Þjóðviljinn - 25.07.1964, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 25.07.1964, Qupperneq 2
2 SlÐA Þfgpmmm - —•ss IiBHgarðagnr 25. JfflS 1064 fíugdagur á morgun á Melgerðismelum □ Á morgun, sunnudag, verður haldinn flug- dagur á Melgerðismelum í Ejyjafirði. Verður þar sýnt svifflug, vélflug og ýmiskonar útbúnaður til leitar og björgunar. Að flugdeginum standa flugbjörgunarsveitin á Akureyri, Svifflugfélag Akureyrar og Flugskóli Tryggva Helgasonar. I dag, laugardag kl. 2 e.h. er fyrirhugað að dreifa aug- lýsingum úr flugvél, yfir bæ- inn óg gildir hver auglýsing sem happdrættismiði. Vinning- ar í því happdrætti eru 18 flugmódel. gefin ' af þeim, er með þá hluti verzla á Akur- eyri. Dregið verður á Melgerð- ismelum að afloknum sýning- unum á sunnudag og haldið áfrani þangað til öll mqdelin eru útgengin. Kl. 6 e.h. á laugardag verð- ur sviffluga dregin yfir bæinn og lendir hún á iþróttavellin- um. Um kvöldið verður síðan tlansleikur • í Sjálfstæðishúsinu og gilda aðgöngumiðarnir einnig sem happdrættismiðar, og verður dregið á miðnætti um flugfar Akureyri — Reykja- vík — Akureyri og hringflug með svifflugu. Á sunnudag hefjast sýningar á Melgerðismelum kl. 2 e.h. og gefst þá mönnum lcostur á að kynnast ýmsum atriðum varð- andi svif- og vélflug og enn- fremur öllum útbúnaði flug- björgunarsveitarinnar. Að- gangur verður kr. 25.00 fyrir fullorðna og kr. 10.00 fyrir böm. Heitar pylsur. gosdrykk- ir o. fl. verða til sölu á staðn- um. Flugdeginum lýkur síðan með dansleik að Hótel K.E.A. um kvöldið. og gilda þeir að- göngumiðar, sem happdrættis- miðar. þar sem keppt verður um fjóra hringflugsfarmiða, með Norðurflugi og dregið verður á miðnætti. Ferða- skrifstofan Lönd og leiðir h.f. mun skipuleggja ferðir í sam- bandi við sýninguna á Mel- gerðismelum. Flugbjörgunarsveitin á Ak- ÆFR - ÆFH Æskulýðsfylkingin í Reykjavík og Hafnarfirði efnir til ferðar um Veralunarmannahelgina dagana 1.-3. ágúst. Farið verður um V.-Skaftafellssýslu og margir merkir staðir skoð- aðir. Ferðin er mjög ðdýr og sem og allar ferðir Fylkingar- innar vínlaus. Það er eina skilyrðið, sem sett er tii þess að menn gerti verið með. Allar nánari upplýsingar ,í síma 17513 og hjá Ferðaskrifstofunni LANDSÝN í síma 22890. Pípulagningarmenn Fundur verður haldinn í Sveinafélagi pípu- lagningamanna að Freyjugötu 27, mánu- daginn 27. júlí kl. 20.30 s.d. Fundarefni: Nýir samningar. STJÓRNIN. ureyri er félagsskapur um 70 sjálfboðaliða. sem tekið hafa á s’g þá kvöð að vera ávallt reiðubúnir til leitar og björg- unar þegar á þarf að halda. Sveitinni hefur tekizt, með mikilli vinnu ým'ssra meðlima sinpa og fjárframlögum og öðrum stuðningi frá einstakl- ingum. ríki og bæ, — að kom- ast yfir nokkum útbúnað, sern mönnum gefst nú kostur á að sjá á sunnudaginn. Svifflúgfélag Akureyrar er fremur fámennur félagsskapur mjög áhugasamra ungra manna. Hann stendur öllum opinn frá 14 ára aldri og mun svifflug ekki síður vera heppi- leg iþrótt fyrir eldri menn. Kláfferjan Framhald af 10. síðu. Kölduhvísl. skammt neðan við Þórisós að Þórisvatni og þaðan inn f jökulheima. Frá Þveröldu liggur leiðin um Kistuöldu í Ey- vindarkofaver, þaðan