Þjóðviljinn - 24.06.1964, Page 1

Þjóðviljinn - 24.06.1964, Page 1
Miðvikudagur 24. júní 11964 — 29. ásgangur — 138. tölublað. Samtök hernámsandstæðinga krefjast rannsóknar Kæra lögreglustjóra fyrir embættisafglöp □ í framhaldi af því sem sagt var frá í Þjóðviljanum í gær, að lög- reglustjórinn í Reykjavík hafi misbeitt valdi sínu til að koma fram ríkisútvarpinu ósönnum fullyrðingum um það hve margir menn voru upphafi Keflavíkurgöngunnar, hafa Samtök hernámsandstæðinga ritað saksóknara ríkisins og krafiz't opinberrar rannsóknar út af þessu máli og að lögreglustjóri verði dæmdur til þyngstu refsingar sem lög leyfa fyr- ir alvarleg embættisafglöp og misbeitingu valds. Nýr fréttamaður útvarpsins Samtök hernámsandstæðinga boðuðu til blaðamannafundar í gaer, þar sem þeir Jónas Ámason og Ragnar Arnalds röktu gang þessa máls. I kvöldfréttum rík- isútvarpsins í fyrrakvöld var les- in leiðrétting á fyrri fréttum út- Listsýningin opin til 28. júní ★ Listsýningin í húsakynnum Listasafns rikisins í Þjóðminja- safninu sem haldin er í tilefni Listahátíðarinnar hefur verið mjög vel sótt, sérstaklega á sunnudögum og eins kom mikill fjöldi manna að skoða hana 17. júní. Sýningin verður opin til annars sunnudagskvölds, 28. júní, klukkan 13.30-22.00 daglega. ★ Myndin hér að ofan er af einu Iistaverkanna á sýningunni, járnmynd eftir Sigurj. Ölafsson myndhöggvara. (Ljósm. Þjóðv. A.K.) Útvarpsráð neitar 1 gær samþykkti meirihluti útvarpsráðs að neita Samtökum hernámsandstæðinga að koma á framfæri í útvarpinu athugasemd við lygafrétt lögreglustjóra, einnig var neit- að að biría frétt um kröfuna til saksóknara um opinbera rannsókn og kæru á hendur lögreglustjóra. varpsins um fjölda þeirra sem hófu Keflavíkurgöngu. Leiðrétt- ing þessi var höfð eftir lögreglu- stjóranum í Reykjavik. Sigurjóni Sigurðssyni, og birt með sér- stöku samþykki menntamálaráð- herra, Gylfa Þ. Gíslasonar. Alröng leiðrétting Forystumenn hernámsandstaeð- inga sögðu á fundinum með blaðamönnum í gær: 1 fyrsta lagi er þessi ,,leiðrétting“ alröng og helber ósannindi og í öðru lagi hefur lögreglustjóri misnot- að aðstöðu sína og framið alvar- ieg embættisafglöp". Þeir kváðust hafa í höndum lista með nöfnum allra þeirra er hófu gönguna og geta sannað það annað hvort með vitnaleiðslum fyrir dómstól- um eða birtingu listans að fengnu leyfi göngumanna, að þeir sem hófu gönguna voru um 200 talsins en ekki ,,innan við 120 menn“ eins og lögreglustjóri fullyrðir. Aðalatriðið Hitt er samt aðalatriði í þessu máli að lögreglustjóri hefur með þessu tiltæki sínu framið aug- ljós embættisafglöp, hvort sem lögreglumaður sá sem staddur var við flugvallarhliðið hefur logið að húsbónda sínum um fjölda göngumanna eða lögreglu- sfjóri logið að ríkisútvarpinu. Hver er tilgangur lögreglustjóra að gerast þannig fréttamaður n'kisútvarpsins, og misbeita valdi sínu til að koma ósannindum sínum á framfæri? Opinber rannsókn Framkvæmdanefnd hemáms- Framhald á 9. síðu. í dag hefst sala aðgöngumiða á KÍEVBALLETTINN I dag, miðvikudag, hefst sala í Þjóðlcikhúsinu á aðgöngumiðum á Kíevballcttinn, en Iistafólkið kemur til iandsins 30. júní. Selt verður á fjórar fyrstu sýningarnar samtímis, en alls eru fyrir- hugaðar sex sýningar hjá ballettflokknum, N. k. föstudag kemur hljómsveitarstjóri Kíevballettsins tii Iandsins og byrjar hann að æfa með Sinfóníuhljómsveitinni á laugardaginn kemur. Fyrstu tvö kvöldin sem ballettinn sýnir, verður sama efnis- skráin, en þá verður breytt um efnisskrá. Mikil eftirspurn hefur að undanförnu verið eftir aðgöngumiðum á Kíevballettinn og er ekki að efa að mikið annriki verður á næstunni hjá aðgöngumiða- sölu Þjóðleikhússins. Á myndinni sjást tveir sólódansarar Kíev- ballettsins, N. Rudenko og K. Brudnov í úkraínskum þjóðdansi. 103 þúsund má/ til Raufarhafnar I gærmorgun var Síldarverk- smiðja ríkisins á Raufarhöfn bú- in að bræða f jörutíu þúsund mál og hafði þá tekið á móti hundr- að og þrjú þúsnnd málum á ver- tíðinni. Tvær þrær losna hjá verk- smiðjunni á sólarhring og fyll- ast þær jafnóðum aftur og allt- af eru fleiri og færri síldarbát- ar í höfninni. sem bíða losunar. 