Þjóðviljinn - 24.06.1964, Síða 5

Þjóðviljinn - 24.06.1964, Síða 5
MiSvikudagur 24. Júní 1964 "n..' ; r.r' i 'i íh.~. ' ' ■ ----- HÖÐVHJINN SÍÐA g Heimsmcthafinn Ármin Hary fag-naSi sigri á síðustu OL. Kanadamaðurinn Harry Jer- ome, — Verður hann fyrstur undir 10 sek? Kristleifur til Berlínar 1 vetur barst Frjálsíþrótta- sambandi Islands boð um að senda einn keppanda ásamt fararstjóra á alþjóðlegt frjálsí- þróttamót. sem haldið verður í Austur-Berlín n.k. laugar- dag, 27. júní. Boðið kom frá austurþýzka frjálsíþróttasam- bandinu. Stjórn FRÍ hefur valið Krist- leif Guðbjörnsson til fararinn- ar, og mun hann keppa í 500 metra hlaupi á mótinu. Með Kristleifi fer Svavar Markús- son, stjómarmaður í FRl. \ ÍBA-KS 4:1 Akureyringar unnu auðveld- an sigur yfir Siglfirðingum í 2. deild knattspymunnar. Leik- urinn fór fram á Akureyri á sunnudaginn. Úrslitin urðu 4:1, en yfirburðir Akureyringa voru þó meiri en markatalan segir til um. Þetta er annar leikur Akureyringa í 2. deild í sumar og annar sigur. Sigl- firðingar hafa hins vegar tapað tveim leikjum. Fyrir Akureyri skoruðu á sunnudaginn þeir Skúli, Kári og Steingrímur. en fyrir Siglu- fjörð Sævar Gestsson. Staðan í 1. deild Staðan í 1. deild knattspyrn- unnar er nú þessi: L U J T M St. IBK 3 3 0 0 14:6 6 KR 4 3 0 1 9:5 6 lA 5 3 0 2 11:10 6 Valur 5 2 0 3 14:14 4 Þróttur 4 1 0 3 5:10 2 Fram 5 10 4 11:17 2 HiólborSoviðgerðir OPID ALLA DAGA (LlKA LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA) FRAKL. 8 TIL 22. Gúmmívinnustofan h/f Skiphold 35, Reykjavik. Gegnum //hljóðmúrinnn * % HVER HLEYPUR 100 m. FYRSTUR UNDIR 10 sek? Spretthlauparar heimsins standa nú frammi fyrir því viðfangsefni að brjótast í gegnum nýj- an „hljóðmúr“. Það liggur í loftinu að ekki muni líða á löngu þar til 100 m. verða hlaupnir á skemmri tíma en 10 sekúndum og 200 m. undir 20 sek. Hverjir verða fyrstir til að vinna þessi langþráðu og ótrúlegu afrek? Heimsmetið í 100 m. hlaupi er 10,0 sek., og hafa tveir menn hlaupið á þeim tíma: Þjóðverjinn Armin Harry og kanadíski blökkumaðurinn Harry Jerome„ Báðir náðu sín- um bezta árangri árið 1960, Jerome varð að hætta um ára- bil vegna meiðsla, en Harry er löngu hættur keppni af öðr- um ástæðum. Nú er nafni Jer- ome aftur skotið upp á stjörnu- himininn. Fyrir nokkrum dög- um hljóp hann 100 m. tvíveg- is á 10,1 sek sama daginn á móti í USA. Hann ætlar sér olympíusigur í ár (eins og reyndar fleiri), og ekki er ó- líklegt að hann verði fyrstur í gegnum „hljóðmúrinn“. 1 hinum enska heimi eru gjaman hlaupnir 110 jardar og 220 jardar, en hin vinsæl- asta grein spretthlaups í Evr- ópu er 100 m., og það er líka hin klassíska olympíugrein á- samt 200 m. 100 m. eru alltaf vinsælli keppnisgrein en 200 m. Það er meiri taugaspenningur yfir þessum stutta spretti, og beztu 100 m hlauparar heims eru frægir á við þekktustu kvik- myndastjömur. Ótrulegur hraði Það er þó athyglisvert, að það næst raunverulega meiri hraði í 200 m hlaupi en 100 m., vegna þess auðvitað að viðbragðið er hraðaminnsti hluti hlaupsins, og vel þjálfað- ir menn halda fullum sprett- hraða 200 m. Mesti meðal- hraði sem nokkur maður