Þjóðviljinn - 06.06.1964, Síða 10
10 SlÐA
ÞTðÐVTLTlNH
Eaegardagur 6. fúní 1364
Þið
stúdentsárin
æsltuglöð
EFTIR HANS SCHERFIG
honum, svo að það verður ekki
neitt úr neinu.
Fólk er hraett um að hann
meiði sig eða kvefist þennan
tima sem það ber ábyrgðina á
honum. En hann lærir þó sitt
af hverju um lífið á þessum
stóra búgarði. Hann talar við
ráðsmanninn og garðyrkjumann-
inn og smiðinn. Og stundum við
einhvem búfræðilaerlinganna. Og
hann kemst að raun um að lær-
lingamir eru fínni en vinnu-
mennimir, en vinnumennimir fá
laun. Og að lærlingar og vinnu-
menn eiga að borða makarín-
samlokur sínar sitt í hvoru her-
bergi, annars verða lærfingarnir
móðgaðir. Og neðar öllum öðr-
um eru pólsku verkamennimir,
sem búa í skúr langt frá hinum
og er stjómað af sérstökum eftir-
litsmanni. Og pólakkar eru ekki
manneskjur í raun og veru,
heldur eins konar húsdýr, sem
ráðsmaðurinn verður að hvetja
með lurk sínum.
Og Eiríkur verður hraustur
og útitekinn og þyngist. Því að
hjá frændanum er nóg af rjóma
og eggjum og kjúklingum og
jarðarberjum og dæmalaust Ijúf-
fengum heimabökuðum kökúm.
Og hann er veginn með stuttu
millibili, svo að hægt sé að til-
kynna foreldrum hans þyngdar-
aukninguna í bréfum.
Drengimir úr bekknum dreif-
ast um allt landið. Þeir eru á
Skaga og við Blávatn og á
bóndabæjum hjá frændfólki og
á gistiheimilum og leiguhúsum
oe eigin sumarbústöðum.
En Mogensen póstfulltrúi með
bömin sín mörgu er kyrr í
Willemoesgötu. Hann er veikur
og taugaóstyrkur og trúaður og
það er beðin borðbæn yfir kjöt-
bollunum og sætsúpunni. Á
HÁRGREIÐSLAN
HáreTeMsín og
snyrtlstofa STKTNTI oe OÖT>í>
Laneaven 18 m 0. Oyftal
SfMT 24616.
P B R M A Garðsenda 21
SÍMl S3968. Hárgrelðsln- ob
snyrtlstofa. *
Dðmtir' Hártrreiðsla -dfl
allra hæfl.
TJARNARSTOFAN
Tiamarcötn 10. Vonarstraetis-
meeín. — SfMI 14662.
HARGRETÐSLOSTOFA
ACSTURBÆJAR
(Maria Gnðmnndsdóttir)
Langavegi 13 — SÍMi 14656
— Nuddstofa ó sama stað -
sunnudögum á öll fjölskyldan að
fara í kirkju. En í leyfinu mega
bömin vera að því að ganga út
á Löngulínu. þar sem þau geta
fengið nóg af fersku lofti og
safnað kröftum fyrir lesturinn
næsta vetur. Og seinna mun
Mikael segja, að harm hafi and-
styggð á sveitaveru, og til allrar
hamingju dveljist fjölskylda hans
í borginni eins og siðuðu fólki
sæmi.
Nörregaard-Olsen er í sumar-
búðum grænu KFUM-skátanna.
Og á hverjum morgni er fáninn
dreginn að hún og það er blásið
í lúður. Og ungur og stæltur
presfcur heldur morgunandakt og
bæn með drengjunum áður en
fjörugt og heilsusamlegt útilíf
dagsins byrjar.
22
Frúin í Landamerkinu saknar
viðskiptavinanna úr skólanum.
ístímabilið er hafið, en það er
ekki eins kátt og fjörugt í sjopp-
unni hennar. — Það er svo gam-
an að strákunum þegar þeir eru
að segja frá kennurum sínum.
Það hljóta að vera undariegir
afglapar; sem fá að ganga laus-
ir í þessum skóla og lemja dreng-
ina. Það 'er~alveg furðulegt að
þeim skuli líðast að lumbra
svona á bömum betri borgara.
Maður sárvorkennir þessum
stráklingum, sem þurfa að læra
öll þessi ósköp.
Frúin er sver og mikil og með
litað hár og ekkert nema gæðin.
Og hún er ófeimin við að stinga
ókeypis fspinna að litlu, krypl-
uðu krökkunum f hverfinu.
Svarta Höndin hefur þurft að
draga úr hinni þjóðhættulegu
starfsemi sinni. Ritarinn einn er
á sveimi með skuggalega þanka.
áætlanir. Félagsblaðið „Leynd-
ardómur" kemur ekki lengur út
og framhaldssagan heldur ekki
lengur áfram. En yfimefndin
skiptist á bréfum í leyfinu og
bréfin eru skrifuð með hinu
leynilega talnamáii. Það er
mikið verk að skrifa og lesa
slfkt bréf. Og sérhvert bréf er
skrifað með rauðu bleki og inn-
siglað með stórum, rauðum
lakkinnsiglum og svörtum fingra-
förum.