1 fyrrinótt náðu þrír bátar að landa hjá verksmiðjunni: Jón Finnsson GK 813 mál, Hafþór RE 408, Gísli lóðs GK 536. I gærdag biðu í höfninni Frey- faxi, Guðrún Jónsdóttir, Áskell og fleiri með samtals fimm þús- und mál til losunar. Óþolinmæði ríkir nú hjá sjó- mönnum með að hefjast handa um sumarsöltun á síldinni og hefur flogið fyrir hér að sænsk- ir síldarkaupmenn séu væntan- legir til landsins í dag og sé þá væntanlega rekinn endahnút- urinn á saltsíldarverðið. 56 þús. mól til Vopnafjarðar í gærdag var síldarverksmiðj- an á Vopnafirði búin að taka á móti fimmtíu og sex þúsund málum og er löndunarstöðvun öðru hvoru hjá verksmiðjunni. Þannig tekur sautján klukku- stundir að bræða úr hverri þró, sem tekur tvö þúsund og fimm hundruð mál. Sjö skip biðu í höfninni eftir losun með um 4 þúsund mál, Þau voru þessi: Straumnesið. Gunnhildur, Friðbert Guðmunds- son, Sæfell, Pétur Jónsson, Árni Geir. og Fjarðarklettur. Brælukaldi hefur verið á síld- armiðunum í dag og engin veiði ennþá, hvað sem verður úr nótt- inni. AFARMIKIÐ 0RÆFAMISTUR YFIR FLJÓTSDALSHÉRAÐI HALLORMSSTAÐ 23/6 — Hér hefur verið í dag afar-’®> mikið öræfamistur og virðist Austurland vera á hraðri leið á haf út. Það hefur verið svo dimmt að rétt grillir þvert yfir fljótið en hins vegar er alveg dimmt að líta inn í Fljótsdalinn og eins út yfir Héraðið og ekki sér til sólar. Það dimmdi yfir snögglega núna eftir . kaffið í dag. Þetta stafar náttúrlega af því að það hefur verið mjög hlýtt í veðri og mjög sterkur suðvestan vind- ur inn á öræfum. Það kom líka svona öræfamistur á sunnudag- inn var, þá var einnig anzi dimmt yfir að líta .og .sást lítið um skeið. Það er eins og það þyrlist upp svona rykský og svo fara þau hjá en það tekur nokkra klukku- tíma. Landið er svo sem enn að blása í stórum stíl. Annars er þetta ekki mjög algengt hér á Austurlandi. En það er anzi mikið mistur núna, t.d. fellur mjög á í gluggakistum. — Síbl. Samþykkt þessi var gerð með at- kvæðum þeirra Sigurðar Bjarna- sonar, Þorvalas ins, en gegn atkvæðum Þórarins Þórarinssonar og Þorsteins Hannessonar, sem lýstu því yf- ir, að þeir vildu taka athuga- semdina til birtingar með tilliti Garðars Kristjánssonar og Bene-. til málsatvika, en vildu hins dikts Gröndals, formanns ráðs- Framhald á 9. siðu. Málmiðnaðarmenn og skipa■ smiðir að hefja samninga | | Viðræður um nýja kaup- og kjarasamninga milli iðnaðarmannafé- . laga í málmiðnaði og skipasmíðum og atvinnurekenda þeirra hófust í gær. | | Iðnaðarmannafélögin sem þar eiga hlut að máli eru Félag ijárniðn- aðarmanna, Félag bifvélavirkja, Félag blikksmiða og Sveinafélag skipasmiða. | | Hófu fulltrúar þeirra félaga í gær viðræður við fulltrúa frá Meist- arafélagi járniðnaðarmanna, Meistara- félagi skipasmiða, Félagi blikksmiðju- eigenda í Reykjavík og Félagi bif- reiðaverkstæðaeigenda, ásamt fulltrúa frá Vinnuveitendasambandi íslands. | | Ekki er ósennilegt að fleiri laun- þegafélög úr Málmiðnaðar- og skipa- smiðasambandi íslands komi inn í þessa samninga ásamt hinum fjórum félögum sem byrjuðu þá með samn- ingafundinum í gær. [7] Samningafundum fulltrúa Dags- brúnar og atvinnurekenda er haldið áfram. fþróttanámskeið fyrir börn í ^ópavogi Sumarnámskeið í frjálsum í- þróttum, boltaleikjum og fleiru fyrir börn á aidrinum 5—12 ára hefst 29. júní n.k. á vegum Æskulýðsráðs Kópavogs. Nám- skeiðið stendur til 26. júní og verður til skiptis á völlunum við Vallargerði og Smárahvamm. Þátttökugjald er kr. 25.00 fyrir allt námskeiðið. Kennari verður Ólafur Unnsteinsson íþrótta- kennari. Upplýsingar og innrit- un á námskeiðin eru í sfma 11447 milli kl. 12 og 14 daglega. Landfræðiráð- stefna í Reykjavík Dagana 2.—13. júli n.k. verð- um á landafræði. Ráðstefna um endurskoðun á kennslubók- um í landafræði. Ráðstefna þessi er hin fjórða og síðasta um þetta efni, sem Evrópuráð- ið hefur forgöngu um, og munu sitje hana rúmlega 4: fulltrú- ar og aðallega fjalia um Norð- ur-Evrópu og það, sem um þennan hluta álfunnar er að finna í kennslubókum og landa- bréfabókum, * j

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.