Þjóðviljinn - 25.07.1964, Side 10
Laugardagur 25. júlí 1964 — 29. árgangur — 165. tölublað.
Sko&ar herstöðina
Hér bjó sögupersónan Ketilbjöm á Knerri Ofi ræöir vii ís-
lenzka ráiamenn
★ Margir kannast við skáldsögupersónuna Ketilbjöm á Knerri
i Fjallkirkju Gunnars Gur.narssonar. Er það hinn frægi móðurafi
Ugga Greipssonar. Ketilbjöm gamli er talinn líkjast móðurafa
Gunnars Gunnarssonar og hét hann Þórarinn Hálfdánarson og bjó
að Bakka við Bakkafjörð. Hann hætti búskap þar um 1890.
★ Hér birtist mynd af Bakka og er þar nú tvíbýli. Þriðja býlið
stendur nú í eyði. A öðrum bænum býr nú Guðrún Vigfúsdóttir
og sonur hennar Einar Friðriksson og vinnur hann við síldarverk-
smiðjuna í kauptúmnu. Á hinum bænum búa þau hjónin Marinó
Sigurðsson og Lára Jónsdóttir og eiga þau einn son Sigurð að nafni.
★ 1 Iandnámstíð er talið. að jörðin héti Sandvík og eru ennþá
til leifar af þeirri nafngift eins og á Sandvíkurheiði, sem er milli
Bakkafjarðar og Vonnafjarðar. Hlutafélagið, sem rekur síldarverk-
smiðjuna og síldarpianið á Bakkafirði heitir Sandvík h.f. eftir
þessu gamla nafni. Þórarinn Hálfdánarson bjó stórbúi á Bakka og
verzlaði mikið við Fransmenn. Hann var svarri i skapi og þótti
stórlátur. — (Ljósm. Þjóðv. G. M.).
★ Guðrún Vigfúsdóttir í blómagarði sinum. Hún hefur ræktað
þennan garð með ærnu erfiði við norðaustan næðing á þessum
slóðum. Tíu þrestir áttu hreiður í garðinum í vor. (Ljósm. G. M.).
í gær barst; Þjóðviljanum fréttatilkynning frá Upplýs-
ingaþjónustu Bandaríkjanna á íslandi þar sem skýrt er
frá því að á morgun muni yfirhershöfðingi landgönguliðs
sjóhers Bandaríkjanna koma hingað í heimsókn og mun
hershöfðinginn skoða herstöðina í Keflavík og ganga á
fund íslenzkra ráðamanna.
Kláfferja á Tungnaá verð-
ur tekin í notkun í dag
I dag verður tekin í notkun kláfferja á Tungnaá hjá
Haldi. Kláfferja þessi er fyrst- og fremst byggð fyrir til-
stilli eftirtalinna aðila: Raforkumálastjóra, vegna vatna-
mælinga á hálendinu innan við Tungnaá, hreppsnefnda
Ása- og Djúpárhreppa í Rangárvallasýslu, vegna fjárflutn-
inga á afrétt Holtamanna í Búðarhálsi og Vegagerðar rík-
isins, vegna þess að kláfferja þessi gerir ferðamönnum
kleyft að komast á litlum bílum með drifi á öllum hjólum
yfir Sprengisand. Hafa framangreindir aðilar allir lagt
fram nokkurt fé til kláfferjunnar, en kostnaður við hana
er áætlaður 1.5 milj. króna.
Ferjan er byggð sem hengi-
braut, og eru 80 m. á milli
turna. Byggingarlagið er það
sama og á hengi brú, en í stað
brúargólfs kemur vagn, sem
rennur á teinum, sem festir eru
ofan á langbita, sem hengdir eru
upp i burðarvíra ferjunnar.
Vagninn, sem rennur á teinun-
um er byggður úr stálgrind og
á honum handrið og gólf úr
timbri. Vagn þessi er 3 m. á
breidd og 4,5 m. á lengd, og
getur hann því tekið litla bíla
með hámarksþunga allt að 3.5
tonnum.
Vagninn er snúinn i áfram
með handsnúnu spili, sem kom-
ið er fyrir undir vagninum. Á
spilinu eru 2 hraðastillingar og
eru handsveifar fyrir hvora
stillingu fyrir sig sin hvo.ru
megin á vagninum. Er ætlazt til
að önnur sveifin sé notuð þegar
vagninn er tómur, en hin þeg-
ar hann er hlaðinn,
Til þess að unnt sé að sækja
vagninn yfir ána, þegar komið
er að ánni þeim megin sem
vagninn er ekki, þá hefur verið
komið fyrir gangbraut, 50 cm.
breiðri, meðfram öðrum lang-
bitanum. Meðfram gangbraut
þessari er strengdur vírofinn
kaðall, sem handrið milli hengi-
stanganna. *
Þegar ekið er út á vagninn,
eða af vagninum upp á land,
verður að festa vagninn með
keðjum við stöplana, og er mjög
áríðandi að það sé gert, þar sem
Vínsaian í apríl -
júní 77,6 milj. kr.