hefúr náð á sprettinum er 36,210 km á klst. Þessum ótrúlega hraða náði Bandaríkjamaðurinn Dave Srme, er hann setti heimsmet- ið í 220 jarda hlaupi — 20.0 sek. árið 1956. Meðalhraðinn á heimsmetssprettinum í 100 m. var örlítið yfir 36 km á klst. Þegar Bob Hayes setti heims- metið í 100 jarda hlaupi (9.1 sek) var meðalhraði hans 36,174 km á klst. Árið 1847 var heimsmetið 100 m hlaupi 11,5 sek., sett af Bandankjamanninum Ste- ward. Potter (USA) náði 11,25 í París 1884, og Baker (USA) 11,2 sek., tveim árum síðar. Krjúpandi viðbragð Pyrstur til að hlaupa 100 m undir 11,0 sek. varð Banda- ríkjamaðurinn Gary. Það vakti mikla furðu þegar Bandankja- maðurinn Burke' notaði krjúp- andi viðbragð í 100 m. á ol- ympíuleikunum í Aþenu 1896. Burke sigraði dg aðferð hans breiddist óðfluga út um heim- fcm. Úr þessu urðu framfarirnar stórstígar. Svíinn Lindberg setti heimsmet — 10.6 sek. ár- ið 1906. Þrem árum seinna hljóp R. Walker (S-Afríku) á 10Æ. Árið 1912 ákvað ATþjóða- frjálsíþróttasambandið loks að staðfesta heimsmet opinber- ■jír "sír 'jir Árið 1956 var 20 ára gömlu hcimsmeti Jesse Owens í 100 m. hlaupi hrundið á óvæntan hátt. Það voru Willie Williams (t.v) og Ira Murchison (t.h.) sem báðir hlupu á 10,1 sek í keppni á olympíuleikvanginum í Berlín, þar sem Owens hafði sett met- ið á olympíuleiknnum 20 árum áður. Jesse Owens vann fem gullverðlaun á OL 1936 og setti heims- met í 100 m. hlaupi — 10,2 sek. Frjálsar íþróttir UNGLINGAMÓT- IÐ11.-13. JÚLÍ U .*• Lvi v J* . f ! ! .1 '•*>! ííujj* Unglingameistaramót Islands í frjálsum íþróttum fer fram á Laugardalsvellinum í Rvík dagana 11.-13. júlí nk. Keppt verður í eftirtöldum greinum skv. leikreglum FRl. Fyrsti dagur: 100 m. hlaup, kúluvarp, hástökk, 110 m grindahlaup, langstökk, 1500 m hlaup. spjótkast og 400 m hlaup. Annar dagur: 200 m hlaup, kringlukast, stangarstökk, 3000 m hlaup, sleggjukast, 800 m hlaup, þrístökk og 400 m Þriðji dagur: 4x100 m boð- hlaup. 1000 m boðhlaup og 1500 m hindrunarhlaup. Þátttaka er heimil unghng- um fæddum 1944 eða síðar, þó aðeins drengjum sem fæddir eru 1946 eða sáðar með leyfi hlutaðeigandi sérráðs eða hér- aðssambands. Þátttökutilkynn- ingar sendist stjóm FŒtf, póst- hólf 109 Reykjavík í síðasta lagi viku fyrir mótið. — CFrá FRfy. Knattspyrnan -1. deild KR VANN FRAM NAUM- LEGA 1:0 Í 0FSAVEÐRI Það þurfti mikla karlmennsku til að fara fá- klæddur út í veðurhaminn, rok og rigningu, sem geisaði yfir endilangan Laugardalsvöllinn á mánudaginn, og hafast þar við í 90 mínútur í baráttu um knöttinn. Það merkilega var að það virtist einhvernveginn jafnerf- itt að hafa ofsann i brjóst og bak. Að sjálfsögðu þybbaðist vindurinn móti . knettinum þannig að þó spymt væri all- hátt og framá við, gerði hann sér lítið fyrir að koma aftur á sama stað, eða aftar, niður. Ætti knötturinn að fara rólega og hnitmiðað undan stormin- um, gat hann gert sér lítið fyr- ir og svifið langt yfir skammt eða til allra hliða. Þrátt fyrir þessar aðstæður var mesta furða hvað leik- mcnnuni tókst upp að leika saman og reyna að ná út knatt- spymu, og það var greinilegt að allir voru innstilltir á að finna hvern annan. og