Þjóðviljinn - 28.06.1964, Page 10
Maria Maggiore, tignarlegri og
fráhrindandi.
— Einhvem tíma aetla ég að
stanza héma á leiðinni frá flug-
vellinum og sjá hvað er inni í
þessari byggingu, sagði Jack.
— Róm er eina borgin í heim-
inum þar sem ég freistast ekki
til að fara inn í kirkjur. sagði
Deleney og hló þurrlega. Þú
ræður hvort þú trúir því, sagði
hann, en ég skriftaði árið 1942.
En það var í Califomiu. Hjarta-
sérfræðingur sagði mér, að ég
yrði dauður innan missiris.
Þeir óku stundarkom þegjandi.
Kirkjan hvarf að baki þeim.
— Æjá, sagði Delaney, við átt-
um skemmtilegan tíma saman
þessi ár, við tveir.
— Já. sagði Jack.
— Við færðum hvor öðrum
heppni, sagði Delaney. Um tíma
var eins og til væri löggjöf sem
kom í veg fyrir að við gerðum
neina skyssu. Hann hló dálítið
raunalega. Og svo þurfti þetta
fjandans stríð að koma. Hann
híisti höfuðið. Kannski "fétutn
•við enn fært hvor öðrum heppni.
Þpð er hugsanlegt, finnst þér
ekki?
— Jú, það er hugsanlegt,
sagði Jack.
— Hamingjan góða, hvað þú
varst dásamlegur ungur maður i
þá daga, sagði Delaney. Hann
andvarpaði. Þetta bölvað stríð.
endurtók hann lágri röddu.
Svo leit hann í kringum sig
ögn glaðlegri. Jæja, við erum þó
lifandi að minnsta kosti báðir
tveir, sagði hann. Og Róm er
ekki svo afleitur staður til að
vera lifandi í. Hefurðu komið
hér áður?
— Tvisvar eða þrisvar, sagði
Jack. Aðeins einn eða tvo daga
í senn. Heyrðu, sagði Delaney.
Ertu nokkuð upptekinn í kvöld?
— Nei, sagði Jack.
— Það er engin barmfögur ít-
ölsk leikstjama sem hefur feng-
ið fyrirmæli um að vera til taks?
— Ég verð enn að minna þig
á að nú er ég í þjónustu hins
opinbera, sagði Jack vingjarn-
lega. Allt þess háttar tilheyrir
fortíðinni.
— Ágætt. sagði Delaney. Ég
sæki þig eftir klukkutíma. Þá
geturðu farið í bað og þurrkað
ferðarykið framanúr þér. Ég hef
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu og
snyrtistofa STEINU og DÓDÖ
Laugavegi 18, III. h. (lyfta)
SfMI 24616.
P E R M A Garðsenda 21
SfMI: 33968. Hárgreiðslu- og
snyrtistofa.
Dömur! Hárgreiðsla við
allra hæfi.
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10 — Vonarstræt-
ismegin — SÍMI: 14662.
HÁRGREIÐSLUSTOFA
AUSTURBÆJAR
(María Guðmundsdóttir)
Laugavegi 13. — SÍMI: 14656,
— Nuddstofa á sama stað.
dálítið óvænt handa þér.
— Hvað er það? spurði Jack,
þegar þeir óku upp að gistihús-
inu og dyravörðurinn opnaði bíl-
dymar.
— Það kemur í Ijós, sagði
Delaney leyndardómsfullur, með-
an Jack var að stíga út úr bíln-
um. Búðu þig undir skemmtilegt
kvöld. Við hittumst á bamum
eftir svo sem klukkutíma.
