Þjóðviljinn - 27.08.1964, Blaðsíða 6
OTG.: ÆSKULYÐSFYLKINGIN — RITSTJÖRAR: HRAFN MAGNÚSSON,
RÖGNVALDUR HANNESSON OG SVAVAR GESTSSON.
g SlÐA
— HÖÐVILIINN
★
Gísli Bjömsson segir frá
WA Y-þingi í Bandaríkjunum
Tíðindamaður Æskulýðssíð-
unnar átti stutt viðtal við Gísla
B. Björnsson teiknara skömmu
eftir komu hans frá Banda-
rikjunum. Eins og getið hefur
verið um hér í blaðinu fóru
6 menn utan á vegum Æsku-
lýssambands Islands til að sitja
l>ing WAY . World Assembly
of Youth. sem haldið var í
Amherst í Massaschussetts i
Bandaríkjunum.
Segja má að ferð þeirra fé-
laga hafi gengið að óskum. en
þei?n mun ver gekk að fá vega-
bréfsáritun fyrir ákveðna að-
ila. Voru það einkum tveir
tnenn sem eriiðlega gekk að
ná í vegabréfsáritun fyrir.
Annar virtist það eitt hafa til
saka unnið að vera rauðhærð-
ur, en hinn hafði 'gengið sam-
tökum sósíalista á Islandi á
hönd, og mun það vera hin
mesta svívirða samkvæmt áliti
forystumanna í Guðs eigin landi.
Gísli hyggst skrifa ítarlega
um Ameríkuferð sína í næsta
tölublað Neista. sem kemur út
í september. en hér verður að-
eins stiklað á stóru.
Hér fara á eftir helztu atriði
úr frásögn Gísla:
— Lagt var af stað frá
Reykjavík 28. júlí til Keflavík-
ur eftir að hafa fengið alls-
kyns torkennileg tákn í vega-
bréf mitt. Prá Keflavík var
flogið sem leið liggur til New
Á myndinni má sjá fulltrúa Æskulýðsráðs fslands á WAY þinginu frá vinstri: Ingi B. Ársæls-
son (sem er kosinn í framkvæm'danefnd CENYC), Hörður Gunnarsson formaður ÆSÍ, Benedikt
Blöndal SUS, Gísli B. Björnsson ÆF, örlygur Geirsson, varaformaður ÆSf og Sigurður Jörg-
ensson gjaldkeri ÆSf.
York og þar var strax tekið
á móti mér með spurningum
um hvort ég væri meðlimur
í íslenzka kommúnistaflokknum
o.þ.h. En klakklaust komst ég
samt í gegnum nálaraugu eft-
irlits þessa og vorum við síð-
an boðnir velkomnir í New
York af fulltrúum Æskulýðs-
sambands Bandaríkjanna. Og
dvöldum við á vegum þess í
þrjá daga og gistum í Colom-
bía háskóla á Manhattan.
Þann 31. var svo haldið til
Amherst sem er alls sex tíma
ferð í hraðbil. Er þangað var
komið var hafizt handa við
að skrá mannskapinn og tók
sú skráning 4—5 tíma. Það
var reyndar ekki nema byrj-
Framhald á 8. síðu.
________________Fimmtudagur 27. ágúst 1904
FylkingarfréHir
Ferð ÆFH út í
bláinn
Fylkingardeildin í Hafnarfirði
fór miðvikudaginn 19. ágúst í
kvöldferð út í bláinn. Þátttak-
endur úr Hafnarfirði voru nær
30. Var farið í skála Æskulýðs- .
fylkingarinnar undir Drauga-
hlíðum. Þar dvöldu ferðalang-
arnir fram yfir miðnætti við
söng, leiki og einnig var dans-
að. Mikil ánægja ríkti með
þessa fyrstu ferð ÆFH en
hingað til hefur deildin tekið
þátt í ferðalögum með deild-
inni í Reykjavík.
Næsta verkefni deildarinnar
er að undirbúa mótttöku full-
trúa á 21. þing ÆF sem hald-
ið verður í Góðtemplarahúsinu
í Hafnarfirði í lok september.
Mun deildin hafa veg og vanda
af þinghaldinu. Á næstunni
Verður haldinn félagsfundur í
deildinni og þar kosnir full-
trúar deildarinnar á ÆF-þing-
ið.
Skrifstofan
Nú hefur verið ákveðið að
hafa skrifstofu Æskulýðsfylk-
ingarinnar í Tjamargötu 20
opna allan daginn frá klukk-
an 10 á morgnana. Hefur
starfsmaður verið ráðinn tij
þessara starfa og mun' gegna
þeim fram til þings ÆF, í sept-
ember.
