Þjóðviljinn - 27.08.1964, Page 3
Fimmtudagur 27. ágiist 1964
ÞI6ÐVILIINN
SÍÐA 3
Hershöfðingjarnir í Saigon
Framhald aí 1. síðu.
miðbik landsins eru henni gjör-
samlega andvígir.
Stúdentarnir í Hue halda því
fram, að hershöfðingjaklíkan
hafi ekki nokkurn rétt til þess
að kjósa nýjan þjóðhöfðingja og
hafa þeir veitt hershöfðingja-
klíkunni 24 tíma frest til þess
að leysa upp byltingarráð sitt.
1 yfirlýsingu sem lesin var í
hátalara, var þess ennfremur
krafizt sérstaklega að Khanh
hershöfðingja og mörgum öðrum
foringjum hersins yrði refsað.
Því var haldið fram að þeir
hefðu verið meðlimir í Can Lao.
sem var leynilegur flokkur Dien
Diem fyrrverandi forseta. Khanh
hershöfðingi hefur mótmælt
þessu.
Ný kröfuganga
I, dag fóru 2000 starfrmerin
ríkisins í kröfugöngu sem stefnt
var gegn þriðjudagsyfiriýsing-
unni, þeir héldu þvi fram að
hún vœri loðin og aðeins til þess
gerð að fela aðrar aðgerðir.
1 Saigon var því veitt athygli
að „stóri Minh” þ.e. Duong Van
Minh hershöfðingi sem komst til
valda eftir uppreisn gegn stjóm
Diem í fyrra. tók þátt í fundi
hershöfðingjanna í dag.
í dag bárust nýjar fréttir af
mannsköðum í sambandi við
mótmælaaðgerðimar í síðastlið-
inni viku. í bænum Da Nang
létu að minnsta kosti sjö manns
lífið í bardögum milli Búddha-
trúarmanna og Kaþólikka. Góð-
ar heimildir telja þó joessa tölu
oíý lága og em s;;/ikráhúsin í
bænum troðfull.
Um 2000 Kaþólikkar eru
heimilislausir, því hersveitir
stjórnarinnar brenndu þorpið
Due Lui, sem þeir bjuggu i, til
kaldra kola.
Á mánudag hófust mótmælaaðgerðir um allt Indland vegna skorts
á Iífsnauðsynjum og hækkandi verðs á matvöru. Kommúnista-
flokkur Indlands hefur skipulagt þessar aðgcrðir, en yfirvöldin
svöruðu með handtökum. I gær voru 3000 manns handteknir, þeirra
á meðal formaður kommúnistaflokksins Dange og formaður flokks-
ins í efri deild indverska þingsins. En friðsamlegum mótmælaað-
gerðum er haldið áfram um allt land, og þúsundir manna sitja
fyrir framan banka, kauphallir, stjórnarskrifstofur og kornverzl-
unarfyrirttæki í öllum stærstu borgum. Myndin hér að ofan er af
verkfallsmönnum i Nýju Delhi.
Samanlögðu stólana
eftirsóttu, sem komu með Selfossi.
UPPSELDIR.
Pantanir sækist í þessari viku.
Yerð aðeins kr. 240
Tökum á móti nýjum pöntunum.
Borgarfell hf.
Laugavegi 18 — Sími 11372.
Longo kosinn formaður
ítalskra kommúnista
RÓM 26/8 — Miðstjóm ít-
alska kommúnistaflokksins
kaus Luigi Longo formann
flokksins í dag.
Strax að lokinni kosningu
lýsti Longo því yfir, að hann
mundi leitast við að stjóma
flokknum í sama anda og
Palmiro Togliatti hefði gert.
Luigi Longo fæddist 15.
fnarz árið 1900 í fátækri
bóndafjölskyldu í Fubine
Monferrato.
Hann stundaði verkfræði
og tók þátt í síðasta hluta
fyrri heimsstyrjaldar, þar
sem hann barðist í fótgöngu-
hðinu.
1921 var hann fulltrúi Tor-
ino á þingi sósíalista í Liv-
omo, þar sem kommúnista-
flokkur Italíu v^r stofnaður.
Sama ár var hann gerður að
foringja æskulýðsfylkingar
kommúnista í Torino og ná-
grenni.
Þegar Mussolini komst til
valda varð þessi æskulýðs-
hreyfing að starfa neðanjarð-
ar sem andspymuhreyfing.
Frá 1926 hefur Longo unn-
ið með Togliatti, sem gerðist
þá leiðtogi flokksins.
