Þjóðviljinn - 17.07.1964, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 17.07.1964, Blaðsíða 12
/ jeppa á nótt sem degi Fyrra sunnudag mættu læknar á Norðausturlandi til fundar á Þórshöfn til þess að ræða vandamál lækna á þessu svæði; Þeir sömdu erindisbréf til landlæknis og væntanlegrar læknaráðstefnu í landinu, sem haldin verður á fsafirði seinna í sumar. Þetta var ekki fjölmennur fundur. því að þeir eru ekk margir læknarnir á þessu svæði. Þama voru mættir- Þóroddur Jónsson. héraðs- læknir á Breiðumýri. Daníel Daníelsson. héraðslæknir á Húsavík. Konráð Sigurðsson héraðslæknir á Raufarhöfn og Kópaskeri og Friðrik Sveins- son, héraðslæknir á Þórshöfn. Allir eru þessir læknar svo störfum hlaðnir, að þeir geta sennjlega ekki mætt á lækna- ráðstefnunni á ísafirði. Meðfylgjandi mynd er af héraðslækninum í Þórshöfn ásamt einkabílstjóranum Bergsteini Ámasyni, lögreglu- þjóni á Þórshöfn. Friðrik segir, að Bergsteinn sé hörku ferðamaður og er ekki van- þörf á því í hinu víðlenda læknishéraði. Hér standa ^þeir við læknisjeppann. Á nóttu sem degi er lækn- irinn kallaður út fyrirvara- laust og eru þetta engar smá- vegalengdir innan héraðsins. Föstudagur 17. júlí 1964 29. árgangur — 158. tölublað. Þannig eru 86 km til kaup- túnsins á Vopnafirði * frá Þórshöfn. Þeir hafa ekið þá vega- lengd á einum klukkutíma og sjö mínútum og tóku þó benzín á Skeggjastöðum. Það er eins gott að kunna um- ferðarreglumar, segir Berg- steinn. Þá . hefur læknirinn þurft að sinna vitjun að Burstafelli í Vopnafirði. Sú vegalengd er 130 km. Þá hefur læknir farið tvisv- ar í vetur til Skoruvíkur á Langanesi. Það eru 50 km. Til Bakkafjarðar eru 50 km. og inn í Víkurnar eru einnig 50 km. Það eru Kollavík og Krossavík. Svo er það sveitin í Þistils- firði og nágrenni Þórshafn- ar. Margir leggja gott orð til Friðriks sem læknis í þessu víðlenda héraði og er hann orðlagt lipurmenni í þjóh- ustu. En nú er að koma læknir til Vopnafjarðar. Kemur hann næstu daga. Hann heit- ir Friðþjófur Bjömsson og er sonur Hauks Bjömssonar. heildsala í Reykjavík. — (Ljósm. Þjóðv. G.M.). Miklar endurbætur ú Hóte! Valhöll Miklar endurbætur hafa nú verið gerðar á Hótel Valhöll á Wngvöllum. Er þar um að ræða lagfæringar á gigtiherbergjum og hafa þau tekið miklum stakkar- skiftum. 1 húsinu eru nú 26 her- bergi með öilum nýtízku útbún- aði. Valhöll hefur nú loks fengið rafmagn frá Sogsvirkjuninni, en hingað til hefur aðeins verið Ijósavél þar. Nýtt tvöfalt gler er Rósberg G. Snædal Hringhendur Rós- bergs G. Snædals komnar út Rósberg G. Snædal hefur sent frá sér vísnakver og nefnist það „101 hringhenda“. Vísur þess- ar hefur hann valið úr syrpum sínum gömlum og nýjum, en áður hefur Rósberg tvisvar gef- ið út vísnakver, en þau voru í litlu upplagi og ekki sett á almennan markað. I formála segir höfundur m.a.: ..Kverið er sent frá mér til þeirra og fyrir þá eina. sem hafa yndi af stökunni, en ekki vegna þess að ég haldi mig kveða öðrum mönnum betur. Flest eru þetta dægurflugur. En dasgurflugur verða líka til á morgun, hvort sem mönnum lík- ar betur eða verr.” Bókin er 00 blað-.'ðnr ? sm*n broti •— •'••orVuð ' Þ- —' — Björns '-,l'sonar. nú víðast í húsinu. Ennfremur er nýkomið heitt og kalt vatn i öll herbergi og bað f húsið, sem skort hefur hingað til. Þá hefur verið skift um rafmagns- leiðslur í öllu húsinu en hinar eldri voru gjörsamlega ónýtar og var þessi framkvæmd mjög kostnaðarsöm. Breytingamar hóf- ust um miðjan apríl síðastliðinn og lauk núna síðustu dagana. Um helgar er venjulega fullt hús í Valhöll en gestakoma hefur þó verið með minna móti 1 sum- ar vegna leiðinlegs tíðarfars. Bátar eru ávallt til leigu til notkunar á vatninu. Einnig er unnt fyrir gestina að fá veiði- leyfi svo að sjá má að flest er gert þeim til hæfis. Síðastliðið ár var veitingahúsið í Valhöll opið til 20. október og núna er ætlunin að hafa það opið eins lengi og veður og færð leyfa. Yfir sumartímann ganga lang- ferðabílar austur til ÞingvaTla einu sinni á dag rúmhelga daga en tvisvar á dag laugardaga og þrisvar á sunnudögum. Geta má þess að fjöldi ferðanna gefur engan veginn rétta hugmynd um gestafjöldann þar sem stöðugt fleiri ferðast nú með eigin bif- reiðum. Margir merkir gestir hafa heimsótt Valhöll í sumar. Má þar nefna margfrægan Filipus prins. Kíefballettinn og svo dætur Krú- stjoffs og fleiri. Herbergin eru við verði frá Framhald á 3. síðu. Nýr bátur kom til Sandgerðis í gær í gær kom til Sandgerðis nýr bátur, Arnar RE 21, smíðaður í Noregi. Hann er 235 rúmlestir og er búinn ýmsum nýjungum sem ekki hafa þekkzt hér fyrr. f Amari er 600 ha. Wichmann- vél og tvær Lister ljósavélar. í honum eru Elok síldarleitartæki, sem draga 3.6 km og er sendiork- an 5 kw., en algengast er í bát- um hér að sendiorka sé 1-2 kw. Þá er í skipinu sjálfritandi sjáv- arhitamælir. Vélar eru til ís- framleiðslu og ísgeymslu. Sér- stakur rafmagnsútbúnaður er í byrðingi til vamar ryðtæringu. Gálgar eru tveir fyrir kraft- blökk, svo að hægt er að kasta áThvort borð sem er. I reynslu- för gekk báturinn 10,8 sjómílur. Skipstjóri á Amari verður Hrólfur Gunnarsson er áður vax með Áma Magnússon; er skips- höfnin að mestu sú sama og var á Áma, 1. vélstjóri er Ámi Ámason. Eigandi Amars er Búðaklettur h.f.. stærsti hluthafi er Einar Ámason. Amar hélt til Reykjavfkur í gær en fer síð- an á síldveiðar fyrir Austurlandi. Helgarferð út / hláinn Helgarferð „Út í bláinn" verð- ur farin á vegum Fylkingar- deildanna í Reykjavík og Hafn- arfirði. Ákvörðunarstaður verður ekki kynntur fyrr en þangað er komið. Lagt verður af stað á morgun frá Tjamargötu 20 kl. 2 stundvíslega. Þátttaka tilkynnist í skrifstofu ÆFR sími 1T513 og ferðaskrifstofuna LANDSÝN, — sími 22890. Þctta verður ódýrasta helgarferð ÆFR og ÆFH á þessu sumri og er öllu æskufólki heim- il þátttaka. Myndin hér að ofan er úr Gjánni í Þjórsárdal, þar verður komið við í ferðum Landleiða um dalinn. — (Ljósm.: Þorv. Ágústsson).^ Aldrei fleiri er- lendir ferðamenn Þjóðviljmn hafði í gær samband við Ferðaskrifstofu Geirs Zoéga og Ferðaskrifstofu ríkisins og spurðist fyrir um ferðamannastraum hingað til lands í sumar. Forsvars- menn beggja þessara fyrirtæk'ja voru sammála um að aldrei hefði verið meira um erlenda ferðamenn hér en einmitt í sumar. Síðan í vor hafa gist landið fjöí- margir hópar erlendra ferðamanna af öllu mögulegu þjóð- erni, og eftirtektarvert er að íbúar Suður-Evrópulanda sækja nú meira hingað en nokkru sinni áður. Ferðaskrifstofa Geirs Zoega hefur í sumar tekið á móti 5 stórum sþemmtiferðaskipum og á von á tveimur í viðbót á næstunni. Á þriðjudaginn kemur eitt stærsta skemmtiferðaskip Þjóðverja hingað til lands og eru farþegar á því um 850. Viku seinna kemur svo gríska skipið Akropolis og er farþega- BÆTT AÐSTADA FERDA- FÚLKS f ÞJÓRSÁRDAL í sumar hefur verið unnið að því að bæta aðstöðu ferða- fólks sem gistir Þjórsárdal til að njóta friðar og unaðar á þessum fagra stað. Þá hefur margt verið gert til að auð- velda fólki að ganga þriflega um tjaldstæðið. Skipulagð- ar verða ferðir á stórum bílum um innri hluta dalsins og að ýmsum stöðum sem fólk kemst ekki auðveldlega til á minni bílum. Ladleiðir h/f hafa sérleyfis- ferðir um Skeið og Hreppa og í Þjórsárdal, og í sumar skipuleggja þeir ferðir um dal- inn, bæði héðan úr Reykjavík og eins fyrir fólk sem