Bflstjórinn var búinn að taka
töskur Jacks útúr bílnum og
dyravörðurinn var að færa þær
til þegar bfllinn ók burt. Jack
veifaði, sneri sér síðan við og
gekk upp tröppumar að gisti-
húsinu. Tvær konur og maður
5
komu útum aðaldymar og Jack
stóð kyrr og beið andartak, því
að þau stóðu hlið við hlið og
lokuðu gangveginum. Konumar
tvær héldu um olnboga manns-
ins og studdu hann eins og
hann væri veikur og hin há-
vaxnari hélt utanum mittið á
honum. Þegar Jack reyndi að,
þoka sér framhjá þeim, sleit
maðurinn sig skyndilega lausan
frá konunum og slangraði í átt-
ina til hans. Hann horfði andar-
tak á Jack og brosti dauflega;
hann var berhöfðaður með úfið
hár og þrútin augu. Svo lyfti
hann handleggnum og sló Jack
á nefið.
— Sanford! æpti önnur kon-
an og hin sagði: Guð minn góð-
ur!
Jack reikaði afturábak og tár-
in runnu úr augum hans af sárs-
aukanum. Hann hefði dottið. ef
ekki hefði verið súla fyrir
aftan hann. Hann hristi höfuðið
til að sjá skýrar og rétti úr sér
og kreppti ósjálfrátt hnefana og
steytti þá um leið og hann steig
skref í áttina til mannsins sem
hafði barið hann. En það var of
seint. Maðurinn hafði sigið niður
fyrir framan dymar og sat þar
flötum beinum og brosti aula-
lega til Jacks og baðaði höndun-
um linkulega út í loftið eins og
jazzhljómsveitarstjóri, sem
stjómar valsi.
— Hvem fjandann sjálfan á
betta að þýða, maður. Jack stóð
yfir manninum og ýtti við hon-
um með skótánni og óskaði. að
hann stæði á fætur, svo að hann
gæti barið hann.
— Arrivederci, Roma, sagði
máðurinn.
Konurnar bjástruðu við hann
og reyndu að toga hann upp á
handleggjunum og þusuðu svo-
lítið yfir honum á meðan, en
hann haggaðist ekki. Þetta var
allt Bandaríkjafólk, konurnar á
fimmtugsaidri og klæddar eins
og þokkalegar borgarafrúr á leið
á blómasýningu. maðurinn um
það bil hálffertugur, lágvaxinn
og í kryppluðum fötum.
— Ó, Sanford, sagði hávaxna
konan og var gráti i'ær. Af
hverju gerðirðu nú annað eins
og þetta? Hún var með hatt með
tveim gervigardínum ofaní
höfðinu.
— Á ég að kafla á lögreglu-
þjón, herra minn? Það var dyra-
vörðurinn sem stóð með á-
hyggjusvip við hliðina á Jack.
MÖÐVILIINN
Sunnudagur 28. júní 1964
Það er eirm héma úti á homi.
— Æinei. . . . hrópaði konan
með gardínurnar.
— Getið þið ekki fengið þenn-
an þrjót til að standa á löppun-
um, sagði Jack. Hann fann að
hann var alblóðugur um nefið
og hendumar.
Maðurinn sem sat gleiðfættur
í tröppunum leit upp til Jack,
höfuðið riðaði fram og aftur og
svipurinn undirfurðulegur og
sigrihrósandi. Arrivederci, Roma,
söng hann.
— Hann er drukkinn, sagði
lágvaxnari konan. Viljið þér
ekki hætta við að berja hann?
Konurnar gátu með herkju-
brögðum komið manninum upp
á fætuma og þær nostruðu við
hann, sléttu fötin hans, studdu
hann, hvísluðu í eyru hans,
horfðu biðjandi á Jack og dyra-
vörðinn og stóðu milli þeirra og
drukkna mannsins. Hann hefur
drukkið svona frá því að við
komum til Evrópu. Ó. Sanford,
að þú skulir ekki skammast þín!
Konan með hattinn lét móðan
mása í allar áttir. Ó, almáttug-
ur, þér eruð alblóðugur. Ég ætla
að vona að þér hafið vasaklút.
