Þjóðviljinn - 12.08.1964, Blaðsíða 3
Mlðvikudagur 12. ágúst 1964
ÞJÖÐVUllNN
SlDA 3
VOPNAHLÉ HALDIÐ Á KÝPUR OG
BÚIZT VIÐ FRIÐSAMLEGRI LAUSN
Óameríska nefndin ásakar
kommúnista um forsetamorð
WASHINGTON 10/8 — Oamer-
íska nefndin, sem fulltrúaþing-
ið í Washington skipaði, sakar
Kommnnistaflokk Bandarikjanna
um að hafa hvatt til morðsins
á Kennedy forseta með áróðri
sínum og undirróðursstarfsemi.
Þetta kemur fram í árlegri
Tilboð óskast
í raflagnir í ný póst- og símahús í Grafarnesi,
Stykkishólmi og Þorlákshöfn.
Útboðsgögn verða afhent á viðkomandi símstöðv-
um og hjá aðalgjaldkera pósts og síma í Reykja-
vík, gegn 500 króna skilatryggingu.
Tilboð sendist póst- og símamálastjórninni eða við-
komandi símstjóra fyrir 31. ágúst 1964.
11. ágúst 1964.
Póst- og símamálastjómin.
r r
TÆKNISKOUISIANDS
tekur væntanlega til starfa í fyrsta sinn' um 1.
okt. n.k. og mun starfa í tveim deildum:
1. UNDIRBÚNINGSDEILD, er lýkur með inn-
tökuprófi í íslenzka og erlenda taekniskóla.
2. DEILD í TÆKNISKÓLA ÍSLANDS er lýkur
með prófi í fyrri hluta tæknináms.
INNTÖKUSKIL YRÐI:
Undirbúningsdeild:
a) Umsækjandi hafi lokið iðnnámi eða
b) Umsækjandi hafi lokið gagnfræðaprófi og
fullnægi kröfum er gerðar verða um verk-
lega þjálfun.
TÆKNISKÓLI:
a) Umsækjandi hafi lokið prófi frá. undirbún-
ingsdeild eða
b) Umsækjandi hafi iokið stúdentsprófi stærð-
fræðideildar menntaskóla og tilskildri verk-
legri þjálfun. (Veitir aðgang í seinna missiri
fyrri hluta náms.)
Nánarí upplýsingar verða veittar og umsóknar-
eyðublöð afhent á kennarastofu Vélskólans í
Reykjavík, Sjómannaskólanum, kl. 2—4 alla virka
daga frá og með 24. ágúst næstkomandi.
Umsóknir um skólavist sendist til Tækniskóla
íslands, Sjómannaskólanum, eigi síðar en 10.
september n.k.
TÆKNISKÓLI ÍSLANDS.
skýrslu nefndarinnar, sem er ny-
lega birt, ekki tekur hún þó af-
stödu til þess: .,hvort morðið á
Kennedy forseta hafi verið eins
manns verk eða unnið í sam-
særi.“
Kenningunni. að Lee Harvev
Oswald hafi verið einn um að
myrða forsetann, verður opinber-
lega haldið fram í skýrslu, sem
rannsóknarnefndin sem Earl
Warren hæstai’éttardómari er
fyrir, mun birta opinberlega i
september.
Öameríska nefndin bendir aft-
ur og aftur á það í umræðu
sinni uin forsetamorðið, að Os-
wa'ld hafi átt sér kommúnist-
íska fortíð og kréfst þess, að
þingið setji lög um það, að Sam-
bandslögregla Bandaríkjanna
skuli sjá um rannsókn á morði
forseta eða varaforseta.
Fonnaður nefndarinnar, þing-
maður Demokrata E. Willes
skrifar í formála að skýrslunnni
að ef til vill hefði Kennedy ekki
verið myrtur ef: „öll bandaríska
þjóðin hefði gengið betur fram
í því síðustu ár að afhjúpa lyg-
ina í kommúnistískum áróðri í
föðurlandinu, svo æskulýður
okkar hefði ekki verið leiddur
á viJligötur.“
Segja má, að allt hafi verið með kyrrum kjörum á Kýp-
ur síðastliðinn sólarhring, og virðist svo sem allir aðilar
hafi haldið vopnahléið og þá er unnið af fullum krafti
að því að reyna að tryggja friðinn. Þó hafa tyrkneskar
flugvélar haldið áfram könnunarflugi sínu yfir eyna, þrátt
fyrir hörð mótmæli Kýpurstjómar.
