Þjóðviljinn - 17.07.1964, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 17.07.1964, Qupperneq 3
Föstudagur 17. JdK 19S4 Skæruliðar í sqkn SAIGON, 16 júlí — Á þriðjudag- inn gerðu skæruliðasveitir Viet- Cong árás á víggirt þorp tólf kilómetra frá höfuðborginni. Árásin var gerð um miðjan dag, en áður hafa skæruliðar aðeins gert næturáhlaup á víggirt þorp. Ein af bækistöðum stjórnar- hersins á hásléttunni hefur tví- vegis orðið fyrir árás skæruliða á stuttum tíma. Peron vill snúa heim MADRID. 15. júlí. Blaðafulltrúi Juans Perons, fyrrum einræðis- herra Argentínu sagði í gær, að Peron hefði fullan hug á því að snúa aftur heim. Og byggist Peron við því. að enn nyti hann Verulegs stuðnings meðal þjóðar- innar. Peron er nú 69 ára gamall. Hann var rekinn frá völdum 1955 og flæktist síðan um nokkra hríð en hefur um nokkurra ára skeið verið búsettur á Spáni eins og margir afsettir valdamenn aðrir Stúdentar brutu rúður fyrir Bretum LONDON 16/7 — f fyrrakvöld var ráðizt á Kenyatta, forsætis- ráðherra Kenya, á götu í Lond- on og hefur mál þetta vakið mikið umtal og hefur rikisstjórn ' Kenya sent harðorð mótmæli til London f gær réðist hópur afrískra stúdenta á sendiráð Breta í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu til að láta í ljós reiði sína yfir árás- inni. Brutu þeir rúður með grjót- og flöskukasti og sködd- uðu eftir föngum sex bíla er stóðu fyrir utan bygginguna. Um þrjátíu stúdentar tóku þátt í þessu áhlaupi. Tjón varð ekki á mönnum. Skaut niður fluevél með vodkaflösku MOSKVU 16/7 — Popof nokk- ur, flokksritari í Tambofhéraði hefur verið rekinn úr Kommún- istaflokknum fyrir ósæmilega hegðun. Popof var að skemmta sér við mat og drykk úti í náttúrunni með öðru fólki og brást reiður við þegar hann fékk tilbúinn áburð i súpu sína frá flugvél sem var að dreifa áburði á akra þar í grennd. Greip Popof vodkaflösku og henti í flugvél- ina, sem flaug mjög lágt, með þeim afleiðingum að annar vængur hennar skaddaðist og neyddist flugmaðurinn til að lenda. Rauk þá Popof og lið hans að flugmanninum með ill- yrðum. Krústjoff til Bonn? BONN 16/7 — Talsmaður vest- urþýzka utanrikisráðuneytisins skýrði frá því i gær, að sovét- stjórnin hafi lýst sig reiðubúna til að taka upp afttir umræður um viðskiptasamninga milli landanna. En samningar þessir áttu að réttu lagi að hefjast í fyrrahaust. f Bonn er álitið að þessi til- laga standi í sambandi við væntanlega heimsókn tengda- sonar Krústjoffs. Adsjúdei, til Bonn, — en Adsjúbei er rit- stjóri stjórnarmálgagnsins íz- véstía og hefur verið álitinn væntanlegur eftirmaður Grom- ikos j starfi utanríkisráðherra. Einnig er álitið í Bonn, að til- gangur heimsóknar Adsjúbeis sé fyrst og fremst sá nð kanna möguleika á heimsókn Krústjoffs sjálfs til Vestur-Þýzkalands. ------------------------------HÖSVIUINN Fundur Afríkuleiðtoga að hefjast SM J KAIRO 15. og 16. júlí. — Forystumenn 34 Afríku- ríkja safnast nú til höfuðborgar Egyptalands til að ræða samstarf og samstöðu Afríkuríkja í ýms- um málum. Tsjombe, nýorðinn forsætisráðherra Kongó, verður ekki með, og valda því mótmæli ýmsra leiðtoga, sem muna klofningsstarfsemi hans í Katangafylki á árunum og ábyrgð hans á dauða Lúmúmba, fyrsta forsætisráðherra Kongó. Tsjombe hafði sannarlega. full- an hug á því að koma til ráð- stefnunnar þrátt fyrir öll mótmæli og hafði talsmaður Kongóstjórnar í Kaíró margítrek- að þá ákvörðun hans. Hassan, konungur Marokkó, lýsti því hinsvegar yfir á