Þjóðviljinn - 31.07.1964, Síða 4
4 SIÐJL
Otgelandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: tvar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kl- 90,00 á mánuði.
Hinir ánægðu...
■*/forgunblaðið reynir í gær meir af vilja en mætti
-*-*-*- að guma af skattastefnu ríkisstjórnarinnar,
enda eru „vinsældir“ þeirrar stefnu löngu
sprungnar á sjálfumglöðu hóli ráðherranna um
þessi verk sín. Þær gjafir hafa aldrei þótt mikils
virði, sem menn hafa þurft að gjalda margföldu
verði eftir á. Lítils háttar niðurfærsla á beinum
tekjuskatti er þannig tekin aftur margfaldlega af
launþegum í stórhækkuðum söluskatti, sem ríkis-
stjórnin hefur lagt á allar almennar neyzluvörur.
Sú skattheimta leggst að sjálfsötsiá*i þyngst á þá,
sem einungis hafa þurftartekjur, og er það því
vissulega blygðunarlaus óskammfeilni, þegar því
er haldið fram af stjórnarblöðunum, að skatt-
heimta ríkisins af lægstu launum hafi verið af-
numin. Útsvarsskráin í Reykjavík sannar mönn-
um líka eftirminnilega, að bæjarstjórnarmeirihlut-
inn fylgir stjórnarstefnunni dyggilega eftir í ó-
svífinni skattheimtu af borgurunum.
TT'n það er þó rétt hjá stjórnarblöðunum að til eru
■“. þeir aðilar, sem hafa._sérstaka ástæðu til þess
að vera ánægðir með stefnu ríkisstjórnarinnar í
skatta- og útsvarsmálum. Frá því 1958 hafa út-
svör í Reykjavík nærfellt tvöfaldazt að krónutölu.
Árið 1958 námu álögð útsvör rúmum 225 miljón-
um króna en eru í ár komin upp í röskar 436 milj-
ónir. Hækkunin nemur þannig hvorki meira né
minna en 211 miljónum króna, en nálega öll þessi
hækkun eða tæpar 203 miljónir er lögð á hinn
almenna skattgreiðanda, en hækkun á félögum og
stórfyrirtækjum nemur aðeins röskum 8 miljón-
úm. Ef jafnframt er litið á það að þessi 8 miljón
króna hækkun og meira til er öll borin af einu
fyrirtæki, Loftleiðum, sem greiða 16 miljónir í út-
svar, sést að álögur á öðrum stórgróðafyrirtækjum
hafa í rauninni lækkað um 8 miljónir á sama tíma
og álögur á einstaklinga í bænum hafa hækkað
um nær 203 miljónir króna sem að framan grein-
ir. Þannig hafa skattar og útsvör lækkað gífurlega
á stórgróðafyrirtækjum eins og t.d. H. Benedikts-
son h.f., olíufélögunum, Sameinuðum verktökum,
Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni svo aðeins örfá
dæmi séu nefnd, en að sjálfsögðu eru þessir aðilar
harla ánægðir. Þessar staðreyndir ættu menn að
hafa í huga, þegar þeir fá í hendur ska'ttmiða sína.
Verzlunarmannahelgin
1 Tm næstu helgi, verzlunarmannahelgina, má bú-
^ ast við miklum straumi ferðafólks út um
byggðir landsins. Oft hefur það borið við, að um-
gengni fólks í slíkum ferðum hefur verið mjög
ábótavant, og margskonar leiðindaatburðir og jafn-
vel slys hafa komið’fyrir, þar sem fjölmenni hefur
safnazt saman. Þjóðviljinn beinir því til manna
að gæta fyllstu varfærni á vegum úti, ganga alls
staðar vel um og koma menningarlega fram jafnt
á skemmtistöðum sem á víðavangi. Allir þurfa að
Hggjast á eitt til þess að tryggja að skemmtanir
verzlunarmannahelgarinnar veiti mönnum gleði
og ánægju, en komi ekki ómenningarorði á þjóð-
ina. — b.
ÞlðÐVILIINN
Föstudagur 31. jall 1954
Gísli Jóhannsson, s!:r*fstofustjóri
Minning
Gísli Jóhannsson, skrifstofu-
stjóri Síldarútvegsnefndar í
Reykjavík er í dag til moldar
borinn.
Hann lézt af slysförum hinn
24. þ. m. tæpra 35 ára að aldri.
fæddur 5. ágúst 1929. Að hon-
um var mannskaði og eftirsjú
Gísli var kominn af merkuni
bændaættum í Skagafirði. son-
ur hjónanna Sigríðar Gísladótt-
ur, sem ættuð er frá Ljóts-
stöðum á Höfðaströnd og Jó-
hanns Guðmundssonar, bónda
að Þrasastöðum.
Bam að aldri fluttist Gísti
með foreldrum sinum til Siglu-
fjarðar og hafa þau átt þar
heima síðan. En strax er Gísli
hafði aldur til settist hann i
Verzlunarskóla Islands og lauk
þaðan prófi vorið 1948 með
góðum vitnisburði. enda mikill
námsmaður og góðum gáfum
gæddur.
Árið 1952 kvæntist hann eft-
irlifandi konu sinni Guðrúnu
Gunnars, fósturdóttur hjón-
anna Steinþóru Einarsdóttur og
Gunnars Jóhannssonar, fyrrv
alþingismanns. Siglufirði.
Þau hjónin Guðrún og Gísli
eignuðust þrjú börn, dreng.
sem er 12 ára og tvær stúlkur.
8 og 2 ára.
Síðustu 14 ár ævinnar var
Gísli starfsmaður Sfldarútvegs-
nefndar og síðustu árin skrif-
stofustjóri á skrifstofu nefndar-
innar hér í Reykjavík.
Hinn stutti — aflt of stutti
— æviferill Gísla Jóhannssonar
er saga um prúðmenni á stöð-
ugri þroskabraut, sem aldrei
varð gengin til enda.
Með atorku og fyrirhyggju
hafði Gísli og Guðrún kona
hans búið sér og börnum sín-
um fyrirmyndar heifnili að
Kleppsvegi 46 í Reykjavík,
vistlegt, friðsælt og hagkvæmí.
Á því heimili ríkti ástúð og
eindrægni. Nú er þar á bak að
sjá ástríkum eiginmanni og
föður.
Oft hef ég heyrt þá, sem ná-
kunnugastir eru þeim efnum
hafa orð á því hve Gisli: hafi
verið foreldrum sínum og
tengdafoi’eldrum ljúfur. eftir-
látur og hugulsamur sonur og
systkinum sínum elskulegur og
hjálpsamur bróðir. Það er
einkunn góðs manns.
Þessi nánustu skyldmenni og
tengdafólk Gísla heitins Jó-
hannssonar eru lostin dýpstum
harmi við fráfall hans.
Ástvinamissir veldur ávallt
tárum og sársauka, jafnvel
þegar aldraðir ástvinir falla
frá, þeir, sem lokið haía ævi-
starfi sínu og falla samkvæmt
réttum rökum lífsins.. En þeim
ofurþunga sorgar og saknaðar.
sem lýstur þá, er missa ást-
vini sína óvænt meðan þeir
eru í blóma lífsins fá þeir ein-
ir skiflð, er reynt hafa. Þar
eru orð einskis nýt til hugg-
unar. En ég óska þess ykkur
til handa, ástvinum Gísla heit-
ins Jóhannssonar, að ykkur
endist þrek og styrkur til að
rétta við, eftir þetta þunga á-
fall, sem þið hafið orðið fyrir.
Ég, sem þessar linur rita,
hef átt því láni að fagna að
hafa náin kynni af Gísla Jó-
hannssyni á annan tug ára og
hef löngum unnið í nánu sam-
starfi við hann.
Frá þeim samvinnu og sam-
verustundum. á vinnustað og
utan, á ég margar minningar
og góðar.
