Þjóðviljinn - 28.06.1964, Síða 4
4 SÍÐA
ÞIÖÐVILIINN
tJtgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: ívar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 5 mánuði
Framtíðarverkefni
j^orrænu fiskimálaráðstefnunni, sem staðið he'fur
í Reykjavík undanfarna daga, er nú lokið.
Ráðstefnan er ánægjulegur vottur um vaxandi
samstarf frændþjóðanna á Norðurlöndum á þessu
sviði, og er það ekki hvað sízt mikils virði fyrir
okkur íslendinga svo mjög sem afkomá okkar
byggist á sjávarútvegi. Ekki fer heldur á milli
mála, að Íslendingar standa í fremstu röð fisk-
veiðiþjóða, bæði hvað snertir veiðitækni og afla-
magn á sjómann og er okkur það að sjálfsögðu
gleðiefni að geta einnig miðlað öðrum af reynslu
okkar. En jafnframt hljófum við að leiða hug-
ann að þeim verkefnum, sem framundan eru hjá
okkur á sviði sjávarútvegsmála. Það fer naumast
á milli mála, að þar ber tvenn verkefni hæst;
verkefni, sem núverandi stjórnarvöld hafa sýnt
alltof mikið tómlæti og skilningsleysi, en þau eru
að koma upp fullkominni aðstöðu innanlands til
skipasmíða og skipaviðgerða og fullkomnum verk-
smiðjukosti til fullvinnslu og gernýtingar sjávar-
aflans, áður en afurðirnar eru seldar úr landi.
þjóðviljinn hefur oft bent á það, að það er ekki
vanzalaust fyrir íslendinga, að þurfa að sækja
sVö til einvörðungu til annarra þjúða ekki aðeins
varðandi nýsmíði skipa heldur og að verulegu
leyti með viðgerðir skipastólsins. íslenzkir skipa-
smiðir hafa þegar sýnt og annað að þeir eru fylli-
lega samkeppnisfærir við erlenda aðila í þessum
efnum; vinna þeirra og frágangur allur á skipum
sem þeir hafa smíðað stendur sízt að baki því sem
bezt gerizt meðal erlendra starfsbræðra þeirra..
En þeir hafa hins vegar ekki haft neitt svipaða
aðstöðu; fullkomin skipasmíðastöð er stórt fyrir-
tæki á okkar mælikvarða og ekki á færi einstak-
linga að ráðast í slíkar framkvæmdir af eigin
rammleik. Það hefur um árabil verið baráttumál
Alþýðubandalagsins á alþingi, að ríkið beitti sér
fyrir því að greiða svo fyrir skipasmíðum innan-
lands að við gætum orðið sjálfum okkur nógir að
sem mestu leyti á þessu sviði. En þar hefur jafn-
an verið talað fyrir daufum eyrum ríkiSstjórnar-
innar. Það eru hins vegar gleðitíðindi að Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur hefur nú í hyggju að ráð-
ast í framkvæmdir á þessu sviði.
^lþýðubandalagið hefur einnig markvisst barizt
fyrir því, innan þings og utan, að tekin væri
upp fullvinnsla íslenzkra sjávarafurða, áður en
þær eru fluttar úr landi. Með skynsamlegri heild-
arskipulagningu á framleiðslustörfum þjóðarinn-
ar væri unnt að framkvæma byltingu á sviði mat-
vælaiðnaðar í landinu, og stórauka þannig verð-
mæti alls útflutnings okkar. Og það má telja full-
víst, að einmitt á sviði matvælaiðnaðar eru og
verða fyrir hendi einhverjir beztu markaðsmögu-
leikar í heiminum. Þau tvö meginverkefni, sem
hér hefur verið drepið á, innlendar skipasmíðar
og uppbygging matvælaiðnaðar, eru því brýnus'tu
framtíðarverkefni okkar og Alþýðubandalagið
mun ótrautt halda áfram að beita sér fyrir fram-
gangi þeirra. — b.
Sunnudagur 28. júní 1984
L.Í.Ú: hefur með harðdrægni
reynt að skerða hlut sjómanna
Virðulegi formaður Lands-
sambands íslenzkra útvegs-
manna, hr. Sverrir Júlíusson.
Á dauða minum átti ég von
en ekki því að ég fengi svona
rækilegt bréf frá yður, og ég
rétt á förum í sumarfrí! Ef
þér hefðuð skrifað mér, sett
í umslag og frímerkt og trúað
póstinum fyrir því hefði ég
svarað á sama hátt. En fyrst
yður þótti rétt að prenta bréf-
ið í Morgunblaðinu finnst mér
kurteislegra að prenta svarið
líka, ekki sízt þar sem ég hef
greiðan aðgang að blaði en
þér eigið undir högg að sækja
með birtingu. samanber hína
angui-væru játningu yðar að
LllJ eigi ekkert málgagn.