miðvikudaginn að hann myndi alls ekki mæta til Eundar ef Tsjombe yrði þar fyr- ir. Forseti Dahomey sendi og frá sér mótmæli á leið sinni til Kaíró. og kvaðst ekki geta hrifamaður í samtökum Afríku- þjóða hefur einnig lýst sig mjög andvígan þátttöku Tsjombes. Og j fór svo að lokum að Tsjombe hlaut að hætta við förina. Undirbúningsnefndir ráðstefn- unnar hafa átt annríkt síðustu daga. Það hefur m.a. verið á- kveðið, að rædd skuli tillaga Ghana um afríska ríkisstjórn og sámeiginlega herstjórn fyrir öil ríkin. Þá verður á ráðstefnunni að líkindum samþykkt að lýsa alla álfuna kjarnórkulaust svæði Með erfiðari viðfangsefnum ráðstefnunnar verður hin stirða. sambúð Somalí og Eþíópíu. en é landamærum þeirra hefur hvað eftir annað komið til átaka und- anfarin missiri. Þýzk skjöl á TSJOMBE VÍSAÐ Á BAK OG BURT Tsjombe ’leymt því sem gerðist i Korigó 'yrir nokkrum árum er Tsjombe •éð fyrir Katanga. Nkrumah, 'orseti Ghana, og einn helzti á- vatnsbotni PRAG 16. júlí — Kafarar hafa náð af botni stöðuvatns eins í Bæheimi nokkrum kössum af þýzkum skjölum frá styrjaldar- ái’unum. En ekki er vitað um hverskonar skjöl hér er að ræða. Kassarnir fundust af tilviljun. Við sjónvarpstöku á vatninu ui;ðu menn varir við einhverja dularfulla hluti á botni þess og ákváðu að senda niður kafara. Málið er í rannsókn. ER BORMANN ENN Á LÍFI Vesturþýzk yfirvöld telja sig næstum því viss um að Martin Bormann, sá nazistaforsprakki sem næst gekk Hitler að metorðum, sé enn á lífi og feli sig þá einhversstaðar í Suður-Ameríku. Hvarf Bormanns hefur oft verið á dagskrá og síðast nú á þriðjudaginn komu nýjar upp- lýsingar um þetta mál frá hátt- settum vesturþýzkum lögfræð- ingi, Wilhelm Metzner. Grunsemdir um að Bormann hafi lifað af síðustu daga stríðs- ins hafa styrkzt við það. að ekki fundust neinar leyfar af honum á þeim stað í Austur-Berlín þar sem hann átti að hafa verið grafinn. Metzner fór nýlega á- samt starfsbróður sínum til Aust- ur-Berlínar til að ræða við tékkneskan mann, Jaroslav Dedic, sem síðustu daga stríðsins vann í greftrunarsveit í Berlín. Hann sagði að einn af beim sem í sveitinni voru hefði þótzt bekkja Bormann dauðán í lik- hrúgu sem grafin var upp úr rústum. Ekki fundust nein skil- ríki á líkinu. en í vasa þess var bréf til Bormann frá háttsettum nazista í Berlín. r- r Fyrstur til að óska Goldwater til hamingju með fsiguriftn var Nelson Rockefeller og síðan hver af öðrum fyrri andstæðingar hans. Scranton hélt ræðu og hvatti mjög til þess að allar væringar yrðu nú grafnar og gleymdar og skyldi flokkurinn einbeita sér að baráttunni við Demókrata. Þykir þetta benda til þess að svokallaðir frjáls- lyndir Repúblikanar hafi sætt sig við hlutskipti sitt enda greinilegt orðið að þeir mega j sín einskis gegn afturhaldsstefnu , Goldwaters. í £ömu mund og Ban-y Gold- water var útnefndur forseta- efni héldu nokkrir baráttumenn fyrir mannréttindalögunum j þangað sem þingið situr tii j Kýrhallar með kistu. s.em á var letrað: Frelsið er dautt. Nokkur hundruð manns söfnuðust sam- an fyrir utan höllina, sungu sálma og mótmæltu kjörj. Gold- wátérs.' "Þár' vörú úpþi' 'spjöld með áletruninni: Repúblikana- flokkurinn — Fæddur 1960 — látinn 1964. Kampakátur Goldwater var kampakátur er hann ræddi við fréttamenn að lokinni kosningu. Hann lagði á- herzlu á það að varðveita yrði einingu flokksins og sagði að utanríkismál yrðu höfuðmálefni kosningabaráttunnar í haust. Meira f jármagn í Y-Þýzka herinn Valhöll Framhald