Þjóðviljinn - 10.06.1964, Side 3

Þjóðviljinn - 10.06.1964, Side 3
Míðvikwdagur 10. Júítí 1964 HOmHMN STÐA 3 Krustjoff og Tító á furtdi Nefnd Rúmena fer heim frá Moskvu MOSKVU 9/6 — Sendinefnd frá Rúmeníu, undir forystu eins af framkvæmdastjórum rúmenskra kommúnista, Chivu Stoica, fór í dag heim frá Moskvu eftir tveggja vikna dvöl í Sovétríkjunum. Nefndin átti margar o>g lang- ar viðræður við sovézka ráða- menn og er ætlun manna að einkum hafi verið fjallað um efhahags- og viðskiptasamband landanna. FoTseti Sovétríkjanna, Bresn- éff, og tveir af helztu leiðtogum sovézka kommúnistaflokksins, Podgorní og Súsloff, ræddu við rúmensku nefndarmennina þrett- án á síðasta fundi þeirra í Moskvu rétt áður en þeir héldu faeim á leið. Tass-fréttastofan segir að andi vináttu og innileika hafi ríkt á fundmum. Skipzt hafi verið á skoðunum um ýms mál sem báð- um sé umhugað um. í gær höfðu Rúmenamir rætt við Mikojan aðsto.ðarforsætisráðherra. Rúmenska nefndin kom til Moskvu um svipað leyti og önn- Undirritun samnings Rúmeníu—USA Táragasárás á kirkju Beaverbrook Iávarður, ur nefnd frá Rúmeníu kom til Washington að hefja samninga við Bandaríkjastjóm um við- skipti milli landanna, og telja menn að þar hafi tæpast ráðið tilviljunin ein. Auk efnahags- mála má telja víst að á viðræðu- fundunum í Moskvu hafi verið fjallað um deilur sovézkra og kínverskra kommúnista, en Rúmenar hafa verið taldir hafa reynt að miðla málum milli þeirra. Skyndifundur í Leníngrad Þeir Krústjoff og Tító Júgó- slaviuforseti ræddust við í Len- íngrad í gær, en þangað kom Krústjoff til móts við Tító, sem var á heimleið úr opinberri heimsókn í Finnlandi. Tító kom heim til Belgrad í dag. Áður en hann fór frá Leníngrad sagði hann að viðræður þeirra Krúst- joffs hefðu staðfest að þeir litu sömu augum á öll helztu mál samtíðarinnar og að bæði ríkin gerðu hvað þau gætu til að treysta einingu þeirra framfara- afla sem berðust fyrir friði, fé- lagslegum framförum og sós- íalisma. Fréttaritarar í Mo.skvu telja sig hafa ástæðu til að ætla að enda þótt Tító hafi lýst sig að öllu leyti samþykkan stefnu sov- ézkra kommúnista í deilunni við Kinverja, hafi hann þó ráðið Krústjoff að fara að öllu með gát. Á það er bent að í Tass- frétt af viðræðunum er þess ekki getið að minnzt hafi verið á sov- ézku tillöguna um að sem bráð- ast verði haldin alþjóðaráð- stefna kommúnistaflokkanna. Kynþáttaóeirúir í Tuscaloosa, Al. TUSCALOOSA, Alabama 9/6 — Harðar og blóðugar óeirð- ir. urðu í dag í bænum Tuscaloosa í Alabamafylki í Bandaríkjunum milli sverting'ja og lögreglu. <5>- Blaðakóngurinn Beaverbrook lávarður látinn, 85 ára LONDON 9/6 — Brezki blaða- kóngurinn Beaverbrook lávarð- ur lézt í gær að heimili sínu f Cherkley, skammt frá London. Hann varð hálfníræður fyrir rúmri viku. Beaverbrook var faðödur í Kanada af skozku faðemi. Hann ólst upp þar vestra og auðgað- ist þar á verðbréfasölu og ann- arri kaupsýslu. Hann fluttist búferlum til Bretlands árið 1910 og var þá sama árið kjör- inn á þing úr kjördæmi á Norð- ur-lrlandi fyrir íhaldsflokkinn. Hann tryggði sér áhrif og völd í brezkum stjómmálum með því að hefja útgáfu dagblaða árið 1918. og reyndist svo dugmikill blaðaútgefandi, að blöð hans urðu brátt þau útbreiddustu í Bretlandi og jókst auður hans jafnt1 og þétt. „Daily Express" kemur nú út í 4,3 milj. ein- taka og ,,Sunday Express" 4,4 milj. en „Evening Standard" í 775.000. En þótt Undarlegt megi virð- /ast þurru áhrif hans í stjórn- málum að sama skapi og upp- lög blaða hans jukust og hann var oftast nær í algerðri and- stöðu við stefnu flokks síns. Áhrifa hans gætti þó á bak við tjöldin og á stríðsárunum