Þjóðviljinn - 10.06.1964, Blaðsíða 12
Fyrirlestur um
hagræðiugamál
Forstöðumaður hagræðingar-
stofnunar norska Aljþýðusam-
bandsins Egil Alhsen, sem dval-
ið hefur hér að undanförnu fyr-
ir forgöngu Alþýðusambands ís-
lands og hefur hann flutt fyrir-
lestra á ráðstefnu Stjórnunarfé-
lags íslands er háð hefur verið
undanfama daga að Bifröst.
Hinn norski gestur flytur er-
indi á vegum Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík um
afstöðu verkalýðshreyfingarinnar
til hagræðingamála og ákvæðis-
vinnu í Alþýðuhúsinu við.Hverf-
isgötu klukkan 8.30 e.h., mið-
vikudaginn 10. júní.
Egil Alhsen hefur starfað um
langan tíma á vegum norska Al-
þýðusambandsins og er hann
verkfræðingur að menntun.
Fiérar
myndastyttur
Fjórar myndastyttur hafa ver-
i« reistar og afhjúpaðar í
Reykjavíkurborg og eru sem
hér segir: í Hallargarðinum fyr-
ir sunnan Fríkirkjuna, „Stúlku-
mynd“, eftir frú Ólöfu Pálsdótt-
ur. Fyrir sunnan gamla kirkju-
garðinn, „Útlagar", eftir Einar
Jónsson myndhöggvara. Þá hafa
verið reistar í garðinum í Laug-
ardal tvær styttur eftir Ásmund
Sveinsson myndhöggvara. Það
eru „Systumar“ og „Móðir jörð“.
Þá er væntanleg stytta á
Klambratúninu næsta haust af
Einari Benediktssyni og verður
hún líklega afhjúpuð á aldaraf-
mæli skáldsins.
Nýr hæstaréttar-
lögmaður
Nýr maður bættlst f hóp hæsta-
réttarlögmanna hér í borginni,
Ingi R. Helgason, siðast liðinn
tnánudag að Iokinni þriðju og
síðustu prófraun. Málfiutningur-
Inn stóð yfir frá klukkan 10 til
17.30 í máli út af ráðstöfun ráð-
húslóðar á ísafirði undir tvíbýlis-
hús. Ingi flutti málið fyrir fé-
lagsmálaráðuneytið, áfrýjanda, en
Bárður Jakobsson hdl. flutti mál-
stað lóðarhafa, og var það einn-
íg prófraun hans.
Brynjólfur Jóhannesson
í hlutverki tiau
SigruBu / siómunnudugsróðrinum
Sjómannadagurinn var hátíðlegur haldinn sl. sunnudag og fóru hátíðahöldin hér í Reykjavík fram
með líku sniði og undanfarin ár. Myndirnar sem hér fylgja eru af sigursveitunum i róðri bæði karla
og kvenna. I karlakeppninnl sigraði sveit vélskipsins Guðmundar Þórðarsonar í 5. sinn en stýrimað-
ur var Haraldur Ágústsson. Sést hann á miðri my ndinni með Iárviðarsveig um hálsinn en auk hans
hlaut sveitin að launum fyrir sigurinn Fiskimann Morgunblaðsins. í kvennakcppninni sigraði sveit
fiskiðjuversins Isbjarnarins, stýrimaður Ásgerður Asbjamardóttir. Hlaut sveitin að verðlaunum bik-
ar sem Isbjöminn gaí í fyrra. Sjást stúlkurnar m eð bikarinn á myndinni. — (Ljósm. (Þjóðv. A.K.).
