Þjóðviljinn - 06.06.1964, Page 7
Laugardagur 6. júná 1964
ÞTÓBVILIINN
Valdabaráttan innan
Repúblikanaflokksins
1 s i 5 i
TIDIN mi
Rjöri fulltrúa á flokksþingið
sem velur frambjóðanda
repúblíkana í bandarísku for-
setakosningunum er lokið,
Barry Goldwater öldungadeild-
armann, átrúnaðargoð hægri
arms flokksins. skortir aðeins
herzlumuninn á hreinan meiri-
hluta meðal þingfulltrúanna, en
samt sem áður eru flestir
bandarískir stjórnmálafréttarit-
arar vantrúaðir á að honum
verði sigurs auðið þegar á
flokksþingið kemur. öilum ber
saman um að örlög hans verða
ráðin við fyrstu atkvæðagreiðsl-
una í Kýrhöllinni í San Fran-
cisco, þar sem repúblíkanar
koma saman til að þinga 13.
júlí. Til þess að ná kosningu
í framboð þarf hreinan meiri-
hluta fulltrúa, 655 atkvæði.
Nái Goldwater ekki þeirri tölu
í fyrstu atkvæðagreiðslu er
hann úr leik, segja spámennim-
ir einum rómi. Taki hann ekki
flokksþingið með skyndiáhlaupi
þegar í upphafi, getur harjn
ekki gert sér von um meira en
ráða því hver keppinautur hans
verður fyrir valinu.
Eftir nauman sigur í Kali-
fomíu yfir Nelson Rocke-
feller telur Goldwater sig njóta
stuðnings yfir 600 flokksþings-
fulltrúa, og í fljótu bragði séð
ætti ekki svo sigurstranglegu
frambjóðandaefni að verða
skotaskuld úr að bæta við þeim
fáu tugum sem vantar á sig-
urtöluna 655 á fimmvikumsem
enn eru til stefnu. En samt þykir
vafasamt að það takist, og á-
stæðurnar em þær sömu og
hafa sannfært menn um að
sigurvonir Goldwaters séu ein-
skorðaðar við fyrstu atkvæða-
greiðsluna á flokksþinginu.
Öldungadeildarmaðurinn frá
Arizona hefur á móti sér þau
öfl sem ráðið hafa Repúblík-
anaflokknum síðustu áratugi,
og komið hefur í ljós þar sem
fulltrúar á flokksþing em kosn-
ir almennri kosningu að iýð-
hylli hans er mun minni en
stuðningsmenn hans höfðu stát-
að af. Fram til flokksþingsins
verður háð hörð barátta um
völdin í Repúblíkanaflokknum,
og ein aðalröksemd andstæðinga
Goldwaters í þeirri baráttu
verður að framboð hans myndi
baka flokknum hrakfarir sem
hann biði seint bætur.
Frá því um 1940 hafa máttar-
stólpar repúblíkana í fylkj-
unum á Atlanzhafsströnd
Bandaríkjanna. auðmenn og á-
hrifamiklir blaðaútgefendur, —
ráðið úrslitum um val fram-
bjóðanda flokksins í forseta-
kosningum. Það vom þeir sem
sóttu Eisenhower hershöfðingja
til Parísar til að kveða í kút-
inn Robert Taft öldungadeildar-
mann, merkisbera gamaldags
íhalds í smáborgum og sveita-
hémðum fylkjanna milli ð'leg-
hanyfjalla og Klett' rílla.
Þetta svæði hefur jafnan ver-
ið höfuðvígi repúblíkana, og
flokksmönnum þar lengi sárn-
að að vera ofurliði bomir á
flokksþingum. Strax eftir ósig-
ur Nixons fyrir Kennedy tók
Goldwater til óspilltra málanna
að notfæra sér þessa óánægju.
Árangurinn er nú kominn í Ijós.
Megnið af þingfulltrúunum sem
styðja Goldwater er úr fylkj-
um þar sem valið er i höndum
fémenns hóps flokksíoringja.
Goldwater beið hinsvegar
herfilega ósigra í New
Hampshire og Oregon, þar sem
almenn kosning er viðhöfð við
val flokksþingsfulltrúa. Fylgi
hans meðal óbreyttra flokks-
rnanna reyndist einnig mun
minna en við var búizt í ýms-
um fylkjum, svo sem Illinois
og Nebraska, þar sem sigur
hans var fyrirfram talinn svo
vís að enginn af meiriháttar
keppinautum hans taldi ó-
maksins vert að bjóða sig
fram. Þar fengu vonlaus fram-
bjóðandaefni eins og frú Smith
öldungadeildarmaður og Harold
Stassen yfir þriðjung atkvæða.