Sambandsþing ÆF
Enn eru fréttir af þinginu
í Hafnarfirði dagana 25.—27.
september. Ákveðið hefur ver-
ið að halda það- í Góðtempl-
arahúsinu þar og er þegar haf-
izt handa við undirbúninginn.
Deildir ÆF úti um land munu
flestar halda fundi í byrjun
sept. og kjósa þá fulltrúa á
þingið. Vonir standa til að
nokkrar nýjar deildir vérði
stofnaðar innan skamms. Drög
að ályktunum þingsins munu
brátt verða send til deilda svo
fulltrúum gefist kostur á að
kynna sér mál þingsins sem
bezt. títlit er fyrir. að þetta
þing ÆF verði mjög fjölsótt.
Aðalfundur ÆFR
Að öllum líkindum verður
aðalfundur Æskulýðsfylkingar-
innar í Reykjavík haldinn í
næstu viku, Uppstillinganefnd
hefur senn lokið störfum og
verið er að leggja smiðshögg-
ið á allan annan nauðsynleg-
an undirbúning. Æskulýðs-
isíðan náði- tali af formanni
Æ.F.R. á skrifstofu samtak-
anna í Tjamargötu 20 og
spurði hann nánar um aðal--
fundinn. Formaður. Olafur
Einarsson, tjáði síðunni að öll-
um undirbúningi miðaði sam-
Ifvæmt áætlun og mikil bjart-
sýni ríkti meðal félaga um
starfsemi hreyfingarinnar á
vetri komandi. Aðspurður kvað
Olafur aðalfundinp vera að því
leyti sérlega mikilvægan, að á
ronum færi fram kosning
fulltrúa á 21. þing Æ.F., sem
haldið verður dagana 25.—27.
september.
Félagsheimili ÆFR
□ Æskufólki skal bent á félagsheimili Æsku-
lýðsfylkingarinnar, Tjarnargötu 20, uppi,
□ Það er opið mánudaga, þriðjudaga, fimmtu-
daga og föstudaga frá kl. 20.30 til 23.30.
□ í félagsheimilinu er hægt að fá keyptar
veitingar á vægu verði. Ennfremur er hægf
að stytta sér þar stundir við tafl, spil og
lestur góðra bóka.
□ Komið og reyníð viðskiptin.
Jliiliifai
ÍllÍIÉtyet a niajority of the people of the |
have incomes of Iess. than $80 a year. Under
||such conditions, comnumism, with its false and easy
j promises of a magic fórmula, might well be able to
jtransform these popular desires into.an instrúment
| of revölution. That is why every American who is
cóncerned about the future of his country must also
be concerned about the future of Africa, Asia, and
our old friends in Latin America.
Cr ræðu Johnsons Bandaríkjaforscta
okkar“.
mmw
Hugur og hönd Iandsins
íslenzk æska sameinist til stuðnings
baráttunni gegn hungrí og sjúkdómum!
Fyrir nokkru vöknuðu Sam-
bönd ungra Sjálfstæðismanna
og Framsóknarmanna upp við
vondan draum. Fjölmargir íbú-
ar heimsins liðu fæðuskort og
hungur. Þau hrppuðu á æsku-
lýðssíðum málgagna sinna á
aðstoð við þróunarlöndin og
herferð gegn hungri. Hvort
tveggja eru þetta vinsæl slag-
orð. En það er ekki meðaumk-
un með hinum soltna og sjúka
sem er undirrót þcssara skrifa
Mannúðin var aðeins á yfir-
borðinu, hitt var sýndar-
mennska.
En undirrót yfirborðpmennsk-
unnar og orðagjálfursins er
óttinn. Ritstjórar æskulýðssíða
borgarablaðanna höfðu lesið
eða heyrt að sósíalisku ríkin
hefðu gefið fátæklingum í van-
þróuðu ríkjunum mat að borða
og jafnvel vélar til að vinna
gjafir jarðarinnar. MeS þessu
móti er hætt við að sósíalist-
ar vinni þjóðir í Afríku, Asíu
og Ameríku til fylgis við sig
og slíkt má ekki gerast.