Inönu forsætisráðherra Tyrk-
lands hefur sent Papandreou
forsætisráðherra Grikkja orð-
sendingu, þar sem hann skorar
á Grikki að setjast að samninga-
borðinu með Tyrkjum í Genf og
taka upp beinar viðræður.
Inönu ásakar ríkisstjórn Kýp-
ur fyrir ábyrgðarlausa fram-
komu og segir að forsenda fyrir
samkomulagi hljóti að vera. að
hún taki upp aðra stefnu.
Þá sakar hann Makarios Kýp-
urforseta um að spilla sambúð
Grikklands og Tyrklands. Hann
hvetur til þess, að sáttasemjara
SÞ í Kýpurdeilunni Tuomioja
verði sýnt meira traust.
Forsætisráðherra Bretlands
Alec Douglas Home kveðst nú
vonbetri um að samkomulag
náist með friðsamlegum hætti
og telur hann að viðræðumar,
sem nú eru haldnar í Genf að
Eldflanmkot
Framhald af 1. síðu.
mjög náið samband.
Aðspurður sagði dr. Mozer að
ekki væri unnt að gera þessar
tilraunir nema á örfáum stöðum
á jörðunni og þá einkum í nánd
við norð.urljósabeltin.
Aðrir Frakkar á blaðamanna-
fundinum voru ,þeir Golonka og
Lefevre sem höfðu ásamt Mozer
veg og vanda af framkvæmdum
eldflaugaskotanna.
Vegna þess hve tilnaunir þess-
ar tókust vel er hugsanlegt að
slíkar tilraunir verði gerðar hér
á Íslandi aftur en ekki er enn
víst hvenær það verður.
Alvktun ÆFR
Framhald af 12. síðu.
Framboð Goldwaters er enn-
þá ein sönnun þess, hve nauð-
synlegt er fyrir Islendinga að
losna við bandarísku herstöðina
og þátttökuna í Atlanzhafs-
bandalaginu.
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
hvetur félagssamtök ungs fólks
um land allt, að taka höndum
saman ; og koma í'* veg- fyrir að
Island 'verði " stnðsæs"íhgamönn-
um og öðrum öfgamönnum
Bandaríkjanna að bráð.
Skattaambætur
Framhald af 12. síðu.
móti hækka gjöld Einars verka-
manns um 6.952 krónur. Einar
útgerðarmaður fær 4.979 króna
hækkun, en Einar sjómaður fær
10.458 N króna hækkun. Þessi
dæmi og ótalmörg önnur álíka
kallar Þjóðviljinn skattpíningu
almennings, en skattalækkanir
efnamanna og auðfyrirtækja. Og
erfitt mun fyrir stjómarblöðin
að halda því fram, að ekkert
samhengi sé á miíli þeirra breyt-
inga, sem gerðar hafa verið á
skattalögunum og þess sem nú
kemur í ljós í skattskránni, Og
það skyldi þó aldrei vera, að
það sé einmitt söluskatturinn
og innheimta hans. sem eiga
sinn drjúga þátt í því að ,,skatt-
svik eru orðin svo mögnuð að
þau blasa við margsinnis á
hverri einustu siðu skattskrár-
innar“. Að minnsta kosti fer
Hannes á Horninu ekkert dult
með þá skoðun sína, að það séu
hinir sérlegu skattheimtumenn
Gunnars Thoroddsen, sem fara
fyrir hinum >yfríða“ flokki skatt-
svikaranna
tilhlutan SÞ með fulltrúum
Grikkja, Tyrkja, Bandaríkja-
manna, Breta og Kýpurbúa geti
orðið til þess að haldnir verði
framhaldsfundir fulltrúa Kýpur
með fulltrúum Grikklands.
Tyrklands og Bretlgnds, en þessi
lönd stóðu að Ziirich samkomu-
laginu um Kýpur, sem var und-
irritað 1959 og kvað 'á um sjálf-
stæði eyjarinnar.