Hefð' Goldwater beðið ósigur
í Kalifomíu nú í vikunni. voru
sigurvonir hans á flokksþing-
inu að engu orðnar. Sigurinn
sem hann vann er ekki af því
tagi að nægi til að tryggja hon-
um framboðið. Kaiifornía er
höfuðvígi John Birch-félagsins
og annarra samtgka öfgafullra
hægri manna. Þar vaða uppi
þjóðrembingsmenn og berjast
til að mynda gegn því að dags
Sameinuðu þjóðanna sé minnzt
í skólum. Hefur mörgum
fræðslustjóra orðið hált á að
láta slíka ósvinnu viðgangast.
Á fjöllum og eyðimörkum þafa
tilvonandi skæruliðasveitir
komið sér upp æfingasvæðum
og vopnabúrum og búa sig af
kappi undir að veita viðnám
sovézku hemámsliði, því þeir
vita að einn góðan veðurdag
vakna Bandaríkjamenn upp við
það að laumukommúnistamir
á æðstu stöðum í Washington
eru búnir að svíkja landið í
hendur heimskommúnismanum.
Undirforingjar Goldwaters í
Kalifomíu spáðu því lengi
vel að þeirra maður myndi
sigra þar með yfirburðum, fá
ekki minna en tvo þriðju at-
kvæða. Eftir sigur Rockefell-
ers í Oregon kom annað hljóð
í strokkinn, og baráttuaðferð-
ir þeirra keppinautanna síðustu
vikurnar báru með sér að báðir
gerðu sér ljóst að úrslitin væru
tvísýn. Hvor um sig varði milj-
ón dollara til áróðurs allra síð-
ustu dagana fyrir kosninguna.
Eisenhower lýsti óbeint yfir
stuðningi við Rockefeller, en
það kom fyrir ekki. Goldwater
sigraði með um 60.000 atkvæða
mun af rúmum tveim miljón-
um. Þegar svona litlu munar
í kosningum ræður persónu-
fylgið úrslitum, og þess hefur
Goldwater aflað sér með sí-
felldum heimsóknum til Kali-
fomíu. þar sem hann hafði
haldið 500 ræður á árunum frá
1958 áður en kosningabaráttan
hófst að þessu sinni. Rockefell-
er hefur hinsvegar eins og
endranær goldið þess að hann
skildi við konu sína og giftist
annarri yngri.
Hér eftir fram að flokksþingi
verður barizt um flokks-
þingfulltrúana hvem og einn.
Fulltrúakeðja Goldwaters er
svo löng að í henni hljóta að
finnast veikir hlekkir. Margir
eru skuldbundnir til að greiða
honum atkvæði í fyrstu umferð
að minnsta kosti, en aðrir geta
breytt um afstöðu án þess að®*
það þurfi að teljast svik. Hörð-
ustu andstæðingar Goldwaters
hafa við orð að kljúfa flokkinn
verði hann kjörinn forsetaefni.
Svo er til dæmis um Keating,
öldungadeildarmann frá New
York, sem telur sér ósigur vís-
an ef hann á að berjast undir
merki manns sem lýst hefur
andstöðu við frumvarpið um
ráðstafanir til að tryggja borg-
araréttindi svertingja. Aðeins
einn af keppinautum Goldwat-
ers um framboðið hefur lýst
því yfir að hann muni styðja
öldungadeildarmanninn frá Ari-
zona verði hann valinn forseta-
efni. Þessi maður er Nixon, sá
sem Goldwater er líklegastur
til að styðja til framboðs nái
hann ekki kjöri sjálfur, og eng-
inn vafi er á að það sem fyr-
ir Nixon vakir er að ota sínum
tota.
Allir aðilar sem hlutlausa má
telja eru á einu máli um
að Johnson forseti sigri fram-
William Scranton lylkisstjóri í
Pennsylvania er einna líkleg-
astur til að verða fyrir valinu
ef hvorki Goldwatcr né ein-
dregnum andstæðingum hans
tekst að ná meirihluta á flokks-
þinginu.
SÍÐ A. J
í viðbót við þá sem fyrir ero,
ætti frumvarp hans og Kenne-
dy að verða að lögum fynr
flokksþing demókrata í L«s
Angeles í ágúst.
Nelson Kockefeller fagnar sigrinum í Orcgon.
bjóðanda repúblíkana i forseta-
kosningunum hver svo sem
hann verður. Skoðanakannan-
ir benda til að sigur Johnsons
yrði mestur ef mótframbjóð-
andi hans væri Goldwater.
Eitt skoðanakönnunarfyrirtæk-
ið spurði repúblikana í Kalí-
forníu, hvom þessara tveggja
þeir myndu kjósa, og sögðust
40 af hundraði myndu kjósa
Johnson. Henry Ford II lýsti
því nýlega yfir að hann ætli
í haust að kjósa forsetaefni
demókrata í fyrsta skipti á
ævinni. Eftir öllum sólarmerkj-
um að dæma kemur því
flokksþing repúblikana saman
til að kjósa fórnarlamb en
ekki tilvonandi forseta Banda-
rikjanna. Engu að síður skipt-
ir val frambjóðanda máli fyr-
ir flokkinn. Forsetaefnið sem
valið verður í Kýrhöllinni í
næsta mánuði ræður mestu um
kosningastefnuskrána sem sett
verður fram og verður höfuð
flokksins næsta kjörtímabil.
Andstæðingum Goldwaters
væri í sjálfu sér ósárt um að
sjá hann falla, en þeir vilja
ekki hætta á að veita honum
tækifæri til að móta flokks-
kerfið í sinni mynd.
Hjá demókrötum hreyfir sig
enginn gegn Johnson for-
seta nema Wallace fylkisstjóri
í Alabama, sá sem tók sér
stöðu í dyrum fylkisháskólans
og vísaði brott svertingjastúd-
entum sem höfðu hæstaréttar-
dóm fyrir að skólinn væri
skyldur til að veita þeim inn-
göngu. í Maryland og Indiana,
tveim gömlum heimkynnum
Ku Klux Klan, hefur Wallace
fengið verulegt atkvæðamagn,
og sýna úrslit þar að kynþátta-
hatur magnast í Bandaríkjun-
um eftir því sém svertingjum
verður ágengt í réttindabaráttu
sinni. Á þriðjudaginn verða
greidd atkvæði í öldungadeild
Bandaríkjaþings um tillögu
um að stöðva málþóf suður-
ríkjamanna gegn jafnréttis-
frumvarpi stjómarinnar. Úr-
slit eru tvísýn en sigurhorfur
stuðningsmanna frumVarpsins
þó taldar meiri. Vinni John-
son þarria einn þingsigur enn
Setning laganna leysir í sjálfu
sér engan vanda í sambúð
kynþáttanna. Það eina sem
hægt er að segja fyrir með
vissu er að kynþáttaátökin eiga
enn eftir að harðna verulega,
bæði í suður. og norðuriylkj-
unum. I Mississippi eru svert-
ingjar myrtir með nokkurra
vikna millibili. rétt til að sýna
þeim sem eftir lifa hvað til
þeirra friðar heyrir, og þá
sjaldan illræðismennimir koma
fyrir dómstól fæst enginn kvið-
dómur til að sakfella þá. 1
Harlem í New York starfa
morðsveitir svertingjapilta sem
brytja niður hvíta vegfarendur
og eiga einkum í höggi við
gyðinga í næstu hverfum,
samkvæmt því lögmáli kyn-
þáttakúgunarþjóðfélags að
hatrið er ætíð beizkast milli
tveggja kúgaðra kynþátta.
Hvnær sem er getur komið
til stórfelldra árekstra, og kom-
ist Goldwater í framboð fyr-
ir repúblikana er enginn vafi
á að kynþáttamálin verða á
oddinum í kosningabaráttunni.
M.T.Ó.
Hvað sem Johnson aðhefst er
honum vís staður á forsíðum
blaðanna. Það þóttu heldur en
ekki tíðindl þegar hann tók
hundana sína upp á eyrunum
fyrir blaðaljósmyndara.
SKÓLASLIT Á ÍSAFIRÐI
ÍSAFIRÐI 4/6 — Sl. laugardag,
30. maí, var þrem skólum slit-
ið hér á ísafirði, gagnfræða-
skólanum, tónlistaskólanum og
húsmæðraskólanum.
Skólastjóri Gagnfræðaskóla
Isafjarðar, Gústaf Lárusson
gerði við skólaslit grein fyrir
vetrarstarfinu.