1933 fór Longo að starfa
með franska kommúnista-
anum Andre Marty að því að
skipuleggja alþjóðlegar her-
sveitir til þátttöku í spænská
borgarastríðinu. Longo barð-
ist í spánarstyrjöldinni og
var særður. 1936—39 var
Neyðarástand í
Suður-Rhodesíu
Luigi Longo
al-
hann æðsti yfirmaður
þ j óðahers vei tanna.
Eftir fall Frakklands 1940
var Longo, sem hafði sefið
þar í fangelsi, sendur til ít-
alíu þar sem hann var settur
í útlegð á afskekkta eyju.
Þegar stjóm Mussolini féll
1943 gerðist Longo foringi
skæraliða. Hann varð brátt
næstæðsti yfirmaður hinna
skipulögðu skæraliðasveita á
ítalíu, ^sem Rafael Cordona
hershöfðingi stjórnaði.
Eftir stríð hefur Longo ver-
ið hægri hönd Togliatti og
sjáldan komið fram nema
með honum.
Humphrey líklegt
varaforsetaefni
ATLANTIC CITY — 26/8 —
Síðasta undirbúningi á flokks-
þingi Demokrata fyrir kosningu
forseta og varaforsetaefnis var
lokið í kvöld. Búizt er við að
Johnson forseti verði kosinn í
nótt og varaforsetaefnið útnefnt
nokkram klukkustundum síðar.
Bugene McGarthy öldungar-
deildarþingmaður. sem talinn
hefur verið líklegur sem vara-
forsetaefni hefur sent Johnson
forseta skeyti. þar sem hann
mælir mjög með Hubert Humph-
rey öldungardeildarþingmanni
frá Minnesota og telur hann
uppfylla öll skilyrði sem forset-
inn geri til varaforsetaefnis síns.
.d’ess vegna legg ég til að
hann verði einkum hafður í
huga”. segir í skeytinu.
Johnson forseti kemur ekki
sjálfur á flokksþingið fyrr en
á fimmtudag, sem er síðasti
dagur þingsins, til þess að halda
ræðu eins og venja er að ný-
kjörið forsetaefni geri.
Johnson forseti verður 56 ára
á fimmtudag.
Ágreiningurinn um afstöðu
flokksins til kynþáttamálanna
getur varpað skugga yfir flokks-
þingið. öll sendinefndin frá
Mississippi, að þrem mönnum
undanteknum, gekk af þinginu
í gær. Eingöngu hvítir menn
vora í nefndinni. Eftir það komu
fulltrúar hins svonefnda frelsis-
flokks í Mississippi, flestir þel-
dökkir inn í salinn og settust í
auðu sætin.
♦
En þetta olli' ekki neinum
vandræðum í sambandi við af-
greiðslu stefnuskrárinnar en hún
var samþykkt með lófataki.
Hvíta sendinefndin frá Miss-
issippi gekk af þinginu vegna
þess að kjörbréfanefnd hafði
reynt að fá meðlimi hennar til
að skrifa undir trúnaðaryfiriýs-
ingu við flokkinn.
Fulltrúar frá Alabama. sem
eru einnig mótsnúnir stefnu
flokksins í kynþáttamálum skrif-
uðu heldur ekki undir þessa yf-
iriýsingu.
SALISBURY 26/8 — Yfirvöld-
in í Suður-Ródesíu lýstu í dag
yfir neyðarástandi í borgarhluta
blökkumanna í Highfield
skammit utan við Salisbury og
jafnframt voru tveir þjóðernis-
sinnaflokkar blökkumanna bann-
aðir í landinu.
Neyðarástandið á að standa í
þrjá mánuði.
Nathaniel Sithole formaður
Zimbábune. sem er annars stjóm-
málaflokka blökkumanna, sem
bannaður var í dag, skoraði á
afríska íbúa Suður-Rhodesíu að
verða sér úti um vopn, til að
berjast gegn einhliða sjálfstæðis-
yfiriýsingu ríkisstjómarinnar í
landinu. Einnig var skorað á
blökkumenn að taka peninga
sína úr bönkum og greiða ekki
skatta fyrr en afrískri stjóm
hefði verið komið á.
Þá áttu foreldrar í borgum að
halda börnum sínum frá skólun-
um.
Handtökur
Hermenn og lögreglusveitir
umkringdu borgarhlutann High-
field og í öðram hlutum Salis-
bury vora lögreglusveitir efldar
mjög.
Lögreglan handtók 90 hvíta
og þeldökka stúdenta fyrir utan
þinghúsið. Hinir handteknu
höfðu safnazt þar saman til að
mótmæla þingtillögu um það. að
banna blaðið Daily News, sem
hefur stutt málstað blökku-
manna.