AFKOMA BÆNDA VAR MEÐ
LAKARA MÓr/ Á SL ÁRI
■ Aðalfundur Stéttarsambands bænda hófst í fyrradag
og er hann haldinn í Bændahöllinni. Aðalmál fundarins
er verðlag landbúnaðarafurða og sagði formaður sam-
bandsins, Gunnar Guðbjartsson, í skýrslu sinni á fundin-
um að verðlag landbúnaðarvara hefði á sl. ári ekki verið
í samræmi við reksturskostnað og bændur því ekki fengið
það kaup sem þeim bæri samkvæmt verðlagsgrundvellin-
um og miklu lægra kaup en þær stéttir sem við er miðað.
Tvær frumsýningar
í dag og á morgun
í kvöld frumsýnir Leikfélag
Reykjavíkur leikritið Brunnir
kolskógar eftir Einar Pálsson í
Iðnó. Er sýning Icikritsins einn
liður f listahátiðinni.
Brunnir kolskógar er leikþátt-
ungur og gerist leikurinn í
Móðuharðindunum haustið 1783
og er aldarfarslýsing og orðalag
að mestu eftir lýsingum séra
Jóns Steingrímssonar. Persónur
leiksins em 5 og fara Gísli Hall-
dórsson, Brynjólfur Jóhannes-
son, Kristín Anna Þórarinsdótt-
ir, Helga Baohmann og Pétur
F.inarsson með hlutverkin. Leik-
stjóri er Helgi Skúlason en leik-
tjöld málaði Steinþór Sigurðs-
sob og dr, Páli fsólfsson samdi
tónlist sem flutt er í leiknum.
Sýningartími er 1 klst og 20
mínútur.
Annað kvöld frumsýnir svo
Þjóðleikhúsið leikritið Kröfu-
hafana eftir August Strindberg
og er sýning þessi haldin á veg-
um Bandalags íslenzkra lista-
manna í tilefni af listahátíðinni.
Verður aðeins þessi eina sýn-
ing á leiknum. Leikst'jóri er Lár-
us Pálsson en leikendur eru
Helga Valtýsdóttir, Gunnar Eyj-
ólfsson og Rúrik Haraldsson.
Þýðinguna gerði Loftur Guð-
r ’-con rithöfundur en leik-
nálaði Gunnar Bjarnason.
K " hafarnir er langur ein-
þáttungur og tekur sýningin nær
eina og hálfa klukkustund.
Fundinn sitja 4 7 fulltrúar,
tveir frá hverju sýslufélagi nema
einn frá Vestmannaeyjum. Gunn-
ar Guðbjartsson formaður sam-
bandsins setti fundinn en fund-
arstjóri var kjörinn Bjarni Hall-
dórsson bóndi á Uppsölum.
f skýrslu sinni til þingsins
um störf sambandsins ræddi for-
maðurinn einkum um verðlags-
mál landbúnaðarins eins og áður
sagði og taldi að afkoma bænda
hefði verið með lakasta móti á
sl. ári þar eð verðlagning land-
búnaðarvara hefði ekki verið i
samræmi við reksturskostnaðinn
og hefðu bændur safnað tals-
verðum skuldum á árinu.
Að lokinni ræðu formanns
fóru fram fjörugar umræður um
skýrsluna og tóku margir til
máls. Siðan var kjörið i nefnd-
ir og sátu þær að störfum i
fyrrakvöld en fundir hófust að
nýju eftir hádegi í gær.
Blaðamenn
Framhald af 1. síðu.
og fara siðan til Finnlands.
Einn af blaðafulltrúum Al-
þjóðabankans, Viggo Christian-
sen, er fararstjóri, en blaða-
mennirnir eru sem fyrr segir 15
talsins, frá Bretlandi, Vestur-
Þýzkalandi, Frakklandi, ftaliu,
Sviss, Hollandi og Belgíu. Eru
þetta allt blaðamenn, sem sér-
staklega fjaila um »fnahagsmál
í blöðum sínum.
RúgbrauS og normal-
brauð bækka í verði
☆ Nú um helgina hækkaði verð á rúgbrauðum og
normalbrauðum allmikið, einkum á normalbrauðum og
sagði verðgæzlustjóri í viðtali við Þjóðviljann í gær að
hækkun þessi stafaði einvörðungu af hækkun á verði hrá-
efnis í brauðin.