Hann var óvenju farsæll
starfsmaður. Vann verk sín
með þeirri stillmgu og aðgæzlu,
sem honum var öðrum mönn-
um fi-ekar lagin, flausturslaust
og með fullu öryggi. þó margt
kallaði að í senn. Mér er óhætt
að fullyrða, að allir sem höfðu
skipti við hann — og þeir voru
margir — báru til hans fullt
traust og virðingu fyrir starfs-
hæfni hans óg prúðmannlegri
framkomu. Ekkert var honum
fjær skapi en sýndai-mennska
og yfirlæti. Hann sóttist ekki
eftir mannvirðingum og hafði
ímugust á þeim, sem gera til-
raunir til að hlaupa virðing-
una uppi. Vissi sem er, að
hún dvelur langdvölum hjá
þeim einum. sem tilhennar
vinna og eru hennar verðir.
Það er eftirtektarvert hve oft
menn, sem voru honum kunn-
ugir leituðu til hans þegar
þeim þótti úr vöndu að ráðá,
jafnvel þegar á fyrstu starfs-
árum hans hjá Síldarútvegs-
nefnd. Mörg hollráð Voru til
hans sótt af mönnum, sem
voi-u honum eldri að árum. Á-
stæðan er auðsæ: Svörin voru
• Framhald á 9. síðu.
SUPA-MATIC
Handklœðaskápar
Allir vilja að sjálfsögðu fá hreint handklæði eftir handþvott á
vinnustað eða skemmtistað. Svarið við þeirri sjálfsögðu . ósk er
SUPAMATIC-handklaeðaskápur.
Við sjáum um uppsctningu og viðhald skápanna — og sjáum um
þvott á handklæðarúllunum, sem skáparnir geyma, á Iægsta fá-
anlegu verði.
Sá sem handklæðis þarfnast, dregur sér einungis hreinan kafla, og
tímastillir i skápnum gefur eftir ákveðna Iengd af hreinu, áferð-
arfögru handklæði, en vefur hinu notaða á aðra rúllu í skápnum.
Þegar rúllan er tæmd, setjum við hreina rúllu í skápinn, en tök-
um hina í þvott.
Umstang og umsjón er öll í okkar höndum — alltaf hreint hand-
klæði fyrir hendi.
Supamafic
handklæðaskápurinn er sterkbyggður og vandaður. Hann geymlr
rúllu með um það bil 41 m. löngu handklæði úr góðu efni. Tíma-
stilllr í skápnum „skammtar,‘ ca. 200 tandurhreina fleti. Slikt
tæki er nauðsynlegt í snyrtiherbergjum hjá verksmiðjum, skrif-
stofum, veitinga- og skemmtistöðum, kvikmyndahúsum, verzlun-
um, skólum, sjúkrahúsum ..
— og allsstaðar þar sem hreinlæti er í heiðri haft.
•: ' : ; • - . ■' -2'- '5 70<J
Supamatic junior
cr smærri gerð handklæðaskápanna. Minni skápur-
Inn er eins sterkbyggður og sá stærri. Skápurinn
er 35,5 sm. á hæð en skagar aðeins 20 sm. út frá
vegg. Hann vegur aðcins tæp 7 kg. (auk handklæðis)
og gæti hangið á hurð.
Akjósanlegt hreinlætistæki fyrír smærri verzlanir,
Iitlar skrifstofur, læknastofur, tannlækna og jafnvel
á heimilum. Skápurinn er svo auðveldur í notkun, að
jafnvel barn gæti skipt um rúllu í honum.
Við gefum allar upp-
lýsingar um uppsetn-
ingu skápanna, verð
og kostnað við rúllu-
þvottinn.
Aukið hreinlæti
og sparnaður.
Dragið ekki að setja upp handklæðaskáp, þeir eru fyrirliggjandi núna.
Borgarþvottahúsið h.f.
Borgaxtúni 3. — Símar: 17260, 17261 og 18350.