Frá Genf berast þær fréttir að
sáttasemjari SÞ í Kýpurdeil-
unni, Finninn Tuomioja búist til
ferðar til höfuðborganna Aþenu,
Ankara og Nikosíu til að vinna
að varanlegri lausn deilunnar.
Utanríkisráðherra Kýpur
Kyprianou kom til Aþenu í dag.
Hann bar fram mótmæli stjóm-
ar sinnar vegna könnunarflugs
Tyrkja yfir eynni og krafðist
þess að því yrði hætt.
Fréttamenn á Kýpur telja að
grískumælandi Kýpurbúar hafi
orðið fyrir miklum vonbrigðum
vegna afstöðu Grikkja í átökun-
om og sé ferð utanríkisráðherr-
ans tíl Aþenu ekki síst tál þess
gerð að ná ftillkominni samstöðu
með grísku rikisstjóminni.
Tyrkneska stjómin hefur lýst
því yfir að hún Hti á árás á
borg Tyrkneskumælandi Kýpur-
búa Kokkina sem árás á Tyrk-
land sjálft.
Nasser forseti Egyptalands hefur
sent Kýpurstjóm orðsendingu,
þar sem hann segir Egypta þess
albúna að veita Kýpur aðstoð
sína til að koma friði og ein-
ingu á í landinu. Hann segir að
öllum erlendum afskiptum af
málefnum eyjarinnar verði að
láta lokið og kvaðst treysta
því. að heilbrigð skynsemi fái
leitt deilumálin til lykta.
19 ár frá fyrstu
atómsprenging-
unni
TOKIO — Þann 6. þessa mán-
aðar voru víða í Japan haldnar
minningarathafnir um þau tug-
þúsund sem fórust einn sólskins-
morgun fyrir 19 árum, þegar
fyrsta atómsprengja í veröldinni
lagði Hiroshima í rúst.
1 tilefni dagsins skýrði sjúkra-
hús fyrir fórnarlömb atóm-
sprengjunnar frá því. að 28
sjúklingar hafi látizt á fyrra
helmingi ársins í ár vegna eftir-
stöðva geislunar frá sprengjunni.
Samtals má rekja 162 dauðs-
föll á þessum árshelmingi til
sprengingarinnar. Það táknar að
fómarlömb sprengjunnar eru nú
orðin 60.974.
SÖLUSKATTUR
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 2. ársfjórðung
1964, svo og hækkanir á söluskatti eldri tímabila,
, hafi gjöl.d þessi ekki .verið greidd í síðasta lagi
15. þ.m.
Að þeim degi liðnum verður stöðvaður án frekari
aðvörunar atvinnurekstur þeirra, sem eigi hafa þá
skilað gjöldunum.
Reykjavík, 11. ágúst 1964.
íollstjóraskrifstofan.
Gam/ar bækur
Kaupi gamlar og vel með famar íslenzkar bœkur.
— Einnig íslenzk tímarit.
Hvergisgötu 16.
Guðjón Guðjónsson,
Flugsýn h.f. simi 18S23
FLUGSKÓLI
Kennsla fyrir einkaflugpróf — atvinnuflugpróf.
Kennsla í NÆTURFLUGI
VTTRLANDSFLUGI
BLINDFLUGI.
Bóldeg kennsla fyrir atvinnuflugpróf byrjar í nóvember
og er dagskóli. — Bókleg námskeið fyrir einkaöugpróf,
vor og haifst.
FLUGSÝN h.f. sími 18823.
Ráðskona í matsal óskast
Staða ráðskonu í matsal Landsspítalans er laus til
umsóknar frá 1. nóvember 1964. Laun samkvæmt
kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsókn-
ir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf
sendist til skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg
29, fyrir 30. september 1964.
Reykjavík, 10. ágúst 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Forstöðumannsstaða
Staða forstöðumanns við Gæzluvistarheimilið í
Gunnarsholti er laus til umsóknar frá 1. október
1964. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, námsferil og fyrri störf sendist til Skrif-
stofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 15. sept-
ernber 1964.
Reykjavík, 10. ágúst 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna.