Þjóðviljinn - 31.07.1964, Side 3
Föstudagur 31. Júlí 1964
rnmum
-ir:«
SÍÐA 3
Te í grisjumog
1 venjulegt
og mstanr
Súkkulaðiduft
Kex margar tegundir
Gosdrykki
dósutnl
flöskum
Ávextir
—^íii g, r
Súpur í pökkum,
■^Jódýrar og ljúffengar
' Búði
eitir
Niðursuðuvörur
sardfnur, gaffalbitai
smjo
kjöt,
Kjoibuðingur, svið
fjskbúðíngur ogtf
'^^^^■HBskboliur
vindlar,
mMI
mimÍMWM
!sPýtur
|| Snyrtivörur
;em, rakbíöð.
j^kmrn, tannburstar.
Viandsapa-
lTldáburðurog
;ólkrem
MATVÖRUBÚÐIR
VERÐUR ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA
KOMMÚNISTA HALDIN í HAUST
MOSKVU 30/7 — Samkvæmt fréttum frá Moskvu í gær
er því haldið fram, að Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna
áformi nú að halda undirbúningsfund innan sex vikna
fyrir alþjóðlegt kommúnistaþing, sem á að ræða hug-
myndafræðilegan ágreining leiðtoga Sovétríkjanna og kín-
verska alþýðulýðveldisins.
Sagt er. að Sovétríkin æt!i
nú á næstu dögum að senda
út boð til þessa fundar.
Þó fréttin sé ekki opinberlega
staðfest er á það bent, að hún
sé í samræmi við ýmis merki
þess. að Sovétríkin séu ákveðin
i því að knýja fram endanlegt
uppgjör við Kína.
Fundarboð verður sent 26
flokkum, sem skrifuðu undir
Enn ein nýlenda
fær sjálfstæði
LONDON 30/7 — Gambía, sem
er síðasta brezka nýlendan í
Vestur-Afríku, mun hljóta full-
veldi sitt 18. febrúar 1965. Þetta
var tilkynnt í London í dag að
lokinni ráðstefnu, sem fjallaði
um stjómarskrá fyrir Gambía.
Gambía verður meðlimur
brezka samveldisins og Elisabet
drottning verður þjóðhöfðingi.
Bretland hefur heitið hinu nýja
ríkri efnahagslegum stuðningi.
Kröfur frá stjómarandstöðu-
hreyfingu í landinu um að
haldnar verði nýjar kosningar
áður en landið fær sjálfstæði
var vísað frá á ráðstefnunni í
London, en þar voru til um-
ræðu fjöldi vandamála í sam-
bandi við sambúð Gambíu og
grannríkisins Senegal.
Samkvæmt yfirlýsingunni ger-
ir Gambía ráð fyrir nánari sam-
vinnu við Senegal eftir að þessi
núverandi nýlenda hlýtur sjálf-
stæði sitt.
1 Gambíu búa u.þ.b. 320.000
manns
einingar-yfirlýsingu að lokinni
siðustu alþjóðaráðstefnu komm-
únista, sem haldin var í Moskvu
1960. 1 hópi þessara flokka eru
kínverski flokkurinn, allir
kommúnistaflokkar, sem sitja
við völd í Aíustur-Evrópu,
franski, ítaiski og fjölmargir
aðrir kommúnistaflokftar í Vest-
ur-Evrópu, Asíu og Suður-Am-
eríku.
Fréttamenn í Moskvu telja ó-
tvírætt. að kínverski flokkurinn
muni afþakka boðið, og er litið
svo á, að alþjóðaráðstefnuna
eigi að halda til þess að reyna
að útiloka Kínverja úr alþjóða-
hreyfingu kommúnista.
Verði þessi áform sovézkra
kommúnistaleiðtoga um undir-
búningsfund framkvæmd, verður
líklega alþjóðaráðstefnan haldin
í haust ef til vill í sambandi
við hátíðahöldin 7. nóvember.
Samkvæmt fregnunum verður
undirbúningsfundurinn haldinn
seinast í ágúst' eða í september-
byrjun.
Fréttamenn segja að svo til
daglegar árásir sovézkra og kín-
verskra kommúnista hvorra á
aðrn bendi til þess, að verði
af alþjóðaráðstefnunni hljóti
hún að leiða til formlegrar
klofnunar.
Ákvörðun sovézka flokksins er
talin sýna, að hún hafi nú tryggt
sér nægan liðsstyrk í barátt-
unni við Kína.
Nýjar ásakanir
I gærkvöld réðst sovézka
stjómarmálgagnið . „Isvestia“
harkalega að Kínverjum og á-
sakar þá fyrir að telja Mongó-
líu kínverskt landssvæði.
í blaðinu er TASS-tilkynn-
ing frá höfuðborg Mongólíu.
Ulan Bator birt á áberandi stað,
en þar er vitnað í málgagn
mongólska kommúnistaflokksins,
sem skýrir frá því að fyrir
nokkrum árum hafi mongólsk-
um stúdentum í Kína verið sýnt
landabréf, þar sem ekki voru
dregin nein landamæri milli
Mongólíu og Kína.
Talið er að þetta sé enn skref
til versnandi sambúðar Sovét-
ríkjanna og Kina og dragist nú
Mongólþ, æ meira inn í deil-
umar.
Kínverjar ekki með
PEKING 30/7 — Kínverski
kommúnistaflokkurinn hefur enn
þvertekið fyrir áskoranir Sovét-
ríkjanna um að taka þátt í al-
þjóðaráðstefnu, sem verði köll-
uð saman sem fyrst. Kínverjar
undirstrikn það, að þeir muni
aldrei taka þátt í nokkurri al-
þjóðarstefnu eða undirbúnings-
fundi fyrir slíka ráðstefnu, sem
Sovétríkin efni til með það fyr-
ir augum að kljúfa alþjóðahreyf-
ingu kommúnista. ,,Við trúum
því statt og stöðugt, að daginn
sem slík ráðstefna verður hald-
in getið þið lagzt rí gröfina“,
segja Kínverjar.
Makarios og Grikkjastjórn
vísa sáttatillögunum á bug
AÞENU 30/7 — Makarios for-
seti og gríski forsætisráðherr-
ann George Papandreou lýstu
því enn á ný yfir í gær, að
þeir væru ákveðnir í því að
tryggja íbúum Kýpur rétt til
frjálsrar ákvörðunar um eigin
framtíð.
1 yfirlýsingu. sem birt var eft-
ir tveggja daga viðræður Maka-
riosar og grískra ráðherra er
Blökkumannaleið-
togar halda fund
NEW YORK 30/7 — Leiðtogar
blökkumanna úr sex helztu
mannréttindasamtökum þeirra
fóra þess á leit í gær að öllum
fjöldakröfugöngum verði frest-
að fram yfir forsetakosningarn-
ar í haust.
Jafnframt réðust þeir að for-
setaefni Repuþlikana, Barry
Goldwater. Þeir sögðu að lýð-
ræði í landinu væri ógnað af
stefnuskrá þeirri sem samþykkt
var á flokksþingi Republikaná í
San Francisco í miðjum júlí.
Blökkumannaleiðtogarnir báðu
meðlimi samtaka sinna að láta
skrá sig á kosningaskrár og taka
þátt í stjórnmálabaráttu í land-
inu. Áskorunin var birt eftir
fund þeirra í New York.
Samtímis sat Robert Wagner
borgarstjóri í New York enn
fund með hinum þekkta blökku-
mannaleiðtoga, prestinum Mart-
in Luther King. Báðir voru
fundir þessir haldnir til að leita
úrræða til að koma í veg fyr-
ir nýjar kynþáttaóeirðir í heims-
borginni.
Viðræður Wagners borgar-
stjóra og Martins Luther Kings
era sagðar hafa snúizt einkum
um undirbúning til fram-
kvæmda á nokkurs konar smá
Marshall-áætlun í þeim tilgangi
að aðstoða þeldökka íbúa New
York.
Á fundi blökkumannaleiðtog-
anna voru tvö meginmál á dag-
skrá:
1. Hvernig hægt verði að berj-
ást gegn forsetaefni Republik-
ana Barry Goldwater í komandi
kosningum.
2. Hvernig stuðla megi að
sagt að báðar ríkisstjómir muni
fylgja stefnu sem mörkuð sé
virðingu fyrir friði og hugsjón-
um Sameinuðu þjóðanna.
Þvi er lýst yfir að báðar rík-
isstjórnirnar hafi nákvæmlega
sama viðhorf til þessara vanda-
mála.
1 gær átti Makarios þriggja
tíma fund með Papandreou for-
sætisráðherra, og tóku bæði utan-
ríkisráðherrar og vamarmála-
Váðherrar beggja landa þátt í
honum.
Eftir fundinn sagði Makarios
blaðamönnum, að Kýpurstjórn
muni leggja málið fyrir allsherj-
arþing SÞ á tilsetfcum tíma.
Muni stjórnin fara fram á
stuðning við hugmyndina um
sjálfstæði Kýpur og sjálfsá-
kvörðunarrétt eyjarskeggja.
í gær var í sex tíma við og
vib skipzt á skotum á Kýpur
í héraðinu milli kýpur-gríska
bæjarins Pakhyammos og kýpur-
tyrkneska bæjarins Mansoura á
norðvestur hluta eyjarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá
sveitum SÞ hefur kýpur-grísk
bílalest enn haldið úr lokaða
hafnarbænum Limassol á þriðju-
dagskvöld. í henni voru 37 bíl-
ar. Sagt er að breitt hafi verið
yfir nafn skipsins sem losaði
í höfnmni.