Hurrycanefjölskyldan fer stöku
sinnum upp til Hornbekk á
sunnudögum og drekkur te á
svölunum og horfir á baðlífið.
Og forstjórinn hellir sér yfir
þjóninn, vegna þess að teið er
lélegt og ódrekkandi fyrir fólk
sem er betra vant. — A þetta
að heita te, maður minn? — Og
Jörgen er feiminn og vandræða-
legur, þegar faðir hans skamm-
ast við þjóninn.
En nú getur Hurrycanefjöl-
skyldan sagt. að hún hafi verið
í Hombæk um sumarið. — Þú
skalt bara segja það, Jörgen
minn, ef einhver af bekkjar-
bræðrunum spyr þig. — Við
vorum í Hombæk eins og vana-
lega. Foreldrar mínir eru svo
hrifnir af þeim stað. —
— En næsta ár, ef fyrirtækið
getur án mfn verið, þá förum
við til Skotlands, segir Hurry-
cane forstjóri. — Þá getið þið
fengið að sjá golfvelli sem segja
sex! Hvergi er annað eins golf
og í Skotlandi. Það er nóg land-
rými fyrir þess háttar. Og í
Skotlandi kunna þeir að búa til
te sem hægt er að drekka. Bíðið
þið bara þangað til næsta sum-
ar. —
Fyrir Tygesen er sumarleyfið
dálítið ömurlegt. Alltaf er verið
að vitna í hið lélega próf. Og
rifja upp þá niðuriægingu sem
faðir hans varð að þola, þegar
rektor nefndi nafn hans og gat
þess að hann væri á mörkum
þess að vera hæfur til að flytj-
ast upp í fjórða bekk. Og faðir
Thygesen hefur meira að segja
sjálfur verið nemandi í þessum
fræga skóla! En hann var alltaf
iðinn og gáfaður og með þeim
efstu í sínum bekk. — En þú
ert háifviti og letiblóð! — segir
hann. — Það verður fjandakom-
ið aldrei neitt úr þér. Það væri
bezt að þú yrðir skósmiður! —
Úti á Norðurbrú situr Axel
Nielsen og les. Hann er búinn
að fá nýju bækurnar sem á að
nota næsta skólaár. Og hann er
að lesa allt sumarleyfið. Ekki er
ráð nema í tíma sé tekið og eng-
inn verður efstur nema leggja
eitthvað á sig.
ÞRÍTUGASTX OG FJÚRÐI
KAFLI.
Skólinn er nýfemiseraður eftir
sumarieyfið og allt er klistrað og
límkennt og lyktin framandi.
HJörfcun og bókstafimir og
táknin. sem nemendur hafa af
mikilli elju grafið í borðplötum-
ar með pennum og yasahnffum,
hafa verið fyllt upþ með kítti
og borðin máJuð. Nú má aldrei
framar krota og skera í borðin.
segir umsjónarkennarinn. Það
eru skemmdarverk sem ekki er
hægt að Hða. Eruð þið kannski
vanir að skera og krota í stofu-
borðið heima hjá ykkur?
Fyrsti skóladagur nýja ársins
er stuttur og hættulaus. Maður
fær að vita hvaða bækur á að
panta hjá bóksalanum og stund-
ataflan er skrifuð. Nú eru þeir
komnir svo langt að þeir eiga
að byrja á latínunni. Og Blomme
á að kenna þeim. Þeir höfðu
vonað að fá Melas gamla, sem
er orðinn fjörgamall og gengur
í bamdómi, en sú von rættist
ekki.
Nýju bækumar eru spennandi
fyrstu dagana. Og nú er um að
gera að fara vel með þær og
krota ekki í þær eða teikna íþær
andlit. Og það á að hafa um
þær hlífðarpappír. Þær hafa
verið nógu dýrar, segja foreldr-
amir. Að vfsu er hægt að kaupa
sumar notaðar. en það þarf helzt
að vera síðasta útgáfa og næst-
um á hverju ári koma nýjar og
auknar og endurbættar útgáfur.
Það er góður bissness að gefa út
skólabækur. Heil fjölskylda get-
ur í margar kynslóðir lifað af
enskum stílaverkefnum.
Fyrir Axel Nielsen er ekkert
nýtt í bókunum. Hann hefur les-
ið þær samvizkusamlega í þaer
sex vikur . sem sumarleyfið
stendur yfir. og hann er kominn
framúr hinum og það er hæg-
ara fyrir hann að halda sæti
sínu. Hann er foreldrum sínum
til sóma og það verður áreiðan-
lega meira úr honum en tré-
smíðameistaranum. Hann er ekki
eins útitekinn og félagar hans,
en hann er heilsuhraustur. Strák-
ar á þessum aldri þola mikið.