af 12. síðu. 180-450 krónur og fyrir einstakl- inga allt niður í 120 krónur. Eigendur hótelsins eru þeir Ragnar Jónsson og Sigursæll Magnússon. Hafa þeir i þjónustu sinni 36 manna starfslið á staðn- um. Gestgjafamir hvetja ferða- menn til að koma á staðinr og kynna sér hin glæsilegu húsa- kynni og njóta lífsins. WASHINGTON 16/7 — Land- varnarráðherra Bandaríkjanna, Robert McNamara lagði áherzlu á það á blaðamannafundi í gær- kveldi, að brýn nauðsyn væri á því. að Vestur-Þýzkaland stór- yki fjárframlag sitt til hersins, svo landið gæti gegnt skyldum sínum við NATO, en þær eru að Veatur-Þýzkaland leggi til 12 herdeildir. McNamara ræddi þessi mál i sambandi við yfirlýsingu, sem hann gerði nýlega í þinginu, þar sem hann benti á að hemaðar- útgjöld V-Þýzkalands hefðu auk- izt um 30% síðastliðin tvö þrjú ár, en þetta hrykki ekki til að landið gæti uppfyllt skyldur sínar. Vestur-Þýzkaland yrði að fjölga mönnum undir vopn- um og halda áfram að. færa herbún^ð sinn í nýtízkuhorf. Landvarnarráðherrann sagði einnig m.a., að enn haldi her- menn frá N-Vietnam áfram að streyma inn í Suður-Vietnam í gegnum Laos. En ekki kvað hann ástæðu til að ætla að heil- ar hersveitir frá N-Vietnam tækju þátt í bardögum í land- inu. Hann sagði sð hermenn i suð- ur-vietnamska hernum gerðust æ áreiðanlegri og færri gerðust núorðið liðhlaupar. Þá staðfesti hann að 600 bandariskir her- fræðingar og sérþjálfaðir her- menn yrðu sendir í viðbót til S-Vietnam, en aðrar hersveit- ir dregnar til baka, er þeirra vœri ekki lengur þörf. Johnson I-lann kvaðst vilja berjast á mál- efnalegum grundvelli og forðast persónulegan skæting. Hafði hann þó kvöldið áður kallað Johnson forseta svikahrapp og hinn mesta svindlara. Varaforsetacfni Er Goldwater hafði lokið við- rsfðum. sínum við leiðtoga Repú- blikariáflokksins seint í gær og skipað í ýms&r mikilsverðar stöður í flokknum tilnefndi hann varaforsetaefni. Fyrir val- inu varð William Miller, 44 ára gamall fulltrúardeildarþingmað- ur frá New York. Viðbrögð um víða veröld Hvarvetna á byggðu bóli vekja fréttirnar um tilnefningu Gold- waters ugg og áhyggjur. Heims- blöðin öll bæði í austri og vestri lýsa einum rómi vonbrigð- um sínum. Málgagn Kommún- istaflokks Sovétríkjanna Pravda segir, að stefnuskrá þessa hægri- sinnaða öldungadeildarmanns sé afturhaldssamasta stríðsæsinga og æfintýramennsku kosninga- plagg í sögu Bandaríkjanna. Blaðið Sovétskaja Rossija segir að ágengustu hópar auðmanna, ofstækismenn í kynþáttamálum, krossfarar gegn kommúnisman- um og Ku Klux Klan hafi tek- ið höndum saman og myndað nýtt afturhaldsbandalag í Banda- ríkjunum. BT í Kaupmannahöfn segir að Goldwater hafi náð tilnefningu á svo andstyggilegan máta, að vert sé að minnast orða de Gaulle forseta, að ekki sé hægt að treysta Bandarikjunum. því það sé aldrei að vita hver geti orðið forseti þar. Vígreif andkommúnísk stefna öldungar- deildarmannsins muni mynda djúp milli Ameríku og Evrópu sem sé jafn breitt Atlanzhafinu. Kaupmannahafnarblaðið In- formation telur víst að flokkur Abrahams Lincolns hafi framið sjálfsmorð í San Francisco. I sænska blaðinu Expressen segir að Goldwater gæti komið Bandaríkjunum út í þvílíkar ó- göngur, að atómstríð yrði ekki lengur hugsanlegur möguleiki, heldur síðasta athvarfið. Extrablaðið segir að Lyndon B. Johnson mun eiga auðunn- inn sigur í haust. ef Bandarikja- menn séu ekki orðnir gjörsam- lega óðir. * 4 é

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.