síðari gegndi hann ýmsum ráð- herraembættum, og kom þá ein- stakur dugnaður hans að góðum þörfum. Hann var alla tíð mik- ill forsvari brezka heimsveldis- ins og samveldisins. lagðist fast gegn sjálfstæði hinna gömlu ný- lendna, en varð þó að horfa upp á að heirhsveldið liðaðist í sundur. Beaverbrook var and- vígur undanhaldinu fyrir Hitl- ers-Þýzkalandi og það var m.a. af þeirri ástæðu sem Churchill tók hann |í stríðsstjórn sína 1940. Hann var einlægur fylg- ismaður samvinnunnar við Sov- étríkin eftir að stríðið brauzt út og var sérstakur erindreki brezku stjórnarinnar í Moskvu árið 1941. Blöð hans voru and- víg endurhervæðingu Vestur- Þýzkalands eftir stríðið, en í því máli sem mörgum öðrum fékk hann ekki að gert. Það mun þó hafa verið honum sérstakt ánægjuefni síðasta árið sem hann lifði. að ekkert varð úr aðild Breta að Efnahagsbanda- lagi Evrópu, en blöð hans, nærri ein allra brezkra blaða, beittu sér af alefli gegn henni. Það er nú orðið augljóst að þeim ber meira en lítið á milli stjórnum Sovétríkjanna og Rúmeníu, enda þótt deilur þeirra hafi enn ekki komizt I hámæli eða séu fyrst að komast það nú. 30. maí s.1. voru Rúmcnar gagnrýndir í útvarpssendingu frá Moskvu á rúmensku m.a. fyrir að leita eftir viðskiptum við Bandaríkin og önnur vest- urveldi, þar sem það myndi skaða efnahagssamvinnu landanna í Austur-Evrópu. Þessari gagnrýni var svo aftur svarað í útvarps- sendingu á rússnesku frá Búkarest á föstudaginn var. Þar var m. a. bent á að Rúmenar væru ekki fyrstir þjóðanna í Austur- Evrópu til að taka upp viðskipti við Bandaríkin, Pólverjar hefðu þannig lengi haft mikil viðskipti vestur á bóginn og um 40 prósent utanríkisverzlunar þeirra væri við auðvaldslönd. Sovétríkin hefðu einnig nýlega gert mikla samninga um kornkaup í Bandaríkjunum og hefðu leitað eftir frekari viðskiptum við þau. — MYNDiN er tekin í Washington þegar þeir Gaston Marín, varaforsætisráðherra Rúmeníu, og Averell Harriman, aðstoðarutanríkisráðherra Banda- rikjanna, undirrituðu nýja viðskiptasamninga landanna. Afvopnunarráðstefnan hafin Bættar horfur á árangri í Genf? GENF 9/6 — Afvopnunarráð- stefnan sem haldin er á veg- um SÞ og sautján ríki eiga full- trúa á hófst aftur í Genf í dag eftir sex vikna hlé, og gera menn sér nú heldur meiri von- ir en áður um að árangur ná- ist af viðræðunum. Scvézki fulltrúinn, sem nú er Valerian Zorin aðstoðarutanrík- isráðherra, lýsti því yffir í fyrstu ræðu sinni í dag, að Sovétríkin væru fús að taka sæti í nefnd sem athuga skal möguleika á því hvort unnt verði að setja bann við smíði burðartækja fyrir kjarnavopn. þ.e. flugvéla og flugskeyta. Tillagan sem Zorin ber fram í dag er sögð að mestu sam- hljóða indverskri tillögu frá 26. marz sl., sem gerði ráð fyrir að ráðstefnan samþykkti veru- lega minnkun kjarnavigbúnaðar en Bandaríkin og Sovétríkin fengju að halda takmörkuðum fjölda flugskeyta á heimaslóð- um sínum. Náðu þá hámarki kynþáttaó- eirðir sem staðið hafa óslitið í bænum og héraðinu umhverfis síðustu tvær vikur og eru með þeim hörðustu og blóðugustu sem enn hafa orðið í Bandaríkjunum á þessu sumri. Svertingjar fóru i hópum um götur bæjarins og svöruðu lög- reglunni sem á þá réðist með því að kasta í hana grjóti, tóm- um glerflöskum og öðru lauslegu. Lögreglunni tókst að meina svertingjum að komast inn í miðbik bæjarins og reka þá sem fénað inn í eina af kirkj- um baptista. Lögreglan fleygði grjótinu og glerflöskunum í kirkjuna, en dembdi síðan vatni úr slökkvislöngum yfir hana. Þegar þetta dugði ekki til að draga kjark úr svertingjunum var táragassprengjum varpað inn í kirkjuna. Svertingjar neyddust þá til að yfirgefa hæli sitt, en lögreglan lamdi þá miskunnarlaust í rot með kylf- um sínum þegar þeir komu út úr kirkjunni. Fjöldi manna mun hafa hlot- ið meiðsl í þessum átökum. 