1 ár verður að hugsa um próf-
ið í tíma. Gagnfræðaprófið stend-
ur fyrir dyrum. Merkilegt og op-
inbert próf með ókunnugum
prófdómurum. Inntökupróf í
menntaskólann. Því má ekki
gleyma eitt andartak.
Eftir fyrsta, stutta skóladag-
inn er komið við hjá frúnni
í Landamerkinu. Og endurfund-
imir eru hjartanlegir. Hún hef-
ur tvennskonar ís í tilefni dags-
ins. Grænan marcípan- eða
pistacie-ís auk hins venjulega
vanilluíss. Og skammtamir eru
stórir með rjóma og sultutaui
ofaná öllu saman.
Litli apakötturinn iætur h'ka
í Ijós gleði sína og klifrar upp
um drengina og leitar í hárinu
á Þeim. En það þarf að fara
varlega að honum, því að hann
er uppstökkur og bítur, eins og
lítill alvöru Duemose.
Og frúin heyrir allt um nýju
bækumar og að í ár eigi iatfn-
an að bætast við. Drottinn minn
dýri! — segir hún. — Að þið
skuluð geta staðið í þessu. Þið
verðið svei mér svo vitrir. að
bið getið komizt af án höfuðsins!
°g til hvers ætlið þið að nota
þessa latínu? Ætlið þið þá að
sitja hér og tala saman á lat-
ínu? Það verður svei mér gam-
an að heyra.
— Æjá, segir Thygensen.
Þetta verður strembinn tími.
Fjögur ár á maður eftir ef allt
gengur vel. Fékk Alberti ekki
átta ár? Við þurfum að sitja inni
í tólf ár. Og svo lemja þeir
sjálfsagt ekki fangana í Hors-
ens eins og þeir gera við okk-
ur.
Fn þetta er af frjálsum
vilja, segir frúin. — Ég gekk
svei mér engin tólf ár í skóla.
Og minn skóli var ekki svona
asnaleg stofnun. En auðvitað er
ég ekki eins lærð og þið. Guð
má vita hvemig þetta endar
með ykkur. Þetta verður óhugn-
anlegt. —
Já, það mætti segja mér,
segir Rold.
En skóladrengir hugsa ekki
um framtíðina. Þeir verða að
láta hverjum degi nægja sína
þjáningu. Það er langt þangað
til framtíðin byrjar. Það er ó-
fyrirsjáanlega langt þangað til.
Enn eru eftir fjögur ár og fjögur
próf. Og svo á að byrja í Há-
skólanum og það tekur mörg ár
í viðbót. En maður fær þó ekki
kjaftshögg í Háskólanum. Maður
þarf ekki að þola skítugar lúkur
kennaranna í andlitið,
— Væri nokkur leið að fá einn
til upp á krít? Einn af þessum
grænu? —
— Ætli ekki það. En þú manst
að það er dálítið eftir frá því
fyrir sumarleyfið? —
— Já, já. En ég var alveg
auralaus fyrst eftir prófið. Fjöl-
skyldan var í fýlu. —
— Þú étur of mikið, Tygesen!
— Æ, haltu kjafti. Guð forði
okkur frá hinum andríku brönd-
urum hans Blomme! —
— Já; Blomme. Við fáum víst
nóg af honum á næstunni. Meira
en nóg. —
ÞRlTUGASTI OG FIMMTI
KAFLI.
Svarta Höndin heitir nú Manus
nigra. aÞð er latína, sem segirtil
sín í daglega lifinu. En áhuginn á
leynifélaginu er farinn að dvína.
Sent hefur verið talsvert af nafn-
lausum bréfum með skelfilegum
SKOTTA
,,Hvaða Jói? Jói Stefáns? Jói Péfcurs? Jói Guðmunds? Jói Ragn-
ars? Jói '
m sölu
4 herb. íbúð á hæð við Eiríksgötu, hálft ris fylgir; laus
strax — upplýsingar gefur Fasteignasalan, Tjamargötu
14 og Þorvaldur Þórarinsson hrl., Þórsgötu 1.
Síldarsöltunarstúlkur
Söltunarstöðina BJÖRG h/f, Raufarhöfn
vantar nokkrar góðar síldarsöltunarstúlk-
ur í sumar.
Fríar ferðir
Frítt húsnæði
Gott húsnæði
Kauptrygging
Ódýr fæðissala fyrir þær sem vilja.
Fullkominn söltunarbúnaður er léttir og
eykur afköstin. — Flokkunarvél — Afla-
skip leggja upp síld hjá okkur. — Upplýs-
ingar í síma 40692 og hjá BJÖRG h/f,
Raufarhöfn.
FERÐIZT
MEÐ
LANDSÝN
• Selium farseðla með flugvc.
skipum
Greiðsluskilmálar Loftleiða:
• FLOGIÐ STRAX - FARGJALD
GREITT SÍÐAR
• Skipuleggjum hópferðir og ein-
staklingsferðir
REYNIÐ YIÐSKIPTIN
FERÐASKRIFSTOFAN
LAND S V N u-
TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK.
CJMBOÐ LOFTLEIÐA.
Þakka þér fyrir kunningi.