fikra sig þannig áfram móti mót- herjum og veðurguðum. KR lenti í þvi að leika á móti storminum í fyrri hálf- leik, og var leikur þeirra oft góður. Þeim tókst oft að ná góðum áhlaupum alla leið inn á vítateig Fram, og skapa sér þar skottækifæri, eins og Gunnari tókst á 20. mínútu. Að sjálfsögðu lá meira á KR. því leiðin með knöttinn undan vindinum var hæg, og voru Framarar stundum allnærgöng- úlir við Heimi, sem þegar á 5. mínútu varði með prýði. og nokkru síöar skoraði Grétar en hann var rangstæður. Á 15. mínútu á Hinrik Ein- arsson hörkuskot i slána fyrir ofan hendur Heimis en KR- ingar standast allan storm. Á 27. mínútu á Grétar góðan skalla rétt framhjá marki KR, annars gengúr Fram-mönnum illa að sameinast fyrir framan markið, því vöm KR var þar þétt fyrir og svo var vindurinn búinn að gera þeim skráveifu áður en þeir vissu. Fyrri hálf- leikurinn endaði því með jafn- tefli — 0:0. Framarar betri en búizt var við Yfirleitt var við þvi búizt, að nú mundi KR sigra með yfir- burðum, eftir að hafa staðizt storminn og Fram með skemmtilegri baráttu og vilja. En hvað skeður? — Framarar taka upp samleik sem stendur lítið að baki því sem KR sýndi í fyríi hálfleik, og þeir sækja hvað éftir annað. Að vísu sköpuðu KR-ingar sér fleiri hættuleg áhlaup, og það sem gerði út um leikinn kom á 10. mínútu, er öm Steinsen lék upp hægra meginn og gaf fyrir til Ellerts. sem var óvaldaður á vítateig, og skallaði mjög fallega í markið óverjandi fyrir Geir. Örskömmu síðar ver Sigurð- ur Einarsson á línu. Nokkm síðar er Theodór Guðmundsson kominn innfyrir, en Geir veður á móti honum og lokar, þann- ig að Theodór rennir knettin- um framhjá mannlausu mark- inu. Og enn er það Sigurður sem bjargar á línu. Á 32. mín- útu á Gunnar Felixson gott skot á mark Fram en Geir ver laglega í horn. Á 35. mínútu eru það Fram- arar sem eru í skotfæri eftir ágætt áhlaup, en skot Hinriks fer nokkuð fyrir ofan, og var vindurinn þar með sín belli- brögð að verki. En, sem sagfc. furðu góður leikur miðað við aðstæður, fullur af baráttu og tilraunum til að fá það bezta útúr veðri, vindi og leik. Á- horfendur sýndu ekki síður hetjuskap að haldast við á á- horfendapöllum, en vafalaust hefur yljað þeim sá baráttu- andi sem bæði lið sýndu, og sú spenna sem var í leiknum þrátt fyrir allt. 1 liði KR-inga voru beztir Gunnar Guðmannsson, Sveinn Jónsson. og Þórður Jónsson slapp vel frá miðvarðarsöðunni, en Þorgeir lék ekki með að þessu sinni. Ellert var einnig nokkuð góð- ur en virkar heldur þungur. Annars féll liðið heldur vel saman. Af Frömurum voru beztir þeir Guðjón. Hinrik og Sigurð- ur Einarsson. Ólafur Ólafsson framvörður er gott efni, sem Fram getur vænzt mikils af. Geir í markinu varði yfir- leitt vel. Þetta Framlið var ekki svipað því sem lék á móti Þrótti um daginn. Nú barðist það með vilja og krafti leitandi að leik sem væri jákvæður fyr- ir liðið. Sigurður Friðriksson varð að yfirgefa völlinn í lok fyrri há' 'leiks, vegna meiðsla, en en Halldór Lúðvíksson kom í hans stað og rlapp vel frá því. Dómari var Baldur' Þórðarson og dæmdi vel.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.