Þér eyðileggið fínu, gráu fötin
yðar.
Áður en Jack gat komið upp
orði, var hún búin að draga upp
vasaklút og stinga honum í lófa
hans. Meðan Jack bar hann upp
að nefinu, ýtti minni konan
drukkna manninum ögn lengra
burt frá hættunni, meðan hún
umlaði: Ó. Sanford, þú lofaðir
að vera stilltur.
Jack fann að vasaklúturinn,
sem var mjúkur og ilmandi. varð
fljótlega gegnblaUtur. Jafnvel
gegnUm blóðlyktina var ilmurinn
kunnuglegur og hann reyndi að
rifja upp hvers vegna, meðan
hann stóð þama og saug upp í
nefið.
Leigubfll kom akandi og karl-
maðurinn og konan sem stigu út
úr honum. litu forvitnislega fyrst
á Jack og síðan á konumar tvær
og drukkna manninn, meðan
maðurinn greiddi bílinn. Kulda-
leg vanþóknunaraugnaráð þeirra
fylltu Jack einhverri ábyrgðar-
tilfinningu og hann hefði gjam-
an viljað útskýra fyrir þeim
hvað þama hefði gerzt.
Konan með hattinn hélt áfram
að róta í tösku sinni, meðan hún
talaði án afláts. Prudence, sagði
hún með háu Bostonhvísli.
Reyndu að koma þessum slæma
strák inn í bílinn. Þetta er að
verða heill harmleikur. Hún tók
tíu þúsundlíruseðil uppúr tösk-
unni og vöðlaði honum niður í
vasa Jacks. Er ekki óþarfi að
kalla á lögregluna, ha? Mér
þykir þetta afskaplega leitt.
Þetta er fyrir hreinsun á fötun-
um.
— Nei, heyrið mig nú, sagði
Jack. tók seðilinn uppúr vasan-
um og re.vndi að fá henni hann
aftur. — Ég tek ekki í mál. . .
— Mér kæmi aldrei annað til
hugar, sagði konan og hörfaði
frá honum. Hún galdraði fram
þúsund líru seðil og fékk dyra-
verðinum, meðan hin nýkomnu
gengu hægt og starandi framhjá
þeim og inn í gistihúsið. Af því
að þér hafið verið svo liðlegur,
sagði hún með höfðingsskap.
Reyndu svo að koma þér inn í
bílinn, Sanford. Og biddu herr-
ann fyrirgefningar.
— Svona sungu þeir, sagði
hinn drukkni og kinkaði bros-
andi kolli, þegar Doria sökk.
589 flemu undír próf í
Rétfarholtsskólanum
Réttarholtsskólanum var slit-
^ð , Jaugardaginn 30. maí.
Skólastjórinn Ástráður Sigur-
steindórsson, gaf yfirlit yfir
skólastarfið og lýsti úrslitum
prófa.
1 fyrsta bekk luku 231 nem-
andi prófi. Hæsta einkunn í
I. bekk hlaut Þóra Kristins-
dóttir 9,42.
1 öðrum bekk tóku 228 nem-
endur próf og stóðust 204
nemendur prófið. Þar hlaut
hæsta einkunn Þórey Ólafs-
dóttir í II. bekk A 9,58.
I þriðja bekk voru starfandi
þrjár mismunandi deildir,
verzlunardeild, landsprófsdeild
og almehn deild. I verzlunar-
deild tóku 25 nemendur próf
og stóðust það allir. Hæsta
einkunn í verzlunardeild hlaut
Óskar Magnússon 8,56. 1 al-
mennri deild tóku 26 nemend-
ur próf og stóðust 22. Hæsta
einkunn í almennri deild hlaut
Helga Erlendsdóttir 7,27. I
landsprófsdeild gengu 26 nem-
endur undir próf og stóðust
það allir, en 21 hlaut frarfi-
haldseinkunn 6,00 og þar yfir.
