Þjóðviljinn - 21.06.1964, Síða 4
4 SlÐA
ÞJOÐVILJINN
Sunnudagur 21. júní 1964
Otgefnndi: Sameiningurt'loKkur alþýöu — Sósialistaflokk-
unnn —
Ritst.iórar: Ivar H Jónsson. Magnús Kjartansson (áb.).
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Siguröur V Friðþjófsson.
Ritstlórn afgreiðsla augtýstngar prentsmiðia. Skólavörðust 19
Sími 17-500 (5 línurl Askriftarverð kr 90 á mánuði
Örlög Sslands
jsland er bandarísk herstöð. Það er, eins og her-
námsblöðin þreytast aldrei á að taka fram,
hlekkur í keðju herstöðva sem spennir um veru-
legan hluta hnattarins. Því hefur verið haldið
fram að þessi herstöðvahringur væri vörn fyrir
frelsi og lýðræði; jafnvel greindir menn virðast
hafa ímyndað sér í fullri alvöru og í trássi við
staðreyndir að bandarísk yfirráð væru einhver
trygging fyrir þeim dyggðum, þær ættu sér eilíft
skjól í hinu vestræna risaveldi.
Jgn hvað er að gerast í Bandaríkjunum? Þar er
nú hafin ofboðsleg sókn fyrir því að koma í
forsetastól ofstækisfullum afturhaldsmanni, sem
boðar ofbeldi með kjarnorkuvopnum til þess að
koma fram vilja sínum á alþjóðavettvangi, beitir
sér fyrir glórulausri afturhaldsstefnu innanlands
og hervaldi Bandaríkjanna, öfl sem ráða yfir feikn-
aukið jafnrétti kynþáttanna. Á bak við Barry
Goldwater stendur ágengasti hlutinn af auðvaldi-
og herveldi Bandaríkjanna, öfl sem ráða yfir feikn-
arlegu fjármagni, blaðakosti, útvarpsstöðvum,
sjónvarpsstöðvum og öðrum þeim áhrifatækjum
sem fyrst og fremst móta hið einkar valta og ó-
sjálfstæða almenningsálit í Bandaríkjunum. Þessi
liðsskipan auðvalds og hervalds bak við pólitísk-
an ofbeldismann er að sínu leyti hliðstæð því sem
gerðist í Þýzkalandi fyrir rúmum þremur ára-
tugum þegar fjármálamenn og herforingjar lyftu
Adolf Hitler til þeirra valda sem urðu mannkyn-
inu dýrkeyptust. Þó er einn stór munur á. Adolf
Hitler hafði vald Þýzkalands eins að bakhjarli
þegar hann hóf sókn sína til heimsyfirráða. Barry
Goldwater myndi erfa það hers’töðvakerfi sem
spennir um verulegan hluta hnattarins; þær bæki-
stöðvar sem áróðurinn hefur kallað vörn frelsis
og lýðræðis yrði þá valdatæki fyrir ofstækisfull-
an afturhaldssinna sem ógnar mannkyninu með
helsprengjum fái hann ekki komið vilja sínum
fram. Einnig ísland yrði þá útvarðstöð í þágu of-
beldís, afturhalds og kynþáttamisréttis.
j^innig hernámsblöðin íslenzku hafa látið í ljós
mikinn ótta við sókn Goldwaters til valda. En
hverja ályktun ber að draga af þeim viðhorfum?
Þá. að íslendingar megi aldrei eftirláta erlendu
valdi örlög sín. hvorki af pólitískri heift né barna-
legri oftrú á verðleika annarra. Hættan á valda-
töku Goldwaters er augljós sönnun þess að sú
stefna ein er í samræmi við íslenzka hagsmuni
að landsmenn stiórni málum sínum sjálfir. frjáls-
ir og óháðir öllum stórveldasamsteypum. Um þá
stefnu ber mönnum að fylkja sér með Keflavíkur-
sön<umní í úarr ú+ífimdi Samtaka hernámsand-
stæðinga í kvöld. — m.
SKÁKÞÁTTURINN EE
RITSTJÓRI: ÓLAFUR BJÖRNSSON.
Sigrar Larsen í millisvæðamótinu?