inn að Fjórðungshvísl neðst í Jökulda! um Tómasarhaga, Fjórðungsvatn, en skammt norðan við það skiptast leiðimar niður í Eyja- fjörð og niður j Bárðardal. Frá kláfferjunni á Tungnaá inn að vegamótum norðan við Fjórð- ungsvatn eru um 140 km. Frá þessum vegamótum eru þm 55 km. að Mýri í Bárðardal. og er sú leið sæmilega fær jeppabif- reiðum nú. Leiðin niður í Eyja- fjörð um Núpufell niður að >or- móðsstöðum er ámóta löng og leiðin niður að Mýri, en þessi léið er enn sem komið er ekki fær vegna aurbleytu, enda ligg- ur hún mun hærra en leiðip nið- ur í Bárðardal. Þessar leiðir hafa verlð merkt- ar með stikum og settir upp vegvísar við vegamót til þess að fyrirbyggja það að menn vill- ist af réttri leið, en fjölmargar bilaslóðir liggja um Sprengisand, og er mönnum eindregið ráðlagt að fylgja hinni stikuðu leið. Frá Galtalæk á Landi að Mýri í Bárðardal eru um 250i km„ og er því afar óvarlegt að leggja inn á þessa leið á einum bíl. Leiðin er alls ekki fær nema bílum með drifi á öllum hjól- um, og leiðin niður ; Eyjafjörð ófær bílum eins og stendur. SKARPHÉÐINN EYI*ÓRSSON: ÞÓRSMÖRK (Verzlunarmannahelgi) Hin árlega ferð í Þórsmörk um Verzlun- armannahelgina verður laugardaginn 1. ágúst kl. 2 e.h. — Skemmtiatriði að venju. — TAKMARKAÐ FARRÝMI — Skrifstofan opin til kl. 9 á föstudagskvöld. ' Farmiðaafgreiðsla í FERÐASKRIFSTOFUNNI Týsgötu 3. — Sími 22890. LA N O SYNé Samvinna listdansara Danir og Sovétmenn hafa tekið upp ágæta samvinnu í danslist. Þekktur ballettmeistari, Nina Alexandrova kemur bráðlega til Kaupmannahafnar til að setja á svið Svanavatnið. Og stúlkan sem dansar aðalhlutverkið, Anna Lærkesen, er einmitt nýkomin frá Moskvu en þar dvaldi hún um mánaðartíma í boði sjálfrar Gaiinu Úlanovu, og æfði undir handleiðslu einhvers þekktasta. danskennara Bolsoj-leikhússins, Elizavetu Gerdt.— ásamt kennara sínum og nokkrum ungum rússneskum ballerínum. Útsvör á fsafirði Framhald af 10. síðu. Útsvörin eru lögð á 843 ein- staklinga og 20 félög. Aðstöðu- gjöld eru að auki lögð á 113 einstaklinga og nemur heildar- upphæð þeirra 604.500 kr. og á 50 félög. samtals að upphæð 1.598.200 kr. og nemur þá heild- arupphæð aðstöðugjalda 2 milj. 202.700 kr. Af heildarupphæð álagðra út- svara eru 284.410 kr. lagðar á félög eða fyrirtæki í bænum, eða mjög óvenjulegur hluti af heildarupphséð útsvara. 10 milj. 986.530 kr. eru lagðar á ein- staklinga. Hæsta útsvar félaga ber Hrað- frystihúsið Norðurtangi h.f. 126. 100 kr. Hæstu útsvör einstak- linga eru þessi: Ragnar Ásgeirsson 64.400. Úlf- ur Gunnarsson 53.200, Hans Svane 49.700, Guðmundur Karls- son 49.300, Vignir Jónsson 45.800 Valdimar Jónsson 44.800, Ágúst Leósson 42.000, Maríus Helgason 41.400, Sveinbjörn Veturliðason 41.100, Jón Á. Jóhannsson 40.300, Ásgeir Guðbjartsson 39.200 og Jón Bárðarson 38.100. Hæstu aðistöðugjöld einstak- linga eru þessi: Jón Bárðarson 66.600, Kristján Tryggvason 52.200, Hans Svane 30.900, Ole N. Olsen 30.500 og Guðmundur Bjömsson 30.200. Hæstu aðstöðugjöld félaga eru þessi: Hraðfrysti'húsið Norðurtangi h.f. 239.200 kr„ Kaupfélag ís- firðinga 285.900, fshúsfélag ís- firðinga 267.700, M. Bernharðs- son, Skipasmíðastöð 