Mætti ég byrja á því að
þakka vinsamleg ummæli i
minn garð sem finna má oftar
en elnu sinni í bréfinu, þeim
mun fremur sem rétt mun
hermt að við höfum hvorki
hitzt né talazt við. (Ég hef
séð mynd af yður í Morgun-
blaðinu). Og ég er ekki betur
að mér en þér um ævisögur.
Mér er alveg ókunnugt um
uppruna yðar, ætterni og eink-
anleg áhugamál, og hefði
s.ennilega aldrei minnzt á yður
í Þjóðviljanum ef þér hefðuð
ekki verið í forystu LlO og
herskár bardagamaður Sjálf-
stæðisflokksins. Ég tek þetta
fram að gefnu tilefni, við yð-
ur persónulega á ég ekkert
misklíðarefni, heldur einungis
sem formann harðdrægra at-
vinnurekendasamtaka og stjórn-
málaandstæðing í fremstu röð.
Það sem meira er, ég gef
ekki orða bundizt Um það
fróma hugarfar sem mér finnst
örla á í bréfi yðar. 1 aldar-
fjórðung hef ég' hlustað á I-
hráldsMrrgmérin tala á Alþingí
og lesið Morgunblaðið enn
lengur. Og þetta er í fyrsta
sinni sem ég verð þess var að
íhaldsmaður hafi helzt ekki
getað hugsað sér ókunnugan
stjórnmálaandstæðing öðru
vísi en með geislabaug! Ég
verð að hryggja yður með þvi
að sú hugsýn yðar er fjarri
lagi; helzt er ég á því að
hvorugum okkar færi slíkt
höfuðdjásn vel. fremur en öðr-
um venjulegum breyzkum
mönnum.
★
Það er líka oflof í bréfi yð-
ar að ég skrifi allt það sem i
Þjóðviljanum er birt um hags-
munamál sjómanna; þar eiga
margir fleiri hlut að, mætti
ég t. d. minna á hinn vinsæla
þátt Jóhanns Kúlds. Fiskimál,
hvem þriðjudag. Varðandi mál-
ið sem yður virð'st efst í hug,
uppgjörið í vor. áttu margir
sjómenn og meira að segja út-
gerðarmenn hlut að skrifum
Þjóðviljans. Og virða má mér
til vorkunnar að mér finnst
hálfgerður LlO-keimur að upp-
mælingu og lengdarútreikning-
um yðar á greinum Þjóðvilj-
ans um hagsmunamál sjó-
manna og sjávarútvegsins. Ö-
ljóst er hvort átt er við línu-
lengd eða dálkalengd, og
feykispaugileg sú ályktun, að
þar sem greinar um tiltekið
efni í Þjóðviljanum hafi num-
ið 80—90 m (!) dagana 28. maí
til 12. júní, hljóti skrif um
sama efni frá 6. maí til 12.
júní að nema 200 m! Að slík-
um uppmælingum og ályktun-
um er ósvikið LlO-bragð.
Hins vegar gæti allt þetta
uppmælingatal vðar og álykt-
anir haft aðrar afleiðingar, að
betta vrði ábending til sjó-
manna sem l°sa Morgunblað:ð
(og f'nnst ^ð alltaf vera mál-
eaen-T.TO l’»«ar á reynir t
kípfsm-1''’'-' að verulegum
hluta af rúmí Þióðviljans sé
varið til að fjaila um hags-
munamál sjómanna, og skal
sú auglýsing sízt vanþökkuð.
★
En mér finnst tommustokks-
sjónarmið á ritað mál heldur
ógáfulegur mælikvarði. Og
fullyrðingar yðar að Þjóðvilj-
inn hafi á sjómannadaginn
birt ,,óhróður um útvegsmenn”
i metratali er alveg tilhæfu-
laus, nema það skuli teljast
óhróður um útvegsmenn að
rifja upp svo eftir verði tekið
framkomu LlO-stjómarinnar
og fleiri samtaka útgerðar-
manna í kjaramálum sjómanna,
en um það er þá ekki við mig
að sakast.
★
Mér fannst þetta opna bréf
yðar viðurkenningarvottur úr
óvæntri átt um að skrif Þjóð-
viljans hefðu haft áhrif. Það
er ekki launungarmál að Þjóð-
viljinn verður oft var við að
sjómenn og meira að segja út-
gerðarmenn kunna að meta
skrif blaðsins um hagsmuna-
málin og sjávarútvegsmál.