32 svertingjar og fjórir lögreglu- menn munu hafa orðið fyrir meiriháttar hnjaski. Lögreglan handtók 85 svertingja, þ.á.m. helzta leiðtoga þeirra, séra T. Y. Roogers. sem er formaður í mannréttindafélaginu í Tusca- loosa. Millisvæðamótið Spasski er efstur eftir 14 umferðir Bent Larsen vann enn einn sig- ur á millisvæðamótinu í Amster- dam á sunnudag, en þá var tefld 14. umferðin, en Boris Spasskí, sem þá hafði þcgar tek- ið forystuna vann einnig sína skák og heldur því forystunni með hálfum vinningi yfir næstu menn, Larsen, Tal og Ivkov. Úrslitin í 14. umferð urðu þessi: Portisch-Gligoric jafntefli, ^pachmann vann Jérez, Benkö— Smysloff jafntefli, Spasskí vann Berger, Bilek—Stein jafntefli, Lengyel—Tal jafntefli, Reshev- sky—Bronstein jafntefli, Evans vann Tringov. Vranesic—Darga jafntefli, Ivkov vann Quinones, Larsen vann Rosetto, Foguel- mann vann Porath. Tíu hæstu eftir 14 umferðir eru þá: • 1) Spasskí 11 stig, 2) Larsen, Tal og Ivkov 10,5, 5) Bronstein og Smysloff 10, 7) Reshevsky 9,5. 8) Stein og Lengyel 9, 10) Darga 8,5. 1 15. umferð átti Larsen að tefla við Portisch, Tal við Reshevsky, Ivkov við Darga og Spasskf við Bilek. Njásna|otur Bandaríkjanna skotnar niður yíir LA0S VIENTIANE og PEKING 9/6 — Loftvarnasveitir Pathet Lao skutu um helgina niður tvær bandarískar herþotur yfir Laos. Fyrri þotan var skotin niður á laugardaginn, en hin tæpum sólarhring síðar. Flugmaður þeirrar fyrri er sagður í haldi hjá Pathet Lao, en hinum var bjargað. ———~'~—————— >S> Flugvélin sem skotin var nið- PLASTLÍM GRÍPUR FLJÓTT ur á laugardaginn var 1 njósnaferð og sögð óvopnuð. Því hafði orustaþota af gerð- inni F-8A, búin flugskeytum, verið send í fylgd með könn- unarflugvélunum á sunnudaginn þeim til verndar. Það fór þó svo að einmitt hún var skotin niður. Það er haft eftir kínversku fréttastofunni að bandarískar orustuþotur hafi skotið tveim- ur flugskeytum á bæinn Khang Khay á Krukkusléttu í Laos snemma á sunnudagsmorgun. Áður höfðu bandarískar njósna- flugvélar verið á sveimi yfir bænum. Vekur furðu Herfræðingar f Washington eru sagðir furða sig á því að Pat- het Lao skuli hafa getað hæft hinar hraðfleygu orustuþotur. sem fljúga með 1700 km hraða á klukkustund að jafnaði. Það er talið vfst þar vestra að þot- urnar hafi verið skotnar niður með flugskeytum. Bandaríska sendiráðið í Vient- aiane skýrí'i < dag frá bví afl enn væri hfd'UO áfram leit að flugmanninum sem skotinn var I niður á Iaugardag, enda þótt Pathet Lao hafi tilkynnt að hann hafi verið tekinn höndum. Kínverska stjómin hafnaði í dag tillögu þeirri sem pólska stjórnin hefur borið fram og sovétstjórnin lýst stuðningi sin- um við, um að haldin verði ráðstefna sex ríkja um Laos- málið, Sovétríkjanna og Bret- lands. sem höfðu formennsku á Genfarráðstefnunni 1962, Pól- lands, Kanada og Indlands, sem eiga fulltrúa í eftirlitsnefndinni með vopnahléinu, og hinna þriggja aðila sem deila um völdin í Laos. Kínverska stjómin vill að í þess stað komi öll 14 ríkin sem fulltrúa áttu á ráðstefnunni 1962 aftur saman í Genf A-Evrópuríki í Albióðabankann? WASHINGTON 9/6 — Starfí menn Alþjóðabankans staðfest óbeinlínis í dag orðróm um a ýms lönd Austur-Evrópu hefði í hyggju að sækja um aðild a Alþjóðabankanum oe Alþjóða gj aldeyrissjóðnum Það var þ tekið fram að ensar formlega umsóknir lægiu fv Lönd in sem nefnd hafa verið eru Sov étríkin. Pólland, Tékkóslóvakía r>,''rnenia, Ungverjaland og Búlg aría.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.