90.400, Fiskimjöl h.f. 67.000 og Fisk- vinnslan hf. 48.200 kr. Félagslíf KR — Frjálsíþróttadeild. — Innanfélagsmót í köstum fer fram í dag og á morgun. — Stjómin. Auglýsið í Þjóðviljanum síminn er 17-500 Villi- dýrabúrið Morgunblaðið hefur að undanfömu haft uppi mikinn áróður fyrir því að- banda- risku dátamir á Keflavikur- flugvelli fái að fara frjálsir ferða sinna um landið dg at- hafna sig að eigin geðþótta. Eftir að dátasjónvarpið er komið inn á þúsundif ís- lenzkra heimila þykir auðsjá- anlega tímabært að striðs- mennirnir sjálfir fylgi í kjöl- farið. Seinast í gær birtir Morgunblaðið grein eftir einn af heimamönnum á Keflavík- urvelli, Þorgrím Halldórs- son að nafni, og- líkir sá ,her- stöðinni við villidýrabúr eða „fangabúðafyrirkomulag þeirra félaga Hitlers og Stal- íns“. Ekki verður þó fullkom- lega ljóst af greininni hvers vegna Þorgrimi Halldórssyni er svo mjög í nöp við búrið. Hann telur dátana á vellin- um búa yfir einstökum sið- gæðisþroska; þetta eru „ung- lingar, sem í fyrsta sinn hverfa úr föðurgarði og fjöl-- skyldufeður sem verða að yf- irgefa ástvini og dveljast langdvölum fjarri konum og bömum til að leggja þjóð sinni til þann skerf sem þeir geta, til vemdar öryggi henn- ar og annarra frjálsra þjóða gegn \ yfirgangsstefnu kojrnn- únismans . . . Innan herbúð- anna og utan eru þeir undir ströngum aga, sem fulltrúar þjóðar sinnar, og ■ ef siðferðið í Reykjavik væri ekki verra en það er í her- búðunum mættum við fslend- ingar vel við una“. En utan við búrið er allt öðm vísi ástatt eins og siðferðið ber með sér: „Er það til marks að meira en fjórða hvert ís- lenzkt bam er fætt óskil- getið? Eða lifnaðurinn &\ skemmtistöðum Reykjavíkur- borgar? Eða ef til vill Þjórs- árdalsævintýri unglinganna? Nei, við höfum ekki af miklu að státa íslendingar þar sem siðferðisþroski okkar er og það góða við Keflavíkurbúr- ið er að það gefur orðið amerískum mæðrum nokkur hugarléttir að vita að synir þeirra sem sendir em, sumir hverjir óþroskaðir, til þessa fjarlæga, lands, fái ekki að kynnast „siðferði“ þessarar þjóðar um of“. Allt er þetta röksemd fyr- ir gagnsemi girðingarinnar, enda kemur í ljós að helzti gallinn á henni er sá að hún ér ekki nægilega vel mann- held. Þorgrímur Halldórsson segir: ’ „Einu fslendingarnir sem fjöldi • varnarliðsmanna hefur samband við em að meira eða minna leyti full- trúar þess spilltasta í ís- lenzku þjóðlífi.“ Eflaust á greinarhöfundur hér við f°r- ustumenn hernámsflokkanna og hermangara þá sem hélzt venja komur sinar á völlinn, Og mun vissulega mála sann- ast að þeir em sízt hentugur félagsskapur fyrir óspjallaða og vapnmlausa fulltrúa hinna vestrænu dyggða. Virðist því einsætt að tímabært sé að gera reglúrnar um girðinguna miklum mun strangari en þær eru nú, þannig að her- mangarar, stjómmálamenn og aðrar gleðikonur fái öldungis ekki að koma á völlinn. Og bá væri vissulega fráleitt að líkja þeim stað við villidýra- búr, heldur yrði hann vermi- reitur fyrir þær fögru og Ijúfu dyggðir sem amerískar mæður innræta sonum sínum og aldrei mega verða fe- lenzkri siðspillingu að bráð. — Austri.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.