Minnist ég sérstaklega í því
sambandi baráttu Þjóðviljans
fyrir nýsköpunarstefnunni á
stríðsárunum og fyrstu árin
eftir stríð, langvarandi stríðs
um 12 stunda hvíld togarahá-
seta, baráttunnar um stækkun
landhelginnar og átakanna við
gerðardómsmennina 1962.
Sárindi yðar vegna síðast-
talda málsins, baráttunnar
gegn gerðardóminum, v'rðast
enn ekki læknuð. Þjóðviljinn
þarf áreiðanlega ekki að
skammast sín fyrir þann slag,
þó yður tækist að rýra nokk-
uð sjómannahlutinn áður en
lauk, vegna ónógrar samheldni
sjómannafélaganna. Otreikn-
ingamir á ,,hlut útgerðar-
manns” sem þér minnizt á frá
þvi sumri voru gerðir að gefnu
tilefni. Þegar mótmælum báta-
sjómanna gegn gerðardómin-
um tók að rigna yfir. birti
LlO-stjómin útreikninga á
aflahlut sjómanna á nokkrum
aflabátunum, þeirra sem mót-
mæltu, eins og því til sönnun-
ar að þeir sjómenn fengju
sannarlega nóg í sinn hlut.
Þjóðviljinn bætti þá einni út-
reikningstölu við þes3a
,,skýrslu” LlO, um hlut út-
gerðarmannsins, og byggt var
á sömu tölum. Þarna var ekki
verið að gera neina sundurlið-
aða reikninga á útgerðarkostn-
aði. heldur snúið vopni LÍO að
því sjálfu. Og virðist því svíða
undan skeinunni enn, fyrst
þér eruð að rifja þetta upp nú.
★
Gremja yðar í garð Þjóð-
viljans vegna greina blaðsins
og frétta um uppgjörið í vor
er skiljanleg, og virðist tjá s
bann skilning yðar að blað;nu
hafi að talsverðu leyti verið
að „kenna” að yður og félög-
um yðar tókst ekki nema að
nokkru leyti að láta útgerðar-
menn hlýða þeirri fyrirskipun,
að gert skyldi upp fyrir þorsk-
veiðarnar í nót samkvæmt
netakjörum.
Svo fór að þeirri fyrirskipun
var ekki hlýtt nema af for-
hertustu útgerðarmðnnum. Og
þér meeið trúa því, að það voru ;
ekki fallegir orðalepparnir
sem sumir útgerðarmenn völdu '
stjórn LlO i vor og þessari
viðleitni hennar að hafa fé af
sjómönnum. Yður er það sjálf-
sagt kunnugt að til eru all-
margir útgerðarmenn, sern
skilja að það er líka útgerð-
inni fyrir beztu að sjómönn-
um finnist ekki að verið sé
að beita þá bolabrögðum til
að hafa af þeim samnings-
bundinn hlut.
Ekki reyndist stætt á fyrir-
skipuninni ÍJ’á LlO um upp-
gjör fyrir þorskveiðar í nót
samkvæmt netakjörum. Bát-
amir sem voru með nót í
fyrra gerðu refjalaust upp
samkvæmt hringnótasamning-
unum. Það var ekki fyrr en
hinn gífurlegi þorskafli barst
á land í Vetur ,að stjóm LlÚ
virðist hafa komið það snjall-
ræði í hug að neita að standa
við hringnótasamningana og
sendi fyrirskipun sína um upp-
gjör eftir netakjörum.
★
Mig langar að minna yður á
að fleirum en Þjóðviljanum
blöskraði fyrirskipun LÍO um
uppgjörið, og henni var harð-
lega mótmælt af réttum aðil-
um. Sjómannasamtök (sem
þingflokksbróðir yðar Pétur
Sigurðsson er valdamaður í)
lýstu því opinberlega yfir að
sjómenn væru „agndofa”
vegna þessa tiltækis LlO. Öll
sjómannafélögin á Suðvestur-
landi og einnig Farmanna- og
fiskimannasambandið mót-
mæltu harðlega fyrirskipun
LlO-stjórnarinnar. Þjóðviljinn
tók einn blaða málið rækilega
til meðferðar og studdi mál-
stað sjómanna og túlkaði
þe'rra mál.
Því máli er langt frá lokið
enn. En aðaldrættir þess urðu
að margir bátanna gerðu heið-
arlega upp. Sjómannafélagið
Jötunn í Vestmannaeyjum
hafði vaðið fyrir neðan sig og
birti strax í vertíðarbyrjun i
fyrra auglýsingu um að þorsk-
veiðarnar í nót heyrðu undir
hringnótasamningana. 1 þeim
samningum er skýrt tekið fram
að þeir gildi bó annar fiskur
en síld sé veiddur í nót.