Sarpkvæmt skýrslu frá Afeng-
is- og tóbaksverzlun ríkisins
nam heildarsala áfengis hér á
landi á öðrum ársfjórðungj þessa
árs (1. apríl til 30. júní) kr. 77
milj. 620 þús, kr, en var á sama
tíma í fyrra 69 milj. 505 þús
Eftir útsölustöðunum á land-
inu skiptist salan þannig (í
svigum sambærilegar tölur frá
í fyrra):
Reykjavík 64.2 miii (57.9)
Akureyri 7.5 milj. (6.1)
tsafirði 2.1 milj. (1.8)
Siglufirði 1,5 milj. (2.0)
veyðisfirði 2.2. milj. (1.7).
Þessar tölur sýna að áfengis-
salan hefur aukizt að krónutölu
á öllum útsölustöðunum nema
Sigluíirði, þar hefur orðið tals-
verð læktain.
vagninn mun annars renna
undan bílnum.
Ferjunni sjálfri er lokað með
keðjum, sem strengdar eru milli
tumfóta, og er áríðandi að þeir
sem kláfinn nota geri það að
reglu að loka keðjum þessum.
Með kláfferjunni á Tungnaá
hjá Haldi skapast möguleiki til
þess að komast inn á Sprengi-
sandsleið á litlum bifreiðum,
sem drif hafa á öllum hjólum,
eins og jeppum, en Tungnaá hef-
ur til þessa aðeins verið fær
stórum bifreiðum með drifi á
öllum hjólum. Til þess að kom-
ast á Sprengisandsleið, þá er
ekið að sunnan upp Landveg
eftir þjóðveginum að Galtalæk,
en þangað eru taldir 124 km.
frá Reykjavík. Frá Galtalæk er
ekið eftir Fjallabaksyegi nyrðri
að Rangárbotnum, en þar skipt-
ast leiðir og frá þeim vegamót-
um eru 23 km. að kláfferjunni.
Ferjustaðurinn við Tungnaá er
í 300 m. hæð yfir sjó.
Frá Tungnaá liggur leiðin um
Búðarháls austan við Kjalvötn
að Þveröldu. Austan við Kjal-
vötn er fær leið yfir brú á
Framhald á 2. síðu.
Fréttatilkynning upplýsinga-
þjónustunnar er svohljóðandi:
Yfirhershöfðingi landgönguliðs
(marines) sjóhers Bandaríkjanna
mun koma við á íslandi á
sunnudagskvöld og dveljast til
mánudags á leið sinni til Banda-
ríkjanna frá London þar sem
hann tók þátt í hátíðahöldum
í tilefni 300. ára afmælis land-
gönguliðs brezka flotans.
Wallace M. Greene, Jr., hers-
höfðingi, er í herráði Bandaríkj-
anna, mun koma til NATÓ
stöðvarinnar í flotabækistöðinni
við Keflavík klukkan 17 á
sunnudag. Hershöfðinginn og
fylgdarmenn hans munu dvelja
í flotastöðinni til mánudags.
Á mánudagsmorgun mun hers-
höfðinginn skoða stöðina, en
síðan mun hann koma til Reykja-
víkur. skoða sig um í höfuð-
borginni og gangn á fund ís-
lenzkra embættismanna. Að
loknum hádegisverði í sendiráði
Bandaríkjanna mun hershöfðing-
inn halda aftur til Keflavíkur-
stöðvarinnar og kanna þar land-
göngulið flotans* Héðan fer hann
á mánudagsmorgun til Washing-
ton.
Tveir blaðamenn
teknir höndum í
Jóhannesarborg
J ÓHANNESARBORG 24/7 —
Enn hafa tveir blaðamenn verið
handteknir í Jóhannesarborg fyr-
ir baráttu þeirra gegn apartheid.
Annar þeirra er ritstjóri blaðs-
ins „Post“, hinn er eigandi 3ja
blaða sem nú hafa verið bönnuð.
h/s ■ mg iícp< • jgr’.
Utsvör á ísafirði
nær 11,2 milj. kr.
Að kvöldi 8. þ.m, lauk fram-
talsnefnd álagningu útsvara á
Isafirði. Samkvæmt fjárhagsá-
ætlun bæjarsjóðs skyldi jafna
niður kr. 10.247.000,00. Þegar
lokið var niðurjöfnun samkvæmt
Iögboðnum útsvarsstiga sveitar-
féiaga, reyndist útsvarsupphæð-
Heldur minni laxveiði en í
fyrra en horfur eru góðar
í fréttatilkynningu sem Þjóðviljanum barst í gær frá
Veiðimálastofnuninni segir að laxveiði hafi verið góð 1
sumar en veiðitíminn er nú um það bil hálfnaður, Veiði
í júní var lítil í flestum ám en í júlí hefur víðast verið
góð veiði og ágæt sumstaðar og mikið af laxi gengið í
flestar ár. Veiðimenn hafa sumstaðar orðið varir við ó-
hemju mikið af laxi í ánum.
