Þjóðviljinn - 31.07.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.07.1964, Blaðsíða 1
Föstudagur 31. júlí 1964 — 29. árgangur — 170. tölublað. Fylkingarferð um venlunarmannahelgina Mikil þátttaka er nú þegar komin í ferð Æskulýðsfylk- ingarinnar, um verzlunar- mannahelgina. Þess vegna hefur verið ákveðið að selja farmiða svo að hægara sé að tryggja öruggt far . fyrir hvern og einn. 1 því skyni er skrifstofan opin kl. 10—12.30 og 17—23.30 og verðp þar seldir miðar og allar upplýsingar gefnar um ferðina. Við skorum á alla sem á- huga hafa á a$ koma með í þessa glæsilegu og ódýru ferð Æskulýðsfylkingarinnar. — Æ.F.R. og Æ.F. . ELDFLAUGASKOT FRAKKA Á WÝRDALSSANDh Fyrri eldflauginni átti skjóta á íoft kl. 1 í nótt □ Kl. 1 í nótt áformuðu frönsku vísindamenn- irnir að skjóta á loft fyrri eldflauginni frá Mýr- dalssandi og var mikill viðbúnaður fyrir austan í gær í sambandi við skotið og blaðamenn og Ijós- myndarar frá blöðunum í Reykjavík drifu á vett- vang til þess að vera viðstaddir þennan merkilega atburð, festa hann á filmunv og skrifa um hann. Síðdegis í gær átti Þjóðviljinn tal við Pétur Sigurðsson for- stjóra Landhelgisgæzlunnar og Einar Oddsson sýslumann í Vík í Mýrdal og innti þá frétta af viðbúnaði af hálfu íslenzkra yf- irvalda í sambandi við skotið. Pétur Sigurðsson skýrði svo frá að landhelgisflugvélin Sif myndi verða látin fljúga yfir svæði það innan íslenzkrar land- helgi sem afmarkað- hefur ver- ið sem hættusvæði þar eð flug- skeytið lendir þar í sjónum. Mun flugvélin ganga úr skugga um að ekkert skip sé á svæð- inu og síðán mun varðskipið Óð- inn gæta svæðisins og halda öllum skipum burtu frá því. ☆ ☆ ☆ Framkvæmdastjóri tilrauna Frakka á Mýrdalssandi er Mozer og á myndinni sést hann líta upp til „drekans“ á' skotpallinum. !p®v Þctta er Dragon-eldflaugin franska á skotpallinum. Hver er tilgangurinn með eldflaugaskoti Frakka og hvemig haga þeir þessum tilraunum sínum? mun margur spyrja. — Sjá frétt á 12. síðu. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar óskar eftir að aluminíumverksmiðjan verði þar ÍHALD OG KRATAR GEGN ÞVÍ AÐ HÚN VERÐI í EIGU fSLENDINGA 1 Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í fyrradag sameinuðust bæjarfulltrúar Alþýðu- Jlokksins og Sjálfstæðisflokksins um að fella tillögu Alþýðubandalagsins og Framsókn- r þess efnis að því aðeins óskaði bæjarstjórnin eftir að fyrirhugaðri aluminíumverk- miðju verði valinn staður í Hafnarfirði, að hún verði í eigu íslendinga og undir þeirra '•firráðum. Fyrir bæjarstjórnarfundinum I arráði: ..Bæjarstjórn Hafnar- lá eftirfarandi tillagn frá bæj-1 fjarðar samþykkir að fela btej- Forsetinn verður settur inn i embætti á ný 1. ágúst n.k. Herra Ásgeir Asgeirsson tek- ur á ný við forsetaembætti laug- irdaginn 1. ág. n.k. Athöfnin sfst í dómkirkjunni klukkan álf fjögur, en afhending kjör- éfs fer síðan fram í sal neðri eildar Alþingis. Er kjörbréf . fur verið afhent. mun for- oti koma fram á svalir þing- hússins. Þeir. sem ætla að vera við kirkjuathöfnina. eru beðnir að vera komnir í sæti fyrir klukk- an hálf fjögur. f alþingshúsinu rúmast ekki aðrir en boðsgest- ir. Gjallarhornum verður komið fyrir úti svo að menn geti fylgzt með því, sem fram fer í kirkju og þ’nghúsi. Lúðrasveit mun leika á Austurvelli. (Frétt frá forsætisráðuneytinu 29. júlí 1964). arráði og bæjarstjóra að at- huga alla möguleika á því að fyrirhugaðri aluminíumverk- smiðju verði valinn stað.ur í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarð- ar“. Kristján Andrésson, bæjarfull- trúi Alþýðubandalagsins, vakti athygli á því, að þessa tillögu bæri að með nokkuð óvanaleg- um hætti, þar sem þessi fund- ur hefði verið boðaður á síð- usfu stundu — og ekki með löglegum fyrirvara — út af öðru aðkallándi máli. Það hlyti