dvelst fyrir austan. Forráðamenn fyr- irtækisins hafa unnið að því 1 samvinnu við Félag íslenzkra bifreiðaeigenda og Skógrækt ríkisins að gera ýmsár endur- bætur á tjaldstæðinu í dalnum til að auðvelda fólki dvölina þar, gerð hafa verið ný tjald- stæði. ruddar göngubrautir um skógarkjarrð og sett upp spjöld til leiðbeiningar. Einnig er þar margt gert til að stuðla að bættri umgengni um svæðið, sorptunnur eru þar víða og hentug salerni til afnota fyrir ferðafólk. Landleiðir hafa áætlunarferðir frá Reykjavík að tjaldstæðunum fimmtudaga. föstudaga og laug- ardaga, en á miðvikudögum og sunnudögum verða famar skemmtiferðir eins og áður seg- ir. Lagt verður af stað úr Reykjavík frá BSÍ kl. 9 árdeg- is á miðvikudögum og kl. 10 á sunnudögum. Ekið verður austur að Selfossi og fólki gef- inn tími til að drekka kaffi þar. Síðan verður haldið upp Gríms- nes og Kerið skoðað, þaðan í Skálholt og ekið um Skeið og Hreppa inn í Þjórsárdal. Þar verður stanzað við tjaldstæðin og þeir sem þar dveljast geta slegizt í hópinn' í hringferð um dalinn. Áætlað er að hringferð um dalinn frá tjaldstæðunum og að þeim aftur taki um 5 klst., og verður ekið að ýmsum merkum og fögrum stöðum, stöðum sem fæstir hafa séð, þótt þeir hafi komið í Þjórsárdal. Fyrst er haldið að Stöng og hinar fornu bæjarrústir skoðaðar, þaðan er skammt í Gjána. þar sem Fossá hefur grafið djúpa geil í bergið, hún er grasi gróin og aúðvelt að komast þar niður. Síðan er haldið að Þjórsá austanvert við Búrfell að Tröllkonuhlaupi, þar sem gerðar hafa verið athuganir um hugsanlega virkjun. Sfðan er ekið til baka nokkurn spöl og niður með Búrfelli að vest- anverðu að Þjófafossi, vatns- mesta fossi landsins, þaðan er hæfileg gönguferð að sérkenni- legum hólmum ofar í Þjórsá. Næsti áfangi er við hinn fagra foss Hjálp og þaðan ekið síð- asta spölinn að tjaldstæðunum. Til Reykjavíkur er svo komið kl. 9—10 um kvöldið, Kunnur leiðsögumaður verður með í ferðinni. Þessar skemmtiferðir Land- leiða eru mjög ódýrar. kosta Framþald á 9. síðu. fjöldi þess á fimmta hundrað manns. Auk þess hefur ferða- skrifstofan tekið á móti og greitt götu fjölda annarra ferða- hópa og einstaklinga. Forstjór- inn sagðist búast við að næsta ár myndi ferðamannastraumur- inn hingað enn aukast og með því hótelrými sem Reykjavík hefði uppá að bjóða mtmdi erf- itt reynast að útvega ferðafólki gistingu. Forstjóri Ferðaskrifstofu rík- isins, Þorleifur Þórðarson, sagði að ferðaskrifstofan hefði aldrei haft jafn mikið að gera og í sumar. Hér dveldust nú á henn- ar vegum fjölmargir hópar ferðalanga og þessa dagana bæri einna mest á sjónvarpsmönnum og kvikmyndatökumönnum viða að úr heiminum. Mætti þar nefna menn frá danska, sænska og brezka sjónvarpinu og kvik- myndatökumenn frá Ameríku og ítaliu. Einnig væru hér mis- jafnlega stórir ferðamannahóp- ar frá Finnlandi, Svíþjóð, Sviss, Þýzkalandi, Frakklandi og It- alíu svo eitthvað væri nefnt. Skemmtiferðaskipið Caronía kom á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins í sumar og voru með því um 560 manns. Þetta mun vera í 13. sinn sem Caronia kemur hingað t'l lands. og hef- ur ferðaskrifstofan alltaf ‘tekið á móti því með mestu virktum. Þann 4. ágúst kemur svo amer- íska skemmtiferðaskipið Argen- tína 0g með því verða hátt á fjórða hundrað manns. Norræna góðtemplararáðið heldur námskeið í Reykjavík og á Akureyri daganna 17.—28. júlí næstkomandi. Eitt hundrað og fimmtíu þátttakendur frá hin- um Norðurlöndunum sækja námskeiðið, auk margra Islend- inga. Námskeiðið verður sett í há- tfðasal Hapaskólans laugardag- im 18. júlí klukkan 9 árdegis. í V

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.