í ElliSaánum höfðu hinn 21.
júlí veiðst 410 laxar og er það
tvöfalt meira en í fyrra á sama
tíma. Laxgengd hefur verið mik-
il í árnar að undanfömu og
hinn 24. júlí hafði 2951 lax
gengiðN í gegnum laxakistuna.
Fju-ir fáum dögum höfou veiðzt
66 laxar í Ulfarsá og 100 í Leir-
vogsá. 1 Laxá í Kjós voru 246
laxar komnir á land um miðj-
an mánuðinn og 206 í Laxá i
Leirársveit. 1 Þverá höfðu þá
veiðzt 590 laxar og 404 í Norð-
urá og 118 í neðsta hluta Lang-
ár. Netaveiðin í Hvítá hefur
verið ágæt síðustu þrjár vik-
urnar.
f Dalaánum hafa veiðzt 50—
100 laxar fram að miðjum mán-
uði. Um míðjan júíí höfðu
veiðzt 387 laxar í Miðfjarðará,
380 í Víðidalsá þann 20. júlí
og 99 laxar í Svartá þann 14.
f Blöndu hefur verið góð veiði.
Hinn 4. júlí voru komnir 205
laxar á land. f Laxá í Þingeyj-
arsýslu var veiðin hjá Laxár-
íélaginu 259 laxar hinn 7. júlí.
f Þjórsá veiddist lítið framan af:
en veiðin er farin að glæðast.
Laxveiði í net í ölfusá hefur
verið ágæt að undanförnu, og
frétzt hefur um góða veiði á
stengur við Hellu, Iðu og í Stóru
Laxá.
Við samanburð á veiðinni i
einstökum ám nú og á sama
tímn í fyrra kemur fram, að
veiðin í flestum þeirra er nú
heldyr minni, en vænta má á-
gætrar veiði á næsfeu vijcum.
þar sem mikið hefur þegar
gengið af laxi í árnar eins og
áður segir. Sumarið 1963 var
eitt bezta veiðisumar, sem kom-
ið hefur, og getur veiðin í sum-
ar orðið ágæt, þó að hún fari
ekki fram úr veiðinni í fyrra
hvað laxafjölda snertir.
Veiðimálastofnunin hefur
merkt með uggaklippingum og
fiskmerkjum lax og silung í
Elliðaánum, Úlfarsá, Víðidalsá.
Laxá í Þingeyjarsýslu niður af
Mývatni og í ölfusá. Auk þess
hefur fullorðnum laxi með
merkjum verið sleppt í Tungu-
læk í Landbroti og uggaklippt-
um seiðum frá Laxeldisstöðinni
í Kollafirði. Fiskmerkingar eru
liður í rannsóknarstarfi, sem
miðar að því að auka þekkingu
á háttum vatnafiska okkar. Ár-
angur af fiskmerkingum er að
verulegu leyti kominn undir því.
að veiðimenn tilkynai réttum að-
ila um merlii^ fidr>. scm veið-
ast. Hafa veiðimenn sýnt merk-
ingarstarfinu mikinn vel\ ilja og
er framlag þeirra til merking-
anna þakkervert.
in kr. 13.125.650 eða kr. 2.878.650
hærri en áætluð útsvarsupphaeð.
Nefndin varð sammála um að
nota að fullu heimild um álag
vegna vanhalda og hækka á-
ætluð útsvör um 10% eða í kr.
11.271.700,00. Var þá mismunur-
inn orðinn kr. 1.853.950 eða 14%
og voru öll útsvör lækkuð um
þann hundraðshluta, skorti þá
aðeins 760 krónur á áætluð út-
svör að viðbættum 10%.
Eftirfarandi frávik voru gerð
frá útsvarsstiganum:
1. Ekki var lagt á ellúaun og
allar aðrar bætur Almanna-
trygginga.
2. Ekki var lagt á 25% af
launatekjum giftra kvenna.
3. Ölhim á aldrinum 67—70
ára var gert að greiða helming
útsvars og öllum 70 ára og eldri
einn fjórða útsvars. 1
Framhald á 2. síðu.
100 |>ús. kr. gjöf
til Barnaspítala-
sióðs Hringsins
Þann 20. þ.:n. afhenti yfir-
borgarfógetinn í Reykjavík
stjórn Kvenfélagsins Hringsins
kr. 103.267.36 sem er arfur eft-
ir fröken Guðrúnu Ámadóttur,
Hverfisgötu 39 í Reykjavík.
Fröken Guðrún andaðist síð-
astliðið haust í hárri elli. 1
eifðaskrá sinni ánafnaði hún
Barnaspítalasjóði Hringsins all-
ar eigur sínar.
Kvenfélagið Hringurinn bless-
að minningu þessarar ágætu
konu og sendir ættingjum henn-
ar kærar kveðjur.
(Frá Kvt ífálaginu Hringnum).
t