Nýjar tillögur
— Sérlegur sendimaður Lynd-
on Johnsons Bandaríkjaforseta á
Kýpur Dean Acheson hefur lagt
áætlun í fimm liðum um lausn
Kýpurvandamálsins fyrir grísku
ríkisstjómina samkvæmt frásögn
talsmanns hennar í Aþenu 1
dag.
Opinberir aðilar í Aþenu hafa
skýrt frá því. að samkvæmt
áætluninni eigi Kýpur að sam-
einast Grikklandi, þess i staf
láti Grikkir Tyrkjum í té smá-
eyna Castellorizon, serri er
skammt undan strönd Tyrklands,
enn fremur fái Tyrkir að koma
upp herstöð á Kýpur. Tyrk-
neskir íbúar Kýpur sem vilja
yfirgefa eyjuna og setjast ac
annars staðar fá skaðabætur o|
komið verði upp á Kýpur sér-
stökum svœðum fyrir Tyrki, o£
verði þau undir tyrkneskr:
stjóm.
Makarios forseti lýsti því yfii
í dag, að ekki væri hægt ai
fallast á áætlunina, sem Dear
Acheson hefur lagt fram un
friðsamlega lausn deilunnar
Hann sagði einnig að grísk?
stjórnin gæti heldur ekki gengii
að henni og bætti við, að slík-
ar tillögur frá sjálfskipuðum
milligöngumönnum gætu aldrei
leitt til nokkurrar lausnar á
Kýpurdeilunni.
IVlartin Lutlier King
framkvæmdum nýju mannrétt-
indalaganna, án þess að æsa
upp fjandsamlegar tilfinningar
hvítra manna.
Frá Tuscaloosa í Alabama ber-
ast þær fréttir, að í gær hafi
dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna í fyrsta sinn notað rétt
sinn samkvæmt nýju mannrétt-
indalögunum til þess ao sak-
sækja hvíta veitingahúseigendur,
sem hafa neitað blökkumönnum
um afgreiðslu. Samtals k-'fur 26
man..s verið stefnt.
Erhard bíður
heimsóknar
Krústioffs
BONN 30/7 — Ludwig Erhard
kanzlari sagði í gær, að hann
byggist við skýrum svöram á
næstunni frá Krústjoff forsætis-
ráðherra um hugsanlega heim-
sókn hans til Vestur-Þýzkalands.
Erhard talaði við þingflokk
Kristilegra Demókrata og sagði
m.a., að Sovétríkin hefðu ekki
breytt afstöðu sinni til Þýzka-
landsmálanna, en bætti við að
honum væri ánægjuefni, að um-
mæfi Krústjoffs tim Vesti'"
Þýzkaland væru nú yfirleitt
kurbeisari en áður.
0 Þant í Moskvu
MOSKVU 30/7 — Aðalritari SÞ
U Þant skýrði frá því í dag, að
Sovétríkin hefðu ekki skipt um
stefnú hvað varðar útgjöld til
að greiða kostnað af gæzluliði
SÞ í Kongó og Austurlöndum
nær. U Þant sagði að ekkert
hefði bent til þess, að Sovétríkin
mundu skipta um skoðun í
þessu máli, en þau telja þessar
áðgerðir ólöglegar.
Á blaðamannafundinum neit-
aði hann að segja nokkuð um
það, hvort gerðar yrðu tilraun-
ir til að svipta Sovétríkin at-
kvæðisrétti á -allsherjarþingi SÞ
í har.st, í samræmi við SÞ sátt-
málann.
Þá sagðist hann ekki enn hafa
tekið ákvörðun um það, hvort
hann bjóði sig aftur fram til að
gegna störfum aðalritara, er
kjörtímabili hans lýkur í nóv-
ember 1966.
Annars sagði hann að viðræð-
ræðurrar, sem farið hcfa fram
í hjartanlegu andrúmslofti
hefðu verið nytsamar, Iiefði
hann skipzt á skoðunum um
fjárhagsvandræði SÞ við þá
Krústjoff og Gromiko utanríkis-
ráðherra. Einnig hefði verið rætt
um framtíð SÞ, afvopnunarmál
og ástandið í Suðaustur-Asíu og
á Karabíuhafi.
Fatnaður oq ferðavörur í
Liverpool
SVEFNPOKAR
BAKPOKAR
TJÖLD
VINDSÆN GUR
GASSUÐUTÆKI
BÚSÁHÖLD
í tösku
SUNDBOLIR
SUNDSKÝLUR
GARÐSTÓLAR
og borð
MYNDAVÉLAR
VEIÐISTANGIR
SPORTSKYRTUR
STRIGASKÓR
Vefnaðarvörubúð
Skólavörðustíg 12
STRETCHBUXUR
BLÚSSUR
PEYSUR
KARLMANNA-
NÆRFÖT:
BOLIR 34,85
SKYRTUR
hálferma 44,30
BUXUR
síðar 63,25
stuttar 33,70
netcfnar 34,85