Hæstu einkunn í landsprófs-
deild hlaut Sigurður Guð-
mundsson I. ágætiseinkunn
9.16.
I fjórða bekk gengu 53 nem-
endur undir gagnfræðapróf og
stóðust það allir. Hæstu ein-
kunn á gagnfræðaprófi hlaut
16250 VINNINGAR!
Fjórði hver miði vinríur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 rnilljón krónur.
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
Ingibjörg Erlendsdóttir 8,91.
Skólastjóri afhenti bókaverð-
laun þeim nemendum, sero
skarað höfðu fram úr í náms-
árangri svo og þeim, sem unn-
ið höfðu ýms mikilvæg störf í
þágu skólans.
Að lokum ávarpaði skóla-
stjóri hina nýju gagnfræðinga
og árnaði þeim allra heilla.
Ellefu kirkju-
kórar í Rvík
Fyrir skömmu hélt Kirkju-
kórasamband Reykjavíkur-
prófastsdæmis aðalfund sinn
og sóttu hann fulltrúar nær
allra sambandskóranna, svo og
nokkrir _ organleikarar, þ.á.m.
Jón ísleifsson formaður
Kirkjukórasambands íslands.
Nýr kirkjukór var tekinn í
sambandið á fundinum, kór
Grensássóknar, og eru kórarn-
ir þá orðnir 11 að tölu innan
sambandsins. Rædd voru ýmis
félagsmál á fundinum, svo sem
raddþjálfun og þóknun fyrir
söng við messur og aðrar at-
hafnir. Formaður sambandsins
var kjörinn Baldur Pálmason,
ritari Hréfna Tynes, gjaldkeri
Hálfdán Helgason og með-
stjómendur Margrét Eggerts-
dóttir og Katrín Egilsson. Voru
þau öll endurkosin nema Katr-
ín, sem kom í stað Torfa
Magnússonar, er baðst undan
endurkosningu, en hann gegn-
ir formennsku í launanefnd
sambandsins. Fyrir dyrum
standa samningar við fulltrúa
frá safnaðarstjórnum í próf-
fastsdæminu um samræmda
þóknun fyrir kirkjusöng.
Strauss heimtar
MUNCHEN 25/6 — Fyrrver-
andi vamarmálaráðherra Vest-
ur-Þýzkalands, Franz Joteep
Strauss, segir i blaðagrein, að
hann vilji fá aftur sömu landa-
mærin og voru 1937. Hann
sagði að hvorki Vestur-Þýzka-
land né sameinað Þýzkaland
myndu nokkurn tíma gera landa-
kröfur að ágreiningsefni við
Tékkósióvakíu. En öll pólitísk
ráð yrðu samt notuð til að ná
aftur þessum landamærum.
Flugsýn hJ. sími 18823
FLUGSKÖLI
Kennsla fyrir einkaflugpróf — atvinnuflugpróf.
Kennsla í NÆTURFLUGI
YFIRLANDSFLUGI
BLINDFLUGI.
Bókleg kennsla fyrir atvinnuflugpróf byrjar í nóvember
og er dagskóli.
Bókleg námskeið fyrir einkaflugpróf, vor og haust.
FLUGSÍN h. f. sími 18823.
SMJOR
og
OST
osta-og smjörsalan s.f.
Auglýsið í Þjóðviíjanum
VORUR
Kartöflumús — Kokómalt — Kaffi — Kakó.
KRON - búðirnar.
FERÐIZT
MEÐ
LANDSÝN
® Seljum farseðla með flugvélum og
skipum
Greiðsluskilmálar LofHeiða:
• FLOGIÐ STRAX - FARGJALD
GREITT SÍÐAR
® Skipuleggjum hópferðir og ein-
staklingsferðir
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
FERÐASKRIFSTOFAN
LAND SYN Ir
TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK
UMBOÐ LOFTLEIÐA.
4
V