Aðeins einni umferð er nú ólokið á millisvæðamótinu
í Amsterdam og fer hún fram í dag og biðskákir og
verðlaunaafhending fer fram á morgun. Það sem eink-
um hefur einkennt' síðustu umferðirnar er hin heiftar-
lega barátta sovétskákmanna um réttinn til að komast
áfram í áskorendamótið og mun ekki verða úr því skor-
ið fyrr en að síðustu umferð lokinni hverjir þrír þeirra
komast áfram Eini keppandinn, sem er öruggur, er Larsen
sem gengið hefur berserksgang, jafnvel stórskotalið sov-
étmanna hefur orðið að láta í minni pokann, en hann hef-
ur til þessa hlotið 214 gegn l’Æ gegn þeim, aðeins Stein
hefur tekizt að sigra hann. Mikla athygli hefur einnig
vakið hinn gífurlegi endasprettur Steins sem byrjaði illa
en hefur hlotið 12% úr 14 síðustu skákunum og hefur
jafna möguleika við þá Tal og Spasskí um að komast
áfram.
Staða fimm efstu manna fyrir síðustu umferð er þessi:
1. — 2. Smyslof og Larsen 16%
3. — 5. Tal, Spasskí og Stein 16.
Þættinum er kunnugt um þessi úrslit í 22. umferð:
Larsen vann Spasskí, Smyslof jafntefli við Rosetto, Tal
jafntefli við Darga.
Úr 18. umferð.
Hvítt: Vranesic.
Svart: Stein.
KÓNGSINDVERSK-VÖRN
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6,
3. Rc3 — Bg7, 4. e4 — 0—0,
5. f 3 —
(Hið svokalhða Sámischaf-
brigði sem oftast leiðir til
sk-arpra átaka og einmitt i
slíkum stöðum er Stein vel
heima).
5. — d6, 6. Be3 — b6
(Þessi leið hefur verið tefld
mikið upp á síðkastið en áð-
ur var 6, — e5 lang algeng-
ast).
7. Bd3 — Bb7, 8. Rge2 —
c5, 9. d5 — e6, 10. Dd2 —
exd5, 11. cxd5 — Rbd7, 12.
Rg3 —
(Algengnra áframhald i
slíkum stöðum er að sækja
á með g4 o. s. frv.).
12. — He8 13. Be2 — a6,
14. a4 — h5, 15. Bg5 — h4!
(Stein býður nú upp í dans,
ef hvítur drepur nú á h4 get-
ur svartur fórnað á e4).
16. Rfl — Rf8. 17. Dc2 —
h3, 18. g4 — R8h7, 19. Be3
— Hb8, 20. Hdl — Bc8,
(Svartur undirbýr nú að
sprengja upp á drottningar-
væng).
21. Rg3 — Rd7, 2. 0—0
— Re5, 23. Hbl — b5!, 24.
axb4 — axb5, 25. Rxb5 —
Ba6, 26. Ra3 — Bxe2, 27.
Dxe2 — Hb3, 28. Bd2 —
Rg5, 29. Bxg5
(Eina leiðin til að valda f3
reitinn, ef t.d. 29. Bc3 —
Rexf3f, 30. Hxf3 — Rxf3+,
31. Dxf3 — Bxc3, eða 30.
Be3 — Rxg4, 31. fxg4 —
Hxe3 o. s. frv.).
29. — Dxg5, 30. Rc4 —
Rxc4, 31. Dxc4 — Hfb8, 32.
Dcl — Dxcl, 33. Hbxcl —
Hxb2, 34. Hfdl — Hg2f og
hvítur gafst upp.
Úr 18. umferð.
Hvítt: Rossetto.
Svart: Bronstein.
CARO-KHAN-VÖRN.
1. e4 — c6, 2. Re2 —
(Sjaldgæfur leikur en þessu
lék Bronstein sjálfur gegn
Petrosjan á skákþingi Sovét-
ríkjanna fyrir nokkrum ár-
um)„
2. — d5, 3. e5 — c5, 4. d4
— Rc6, 5. c3 — Bf5, 6. Rg3
— Bg7. 7. dxc5 —
L0KAÐ
vegna sumarleyfisferðar starfsfólks
mánudaginn 22. júní.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Blaðamennska
Viljum ráða blaðamenn til starfa hið
fyrsta. Upplýsingar veita ritstjórar.