Nemendur gagnfræðaskólans
í vetur voru alls 200 og skipt-
ust í 9 deildir. Stúlkur voru
112 talsins en piltarnir 88. Auk
þess var starfandi framhalds-
deild, þar sem kennt var náms-
efni 1. bekkjar menntaskól-
anna. I þeirri deild voru 7
Kennarar voru 18 alls, 10 fasta-
kennarar og 8 stundakennarar.
Undir gagnfræðapróf gekk i
vor 31 nemandi og stóðust all-
ir. Hæstu einkunn hlaut Reyn-
ir Pétursson, 8 í aðaleinkunn.
Landspróf miðskóla þreyttu
20 nemendur og stóðust 16
þeirra prófið. Hæstu einkunn
hlaut Kristjana Kjartansdóttir,
8,10 i aðaleinkunn en 7,92 i
landsprófsgreinum.
I framhaldsdeild hlaut hæstu
einkunn Friðrik Páll Jónsson.
8,26, en hæstu einkunn í öll-'
um skólanum hlaut nemandi
í 2. bekk bóknáms, Sigríður
Ragnarsdóttir, 9,40.
Verðlaun voru veitt nemend-
um fyrir gott stari og góða
frammistöðu á prófum og út-
hlutað var úr sjóðnum Aldar-
minning Jóns Sigurðssonar, en
hlutverk sjóðsins er að styrkja
nemendur. Anna Málfríður
Sigurðardóttir, nemandi í 3.
bekk bóknáms, hlaut styrk úr
sjóðnum að þessu sinni.
Félagslíf í gagnfræðaskólan-
um á Isafirði var i vetur með
svipuðu sniði og undanfarin
ár. í marz-mánuði sl. var í
fyrsta skipti efnt til starfs-
fræðsludags á ísafirði, í húsa-
kynnum gagnfræðaskólans. Á
útfarardegi Davíðs Stefánsson-
ar frá Fagrakógi var skálds-
ins minnzt í skólanum. Hald-
in var sýning á handavinnu
nemenda 1. maí sl. og sóttu
hana um 800 manns.
Heilsuíar var ágætt í skól-
anum á sl. vetri.
Að kvöldi skólaslitadagsins
lögðu nemendur landsprófs-
deildar og gagnfræðingar af
stað í skólaferðalag með m.s.
Esju norður og austur um
land.
Við uppsögn Tónlistar&kóla
Isafjarðar gerði skólastjórinn
Ragnar H. Ragnár grein fyrir
vetrarstarfinu. 1 skólanum
voru í vetur 40 nemendur. þar
af stundaði einn nám í org-
elleik, 6 voru í svonefndri
lokadeild. þar sem einkum er
kennd tónfræði, en aðrir nem-
endur lögðu stund á píanóleik.
Verðlaun voru afhent við
skólaslitin og hlutu þau þess-
ir nemendur: Hlöðver Rafns-
son i undirbúningsdeild, Katrín
Guðmundsdóttir í yngri deild,
Sigríður Jónsdóttir í byrjenda-
deild, Gunnþórunn Björnsdótt-
ir í lokadeild. Píanóverðlaun
hlutu systkinin Hjálmar Helgi
Ragnarsson og Sigriður Ragn-
arsdóttir.
Við skólaslitin á laugardag
var í fyrsta skipti úthlutað úr
Minningarsjóði frú önnu Ing-
varsdóttur, en sá sjóður var
stofnaður árið 1943 með 1000
króna gjöf frá Sunnukómum.
Tilgangur sjóðsins, sem nú nean-
ur um 120 þús. kr. er að
styrkja nemendur til tónlist-
amáms. 3000 kr. styrk úr
sjóðnum hlaut að þessu sinni
Anna Málfríður Sigurðardótt-
ir, mjög efnilegur nemandi
Tónlistarskólans.
Við skólaslit léku á pianó
þau Sigríður Ragnarsdóttir.
Hjálmar Helgi Ragnarsson og
Anna Málfríður Sigurðardóttir.
Nemendatónleikar þ.e. Vor-
tónleikar Tónlistarskólans,
voru haldnir hinn 27. apríl og
komu þar fram 20 nemendur
og léku á hljóðíæri. Ennfrem-
ur söng Sigurður Jónsson
prensmiðjustjóri einsöng.
FERÐAMENN
Við höfum á boðstólum ýmsar vörur sem henta ferðs-
mönnum, svo sem: Sælgæti — sígarettur og aðrar tóbaks-
vörur, — svefnpoka og tjöld o.m.fl. — Gjörið svo vel að
líta inn og reynið viðskiptin.
— BENZÍN OG OLÍUR —
VERZLUNIN BRÚ
Hrútafirði.