að vera eitthvert sérstakt til- efni þess að þessi tillaga um slíkt stórmál væri lögð fram nú. Auk þess væri það nýlunda í bæjarstjóm að tillögur væru lagðar fram án þess að flutn- ingsmenn fylgdu þeim úr hlaði með einhverjum skýringum. Kristinn Gunnarsson sagði að lokaákvörðun um staðsetningu verksmiðjunnar yrði á dagskrá næstu mánuði, og væri trma- bært að Hafnfirðingar létu í ljós, að þeir hefðu hug á að hún yrði staðsett innan bæjar- landsins, sem einmitt hefði ver- ið stækkað nýlega allt suður að Straumi. Yrði það áreiðanlega mikið hnoss að fá verksmiðjtma hingað. Kristján Andrésson tók aftur til máls og sagði, að það væri að vísu Vafasamt hvað ynnist við að fá slíkt fyrirtæki í bæ- inn. en hann myndi styðja til- löguna með fyrirvara sem fæl- ist í viðbótartillögu sem hann flutti þess efnis að við aðaltil- löguna bættist „enda verði verk- smiðjan eign íslenzkra aðila“. Bæjarfulltrúi Framsóknar, Vil- hjálmur Svein»s0n, flutti þessa Framhald á 9. síða. Einar Oddsson sýslumaður í Vík sagði blaðinu að þar eystra hefði verið þoka og rigning framan af deginum en síðdegis létti til og taldi hann allar horf- ur á að hægt yrði að skjóta eldflauginni á loft ef veðrið héld- ist óbreytt fram yfir miðnættið. Búið var í gær að fresta skot- inu fram til kl. 1 eftir miðnætti og jafnframt var búið að taka ákvörðun um það að skjóta að- eins annarri eldflauginni á lóft að þessu sinni en hinni verður skotið á loft eftir næstu helgi. Þá sagði sýslumaður að sveit lögregluþjóna, alls 9 eða 10 menn myndi gæta þess að eng- inn færi inn á afmarkað bann- svæði umhverfis eldflaugina. Verður þjóðveginum lokað skömmu áður en henni verður skotið á loft. Laxinn leitar til Kollaf jarðar aftur Fyrir þrem árum hóf veiði- málaskrifstofan tilraunir með laxaklak í Kollafirði og voru m.a. flutt þangað seiði úr Ell- iðaánum. Nokkru hefur verið sleppt og hafa menn verið mjög spenntir að vita hvemig til tæk- ist, hvort laxinn leitaði til upp- eldisstöðvanna aftur. I dag náð- ist svo lax í Kollafirðinum, sem greinilega ber þess merki að hann hefur verið tvö ár í fersku vatni og eitt ár í sjó. Má vænta þess að fleiri fylgi eftir, en lax Sæmilegt veiðiútlit í gærkvöld höfðu 14 skip til- kynnt um afla hjá síldarleitinni á Seyðisfirði og höfðu samanlagt uib 13.000 tunnur. Gott veður var þá á miðunum og sæmilegt útlit. Tvisvar á sama stað Slökkviliðið í Reykjavík var kallað tvisvar út í fyrrinótt að húsi Sláturfélags Suðurlands við Lindargötu. hefur aldrei gengið í Kollafjörð áðúr. 4 þús. tunnur saltaðar á Siglufírði Siglufirði 30. ágúst. — Hér hefur verið saltað í dag um 4000 tunnur af síld. Síldin, sem barst veiddist um 70 mílur út af Langanesi. Þessi skip komu með afla: Hafrún IS 11—1200 tunnur. Einar Þveræingur IS 500 tunnur. Guðbjartur Kristján IS 1000 tunnur. Anna SI 4—500 tunnur. Sigurður SI 500 tunnur. Guðrún GK 500 tunnur. Skipin lögðu upp hjá söltunarstöðvunum Nöf, Vestu, Isafold sZf, Hafliða h/í og Hrímnir. Síld þess var öll góð og ekki gekk neitt óeðlilega mikið úr henni. Svar hafnarverkamanna við útsvarsálagningunni: Hætta allri næturvinnu Eftir hinn látlausa áróður í- haldsblaðanna um skattalækkan- ir viðreisnarstjórnarinnar kom það eins og reidarslag yfir marg- an manninn, þegar útsvörin voru birt í fyrradag. Þecta á ekki sízt við um daglaunamenn sem hafa stritað árið um kring í eftir- og næturvinnu sér til bjargar í sívaxandi dýrtíð við- reisnarstjómarinnar. Nú sjá þessir menn að allt talið i lækkun skatta er blekking megnið af því sem þeir h; þannig unnið sór inn er tekið þeim aftur. Verkamenn við höfnina < staðráðnir í að hætta allri ns urvinnu, og í gærkvöld er þ voru beðnir að vinna áfram i uppskipun úr Gullfossi, þá ne uðu þeir allir sem einn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.