Hafnarfjarðardómurinn marg-
nefndi breytir engu um þetta
deilumál, og það er óskiljan-
leg glópska ef einhverjir af
forystumönnum sjómannafé-
laganna hafa haldið að Hafn-
arfjarðarmál'ð væri úrskurðar-
mál. Þjóðviljinn behti á. áð-
ur en tíómur féll, að það mál
gæti ekki haft almenna þýð-
ingu, enda bar dómurinn þess
sjálfur vitni þegar til kom.
★
Svo fór að flestir Vest-
mannaeyjabátamir gerðu upp
samkvæmt hringnótasamning-
unum eins og árið áður. Afla-
bátarnir hér við Flóann tóku
að gera upp heiðarlega hver af
öðrum, hvernig sem LlO-stjóm-
in lét. Rétt í byrjun síldveið-
anna gáfu sjómenn Rafnkels-
staðafeðgum eftirminnilega
kennslu í mannasiðum. Það
varð nýtt áfall fyrir LlO-
stjórnina, hjá þeim feðgum
vantaði ekki viljann. Enn er
reynt að hanga í óljósum og
ófullkomnum skráningum og
vitnað óspart i Hafnarfjarðar-
dóminn. Það er veikt hald,
því í þeim dómi kemur glöggt
fram, að hann er byggður á
rangri og blekkjandi skráningu
skipshafnarinnar. Sjómanna-
félögin eru nú að vinna í þess-
um málum, þeim sem eftir
eru, að því er mér hefur skil-
izt. En aðalherferð LlO-stjórn-
arinnar rann út í sandinn, svo
er fyrir þakkandi.
★
Að sjálfsögðu hef ég enga
aðstöðu til að hafa áhrif á
hvort sjómannafélögin gera
sérsamninga um þessar veiðar,
eins og þér mælizt til. En ég
vildi mega vara yður og LÍO
við því að ganga til slíkra
samninga þegar að þeim kem-
ur með þeirri ætlun að knýja
fram lækkanir á aflahlut sjó-
manna, frá því sem er í gild-
andi hringnótasamningum;
fremur þyrfti sá hlutur að
stækka. Samninga um að rýra
hlutinn þurfa sjómenn ekki að
gera og eiga ekki að gera.
★
Þér fyrirgefið vonandi að ég
læt nægja að þessu sinni »ð
rifja upp þessi atriði, en ræði
ekki öll atriði bréfs yðar.
Hvorki vil ég reyna um of á
þolrif uppmælingastarfsliðs ýð-
ar né þolinmæði, en minni ýð-
ur jafnframt vinsamlegast á,
að það er ekki í yðar verka-
hring að setja mér „rannsókn-
arverkefni”. Hinu get ég lof-
að yður, að Þjóðviljinn mun
halda áfram að verja verulegu
rúmi fyrir skrif um hagsmuni
sjómanna og velferðarmál is-
lenzks sjávarútvegs. Mér þyk-
ir líklegt að þáttur Þjóðvilj-
ans í þeim málum muni met-
inn öðru vísi en þér gerið, þó
síðar verði. Þannig hefur far-
ið með baráttu blaðsins óg
þeirra stjórnmálasamtaka sem
að því standa fyrir málúm
eins og nýsköpun sjávarútvegs-
ins í stríðslok, 12 stunda hvfld-
inni á togurunum, 12 mílna
landhelginni. öflun stórra fiski-
báta á vinstristjórnarárunum
og mörgum öðrum. Nú skamm-
ast menn sín yfirleitt fyrir- að
hafa verið á móti þessum mál-
um. En um þau varð að berj-
ast til að fá þeim framgengt.
★
Hafi Þjöðviljinn undanfarín
ár og nú í vor beitt sér af
nokkurri hörlcu gegn LlO-
stjórninni er það vegna þess
eins, að hún hefur gengið
fram fyrir skjöldu annarra
samtaka atvinnurekenda og
reynt að rýra samningsbúnd-
inn hlut sjómanna, á sama
tíma og allar aðrar vinnustétt-
Framhald á 9. síðu.
Öllum þeim sem heiðruðu mig með heim-
sóknum, gjöfum og heillaskeytum eða
sýndu mér vinsemd á annan hátt á fimm-
tugsafmæli mínu 16. júní sl. sendi ég alúð-
arþakkir.
Lúðvík Jósepsson.
SVARAD OPNU BRÉFI
SVERRIS JÚLÍUSSONAR