Dagblað bannað
Ráðherra laga og reglu D. W.
Larder Burke sagði í þinginu
frá því, að lögreglan hefði hand-
tekið marga í Highfield og sett
í fangabúðir. Hann sagði einnig
að flokkar þeir sem hefðu ver-
ið bannaðir „The Peoples Care-
! taker Counsil” PCC og „Þjóð-
| lega afríkusambandið” Zimbabwe
væru ekki fulltrúar meirihluta
þjóðarinnar.
Hann hélt þvi fram að væri
Daily News ekki bannað gæti
komið til upplausnar og blóðsút-
hellinga í stórum stíl.
Ritstjóri blaðsins Eugene
Wasson og útgefandinn Deryk
James lýstu því yfir í sameig-
inlegri yfiriýsingu, að blaðið
PáHpáfi telurþað tálsýn
að vígbúnaður tryggi frið
ASTELGANDOLFO, Italíu 26/S hugamálum og hagsmurram
— Páll páfi ávarpaði pílagríma
í dag og ræddi um frið á jörð.
„Góðviljaðir menn hlýðið á
auðmjúka rödd bróður og föður,
sem hugsar stöðu'gt til hinna ör-
lagaríku ára 1914 og 1939”,
I sagði Páll páfi í ræðu sinni.
i Hann sagði að virðing fyrir
hefði aldrei hvatt til undirróð- manngildi og bróðurkærieika
ursstarfsemi.
yrði að standa Öllum öðrum á-
Fundur Laosprinsa
hefst á föstudag
framar.
Hann benti á vígbúnaðarkapp-
hlaupið, og hvað það ertt af
meginorsökum klofnings og bar-
áttu milli ólíkra þjóða.
,,Sú tálsýn er aftur að ná
tökum á mönnum. að ekki sé
hægt að tryggja friðinn með
öðru móti, en hinum nýju stór-
virku sjálfsmorðsvopnum. Jafn-
framt því sem skynsamar, en
ekki sérlega sterkar raddir ræða
það, hvað hægt sé að gera til
þess að takmarka og afnema
vígbúnað, er hernaðarvélin stöð-
ugt aukin og undirbúin,” sagði
hann.
PARIS 26/8 — Súvanúvong leið-
togi Pathet Lao, sem kom til
Parisar í gær átti viðræður við
kínverska sendiherrann í París
í dag.
Seinna lýsti Súvanavong því
yfir að samningafundur hinna
þriggja stjórnmálahreyfinga í
Laos, þeirrar sem hann stjórn-
ar, hlutleysissinna og íhalds —
munu hefjast við ákjósanleg skil-
yrði, og sagði andrúmsloft vera
gott.
Aðilar ætla meðal annars að
ná samkomulagi um sameigin-
lega sendinefnd þeirra til nýrrar
14 ríkja ráðstefnu um ástandið
í Laos.
Hann var að því spurður
hvort hann teldi að mögulegt
yrði að kalla saman þess hátt-
ar ráðstefnu á þessu ári og i
svaraði því til, að leiðtogamir |
væru komnir til Parisar í þeim
tilgangi.
Það fyrsta sem við þurfum að
gera er að ná samkomulagi um
sendinefndina og þá verðum við
að leggja okkur fram til þess
að slík ráðstefna verði kölluð
saman sem fyrst, sagði hann.
Leiðtogi hlutleysissinna Súv-
'-nna Fúma er einnig kominn
til Parísar og búizt var við
vomu leiðtoga íhaldsmanna Bún
Úm til Parísar seint í kvöld.
Samkvæmt fréttatilkynningu
sendiráðs Laos í París er áætl-
að að samningafundir hreyfing-
anna þriggja hefjist á föstudag.
Súvanna Fúma hefur sagt að
undirbúningsfundir hefjist strax
eftir komu Bún Úm til Parisar.
ADEN 26/8 — Imaninn af Jam-
en Mohammed A1 Badr er flú-
inn úr felustað sínum í fjöll-
unum, eftir að hafa beðið mik-
inn ósigur í bardögum í fyrri
viku í norður hluta Jemen.
Samkvæmt útvarpsfregnum
hafa hermenn frá Jemen og Eg-
yptalandi unnið mörg fjalla-
svæði og náð á sitt vald mikl-
um vopnabirgðum.
Pilot 57 er
slcolapenni,
traustur,
fallegur,
odyr.
PILOT
_____57
8 litir
3 breiddir
Fæst víða um land
Verkfall á Indlandi
Tókum upp í gœr