Pétursson víti á Bretana, óg
varð ekki séð úr áhorfenda-
pöllum hvað brotið var og væg-
ast sagt strangt dæmt. Ellert
spymir, en markmaður ver enn.
Línuvörður telur að markmað-
ur hafi hreyft sig og Ellert
er látinn taka spyrnuna aftur
og þá skorar hann 3:3. og þar
við sat.
Höfðu yfirburði
Þótt leikurinn eridaði með
jafntefli, höfðu Bretarnir yfir—
burði á öllum sviðum knatt-
spyrnunnar. Spyrnur þeirra voru
nákvæmari, og öll meðferð
með knött einnig. Skalli þeirra
var ,„skóli“ fyrir okkar knatt-
spymumenn og hraðinn var það
meiri að láta mun nærri að
þeir hafi farið með svipuðum
hraða með knöttinn og KR-
ingar hlupu einir, og segir það
nokkuð til. Skilningur þeirra á
samleik var betri og þeir kunnu
lagið á því að láta knöttinn
koma réttu megin við þann sem
átti að taka á móti honum.
Þessu mætti KR fyrst og
fremst með dugnaði og vilja.
Þeir náðu einnig oft mjög lag-
legum samleik, sem ógnaði
Bretunum hvað eftir annað, en
leikni þeirra á okkar mæli-
kvarða kom fram til fullnustu,
en eins og fyrr segir, voru gest-
imir miklu fremri.
Þetta var því mjög góð
frammistaða hjá KR, og vafa-
samt að aðrir fari betur útúr
leikjum við þá. í liði KR voru
beztir þeir Þorgeir Guðmunds-
son miðvörður sem vex með
hverjum leik, Ellert meðan hann
var inná. Sveinn Jónsson vann
mikið og sama er að segja um
Gunnar Guðmannsson. ' Þórður
Jónsson átti og góðan leik.
1 heild féll KR-liðið vel sam-
an, og varð það þó að leika án
Sigurþórs sem er veikur og gat
ekki verið með.
Af Brefcunum veitti maður
helzt athygli vinstra bakverði,
miðverði, miðherjanum, og
hægra útherja. Markmaðurinn
sýndi að þar er mjög snjall mað-
ur á milli stanganna.
Þetta var í heild skemmtileg-
ur leikur með hraða og baráttu,
og þar má þakka KR-ingum, fyr-
ir baráttuviljann sem entist all-
an leikinn.
Dómari var Magnús Pétursson
og virtist manni sem ýmislegt
væri við dóm hans að athuga, og
hann ekki sérlega upplagður.
Áhorfendur voru 3—4 þús-
und. — Frímann.
ins var nú 4.941 atkvæði en við
kosningarnar 1959, aðeins 253. Að
vísu hafði Verkamannaflokkur-
inn gert ráð fyrir því að halda
þingsætinu, en þessi árangur fór
fram úr glæstustu vonum.
Fréttamenn segja þessi úrslit
mikið áfall fyrir forsætisráðherr-
ann. Sir Alec Douglas-Home. sem
að undanfömu hafi unnið af
miklum krafti við að lappa upp
á álit kjósenda á íhaldsflokkn-
um. Þykja nú enn hafa aukizt
sigurhorfur Verkamannaflokks-
ins en að sama skapi syrtir í ál-
inn hjá íhaldsmönnum. Þing-
kosningar í Englandi fara fram
í október.
Q«n4<h«rr»nin mi
úr ffllri hættu
STOKKHÓLMI 5/6 — Allt virð-
ist nú benda til bess, að sendi-
herra Eþópíu í Stokkhólmi, Ab-
ate Agede, lifi af banatilræði
það, er bifreiðastjóri hans, hinn
pólskættaði Wincent Kropski,
sýndi honum í gær. Sendiherr-
ann var i sjö og hálfa klukk'l-
stund samfleytt á skurðarborð-
inu, og er líðan hans nú eftir
atvikum sæmileg. Sendiherrann
var hæfður fjórum kúlum í
kviðinn. einni í háls og einni
í höfuð.
i hálfu öðru ári byggð
höll fyrír 25 miljónir
Loftleiðir eru nú orðnar jarðfastar, — í þeim skilningi
að félagið, sem hóf feril sinn í tjaldi og hefur alið aldur
sinn í loftinu, hefur nú loks eignazt hús á jörðu niðri.
Fæstir Reykvíkingar aðrir en
þeir sem spásséra sig í góða veðr-
inu suðurí Nauthólsvik munu
sjá þetta hús. Það lætur nefni-
lega lítið yfir sér að utan, en er
þvi betur gert til þeirra hluta
sem það var byggt til. Og Loft-
leiðir hafa nú nýlega af ýmsum
ástæðum ákveðið að flytja flest
sitt hafurtask til Keflavíkur.
Hús Loftleiða er bygg't á hálfu
öðru ári (byrjað var á bygging-
unni haustið 1962) og áætlaður
heildarkostnaður er 25 miljónir
króna. þ.m.t. hitaveitulögn til
byggingarinnar.
Sú upphæð kann að vaxa sum-
um í augum, en hún er þó harla
lítil miðað við það fé sem Loft-
leiðir hafa fest í loftinu. Aðalat-
riðið er þó að þama úti á nesinu
hefur verið búinn til vinnustað-
ur fyrir áttatíu manns eöa svo
sem ber af því sem við annars
eigum að venjast.
PflRÍSV víð
íIí» Gsi
PARÍS 5/6 — Bandaríski vara-
utanrikisráðherrann George
Ball, sem er sérstakur sendi-
maður Johnsons forseta vegna
ástandsins í Suðaustur-Asíu, átti
í dag viðræður við de Gaulle,
Frakklandsforseta. AFP-frétta-
stofán skýrir svo frá, að ráð-
herrann hafi haft orðsendingu
frá Johnson til de Gaulle. Ball
vildi hins vegar ekkert segia
um samtal sitt við Frakklands-
forseta utan að það hefði verið
mjög gagnlegt og athyglisvert.
Hiólbarðaviðgerðir
OPIÐ ALLA DAGA
(LlKA LAUGARDAGA
OG SUNNUDAGA)
FRÁ KL. 8 TIL 22.
Gúmmívinnustofan li/f
Sldpholtí 35, Rcykjavik.
WILLIAM
SHAKESPEARE
LEIKRIT l-lll
Helgi Hálfdánarson
þýddi
Draumur á Jónsmessunótt
Rómeó og Júlía
Sem yður þóknast
Júlíus Sesar
Ofviðrið
Hinrik fjórði
— fyrra leikritið -—
Hinrik fjórði
— síðara leikritið —
Makbeð
Þrettándakvöld
Verð kr. 620 innb., kr. 720 skinnb.
III. bindið eitt sér kr. 300 ib., kr. 340 skinnb.
HEIMSKRINGLA
Húsbyggjendur - Múrarameistarar
Höfum opnað nýja, fullkomna steypustöð í Kópa-
vogi. getum afgreitt steypu með Portland- og hrað-
sementi. Útvegum bílkrana ef þess er óskað. —
Vinsamlegast gerið pantanir tímanlega.
Símar 4-1480 og 4-1481
VERK h.f.
STEYPUSTÖÐ — FÍFUH V AIMMS VEGI
PÖNTUNARSÍMAR: 4-1480 — 4-1481.
SKRBPSTOFU SÍMI: 11380.