Larsén
(Það stríðir á móti regl-
unum að veikja miðborðið á
þennan hátt en á sér þó til
hliðstæður, sbr. einvígisskák-
ir Tals og Botvinniks).
7. — e6, 8. Bc3 — Rxe5,
9. f4 — Rc6, 10. Bd3 —
Bxd3, 11. Dxd3 — Rf6, 12.
Rd2 — Be7, 13. 0—0 — a5,
14. Rf3 — Rd7, 15. Db5 —
Dc7, 16. f5 — 0—0, 17. Khl
— Rd8, 18. b4 — Bf6, 19.
Bd4 — e5, 20. Bgl — e4, 21.
Rd4 — axb4, 22. cxb4 —Rc6.
23. Rge2 — Ha3.
(Hvítur er í miklum þreng-
ingum og grípur nú til þess
ráðs að gefa drottninguna
enda varlá uni annað' að ræða
úr þessu).
24. Rc2 — Ra7, 25. Rxa3
— Rxb5, 26. Rxb5 — Dc6,
27. Red4 — Bxd4, 28. Rxd4
— Da4, 29. a3 — Hc8, 30.
Hfcl — f6
(Svartur má nokkuð gæta
sín, ef t.d. 30. — Re5, þá
31. b5 — Rd3, 32. c6 -77 Rxcl,
33. cxb7, svo hann gerir rétt
í því að opna kóngi sínum
útgönguleið).
31. Hc3 — R«5, 32. h3 —
Rd3, 33. Hbl — g6, 34. Be3
— De8!
(Sterkur leikur. Nú opnast
drottningunni athafhasvæði á
kóngsvæng og þar verður hún
brátt mjög virk).
35. Hfl — Kf7, 36. Kgl —
De5, 37. Rb5 — Kg7, 38. Bd4
— Dg3, 39. Rd6 — Hf8, 30.
fxg6 — Hxg6, 41. Rxb7 —
Dg5!
(Sterkur leikur, hótar Dd2
og Rf4).
42. c6 — Dd2, 43. Khl —
e3 og hvítur gafst upp.
Úr 17. umferð.
Hvítt: Tal.
Svart: Vranesic.
SIKILEYJARVÖRN.
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 4.
d4 — cxd4, 4. Rxd5 — a6, 5.
Rc3 — Dc7 6. Be2 — b5, 7.
a3 — Bb7, 8. f4 — d6, 9.
0—0 — Rf6, 10. Bf3 — Rbd7,
11. De2 — h6, 12. Khl — e5,
13. fxe5 — dxe5, 14. Rd5 —
Dc4, 15. Dxc4 — bxc4, 16.
Rf5 — Rxd5, 17. exd5 — g6,
18. Re3 — Rb6, 19. Bd2 —
Hc8 20. Hael — Bg7, 21.
Ba5 — Rd7, 22. Be2 — 0—0,
23. Bxc4 — e4, 24. d6 -*
Re5, 25. Bb3 — Kh7, 26. Bc7
— f5, 27. Bd5 — Bxd5, 28.
Rxd5 — Rd7, 29. b4 — Be5,
30. c4 og svartur gafst upp.
Þyngd •
vara-
Sambyggða 5-falda trésmíðavélin „UNIVERSAI
Æigum enn óráðstafað nokkrum af þessum vin
fimm-földu trésmíðavélum á lága verðinu. —
in samanstendur af þykktarhefli og afréttar31'
breidd 16”, lengd hefilborðs 180 cm., 2 framdr
hraðar, hefilhæð 180 mm. — Ennfremur hjólsog,
fræsari og borvél. — Mótorar eru tveir og geta
því hæglegg tveir menn unnið samtímis. Inmbvoc'ð
rofatafla og útsláttarrofi’fyrir þykktarhefil.
1500 kg. Afgreiðsla eftir ca. 6 vikur.
— allskonar trésmíðavélar og eigum fý
irliggj andi mikið úrval af vélaverkfærum og
hlutum.
HAUKUR F.TÖRNSSON
Pósthússtræti 13
Símar 10509 — 24397.
REYK.TAVÍK.
I
4
4