Það er erfitt að fá upplýs-
ingar um lífið í þróunarlönd-
unum. En vitað er að íbúar
þeirra búa oft við hin hörmu-
legustu skilyrði. sem eru svo
erfið að þau eru raunverulega
tilvera á milli lífs og dauða,
hungurs og sjúkdóma. Flestir
deyja á aldrinum 30—40 ára
En sem betur fer vita þess-
ir þegnar jarðarinnar mæta vel
um mismuninn á milli lífs-
kjaranna í Bretlandi og Frakk-
landi t.d. annars vegar og í
fyrrverandi nýlendum og hálf-
nýlendum hins vegar,
Ömurlegt ástand
Misrpunurinn á milli þróun-
arlamdanna og auðvaldsríkj-
anna hefur aukizt í stað þess
að minnka á síðustu árum,
Samkvæmt útreikningum þjóð-
félagsfræðinga og hagfræðinga
eru næstum60% af íbúmjarð-
arinnar vannærðir og þeir eru
flestir í þróunarlöndunum. I
mörgum þessara landa hefur
lífsafkoma versnað og at-
vinnuleysið aukizt. Þó svo að
lífsafkoman hafi batnað I
sumum landanna þá hefur bil-
ið á milli lífsafkomu þeirra
og afkomu hinna kapitalísku
þjóða stóraukizt. vegna þess að
framfarir hafa verið miklum
mun stórstígari í hinum síð-
arnefndu. Þannig hefur t.d.
mismunurinn á milli Banda-
ríkjanna og Indlands tvöfald-
azt á síðasta aldarfjórðungi.
þ.e. frá 1038. Hlutfallið var
þé 15:1 en er nú 36:1,
í byrjun ársins 1964 gaf ÍLO,
Intemational Labor Organisa-
tion. út árbók ársins 1963 um
efnahag laimþega hvarvetna i
heiminum. Árbókin sýnir, að
mismunurinn milli efnahags
verkamanna í þróunarlöndun-
um og í kapítalískum ríkjum
hefur aukizt. Þróunarlöndin
líða fyrir dulið og opinbert
atvinnuleysi og þvi fylgir oft
verðhækkun á neyzluvörum,
sem er allt að 80 eða 100%
i ýmsurn löndum Suður-Amer-
íku.
Framtíðin
Þetta ástand í þróunarlönd-
unum — ef ekki verða róttæk-
ar breytingar — er líklegt til
að ríkja enn um sinn. 1 sum-
um löndum Asíu og Suður-
Amerfku hefur fjöldi fæddra
stöðugt aukizt á meðan dán-
artölur, sérstaklega barna,
hafa lækkað. Þetta hefur í för
með sér aukningu ibúanna,
sem orsakar við þessar aðstæð-
ur oft ýmis vandamál og erf-
iðleika.
Til að komast hjá versnandi
lífskjörum í þeim löndum, þai
sem fólksfjölgunin er mest,
eins og Indónesíu og Indlandi
verður þjóðarframleiðsla þess-
ara landa að vaxa um fimm
af hundraði á ári. Engin slík
aukning getur orðið viö núver-
andi skipulag og aðstæður.
Endanleg lausn
Lausn núverandi- og fram-
tíðarvandamála þróunarland-
anna er háð breytingum sem
eigi sér stað í innanlandsmál-
um þessara landa og erlendri
efnahagsaðstoð. ,
Fyrrverandi nýlenduveldi eru
nú háþróuð kapítalísk ríki
og það eru þau sem eru sögu-
lega ábyrg fyrir ástandi þró-
unarlandanna og ber siðferði-
leg skylda til að bera megin
byrðamar af ófremdarástand-
inu og að lagfæra það. Sum
þróunarlöndin fá reyndar að-
stoð frá kapítalískum ríkjuin
sem ýmist er til gagns en því
miður afar oft ekki.
Sósíalísku ríkin hafa veitt
þróunarlöndunum aðstoð, en
ekki nægilega mikla enda er
geta þeirra takmörkuð enn
sem komíð er. Mörg sósíalísku
Framhald á 9 síðu.
ÆFR—Skálaferð—ÆFH
* Æskulýðsfylkingardeildirnar í Reykjavík og Hafnarfirði efna til
ferðar í skíðaskála hreyfingarinnar í Sauðadölum um næstu helgi.
* Farið verður frá Tjarnargötu 20 kl, 4 e.h. á laugardag og komið
í bæinn á sunnudag. Farið verður í gönguferðir um nágrennið.
* Um kvöldið verður kvöldvaka og dans. Þátt’töku ber að tilkynna
á skrifstofu ÆF í Tjarnargötu 20, sími 17513. Skrifstofan er opin
alla virka daga frá 10 til 12 árdegis og 1 til 7 síðdegis
ÆFR — ÆFH.