☆ Fram að þessu hefur verið sama verð á báðum þess-
um brauðategundum og hefur 1500 gramma óseytt rúg-
brauð kostað 10.20 en hækkar nú í kr. 11.00 eða um 7,85%.
1250 gramma normalbrauð hefur einnig kostað kr. 10.20
en hækkar nú upp í kr. 12.00 eða um 17,65%.
Fékk dæmdar 60 þús
kr. í miskabætur
Nýlega felldi borgardómarinn í Reykjavík dóm í máli
Halldórs Gunnlaugssonar bónda að Öndverðarnesi í
Grímsnesi er árið 1960 var handtekinn og fangelsaður og
sendur til geðrannsóknar eftir kröfu barnaverndarráðs
vegna meintrar misþyrmingar bóndans á börnum sínum.
Voru Halldóri dæmdar hæstu miskabætur sem dæmdar
hafa verið hér á landi, kr. 60 þúsund.
Tildrög þessa máls vom þau
að 13. desember árið 1960 barst
barnavemdarráði kæra á hend-
ur Halldóri frá mági hans fyrir
illa meðferð á börnunum. Fóru
þrír menn úr ráðinu á vettvang
tveim dögum síðar til þess að
kanna málið og lyktaði því svo
að þeir báðu sýslumanninn é
Selfossi að handtaka Halldór og
var hann samdægurs fluttur að
Litla Hrauni og haldið þar til
12. janúar 1961 er hann var
færður að Kleppi til geðrann-
sóknar en þar var honum hald-
ið til 6. marz sama ár. 31.
ágúst 1961 tilkynnti svo sak-
sóknari að hann teldi ekki á-
stæðu til þess að höfða mál á
hendur Halldóri en 9. janúar
1962 höfðaði Halldór svo sjálf-
ur skaðabótamál gegn ríkissjóði
fyrir meðferðina á sér og er
nú dómur genginn í þvi máli.
Auk miskabótanna kr. 60 þús-
und voru Halldóri daemdar kr.
27.500 til greiðslu kostnaðar, þar
eð hann þurfti að ráða sér
ráðsmann á meðan hann sat
í varðhaldinu.
Málverkasalan á
Týsgötu 1 flutt
Málverkasalan á Týsgötu 1
er nú flutt á Laugaveg 30. Hef-
ur verið opnuð sýning í hin-
um nýju húsakynnum á um
100 málverkum ýmissa málara.
Eru þau bæði gömul og ný
og sýningin fjölbreytt. Sýning
þessi verður opin virka daga
frá kl. 1.30—7.
Skemmtiferð Sósíalistofé-
lagsins ó sunnudaginn
Myndin er af Hraunfossum í Borgarfirði, með sérkennilegri stöðum
tiér á Iandi, en þangað veröur m.a. komið í skemmtiferð Sósíalista-
félags Reykjavíkur á sunnudaginn kemur, 14. júni. Þetta er eins og
áður hefur verið skýrt frá ferð um Þingvöll, Kaldadal og efri
byggðir Borgaxfjarðar, farið úr Reykjavík klukkan 9.30 að morgni
og komið til borgarinnar aftur um kvöldið. Fararstjóri verður Björn
Þorsteinsson, sagnfræðingur, en til ferðarinnar verða eingöngu not-
aðir fyrsta flokks langfcrðabílar. Fargjaldið er 300 krónur, en þátt
takendur verða að hafa með sér nesti og æskilegt að þeir séu
þannig búnir til fótanna, að þeir treysti sér til nokkurra gönguferöa.
Annars er allar nánari upplýsingar um ferðina að fá í skrifstofu
Sósíalistafélags Reykjavíkur, Tjarnargötu 20. sími 17510. eða í
Ferðaskrifetofunni LANDSÝN, Týsgötu 3, sími 22890.
i